Dagur - 26.10.1987, Blaðsíða 11

Dagur - 26.10.1987, Blaðsíða 11
26. október 1987 - DAGUR - 11 Valgerður H. Bjarnadóttir: í okkar átt, bræður góðir!! Áskorun eins og þá sem félagi Þórarinn beinir til okkar norna í Degi 20. október sl. á ég erfitt með að standast. F>ó verð ég að segja að þrátt fyrir að einhverjar meinlokur hafi gert Þórarni erfitt að skilja þennan þátt jafn/mann/ kvenréttindabaráttunnar hér í bæ, þá sýnist mér og þóttist líka vita fyrir að hann sé ekki sá full- trúi karla sem erfiðast verður að sannfæra. Þó efast ég um gildi sannfæringar, þar sem sann- leikurinn er aldrei einn. Ef lítið hefur heyrst af víg- stöðvum kvennabaráttu hér í bæ um alllangt bil, þá er það vegna þess að alla baráttu verður að rækta hið innra, ekki síður en hið ytra, en sú þróun sem á sér stað innra með hverri manneskju er hljóðlátur undirbúningur lúðra- blásturs á borð við þann sem nú hefur heyrst. Eftir kröfugöngur 8. áratugar- ins og fjöldahreyfingarnar í byrj- un þessa áratugar, m.a. Jafnrétt- ishreyfinguna og Kvennafram- boðið, þar sem mestöll orka kvenna beindist út á við þar til við vorum að niðurlotum komnar, var nauðsynlegt að hlaða okkur sjálfar orku á ný. Nú er sú orka að byrja að fá útrás. Það er ekkert skrítið að sum- um kunni að koma þessi nýja útrás ókunnuglega fyrir sjónir. Barnið hefur þroskast. Þórarni finnst sorglegt að „málefna- grundvöllur baráttunnar er . . . dálítið skakkur og ótraust- ur“. Eitt af því sem innri skoðun kvenna hefur kennt okkur er, að það sem er ótraust eða hverfult er ekki endilega rangt. Hvað er ótraust ef ekki líf kvenna? Og ekkert er skakkt nema í saman- burði við eitthvað annað og fer alltaf eftir staðsetningu þess sem á horfir. Frá sjónarhóli okkar sem að þessari baráttu stöndum er málefnagrundvöllurinn góður, en hvorki réttur né skakkur. Við getum skilgreint hann sem „rétt kvenna til að velja það sem þær vilja,“ og „rétt kvenna til að hafa áhrif á eigið líf,“ og „vilja kvenna til að hafa jöfn áhrif á við karla“ og „uppreisn kvenna gegn (móður)lífi í karlveldi“. Þessi grundvöllur hefur miklu fleiri hliðar en tvær og a.m.k. rúmar hann jafn/mann/kvenréttinda- hliðarnar. Ég verð að játa að ég geri mér ekki fulla grein fyrir því hvað í kröfum okkar og stefnu Þórarinn Valgerður Bjarnadóttir. er að gagnrýna. Ég geri ráð fyrir að hann sé sammála okkur um að ekki sé gott að „tómir (?) karlar“ fjalli um einstök mikilvæg mál, hvorki þetta mál né önnur. Ef það er mikilvægt fyrir karla sem þurfa að leita hjúkrunar, að það séu helst karlar „sem fara hönd- um um hina viðkvæmari staði“ þeirra, því þá ekki að setja fram slíka kröfu? Ég sé ekkert fárán- legra við þá kröfu (ef hún er ein- hverjum körlum mikilvæg) en þá kröfu að hjúkrunarfólk eða raf- virkjar hafi tilskilda menntun og þekkingu til starfs síns. Það sem er manneskjum mikil- vægt er aldrei fáránlegt eða rangt og leiðir ekki út í ógöngur í kerfi sem er sniðið að þörfum fólksins. Því miður búum við ekki við slíkt kerfi. „Okkar“ kerfi er eingöngu sniðið að þörfum lítils hóps fólks. Þórarinn nefnir að aðeins ein kona sé starfandi kvensjúkdóma- læknir á íslandi og segir að „þessi mannréttindi gætu því aldrei gilt nema fyrir lítinn hluta íslenskra kvenna". Þórarinn veit vel að ný mannréttindi skapast ekki á einni nóttu, og jafnvel bylting tekur langan tíma og ber árangur. En ef kona (Anna) hefði verið ráðin í starfið á FSA, þá hefði þó á einni nóttu tvöfaldast sá hópur íslenskra kvenna sem notið hefðu hins nýuppgötvaða réttar, innan skamms bættist svo sú þriðja við og þannig koll af kolli þar til öll- um íslenskum konum þætti sjálf- sagt að eiga val á kven-kvensjúk- dómalækni. Öll þróun á sér upp- haf en þróun er líka hægt að hindra og það var gert í stjórn FSA. Ríkisstjórn okkar skrifar að hún vilji vinna að því að konum fjölgi í ábyrgðarstöðum og að störf flokkist ekki í sérstök karla- og kvennastörf. Samkvæmt því væri rétt að ráða „konuna sem sækir um héraðslæknisstöðuna á Egilsstöðum“ ef hún væri hæf, jafnvel þótt einhver karlumsækj- endanna væri með „meiri“ starfs- réttindi, mælt og metið á ein- hverjum skala karlveldisins. Ef ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar og ég erpm sammála um þetta atriði, þá finnst mér að við hljót- um að vera á leið eftir margra akreina þjóðvegi en ekki á villi- götum. Þórarinn og þið allir hinir! Viljið þið sýna okkur konum þá virðingu að hætta að segja okkur hvað við eigum að segja? Þið reitið okkur bara til reiði, jafnvel - og kannski sérstaklega - ef þið hnýtið „systur góðar“ aftan við fyrirmælin. Ég get/vil/ætla ekki að hlýða þeirri skipun sem fram kemur í grein Þórarins. Hvorki vil ég „karla burt úr kvensjúkdóma- lækningum“ eða nokkurri ann- arri starfsstétt, né „hafna þeirri stefnu að taka beri kynferði til greina í mati á starfsréttindum“. Karlar og konur eru ólík, með ólíka reynslu. Það er mikilvægt að sú reynsla sé nýtt og að hún sé metin á báða bóga. Hafi Anna ekki fengið barns- burðarleyfi sín metin til starfs- reynslu, þá var gróflega brotið á henni og konum öllum. Engin íslensk lög þekki ég sem mæla fyrir um að barnsburðarleyfi skuli ekki metið til starfsreynslu. Hafi hún fengið þau metin, þá var samt brotið á henni og okkur öllum. Hún tafðist við mikilvæg verkefni á meðan „keppinautur" hennar var í óðaönn að afla sér starfsréttinda. Hjá konum verður meiri töf en hjá körlum við öflun starfsréttinda, vegna þess að á vissum skeiðum í lífi kvenna finnst þeim mikilvægara að sinna barneignum, umönnun barna og innri þroska, en ytra bjástri og titlaöflun. Þessi „hliðarspor“ sem konur taka oftar en karlar, eru afar mikilvæg í þjóðfélagi þar sem fæstir gefa sér tíma til umhugsun- ar og upplifunar. Án þessara hliðarspora værí ekkert þjóð- félag, engir þegnar, ekkert líf. Finnst ykkur „mótþróaseggir" að rétt sé að refsa konum fyrir að bera svona mikla umhyggju fyrir ykkur og sjálfum sér? lönaöarráöherra leggur niður stóriðjunefnd Iðnaðarráðuneytið hefur undanfarin ár haft frumkvæði um leit að erlendum samstarfs- aðilum um stóriðju til nýtingar innlendrar orku og eru nú sér- staklega kannaðir möguleikar á frekari uppbyggingu áliðnað- ar í Straumsvík. Kanna þarf möguleika á samstarfi við erlenda aðila á öðrum sviðum iðnaðar bæði í stærri og minni fyrirtækjum. Ráðuneytið mun því nú, að því er þessi mál varðar, beina athygli sinni að almennri þátttöku erlendra aðila í atvinnulífinu með áhættufjármagni í stað lánsfjár og á hvern hátt ráðuneyt- ið getur orðið að liði í þeirri þróun. Iðnaðarráðherra hefur því ákveðið að leggja niður stóriðju- nefnd, samninganefnd um stór- iðju og frumkvæðisnefnd. ráðuneytisins á þessu sviði og hvernig því hlutverki skuli sinnt. /----------------------------\ Jafnframt hefur iðnaðarráð- herra ákveðið að skipa nefnd til að athuga á hvern hátt iðnaðar- ráðuneytið getur best stuðlað að almennu samstarfi innlendra og erlendra fyrirtækja og aukinni erlendri fjárfestingu hér á landi í því skyni að draga úr viðskipta- halla við útlönd með auknum útflutningi og minni innflutningi og að draga úr þörf fyrir erlendar lántökur með því að erlent áhættufé komi í stað lánsfjár. Nefndin á að gera tillögur um hvert skuli vera hlutverk iðnaðar- Ferðu stundum á hausínn? Hundruð gangandi manna slasast árlega í hálkuslysum. Á mannbroddum, ísklóm eða negldum skóhlífum ertu „svetlkaldur/köld". Heímsæktu skósmiðinn! dar°" J Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Áshlíð 7, Akureyri, þingl. eig- andi Friðrik Friðriksson, fer fram í dómsal embættisins Hafn- arstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 30. október ’87 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl. og Landsbanki Islands. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Bjarmastígur 15, 2. hæð, Akureyri, þingl. eigandi Þorvaldur Aðalsteinsson o.fl., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,3. hæð, Aureyri föstu- daginn 30. október ’87 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Skúli Pálsson hrl. og Benedikt Ólafsson hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninn Hafnarstræti 84, m.h., Akureyri, þingl. eigandi Sigurður Einarsson, fer fram i dómsal embættisins Hafnar- stræti 107,3. hæð, Akureyri föstud. 30. október ’87 kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóður Akureyrar, Trygginga- stofnun ríkisins og Ólafur Gústafsson hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Grundargata 9b, Dalvík, þingl. eigandi Jóhanna Helgadóttir, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 30. október ’87 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Innheimtustofnun sveitarfélaga. Bæjarfógetinn á Dalvík. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Litlahlíð 2c, Akureyri, þingl. eigandi Haukur Guðmundsson, ferfram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 30. október ’87 kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er Innheimtustofnun sveitarfélaga. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Mánahlíð 3, Akureyri, þingl. eigandi Arnar M. Friðriksson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 30. október '87 kl. 16.15. Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs og Bæjar- sjóður Akureyrar. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð áfasteigninni Óseyri 8, Akureyri, þingl. eigandi Norðurverk hf., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 30. október '87 kl. 15.45. Uppboðsbeiðandi er innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Aðalstræti 14, e.h. að norðan, þingl. eigandi Fríður Leósdóttir, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 30. október '87 kl. 14.45. Uppboðsbeiðandi er Gunnar Sólnes hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Skarðshlíð 2h, Akureyri, þingl. eigandi Friðþjóf- ur Sigurðsson, fer fram i dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 30. október ’87 kl. 15.45. Uppboðsbeiðandi er Skarphéðinn Þórisson hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.