Dagur - 31.03.1987, Blaðsíða 8

Dagur - 31.03.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 31. mars 1987 31. mars 1987 - DAGUR - 9 Sitthmð m pólitík - Hvað gerir svo kosninga- stjóri Alþýðubandalagsins á Blönduósi? „Þetta er nú nokkuð fjölbreytt. Alþýðubandalagið gefur út blað hérna í kjördæminu og starfið kemur til með að tengjast því nokkuð, bæði efnisöflun og aug- lýsingar og jafnvel innheimta. Oflun fjár til að standa straum af kosningabaráttunni verður ábyggilega töluverður póstur. Við erum að fara af stað með vinnu við kjörskrá og við utan- kjörstaðaatkvæðagreiðslu, og svo að skipuleggja fundi. Þetta er nú svona það helsta sem ég man núna, en þetta breytist kannski eftir því sem nær dregur kosning- unum.“ - Skipuleggur þú þá fundi sem haldnir verða hér í nágrenninu á næstunni? „Eg mun skipuleggja þá já. En þetta er unnið í samráði við aðrar kosningaskrifstofur sem við erum með í kjördæminu.“ - En hvað kemur til að þú ræðst í þetta starf? „Það var fyrst og fremst það að ég hafði tækifæri til þess núna að gefa mig út í þetta. Þetta er áhugavert starf og gott að kynn- ast þessari hlið á flokksstarfinu.“ - Fjármagnarðu þetta með þinni vinnu, þannig að til verði laun handa þér fyrir þitt starf? „Ég stefni að því að þessi kosn- ingabarátta komi ekki út með halla þannig að það verði kannski eitthvað eftir til að borga kostnað varðandi skrifstofuhaldið.“ - Hvernig líst þér á allar þess- ar hræringar í pólitíkinni og þann fjölda framboða sem verður t.d. hér í kjördæminu? „Mér líst illa á þau framboð sem eru dauðadæmd fyrirfram, þá eru menn að kasta atkvæði sínu." - Eyðilcggur þetta fyrir ykkur? „Sum þeirra. Ég lít á að Það er skrítin tík þessi pólitík. Það er ekki nóg með að þeir sem stundum eru kallaðir „venjulegt fólk“ eigi hálferfitt með að skilja hana, heldur hcfur hún nú, eins og stundum áður, tekið upp á því að geta af sér afkvæmi svo ótt að tæpast hafa menn lært nafn þess síðasta þegar annað er komið. Þrátt fyrir þetta eru margir sem hafa gaman af pólitíkinni og hjá sumum virðist hún vera einhvers konar árátta. í tilefni allrar þeirrar pólitísku umræðu sem nú fer fram og stafar auðvitað af yfir- vofandi kosningum og óvenjumikilli frjósemi „tíkarinnar“, ákvað Dagur að forvitnast svolítiö um þessi mál. Þeir sem best ættu að þekkja til þessara mála hljóta að vera svokallað- ir kosningastjórar, að minnsta kosti finnst manni líklegt að fáir viti betur hvernig pólitískt starf fer fram. Því varð úr að farið var í lítið ferðalag og kosningastjórar flokkanna á Blönduósi heimsóttir. Þorleifur Ingvarsson - Að lokum Valdimar, hvern- ig verða lokatölurnar í kjördæm- inu? >»Ég á nú bágt með að gefa upp nokkrar tölur, en það er ljóst að baráttan mun standa á milli Elín- ar og Jóns Sæmundar. „Áhugavert starf“ Örstutt frá hótelinu er svo kosn- ingaskrifstofa Alþýðubandalags- ins, nánar tiltekið í húsinu númer eitt við Aðalgötu. Þar ræður ríkj- um annar bóndi, Þorleifur Ingv- arsson. - Ert þú kosningastjóri Alþýðubandalagsins í Austur- Húnavatnssýslu? „Já að undanskilinni Skaga- strönd, þar verður opnuð skrif- stofa sem sér um það svæði.“ Fjórir efstu á B-lista í Norðurl. vestra. „Gaman að þessu“ Heimsóknin hófst á kosninga- skrifstofu Framsóknarflokksins á Blönduósi, sem er til húsa í húsi sem heitir Blanda og er á bak við Hótel Blönduós. Á þessari skrif- stofu ræður ríkjum Valdimar Guðmannsson sem er bóndi að aðalatvinnu en starfar sem sagt sem kosningastjóri þessar vikurn- ar. - Valdimar, hvað gerir kosn- ingastjóri? „Það er nú sjálfsagt breytilegt og fer kannski mest eftir þeim sem eru í starfinu. Svona framan af er ég nú helst að fylgjast með ýmsu í sambandi við þetta, t.d. hvað er að gerast hjá hinum flokkunum. Svo kemur að utan- kjörstaðakosningunum, þá þarf að hafa samband við okkar fólk sem ekki verður heima á kjördag og biðja það um að kjósa áður en það fer burt. Og svo eru það þeir sem eru í útlöndum. Það er reynt að ná sambandi við þá líka og þeir hvattir til að kjósa hjá ræðis- mönnum eða sendiráðum." - Þú talaðir um að fylgjast með því sem hinir flokkarnir væru að gera. Eru þetta einhvers konar njósnir á milli flokkanna, eða hvað ertu að gera? „Maður safnar saman blöðum sem þeir gefa út og reynir að fylgjast með því hvernig þeir ætla að haga sínum áróðri í kosn- ingabaráttunni, o.fI.“ - Hefurðu oft verið kosninga- stjóri? „Þetta er í þriðja skiptið sem ég er í þessu.“ - Hvað er það sem fær þig til að vera kosningastjóri við póli- tískar kosningar? „Það er bara gaman að þessu, og ég hef gaman af öllum kosn- ingum. Ef maður hefur áhuga fyrir að berjast fyrir ákveðnunt frambjóðanda eða flokki, þá er þetta ofsa spennandi. Ég byrjaði fyrir átta árum, og þá vannst ein- mitt það kraftaverk að koma Ing- ólfi á þing. En flestir töldu það útilokað og reiknuðu hann úti í kuldanum. Það var afskaplega skemmtilegt verk. Og mér sýnist þessar kosningar ætla að verða afskaplega skemmtilegar.“ - Hvað finnst þér sem kosn- ingastjóra stærsta flokksins í kjördæminu, um öll þessi fram- boð sem verða núna? fólks úr okkar röðum en það bara gefur sig ekki út í þetta. Ég held að það muni koma vel í ljós þeg- ar líður á kosningabaráttuna að við stöndum mjög vel saman.“ - Hver eru helstu sérhún- vetnsku atriðin í kosningabarátt- unni hjá Framsóknarflokknum? „Það er náttúrlega númer eitt að koma Elínu á þing. Við teljum að fólk hljóti að sjá það að hún er eina konan á framboðslistunum sem hefur raunverulegan mögu- leika til þess að ná þingsæti. Framsóknarmenn halda áfrant af krafti að vinna að sínum máluin hér, og þar eru atvinnumálin númer eitt og þá á ég bæði við atvinnumálin í þéttbýli og í sveit- unum.“ - Sjávarútvegsráðherra sagði á t'undi á Hvammstanga fyrir nokkru að hann vildi frekar vera talinn púkalegur sveitamaður, en að taka þátt í uppákomum og karnívölum eins og viðgengjust hjá sjálfstæðismönnum og krötum. Eru framsóknarmenn púkalegir sveitamenn? „Ég held að framsóknarmenn séu ekkert púkalegir, en hins vegar veit ég það að þeir vilja geta staðið við það sem þeir segja, en eru ekki mikið gefnir fyrir skrum í kringum sinn mál- flutning. Hins vegar get ég upp- lýst það að það er stefnt að því að halda einn dansleik í hverju kjör- dæmi fyrir kosningar, og þangað verður þeim boðið sem eru að kjósa í fyrsta skipti. “ „Maður hefur haft vissar áhyggjur af þessu, en við fram- sóknarmenn höfum sloppið vel miðað við aðra flokka, við það að missa fólk úr okkar röðum á þessa nýju lista. Það virðist fara frá öllum öðrum flokkum frekar, það hefur svo sem verið leitað til Ólafur Hvrmannsson Kvennalistinn t.d. tengist Alþýðubandalaginu verulega þannig að það eru sömu atkvæða- miðin sem róið er á. Það er eina framboðið sem ég tel að taki eitthvað verulega frá Alþýðu- bandalaginu.“ - Treystirðu þér til að skjóta á úrslitin í kjördæminu? „Ég held að Framsókn tapi töluverðu fari niður í 1900 atkvæði en nái samt tveimur mönnum, Sjálfstæðisflokkurinn tapar atkvæðum, bæði út á Vil- hjálm Egilsson, sem er ekki sterkur kandídat og svo tekur framboð Borgaraflokksins tölu- vert frá þeim. Svo að ég tel að það séu töluverðar líkur á því að Alþýðubandalagið verði stærra hérna en Sjálfstæðisflokkurinn. Kratarnir eru í sókn á landsvísu og ég geri ráð fyrir að þeir fái 7-800 atkvæði hérna og standi kannski næstir jöfnunarmanni. Alþýðubandalagið fær svona 13-1500 atkvæði, þannig að það er möguleiki á jöfnunarmanni. „Höldum okkar“ Þá var aðeins ein kosninga- skrifstofa eftir á staðnum, þ.e. kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- flokksins. Hún er til húsa að Brekkubyggð 18 og kosninga- stjórinn heitir Ólafur Hermanns- son. - Fyrsta spurningin er, yfir hvaða svæði nær þessi skrifstofa, Ólafur? „Hún nær til Blönduóss og sveitanna hér í kring, eða nánar tiltekið meirihlutans af Austur- Húnavatnssýslu.“ - Hefurðu verið kosninga- stjóri áður? „Nei, en ég hef unnið töluvert við kosningar áður.“ - Og í hverju er vinnan aðal- lega fólgin? „Það er þetta hefðbundna. Utankjörstaðakosningin tekur töluverðan tíma til að byrja með, eins og alltaf, og svo eru það bara þessi hefðbundnu störf.“ - Ætlið þið að gera eitthvað öðruvísi núna en til dæmis í síð- ustu kosningum? Valdimar Guðmannsson „Ég reikna með því já, að við gerum meira. Við ætlum að vinna vel fyrir þessar kosningar, og ekki láta okkar eftir liggja í bar- áttunni.“ - Eruð þið með eitthvað sér- stakt í huga fyrir unga fólkið sem er að fara að kjósa í fyrsta skipti? „Já, annar maður á listanum er með ýmislegt í pokahorninu í því sambandi, sem á eftir að koma í ljós.“ - Olli framkominn listi Albertsmanna hér í kjördæminu þér vonbrigðum? „Já, auðvitað urðu það von- brigði. En ég hef ekki trú á að það hafi mikil áhrif á okkar fylgi hér, einhver kannski, en ekki veruleg.“ - Á hvaða mál mun Sjálf- stæðisflokkurinn leggja sérstaka áherslu hér í Húnavatnssýslun- um? „Ég vil nú ekki fara út í að útlista stefnuna núna, þar sem þetta er fyrsti dagurinn okkar hér á kosningaskrifstofunni. En áhugi okkar sem störfum hér beinist t.d. að hafnarmálunum og flugvellinum og að byggðamálum almennt.“ Ólafur vildi ekki skjóta á úr- slitin í kosningunum, en taldi þó að Sjálfstæðisflokkurinn myndi halda sínu. Hann sagði að ný framboð myndu einhverju breyta en gerði síður ráð fyrir að það yrði verulegt. i Nú er aDt orðið flatt Blaðamaður Dags á Sauðár- króki færði það í tal við mig að segja frá Sæluviku. Að biðja mig um það, er ekki til manns að moka, því ég er orðinn hundgamall og búinn að gleyma flestöllu því sem fyrir mig hefur borið fyrr og síðar. Einu get ég þó sagt frá. Það var þegar ég fór fyrst í leikhús í sýslufundarviku, sem var í febrúar 1920. Orðið Sæluvika var þá ekki til. Leikhúsið var Góðtemplarahúsið á Sauðár- króki, sem enn stendur undir brekkunni. Skátar eiga það nú og eru að endurbæta það myndarlega. Ég var þá á 15. ári og hafði ekki áður séð leikið. Leik- húsverkið var Skugga-Sveinn. Þessi leikhúsferð er mér næstum ógleymanleg, þó rnóða óminnis hafi fallið yfir aðrar leikhúsferð- ir. Ef til viil er þetta að sumu leyti fyrir það, að Matthías met ég mest af skáldum 19. aldar og voru þau samt góð. Skugga-Sveinn mun hafa verið vel leikinn 1920 og naut ég þess með barnslegri hrifningu, þó ég kynni ekki að dæma um leiklist. Halldór Þorleifsson smiður lék Sigurð í Dal og Magnús sonur hans lék Harald. Ástu lék Sigur- fljóð Jakobsdóttir, ung lagleg stúlka vestan úr Húnavatnssýslu. Hún var tvo vetur á Sauðárkróki og lærði að sauma hjá Ingibjörgu Pétursdóttur. Mér og öðrum fannst Sigurfljóð leika afbragðs- vel. Raunar fannst mér allir leika vel, hver í sínu hlutverki. Hjör- leifur Andrésson lék Skugga- Svein, mikill á velli, með sterka og dimma rödd klæddur gæru- skinnum. Jón Oddsson lék Grasa-Guddu og Pétur Eiríksson Ketil skræk. Á þessum árum fór fjöldi fólks úr sveitum héraðsins til þess að njóta skemmtunar í sýslufundar- viku. Þetta var mikill viðburöur og eftirvænting og tilhlökkun ntikil löngu áður. Þeir sem á ann- að borð gátu farið voru 2 eða 3 daga seinnipart vikunnar um kyrrt á Króknum. Flestir fóru gangandi, nema nokkrir ríkir bændur höfðu hesta á járnum og voru ríðandi. Þegar ísar voru á Eylendinu sátu sumir á sleðun- urn. létu hestana brokka og þótti það skemmtileg ferð í góðu veðri. Á Króknum var þá bara ein gata og náði hún skammt suö- ur fyrir kirkjuna og á daginn var gatan svört af fólki, dökkklæddu vel búnu fólki. Skemmtanir voru alla vik- una, leiklistin í Gúttó, stund- um var kórsöngur. A kvöldin voru málfundir og eftir það dans- að nóttina af. Málfundir voru í barnaskólanum, scm þá var og stendur á horninu við Kirkjutorg, Á málfundunum var alltaf hús- fyllir. Þeir voru sóttir eins og íþróttamót og vissulega er það íþrótt að beita brandi orðsins. Umræðuefni voru margvísleg, landsins gagn og héraðsins og allt milli himins og jarðar gat komið til umræðu. Mælskumenn voru þá margir. Prestar létu til sín taka á þessum fundum. Séra Hall- gríntur í Glaumbæ, séra Arnór í Hvammi, séra Lárus á Miklabæ og séra Tryggvi Kvaran á Mæli- felli. Þá lét skólastjórinn á Hól- um sig ekki vanta. Það var Páll Zophoníasson. Mælskumenn voru þá líka í röðum bænda, svo sem þeir Ysta-Vallholtsbræður, Valdi-' mar og Eiríkur. Eitt sinn var umræða um kynbætur sauöfjár. Þeir Vallholtsbræður voru stór- bændur, vildu kynbæta sauðfé sitt og keyptu kynbótahrúta norður í Þingeyjarsýslu. Séra Arnór taldi það til spillis að inn- leiða þetta þingeyska fé, sem væri svo lágfætt og kviðsítt. að ekki væri hægt aö koma því heim í göngurn, ef snjór væri kominn. Eiríkur í Vallholti brást hart við og reyndi að sýna fram á, hvað presturinn í Hvammi væri lítill búmaður, fyrst hann vildi ekki nýta sér þann hagnað, sem væri af kynbótum. Frá því ég man fyrst eftir og fram um 1930 var lítil vín- drykkja, enda var vínbann þá um árabil. Drykkjumenn voru þá til, en þeir voru fáir. Um 1920 kom fyrst apótekari til Sauðárkróks. Hann var danskur og hét Lindgren. Hann seldi spíritus á laun þeim sem hafa vildu. Það var sumarið 1923 að ég fór með hest og kerru til Sauðárkróks. Ég var beðinn fyrir bréf til apótekára og hann sendi með mér böggul til bréfritara og það vissi ég síðar. að í þeim böggli voru 5 pottar af spíritus. Þessi apótekari fór um 1930 og þá var kveðin vísa: Nú er hentast held ég mér, hugareld ad fela. Lindgren geldur orðinn er, sem áður seldi á pela. Um 1930 var byrjað aö brugga hér víða í sveitum og hélst það næsta áratuginn. Til þess þurfti pressuger og sykur. Svo kom brennivínið um miðjan áratuginn og Ojótlega þar á eftir, hættu menn að nenna að stauta við þetta hver fyrir sig, þó brennivín- ið væri dýrt. Svartadauðaflaskan kostaði 6 kr., en bændur fengu þá 8 til 10 kr. fyrir dilkinn. Þá var mikið drukkið og þó veit ég ekki hvort það er meira en nú er. En konur drukku ekki. Fram um 1940 var það sérstakur viðburður ef vín sá á konu. „Móðir, kona. meyja“ mega ekki drekka sig drukknar af víni. Enginn veit með vissu, hvenær nafnið Sæluvika var tekið upp. Fram undir 1940 var sýslufundur haldinn í febrúar og mars. Svo var það 1939 að sýslufundur hófst ekki fyrr en 31. maí og þá rofn- uðu tengslin, því ekki var hægt að ætla sveitafólki að vera á Sæluviku, þegar sauðburður stóð sem hæst. Siguröur sýslumaður var heldur ekki samvinnuþýður, að flýta sýslufundi, enda hefur það naumast verið hægt, því skjalabunkar menningarinnar, stækkuðu ár frá ári. Alla þessa öld og lengur þó, hefur leiklist verið stunduð á Sauðárkróki. í meira en hálfa öld hefur Eyþór Stefánsson verið höfuðsmaður héraðsins í tónlist og leiklist. Hann var á leiksviði, leikari eða leikstjóri, frá 1921 til 1976. Leiklistaráhugi hefur alltaf verið og margir allgóðir og góðir lcikarar fyrr og síðar. Auk þeirra sem áður er getið um voru leikar- ar á fyrri tíð; Snæbjörn bakari, Svava Jónsdóttir, Elínborg Jóns- dóttir, Jóhanna Blöndal, Guðjón Sigurðsson og fleiri. Og kynslóð- in endurnýjar sig, yngra fólk tek- ur við. Á seinni árum má nefna leikara svo sem: Hauk Þorsteins- son, Helgu Hannesdóttur, Haf- stein Hannesson. Kára Jónsson. Kristján Skarphéðinsson o.fl. o.fl. Nú er allt orðið flatt. Fólk er hætt að hugsa til Sæluviku með eftirvæntingu og tilhlökkun, það er ofmettað af skemmtisamkom- um í hverri viku og oft í viku. Nú er gatan á Króknum ekki lengur svört af gangandi fólki. Allir eru í bílum. tólk þarf ekki að gista. fer heim þegar santkomu er lokið. Nú sjást ekki gangandi ntenn á vegum. nema einn og einn. ein- kennilegir menn, reikunarmenn. En hefur hliðstæð flatneskja myndast í hugarheimi manna, sálarflatneskja? Ég get ekki unt það sagt, því ég veit það ekki. En líklega er það ekki, því mannseölið breytist ekki um þúsundir ára. Þeir dýrkuöu gullkálfinn á dögum Móse og gera það enn ótæpilega. Á aðra hönd eru svo góðir menn, sem eiga hugsjónir og vilja bæta heintinn. Þetta verðum við að una viö. B.jörn Egilsson. Gamli barnaskólinn

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.