Dagur - 26.10.1987, Blaðsíða 15

Dagur - 26.10.1987, Blaðsíða 15
Sveit Steinars Skarphéðinssonar sigurvegari í Bændaglímunni. Þeir tapsárustu sögðu þá hafa unnið með svindli. Friðrik J. Friðriksson, Sverrir Valgarðsson, Hreinn Jónsson, Steinar, Magnús Rögnvaldsson, Friðrik Haraldsson, Hjörtur Geirmundsson og Guðmundur Sverrisson. Á myndina vantar Einherjann Stefán Pedersen. Vertíöarlok að Hlíðarenda Það fór ekki hjá því að sumar- ið 1987 liði eins og önnur, og enn á ný er komið haust og tími sumaríþrótta að baki. Kylfingar í Golfklúbbi Sauðár- króks héldu sitt lokahóf, sem þeir kalla árshátíð, á dögunum í golfskálanum að Hlíðarenda. Þar voru afhent verðlaun fyrir innanfélagsmót sumarsins og menn minntust liðins sumars í léttu máli. Kristján Skarphéðinsson veislustjóri gat þess í upphafi að enginn hefði farið holu í höggi þetta sumarið eins og Stefán Pedersen hafði gert sumarið áður. Fyrir það fékk Stefán inn- göngu í Einherjaklúbbinn og viðurkenningu frá viskífyrirtæk- inu Jóhnny Walker Corporation. Rakti Kristján sögu golfsins á Sauðárkróki allt frá því að golf- klúbburinn var stofnaður árið 1970 og menn byrjuðu að spila niðri á söndunum norðan við Tjarnartjörnina. Á þessum vor- dögum golfsins á Króknum urðu kylfingar að þola það að vera slegnir í rot með kúlum félaga sinna, vera barðir með kylfunum og sitthvað fleira. Þessir byrjun- arörðugleikar drógu kjarkinn úr sumum og á tímabili mun aðeins hafa sést til tveggja manna að berjast niðri á söndunum, Krist- jáns sjálfs og Friðriks Friðriks- sonar læknis. Eftir nokkur ár nið- ur frá var grundin við Skarð tekin á leigu og þar voru fyrstu stór- mótin haldin, Norðurlandsmót og opin mót. Fyrir nokkrum árum fékk síðan golfklúbburinn úthlutað svæðinu á Hlíðarenda og þótt þar hafi mikið verið gert á síðustu árum er svæðið enn í uppbyggingu. Friðrik J. Friðriksson tók einn- ig til máls og kvaðst ekki hafa náð að fara holu í höggi þetta sumarið þó að einu sinni hefi leg- ið mjög nærri því á 6. braut Graf- arholtsvallarins. Hins vegar hefði hann skotið óvanalega mikið í raflínur í sumar og sagðist ekkert skilja í hvað þær þvældust alltaf fyrir sér. Sitthvað fróðlegt kom fram í máli Friðriks, þ.á m. gat hann þess að fyrsta landsmótið í golfi utan Reykjavíkur hefði ver- ið háð í Skagafirði. Nánar tiltek- ið á Vallabökkum lýðveldisárið 1944 og er það örugglega ekki á vitorði almennings þar um slóðir. Steinar Skarphéðinsson sem fyrr um kvöldið hafði veitt við- töku verðlaunum sveitar sinnar fyrir sigur í Bændaglímunni, sem háð var þá um daginn, tók til máls og fór að afsaka val sitt á mönnum í sveitina. En ef einhver skyldi ekki vita það, þá eru í bændaglímu skipaðir tveir bænd- ur sem síðan kjósa í lið. Sagðist Steinar aldrei fyrr hafa lent í sigurliði í bændaglímu og þess vegna hefði hann ekki viljað til- teknum félögum sínum svo illt að lenda mér sér í liði. En ekki var svo að sjá að þeir hinir sömu tækju þessar athugasemdir meira en svo til greina. Vitaskuld var lagið tekið að Hlíðarenda, að sjálfsögðu í Hlíð- arendakoti ásamt fleirum, við stjórn hetjutenórsins Hreins Jónssonar. Og þó að samkoman hefði staðið fram eftir nóttu hefði söngur og önnur ærsl notið sín í golfskálanum, enda langt á næstu bæi og búpeningur víðs fjarri. -þá Kári Valgarðsson í Bændaglímunni. Bakgrunnurinn er ekki dönalegur, sveiflan í lagi, en hvað gerðist? Þetta högg réð þó engan veginn úrslitum í keppninni. iittif Mi5£«,nNi'> MC ... .. ,t 26. október 1987 - DAGUR - 15 Prentum aUar tegundir sjálflímandi merkimiða. MIÐAR^ pi&Asr HEIÐARLUNDI 7A • 600 AKUREYRI SÍMI 96*26909 Einnig óáprentaðir límmiðar í ýmsum stærðum. Friðrik Ágústsson, prentari. BORGARA FLOKKURim -ílokkur með framtíð Fólk á aldrinum 16-32 ára athugið. Unnið er að stofnun félags ungra borgara í Norðurlandskjördæmi eystra. Hafir þú áhuga á að starfa með okkur, Þá vinsamlegast hafið samband við Guðna í síma 25354 eftir kl. 19.00. Undirbúningsnefnd. Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir að ráða menn til öryggisgæslu. Um er að ræða hálfar vaktir frá kl. 21.00 til 02.00 viku í senn. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Securitas frá kl. 13.00 til 16.00 virka daga. LYFTARAR Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns- og diesellyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyft- ara. Varahluta- og viðgerðaþjónusta. Líttu inn - við gerum þér tilboð. Tökum lyftara í umboössölu. . LYFTARASALAN HF. _________________|| Vatnagörðum 16. Símar 82770 og 82655. u FRAMSÓKNARFLOKKURINN Skrifstofa Framsóknarflokksins Akureyri er í Hafnarstræti 90. Opin mánudag til föstudags frá kl. 12-15 auk þess á fimmtudögum frá kl. 17-19. Sími 21180. Starfsmaður er Úlfhildur Rögnvaldsdóttir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.