Dagur - 17.02.1988, Blaðsíða 1

Dagur - 17.02.1988, Blaðsíða 1
Verslið hjá fagmanni lerrabudin II HAFNARSTRÆTI 92 602 AKUREYRI. SiMI 96 26708 BOX 397 . árgangur Akureyri, miðvikudagur 17. febrúar 1988 33. tölublað Öskudagurinn er í dag, og verður að venju mikið uin dýrðir í niiðbæ Akureyrar. Mynd: tlv Bruninn í golfskála GA: Eldvarnaveggjum ekki komið fyrir samkvæmt teikningu - of algengt að öryggisþáttum í byggingum sé ekki lokið við lokaúttekt Sala á lagmeti til Sovétríkjanna: Samningavið- ræður ganga óvenju hægt - Egilssíld á Siglufirði selur líklega 100 tonn af reyktum síldarflökum Enn hafa ekki tekist samningar um sölu á lagmeti til Sovétríkj- anna og að sögn Theódórs Halldórssonar framkvæmda- stjóra Sölustofnunar lagmetis, ganga samningaviðræður óvenjulega hægt. Tvö fyrirtæki á Norðurlandi eiga þátt í fram- leiðslu lagmetis, Egilssíld á Siglufírði og K. Jónsson á Akureyri. „Það er verið að tala saman en þetta gengur geysilega hægt. Pað er ómögulegt að segja til um livað þetta tekur langan tíma,“ sagði Theódór í samtali við Dag. Ástæðuna fyrir því hve hægt gengur sagði hann ekki endilega vera þá að mikið bæri á milli, en verið væri að ræða magn, verð og ýmis tæknileg atriði. Að sögn Theódórs má segja að fyrir liggi samkomulag um magn en ekki hefur samist um verð ennþá. Kaupandinn þar eystra er Sovr- ybflot. K. Jónsson framleiðir gaffal- bita og matjesflök en Egilssíld framleiðir reykt síldarflök. Fyrir- tækið hefur áður selt til Mið- jarðarhagslanda en þetta er í fyrsta skipti sem samið er um sölu á reyktum flökum til Sovét- ríkjanna. Um er að ræða 100 tonn og er Egilssíld eini fram- leiðandinn hérlendis. ET Innan skamms verður auglýst til umsóknar 4.400 fermetra lóð vestan Nótastöðvarinnar Odda, norðan Hjalteyrargötu. Búast má við hörðum slag um lóðina því margir hafa sýnt henni áhuga og þó að hún hafí ekki enn verið auglýst þá hefur þegar borist um hana umsókn. Vegna þessarar fyrirhuguðu Ióðaveitingar samþykkti bæjar- ráð nýlega að beina þeim tilmæl- um til bygginganefndar að hún leiti umsagnar hafnarstjórnar áður en lóðir fyrir hafnsækna starfsemi eru auglýstar til umsóknar. Að sögn Sigfúsar Jónssonar bæjarstjóra er þessi samþykkt gerð vegna þess að frá því að ný hafnarreglugerð var samþykkt á síðasta ári, hafa verið um það deildar meiningar hvernig standa beri að auglýsingum og úthlutun- unt lóða á hafnarsvæðinu. Til- mælunum er því ætlað að skera úr um verkaskiptingu hafnar- stjórnar og bygginganefndar. Skipulagsnefnd hefur lagt til að aðkoma að lóðinni verði ekki frá Of algengt er að á nýbygging- um sé ekki gerð lokaúttekt eins og lög kveða á um. í Golf- skála GA að Jaðri hafði loka- Hjalteyrargötu heldur um fyrir- hugaðan botnlanga úr Nausta- tanga. Þá leggur nefndin til að nýtingarhlutfall lóðarinnar verði 0,3 þ.e.a.s. þar má byggja hús með 1300 fermetra gólffleti. ET úttekt ekki verið gerð er þar varð stórbruni nú í janúar og ekki hafði verið gengið frá eld- varnaveggjum eins og sam- þykkt teikning sýnir. A fundi bygginganefndar Akureyrar- bæjar í síðustu viku var mál þetta tekið fyrir og ákveðið að íeggja áherslu á þá ábyrgð byggingameistara að öryggis- þáttum í byggingum sé lokið þegar lokaúttekt fer fram. Samkvæmt brunareglugerðinni er óheimilt að taka í notkun hús nema fyrir liggi vottorð bygginga- fulltrúa og slökkviliðsstjóra. Undanskilin þessu ákvæði eru einbýlishús, fjölbýlishús fjögurra hæða eða lægri, verslunarhús með minni gólfflöt en 150 fm og iðnaðar- og geymsluhúsnæði þar sem gólfflötur er minni en 200 fm. í golfskála GA höfðu tveir F- 30 eldvarnaveggir sem hólfa áttu af kaffiteríu og einnig áttu að vera hluti af skiptingu hússins ekki verið settir upp. Hurð að húsvarðaríbúð átti að vera B-30 hurð en virðist ekki hafa staðist þær kröfur sent til slíkra hurða eru gerðar auk þess sem frágang- ur umhverfis hana, þ.e. milli- karms og veggjar, var ekki sam- kvæmt kröfum sem gilda um slík- ar hurðir. Veggir sem aðgreina húsvarðaríbúð eru A-60 veggir, en samkvæmt reglugerð skulu þeir ná að ystu klæðningu. Vegna þakgerðar heimilaði slökkviliðs- stjóri þá breytingu að veggir mættu ná að loftbitum en í stað- inn yrði loft yfir húsvarðáríbúð gert sem B-60. Tölur í framansögðu segja til um mínútufjölda sem efni heldur eldi. Bókstafir tákna hins vegar gerð efnis þ.e. A stendur fyrir efni sem er óbrennanlegt, B stendur fyrir brennanlegt efni t.d. tré, og F stendur fyrir loga- stöðvandi efni. „Ég tel að minni skemmdir hefðu orðið á skálanum ef vegg- irnir hefðu verið komnir upp. Eldur hefði í sjálfu sér ekki orðið ntinni heldur hefur reyk- og hita- skemntdir takmarkast við hluta hússins. En ég vil taka það fram að alls ekki er verið að leggja eig- endur golfskálans í einelti heldur gaf þetta tilfelli tilefni til umræðna um þessi öryggismál í víðara samhengi,"' sagði Tómas Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri. JÓH Búast má við hörðum slag um lóðina vestan Odda. Mynd: tlv Lóð vestan nótastöðvar: Búast má við hörðum slag Örn ingi: Vantraust á menningar- málanefnd Mvudlistarniaðurinn Örn Ingi lýsir vantrausti á Menningar- málanefnd Akureyrarbæjar og segir hana ekki aðeins hafa brugðist þeim vonum sem við hana voru bundnar heldur hafí hún einnig viðhaft slæleg vinnubrögð. I grein sem hirtist í blaðinu í dag færir Örn Ingi rök fyrir máli sínu og biður fólk að hugleiða hvort allt sé á réttri leið í bæjarkerfinu. „Mér undirrituðum þykir það í raun ekkert skcmmtilegt að verða að gagnrýna störf menn- ingarmálanefndar. en annaö er samt ekki hægt. Þegar þessi nýja nefnd var sett á laggirnar urðú flestir glaöir við og trúöu á betri tíð nteð hlóm í haga. Fullvíst má telja að görnlu aldamótamennirn- ir hefðu verið fullsæmdir af þeint heitstrengingum og fyrirheitum er sumir nefndarmenn viðhöfðu á fyrstu vikum og mánuðum hinnar nýju nefndar," segir Örn Ingi í grein sinni. Hann telur nefndina t.a.m. hafa gleymt gildi Laxdalshúss, sem elsta húss bæjarins og segir að nefndin hefði þá eins getað gengið alla leið og mælt meö því aö þurrka út öll menningarákvæði varðandi húsið og vísa því síðan sem rekstrarlegu hagsýsludæmi til atvinnumálanefndar. Hann átelur nefndina fyrir að vísa beiðni Norðurgluggans hf. urn stuðning athugasemdalaust til atvinnumálanefndar og segir: „Ég fæ samt ekki beturséö, en aö í þessu felist ákaflega fjandsam- leg menningarpólitík eða þá mjög svo slysalegur misskilning- ur, sem vekja verður athygli á.“ Hann tekur fleira fyrir og segir t.d. skóla- og menningarfulltrúa í einni og sömu persónunni „vond mistök“. SS - Sjá bls. 4-5. Akureyri: Deilt um starfshóp í öldmnarmálum Á fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar í gær var mikið rætt um öldrunarmál, og hvernig það hefði viljað til að starfshópur um stefnumótun í öldrunar- málum komst aldrei á legg, sbr. frétt í blaðinu í gær. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir sagði, að öldrunarráð hefði verið sammála tillögu Jóns Björnsson- ar um starfshópinn, og rætt liefði verið unt að skipa í Itann með sama hætti og félagsmálaráð gerði. Fullkomlega eölilegt væri að ráðin tvö stæðu að stefnumót- un með þessum hætti, en þó hefði formaður öldrunarráðs skyndi- lega komið með frávísunartil- lögu. Sigríður Stefánsdóttir tók í sama streng og sagði, að þetta mál sýndi úrræðaleysi meirihlut- ans í öldrunarmálum. EHB i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.