Dagur


Dagur - 24.11.1987, Qupperneq 10

Dagur - 24.11.1987, Qupperneq 10
10 - DAGUR - 24. nóvember 1987 LauMmuið * Laufabrauð Erum farin að taka niður pantanir í okkar vinsæla laufabrauð. Athugid að panta tímanlega, það er allra hagur. Brauðgerð KEA Sími 21400. Forval VEGAGERÐIN Vegagerð ríkisins efnir hér með til forvals á verktökum vegna byggingar jarðganga í Ólafsfjarðarmúla. f verkinu er innifalin gerð jarðganga og frágangur þeirra, uppsteypa forskála við báða munna og lagning vega með bundnu slitlagi. Áætlaðar helstu stærðir í verkinu eru: Jarðgöng: lengd 3130 m þversnið 26 m2 sprengt og útgrafið 90000 m3 sprautusteypa (fastir) 2500 m3 Forskálar: lengd 265 m breidd 8m steypa 3500 m3 Vegirutan ganga:lengd 2800 m skeringar 100000 m3 fyllingar og fláafleygar 160000m3 Miðað er við að útboðsgögn verði afhent í febrúar 1988, að verkið geti hafist sumarið 1988 og því verði lokið 1991. Forvalsgögn (á íslensku og ensku) verða afhent hjá Vegagerð ríkisins, Borgartúni 5, 105 Reykjavík og Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri, frá og með þriðjudeg- inum 24. nóvember 1987. Útfylltum og undirrituðum forvalsgögnum skal skila á sömu stöðum eigi síðar en þriðjudaginn 19. janúar 1988. Vegamálastjóri. Sjálfvirki Ijósarofinn kveikir ökuljósin, þegar ekið er af stað og slekkur þegar drepið er á bílnum. Gleymdirðu Ijosunum á? Varð bíllinn rafmagnslaus? Gerist ekki aftur... ÞÓR5HAMAR HF. v/Tryggvabraut Akureyri, sími 22700. Manatríóid á Húsavík, f.v. Leifur Vilhelm Baldursson, Hafliði Jósteinsson og Þórhallur Adalsteinsson. Mynd: im Húsavík: Mánatríóið leikur í Hlíðskjálf - á laugardagskvöldum „Þetta er eitthvað í blóðinu sem erfitt er að losna við, það er löngun til að reyna að skemmta fóiki og hafa sjálfur ánægju af því,“ sagði Hafliði Jósteinsson, einn meðlimur Mánatríósins er Dagur leit inn á æfingu hjá því í síðustu viku. Mánatríóið er ný hljómsveit en stendur þó á gömlum grunni því þeir félagar léku saman í Víbrun- um á árunum 1965-’69 og segja þeir að menn þykist nú kenna gömlu Hlöðufellsstemmninguna þegar Mánatríóið leikur í Hlíð- skjálf á Hótel Húsavík. í Mánatríóinu eru: Leifur Vil- helm Baldursson sem leikur á gítar, Þórhallur Aðalsteinsson leikur á hljómborð sem inniheld- ur trommur og bassa og Hafliði Jósteinsson syngur og sér um leikhljóð en þó ekki búninga. Mánatríóið er ráðið til að leika í Hlíðskjálf á Iaugardagskvöldum fram að áramótum en þess utan eru þeir tilbúnir til að leika víðar, segja að markaður sé fyrir 2-3 hljómsveitir á svæðinu á þessum árstíma. Þeir félagar sögðust hafa gam- an af að starfa í Mánatríóinu. Þeir leika tónlist týndu kynslóð- arinnar, segjast aldrei hafa týnst heldur ratað út úr skóginum aftur. „Við viljum hvetja fólk til að sækja þennan stað og njóta tónlistarinnar," sagði Þórhallur. IM Jafnréttisráö: Kariastörf og kvennastörf - Athugun á hlut kvenna í stjórnum launþegasambanda Fyrir nokkru lauk Jafnréttis- ráð við athugun á hlut kvenna í stjórnum nokkurra launþega- sambanda og hjá Vinnuveit- endasambandi íslands. Athug- unin tekur til ársins 1985 og kemur m.a. í Ijós að konur eru innan við 5% félaga í ýmsum hefðbundnum „karlafélögum“ á borð við Sjómannasamband íslands, Samband byggingar- manna, Málm- og skipasmíða- Bókmenntaverðlaun Norðuríandaráðs árið 1988 Eftirtaldar bækur hafa verið til- nefndar af íslands hálfu til bók- menntaverðlauna Norðurlanda- ráðs árið 1988: Tímaþjófurinn eftir Steinunni Sigurðardóttur og Grámosinn glóir eftir Thor Vilhjálmsson. Dómnefndin um bókmennta- verðlaunin ákveður á fundi í Þórshöfn í Færeyjum 26. jan. nk. hver hljóti verðiaunin, en afhending þeirra fer síðan fram á 36. þingi Norðurlandaráðs í Konserthúsinu í Osló. Upphæð verðlaunanna er 125.000 DKR. Formaður dómnefndarinnar er Jóhann Hjálmarsson skáld, en auk hans situr þar fyrir íslands hönd Sveinn Einarsson rithöf- undur og leikstjóri. samband Islands, Rafiðnaðar- samband Islands, Landssam- band vörubifreiðastjóra, Landssamband lögreglumanna og Tæknifræðingafélag Islands. Konur eru hins vegar 50-100% félagsmanna í Verkamanna- sambandi íslands, Landssam- bandi íslenskra verslunarmanna, Landssambandi iðnverkafólks, Hjúkrunarfélagi íslands, Ljós- mæðrafélagi íslands, Póstmanna- félagi íslands, Félagi bókasafns- fræðinga, Félagi íslenskra sjúkra- þjálfara, Iðjuþjálfafélagi íslands, Stéttarfélagi íslenskra félagsráð- gjafa o.fl. En lítum þá á fjölda kvenna í launþegasamböndum og hlut þeirra í stjórnum, nefndum og ráðum. Aðild að Alþýðusam- bandi íslands eiga 8 landssam- bönd og 33 félög. Konur eru 46% félagsmanna og er hlutur kvenna í stjórnum þessara landssam- banda og félaga nokkurn veginn í samræmi við hlutfallslegan fjölda þeirra. Hið sama verður hins vegar ekki sagt um nefndir, stjórnir og ráð á vegum Alþýðusambands- ins. í sambandsstjórn ASÍ eru konur 26% fulltrúa, í miðstjórn 33% og í samninganefnd árið 1986 voru konur aðeins 27% full- trúa. Konur eru 64% félagsmanna innan BSRB. í stjórnum aðildar- félaganna eru konur nokkurn veginn í samræmi við hlutfallsleg- an fjölda. Þegar hins vegar skoðaðar eru nefndir, stjórnir og ráð á vegum BSRB kemur í ljós hið sama og hjá ASÍ, konur eru þar ekki í samræmi við hlutfalls- legan fjölda innan BSRB. Sem dæmi má taka að konur eru að- eins 36% stjórnarmanna BSRB, 29% stjórnarmanna í verkfalls- sjóðsstjórn og 26% stjórnar- manna í stjórn verkamannabú- staða. Konur eru 27% félagsmanna innan BHM. Á sama hátt og hjá ASÍ og BSRB er hlutfall kvenna í stjórnum aðildarfélaganna nokk- urn veginn í samræmi við fjölda þeirra. Nokkrar undantekningar eru þó frá þessu og má sem dæmi nefna Félag tölvunarfræðinga og Sálfræðingafélag íslands en engar konur sitja í stjórn þessara félaga þrátt fyrir að konur eru yfir 20% félagsmanna. í nefndum, stjórn- um og ráðum á vegum BHM er hlutfallsleg skipting milli kynj- anna í samræmi við félagafjölda þeirra. Aðild að Vinnuveitendasam- bandi íslands eiga fyrirtæki en ekki einstaklingar. Því er ekki hægt að greina frá almennri kynjadreifingu á sama hátt og hjá launþegasamtökunum. Frá miðju ári 1985-1986 sat engin kona í sambandsstjórn eða fram- kvæmdastjórn Vinnuveitenda- sambands íslands. SS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.