Dagur - 31.03.1987, Page 15
31. mars 1987 - DAGUR - 15
Ríkis-
útvarpið
veitir
lista-
mönnum
starfslaun
Ríkisútvarpið mun árlega veita
listamanni eða listamönnum
starfslaun til að vinna að verk-
um til frumflutnings í Ríkisút-
varpinu. Þeim fylgja ókeypis
afnot af íbúð Ríkisútvarpsins í
Skjaldarvík í Eyjafirði. Starfs-
launin verða veitt til sex mán-
aða hið lengsta.
Á fundi framkvæmdastjórnar
Ríkisútvarpsins í síðustu viku
voru samþykktar tillögur
útvarpsstjóra um starfslaun til
listamanna og reglur þar að lút-
andi. Starfslaunin verða auglýst
til umsóknar og skal úthlutun
þeirra að jafnaði fara fram í júní-
mánuði en greiðslur starfslauna
hefjast 15. september hvert ár.
Fjárhæð á að fylgja mánaðar-
launum samkvæmt 5. þrepi 137.
launaflokks í kjarasamningi
Bandalags háskólamanna og
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Listamenn, er hafa íslenskan
ríkisborgararétt, koma til greina
við úthlutun starfslauna. Þeir
munu skuldbinda sig til að gegna
ekki fastlaunuðu starfi meðan
þeir njóta starfslauna.
Framkvæmdastjórn Ríkisút-
varpsins velur listamennina eftir
umsóknum og að fenginni
umsögn deildarstjóra dagskrár-
deilda Ríkisútvarpsins.
Starfslaunin verða auglýst í
fyrsta skipti í aprílmánuði næst-
komandi.
Fréttatilkynning.
Mislitt
mannlíf
- unglinga- og fjölskyldu-
saga, nýtt skáldverk
eftir Guðmund L.
Friðfinnsson í kilju
Út er komin hjá bókaútgáfunni
Erni og Örlygi skáldsagan Mislitt
mannlíf eftir Guðmund L. Frið-
finnsson á Egilsá. Þetta er fjórt-
ánda bók höfundar sem fer hér
inn á nýjar slóðir og kemur les-
endum sínum á óvart. Sagan
fjallar um dreng sem er að alast
upp í Reykjavík og býr í upphafi
við öryggi en mótlætið er á næsta
leiti. Foreldrar hans skilja og lífið
verður drengnum smám saman
óbærilegt. Samfélagið hefur ekk-
ert að bjóða nema ný og ný
vandræði. Á eftir fara afbrot og
afskipti lögreglu, spennan magn-
ast og sagan tekur nýja stefnu...
Þetta er bók handa unglingum
og fullorðnu fólki, bók sem vekur
umhugsun um marga þætti í
íslenska velferðarþjóðfélaginu.
Áleitin saga sem ekki gleymist.
Sjaldan hefur fagur stíll Guð-
mundar notið sín betur.
Bókin er sett og brotin um hjá
Filmur og prent en prentuð og
bundin í Prentstofu G. Bene-
diktssonar.
Þessar stúlkur, Hildur Bergsdóttir t.h. og Linda Hrönn Sigfúsdóttir t.v.,
héldu hlutaveltu um daginn. Ágóðinn, 850 krónur, rennur til KA-heimilis-
ins. Kristinn Kristinsson þakkar þeim kærlega fyrir hönd KA-heimilisins.
Mynd: EHB
AKUREYRARBÆR ggagi
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Fimmtudaginn 2. apríl 1987 kl. 20-22 veröa
bæjarfulltrúarnir Björn Jósef Arnviöarson og
Heimir Ingimarsson til viötals í fundarstofu bæjar-
ráðs í Geisiagötu 9, 2. hæð.
Bæjarstjóri.
AKUREYRARBÆR mm
Rafmagnstæknifræðingur
óskast
Rafveita Akureyrar vill ráöa rafmagnstæknifræð-
ing í starf tæknifulltrúa (forstööumanns tækni-
deildar). Starfiö er laust 1. júní nk., en æskilegt er
aö viðkomandi geti hafiö störf fyrr.
Laun samkvæmt kjarasamningum Akureyrarbæj-
ar. Upplýsingar um starfiö veitir rafveitustjóri.
RAFVEITA AKUREYRAR.
Kaupfélag Eyfirðinga
Innlán Innlansdeild (1. apríl 1987) Nafnvextir Ársávöxtun
• Almennarsparisjóðsbækur 12% 12%
• Sparireikningar: Með 3ja mánaða uppsögn 14% 14,49%
Með 12 mánaða uppsögn 15% 15,56%
• Verðtryggðir reikningar: Með 3ja mánaða bindingu 2% 2%+verðb.
Með 6 mánaða bindingu 3,5% 3,5%+verðb.
• Kostabók 20,5% 21,55%
Kaupfélag Eyfirðinga
Viðskiptareikningur (1. apríl 1987) Nafnvextir Mánaðarl. vextir
Inneignavextir 14% 1,0979%
Skuldavextir 21% 1,678%
Vextir á ávísanareikn. starfsmanna 14%
KOSTABÖK
• Innstæöa er alltaf laus. • Leyfðar eru tvær úttektir á ári
• Vextir eru 20,5% eöa hærri. án skerðingar.
ef verötrygging reynist betri. • Vextir færast tvisvar á ári.
• 0,7% leiöréttingavextir reiknast
af þriöju úttektarupphæð.