Dagur - 28.07.1987, Page 5
28. júlí 1987 - DAGUR - 5
Hótelrallið á Húsavík:
Ánægður með árangurinn
- Daníel Gunnarsson
„Keppnin hefur gengið nokkuð
vel en að vísu hafa margir dottið
út,“ sagði Páll Loftsson keppnis-
stjóri í hótelrallinu á Húsavík um
helgina. Aðeins sex bílar af fjórtán
luku keppninni. Þessir keppend-
ur luku keppni: Jón Ragnarsson
og Rúnar Jónsson á Escort 2000,
Daníel Gunnarsson og Valsteinn
Stefánsson á Opel Kadett, Ari
Arnþórsson og Magnús Arason á
Alfa Romeo 4x4, Birgir Þór
Bragason og Hafþór H. Guð-
mundsson á Talbot Lotus, Eirík-
ur Friðriksson og Ragnar Aðal-
steinsson á Datsun 160 JSSS og
Þorgeir Kjartansson og Sveinn
Þór Gíslason á Opel Manta. Þeg-
ar úrsiit voru ljós ræddi Dagur
við Daníel sem náði öðru sæti í
keppninni.
- Til hamingju með árangur-
inn, var þetta erfið keppni?
„Já, nokkuð, leiöirnar voru
grófar með köflum og við vorum
heppnir með að sprengja ekki
dekk nema tvisvar, það var ekki
svo mikið miðað við hvað leiðirn-
ar voru grófar. Á næstsíðustu
leiðinni slitnaði hjá okkur spyrna
en við gátum gert við það.“
- Er þetta í fyrsta sinn sem þið
keppið á Húsavík?
„Nei, ég keppti hérna 1981 og
1984 en þá á öðrum bíl. Ætli
þetta sé ekki ellefta keppnin sem
ég tek þátt í.“
- Er þetta besti árangur sem
þú hefur náð?
„Ég náði þriðja sæti í Tomma-
rallinu síðasta. Ég er mjög-
ánægður með árangurinn í dag,
við þurfum að afla okkur ákveð-
inna akstursréttinda og það eru
svokölluð B-réttindi sem ég næ
með þessu og ég kemst framar í
rásröð. Ég er þakklátur stuðnings-
aðilum sem hafa gert mér þetta
mögulegt, Dreka hf. í Hafnar-
firði, Tómstundahúsinu og fleiri
aðilum." im
Nauðungaruppboð
Eftirtaldar bifreiöar (og aðrir lausafjármunir) veröa
boönar upp og seldar, ef viöunandi boö fást, á opin-
beru uppboði, sem fram fer viö sýsluskrifstofuna í
Húsavík 29. júlí n.k. og hefst kl. 17.00.
L-1792 A-4182
Þ-3356 Þ-3833
Þ-3686 Þ-4813
Þ-90 RT-404
Þ-1646 Þ-3537
Þ-2206 Þ-3126
Þ-2086 Þ-4357
Þ-4255
Frystikista, sjónvarp, eldavél, þvottavél, myndsegul-
bandstæki, rafmagnsorgel.
Greiðsla fari fram viö hamarshögg.
Húsavík, 22. júlí 1987.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu
Bæjarfógeti Húsavíkur
VEISLA í HVERRI DÓS
KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ KEA
AKUREYRI SÍMI: 96-21400
LACOSTE
AKUREYRI
dustað af rykið og útsett í anda
sveiflunnar. Þar á meðal eru
splunkunýjar útsetningar á
nokkrum íslenskum þjóðlögum.
Ef nánar er litið í efnisbanka
Frit lejde má finna þar Take The
A-Train, The Girl From Ipa-
nema, On The Sunny Side Of
The Street, djassútsetningar á
Bítlalögum og seinni tíma popp-
lögum, eigin útsetningar á verk-
um eftir Chick Corea, Herbie
Hancock, Keith Jarret, Kenneth
Knudsen, NHÖP, Miles Davies,
Wayne Shorter, Thad Jones,
Mike Manieri og fleiri auk þjóð-
lagaútsetninga og frumsaminna
verka. Af nógu er því að taka.
Norður-
landsför 1987
28. júlí þriðjud.: Fiðlarinn Akureyri
29. júlí miðvikud.: Fiðlarinn Akureyri
30. júlí fimmtud.: Siglufjörður
31. júlí föstud.: Sjallinn Akureyri
1. ágúst laugard.: Sjallinn Akureyri
2. ágúst sunnud.: Ólafsfjörður
3. ágúst mánud.: Hótel Húsavík
4. ágúst þriðjud.: Hótel Húsavík
6. ágúst fimmtud.: Hótel Reynihiíð
VILTU KAUPA
ÞÚSUND KRÓNUR
ÁRÚMLEGA
ÞÚSUND KRÓNUR?
Ef þú kaupir 100 þús. kr. skulda-
bréf Lýsingar hf., sem kostar nú
kr. 75.943,- ( miðað við gengi
þessa viku), færð þú endur-
greiddar kr. 100.000,- eftir 3 ár,
auk verðbóta.
Búnaðarbanki íslands hefur til
sölu örugg skuldabréf Lýsingar
hf. sem er í eigu Búnaðarbanka
íslands, Landsbanka íslands,
Brunabótafélags íslands og Sjóvá
hf. Bréfin eru verðtryggð til 3 ára.
í>au eru seld með afföllum, sem
tryggja kaupendum 36% raun-
virðisaukningu á tímabilinu, eða
10,8% raunvexti á ári.
Söluverð 27.-31. júlí: 75.943,-
í dag er verðmæti hvers bréfs
orðið kr. 102.015,- vegna hækk-
unar lánskjaravísitölu.
BÚNAÐARMNKINN
TRAUSTUR BANKI