Dagur - 24.11.1987, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 24. nóvember 19é7
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 55 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir),
PÁLL B. VALGEIRSSON (Blönduósi vs. 95-4070), STEFÁN SÆMUNDSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960),
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Unglingar og íþróttir
Margt hefur verið skrafað og skeggrætt um æsku
þessa lands. Fjölmiðlar hafa verið fremur duglegir
við að birta neikvæðar fréttir um börn og unglinga
- mun minna hefur farið fyrir jákvæðum og upp-
byggilegum fréttaflutningi. Þannig hafa flestir fjöl-
miðlar varið litlum tíma og fáum dálksentimetrum
í frásagnir af íþróttum barna og unglinga. Ástæðan
er eflaust sú að ekki er um að ræða lið sem eru
komin í „merkileg" úrslit ef svo mætti segja. Tugir
þúsunda barna og unglinga taka þátt í íþrótta-
starfi á vegum ungmenna- og íþróttafélaga og væri
vel ef fréttaflutningur á þessu sviði yrði aukinn til
muna.
Það er ekki að ástæðulausu sem rétt er að herða
áróðurinn fyrir því að enn fleiri krakkar taki þátt í
íþróttum. Fyrir utan þá staðreynd að þeir fá stælt-
ari og heilbrigðari líkama er ljóst að unglingar sem
eru í íþróttum reykja mun síður en aðrir og hið
sama má segja um notkun áfengis.
Þórólfur Þórlindsson, prófessor, hélt erindi á ráð-
stefnu Ungmennafélaga íslands fyrir skömmu þar
sem hann fjallaði um þessi mál. Hann sagði meðal
annars: „Bæta þarf aðstöðu til íþróttaiðkunar og
brýnt er að unglingum sé sköpuð aðstaða til þess
að stunda íþróttir. Það þarf að styrkja íþróttafélög-
in verulega eigi þau að hafa bolmagn til þess að
sinna þeim fjölda unglinga sem með þeim vill
starfa. Þá blasir það við að mikið vantar upp á að
þeim sem vilja stunda íþróttir utan íþróttafélaga
sé sköpuð sú aðstaða sem þarf.
Gera má allt íþróttastarfið áhrifameira í barátt-
unni gegn ávana- og fíkniefnum með þvi að fá
þjálfara og leiðbeinendur barna og unglinga til
þess að fræða þau markvisst um skaðsemi ávana-
og fíkniefna í daglegu starfi sínu við þjálfun
íþrótta.
Afreksmenn í íþróttum, sem eru fyrirmynd ungl-
inga í mörgu, gætu haft mikil áhrif með því að láta
til sín taka í baráttunni gegn ávana- og fíkniefnum.
Hér má minna á auglýsingu Kristjáns Arasonar og
félaga í „reyklausa liðinu".
Rannsóknir benda til þess, að beita megi íþrótt-
um meira í endurhæfingu og meðferð þeirra sem
hafa lent í vandræðum vegna fíkniefnaneyslu. Því
væri rétt að kanna hvort meiri áhersla á íþróttir í
slíku endurhæfingarstarfi skilaði ekki betri árangri
en nú næst.“
Þessi orð prófessorsins eru þörf á þeim tíma þeg-
ar rætt er um að skera niður framlög til íþrótta-
mála. Ef rétt væri á málum haldið ætti að stórauka
framlögin og fá þannig enn fleiri börn og unglinga
til að leggja stund á íþróttir og heilbrigt líf. Vel má
vera að íslendingar hafi offjárfest í fiskiskipum og
íbúðarhúsum - en það verður ekki hægt að segja
um þá að þeir hafi eytt um of í málefni sem snúa að
börnum og unglingum. ÁÞ.
Heimsókn í núllbekk:
Þau voru dugleg og áhugasöm
krakkarnir í núll-bekk eftir
hádegi í Barnaskóla Akureyrar
sem Dagur heimsótti á dögun-
um. í þessum bekk eru tuttugu
og tvö börn frá klukkan 12.50
til 15.15 og heitir kennarinn
þcirra Svanhildur. Helmingur
barnanna kemur í skólann um
hádegi og er til klukkan fimm.
Eftir skólann eru þau í gæslu á
vegum skólans en um hana sér
Halla, sem er fóstra. Halla er
líka meö Svanhildi í tímum hjá
krökkunum. En hvernig
krökkunum í skólanum?
Fyrst fyrir svörum var hún
Aníta og sagði hún að sér þætti
mjög gaman í skólanum og
skemmtilegast væri að teikna.
„Það er samt leiðinlegt í frímín-
útunum því þá eru strákarnir allt-
af að elta okkur. Þeir meiddu mig
í bakinu í gær,“ sagði hún. Með
Anítu á borði voru þau Vala,
Sigrún Ella, íris og Jói. Stelpurn-
ar sögðu að Jói væri besti strákur-
inn í bekknum en hann sagði að
sér þætti skemmtilegast í frímín-
útunum.
Bjarni Þór og Mattías voru að
púsla. Bjarni Þór var með mynd
af andafjölskyldu, allt frá því
ungarnir koma úr eggjunum þar
til þeir verða fullvaxnir. Mattías
var með svampmót sem voru mis-
Börnin tóku lagið áður en þau fóru
Þau kepptust við að teikna myndir af
munandi að lögun. Hann vissi
mun á öllum lögunum allt frá
þríhyrningum að sexköntum.
Strákarnir voru sammála um að
skemmtilegast væri í frímínútun-
um því þá væru þeir að elta stelp-
urnar.
Á næsta borði voru þeir
Manni, sem var að gera hveiti-
mynd, Valdimar sem hafði búið
til geimskutlu úr mynd sem hann
hafði lokið við að teikna, Víðir
Orri sem var að púsla og Birgir
út í frímínútur.
BéTveim sem sagan var um.
sem teiknaði. Manni, Valdimar
og Víðir sögðu eins og hinir
strákarnir að það væri mjög gam-
an að elta stelpurnar í frímínút-
unum en Birgir var ekki sam-
mála. „Birgir er nefnilega með
stelpunum í liði,“ sögðu þeir.
„Jói er líka með þeim í liði og svo
er hann skotinn í stelpunum."
Nú tilkynnti Svanhildur kenn-
ari, að hún ætlaði að halda áfram
að lesa söguna um Bé Tvo og að
hún myndi ekki sýna þeim mynd-
irnar. Þau ættu nefnilega sjálf að
teikna mynd eftir sögunni. Fljót-
lega þögnuðu krakkarnir og
hlustuðu af eftirvæntingu. Sum
þeirra héldu áfram að vinna sín
verkefni eins og þeir Ármann og
Egill sem voru að flokka tölur.
Þeim gekk það vel og voru greini-
lega mjög duglegir. Ármann
sagði að sér þætti skemmtilegast
þegar þau mættu leika sér í dót-
inu í hillunum og Egill var hon-
um sammála. „Það er nú líka
skemmtilegt að stríða stelpunum
í frímínútunum, sérstaklega
Anítu af því að hún hleypur líka
á eftir okkur," sagði Ármann.
Bjössi hafði hins vegar áhuga á
að líta aðeins á myndirnar í bók-
inni hjá Svanhildi og skreið upp í
fang hennar þar sem hann fékk
að sitja meðan lesturinn stóð yfir.
Að lestrinum loknum, kom Jói
fyrstur til Svanhildar með þessa
Mest gainan að
elta stelpnmar
- sögðu strákamir en stelpumar vom ekki alveg
á sama máli
Vala, Jói, Aníta, Sigrún Ella og íris voru flest að vinna hveitimyndir.
Myndir: VG