Dagur - 23.09.1987, Page 1
T8er28Kfe^qmbða4OTUaMlGMfl - 7
/
A laugardaginn var Sjávarútvegssýningin 1987 sett í Laugar-
dalshöllinni. Þetta er stærsta sýning sinnar tegundar í heim-
inum í ár. Fulltrúar 22 þjóða taka þátt í sýningunni að þessu
sinni. Sýnendurnir eru 416 á 313 básum. Aðsóknin að sýn-
ingunni hefur farið fram úr björtustu vonum forráðamanna
hennar og komu t.d. um 10 þúsund manns á hana um helg-
ina en það eru fleiri en komu alla dagana árið 1984.
Það var Halldór Asgrímsson sjávarútvegsmálaráðherra
sem setti sýninguna og ræddi um nauðsyn þess að við íslend-
ingar fylgdumst vel með tækninýjungum og benti á að líkleg-
ast væri meirihlutinn af þeim tækjum sem voru sýnd á sjávar-
útvegssýningunni árið 1984 nú úreltur.
Það er ekki hægt annað en að hrósa aðstandendum sýn-
ingarinnar fyrir mjög fagmannleg vinnubrögð í sambandi við
uppsetningu sýningarinnar. Dálítið var kvartað undan því að
erfitt hefði verið að fá upplýsingar um sýninguna hjá íslensk-
um aðstandendum hennar vikurnar áður en hún var opnuð
en það leystist allt vel. Blaðamenn Dags mættu á sýninguna
daginn sem hún var opnuð og ræddu við nokkra af þátttak-
endunum.
Trefjaplast hf.:
/
Islensk reynsla
og íslenskt hugvit
- rætt við Eggert ísberg
forstjóra Trefjaplasts hf. á Blönduósi
Fyrirtækið Trefjaplast hf. frá
Blönduósi kynnti á Sjávarút-
vegssýningunni trefjaplastbát.
Báturinn er mældur 9,9 tonn
og er á margan hátt frábrugð-
inn hefðbundnum bátum.
Þetta er fyrsti sérhannaði
kjarnabáturinn og er það fyrir-
tækið Ráðgarður hf. í Reykja-
vík sem hannaði þennan bát.
Hönnunin er sniðin eftir útlín-
um mun stærri skipa. Báturinn
er m.a. með perustefni sem
gengur hærra upp en venja er
til. Það eykur sjóhæfnina til
muna og minnkar olíueyðsl-
una. Báturinn var unninn í sam-
vinnu við nokkur fyrirtæki á
Siglufirði: Byggingafyrirtækið
Berg hf. sá um innréttingar í
bátinn, Vélaverkstæði Jóns og
Erlings sá um vélar í skipinu
og Rafhær sf. sá um allar raf-
lagnir í bátnum. Blaðamaður
Dags ræddi við Eggert ísberg
forstjóra Trefjaplasts hf. um
starfsemi fyrirtækisins.
„Það sem gerir þennan bát
öðruvísi en flesta aðra plastbáta
hér er sá að þessi er ekki steyptur
í móti. Það er trégrind sem er
síðan klædd með trefjaplastinu.
Kosturinn við þetta er sá að það
gefur möguleika á að smíða hann
að óskum hvers og eins, enda eru
kröfur mjög mismunandi eftir
'ir gefur að líta starfsmenn frá Trefjaplasti hf. Þeir eru: Birgir Guðmunds-
son, Eggert ísberg, Erling Jónsson og Jón Dýrfjörð. Birgir annaðist innrétt-
ingar. Erling og Jón sáu um vélaniðursetningu og málmsmíði.
veiðiskap og svæðum," sagði
Eggert ísberg
Frumkvöðull í notkun
á trefjaplasti hér á landi
Trefjaplast á Blönduósi er frum-
kvöðull í notkun á trefjaplasti
hér á landi og lagði Eggert
áherslu á nauðsyn þess að nýta
sér íslenska reynslu og hugvit í
sambandi við byggingu á smábát-
um. „Reynsla síðustu áratuga
hefur sýnt það og sannað að bát-
ar úr trefjaplasti standast að öllu
leyti þær kröfur sem íslenskir
sjómenn gera. Trefjaplast er
sterkt en um leið létt og viðhald
er mun minna en á bátum úr tré
eða stáli. Mikill hluti þessara
plastbáta sem hafa verið fluttir
hingað til lands á síðustu árum
er mjög lélegur að gæðum og
hefur oft engan veginn passað við
íslenskar aðstæður."
- Við spurðum Eggert hvort
þeir væru ánægðir með móttök-
urnar á sýningunni.
„Það er dálítið erfitt að segja
því einungis einn dagur er liðinn
síðan sýningin var opnuð. Hins
vegar hafa margir komið að skoða
bátinn og margar fyrirspurnir
borist. Ég er bjartsýnn á að við
eigum eftir að selja nokkra báta
út á þessa sýningu hér.“ AP