Dagur - 17.02.1988, Síða 10
1Q - ÐAQUR -17^'febr«ar.1988
tónlist
Góðir tónleikar
í Borgarbíói
Síðastliðinn laugardag voru
haldnir tónleikar í Borgarbíói á
vegum Tónlistarfélags Akureyr-
ar. Á tónleikunum flutti Gísli
Magnússon píanóleikari verk eft-
ir J.S. Bach, Beethoven og
Brahms, eða B-in þrjú, eins og
þessi tónskáld eru oft kölluð.
Gísli ræðst ekki á garðinn þar
scnt hann er lægstur í vali á
verkum. Þrjú stór verk á efnis-
skránni, fyrst Ensk svíta eftir
Bach, þá Sónata op. 110 eftir
Beethoven og loks Tilbrigði og
fúga eftir Brahms um stef eftir
Handel.
Ensku svíturnar samdi Bach á
árunum 1720-’30 þegar hann var í
þjónustu Leópolds fursta af
Cöthen. Ekki munu menn sam-
mála um það hvers vegna svít-
urnar eru sagðar enskar, sumir
segja þær hafa verið samdar fyrir
enskan heiðursmann, aðrir halda
því fram að ástæðan sé sú að í
i'yrstu svítttnni er notað stef eftir
Purcell. Én hvað sem líður öllum
vangaveltum um uppruna verk-
anna þá eru hér á ferðinni ein-
hver bestu verk Bachs fyrir
hljómborð. Sumir álíta það mikla
synd að leika hljóntborðsverk
Bachs á nútíma píanó, og er það
að suntu leyti skiljanlegt því að
píanóleikarar sem aðrir, bera
mismikla virðingu fyrir flutnings-
máta gömlu meistaranna. Gísli
lék Ensku svítuna no. 6, þá í d-
moll, og fórst það verk vel úr
hendi, þótt mér hafi fundist hann
helst til varkár á stundum. Fjöl-
röddunin komst yfirleitt vel til
skila og sá andi sem ríkir yfir
hverjum kafla fyrir sig var til
staðar en hefði að mínu mati
mátt koma sterkar fram og
skýrar.
Annað verkið á efnisskránni
og það seinna fyrir hlé, var Són-
ata Beethovens no. 31 í As-dúr
op. 110, eitt af erfiðari verkum
píanóbókmenntanna, túlkunar-
lega séð. Verkið samdi Beethov-
en árið 1821 og er þetta eina verk
Akureyrarkirkja:
Föstuguðs-
þjónustur
hefjast
Svo sem verið hefur um árabil
verða sérstakar guðsþjónustur í
Akureyrarkirkju á föstunni þar
sem píslarsaga frelsarans verður
lesin og hugleidd. Þessar athafnir
verða á hverju miðvikudags-
kvöldi fram að dymbilviku og
hefjast þær kl. 20.30. Sungið
verður úr Passíusálmum sr. Hall-
gríms Péturssonar og sérstök „lit-
anía“ (bænagjörð) flutt í víxlsöng
prests og safnaðar.
Allir eru velkomnir til þessara
stunda og er þess vænst að sent
flestir fylgist með lestrinum frá
upphafi og leiti sér endurnæring-
ar og styrks í því fagnaðarefni
sem fastan flytur. Sameinumst
um þann dýra arf og hugleiðum
merkingu þjáningargöngunnar
og krossdauðans! Minnumst orða
Drottins: „Komið til mín allir
þér, sem erfiði hafið og þungar
byrðar, og ég mun veita yður
hvíld . . : “ Matt. 11:28.
Sóknarprestar.
Akureyri:
Grímuball á
skautasvellinu
Skautafélag Akureyrar gengst
fyrir grímuballi á skautasvellinu í
dag á milli kl. 16.00 og 18.00.
Krakkar geta þá mætt á svæðið
með skautana sína og skautað í
takt við tónlistina. Þeir fá síðan
glaðning lrá Súkkulaðiverksmiðj-
unni Lindu áður en þeir fara.
Aðgangur er ókeypis.
Þórarinn Stefánsson skrifar:
Brahms setti fram skoðanir sínar
um hina hreinu og sönnu tónlist.
Þetta verk undirstrikar þessar
skoðanir Brahms því í verkinu
fer höfundurinn troðnar slóðir og
hverfur jafnvel aftur í tíma. Þó
svo að lítið sé um tóntegunda-
skipti og annað krydd þá býr í
verkinu mikið líf og hvert til-
brigði kallar á ákveðna stemmn-
ingu. Gísli lék vel, eins og í hin-
um verkunum, en helst til varlega
þannig að stemmningin og spenn-
an fóru svolítið fyrir ofan garð og
neðan hjá ntér, það var eins og
hann væri hræddur við það sem
hann var að gera, og óöruggur.
Þó svo að ég hafi sett eitthvað
smávegis út á þessa tónleika þá
voru þeir honum til mikils sóma
og þeim fáu sem þá sóttu hin
besta skemmtun. Það má svo
segja Gísla til hróss að hann lék
án allrar tilgerðar og eftir sinni
bestu sannfæringu.
Takk fyrir komuna.
ÞStef
Samstarfsráðherrar Norðurlandanna:
Beina athyglinni
að EFTA og EB
A ráðherrafundi norrænu sam-
starfsráðherranna, sem haldinn
var í Kaupmannahöfn þann 19.
janúar sl. voru ráðherrarnir sam-
mála um að á öllum sviðum nor-
ræns samstarfs yrðu menn að
fylgjast betur með því sem væri
að gerast á sambærilegum sviðum
innan EFTA og Evrópubanda-
lagsins. Af því tilefni var sam-
þykkt að beina eftirfarandi til-
ntælum til allra ráðherra í ríkis-
stjórnum Norðurlanda:
„Að fulltrúar ráðherranna í
hinum einstöku embættismanna-
nefndum á vegum ráðherranefnd-
arinnar:
- skiptist á upplýsingum, eftir
því sem þörf krefur, og veiti
upplýsingar um afstöðuna til
þróunarinnar í EB og EFTA
og ntilli EB og EFTA,
- veki athygli á tillögum varð-
andi innri markað EB, sem
þykja fela í sér sérstaka, sam-
eiginlega hagsmuni með tilliti
til afleiðinga viðkomandi til-
lagna fyrir samstarfið milli EB
og EFTA og fyrir norrænt
samstarf, til dæmis, tillögur á
sviði umhverfismála, vinnu-
umhverfis, neytendaverndar
og frjálsrar umferðar fólks og
fjármagns,
- athugi á hvaða sviðum árangur
norræns samstarfs megi helst
nýta til þess að hafa áhrif á
þróunina í EB og hvernig best
verði að því staðið,
- geri sér grein fyrir árangri
þeim, sem náðst hefur í evr-
ópsku samstarfi og meti á
hvern hátt vinna beri úr og
nýta þann árangur i norrænu
samstarfi,
- gefi samstarfsráðherrunum
reglulega skýrslur og berist
fyrsta áfangaskýrslan fyrir
apríllok 1988.“
Bréf þessa efnis hefur Matthías
Á. Mathiesen ritað til ráðherra
ríkisstjórnar íslands, en í lok
bréfsins segir:
„í norrænu samstarfi er málum
þessum sinnt af miklum þrótti og
hraða og búast má við því að af-
staða Norðurlanda til málsins
verði höfuð umræðuefnið á næsta
Norðurlandaráðsþingi, og fram-
vinda mála í þessunt efnum muni
hafa varanleg áhrif á samstarf
þjóða Norðurlandanna í framtíð-
inni.“
Föstuguðsþjónustur eru að hefjast í Akureyrarkirkju.
Ferð til Bankok
á fimmtíu krónur!
Bernharður Sturluson húsvörður
í Reykjavík datt aldeilis í lukku-
pottinn nú um daginn þegar hann
skrapaði fram Bankokferð á
Ferðaþristi, sem hann keypti sér í
Söluturninum við Ofanleiti í
Reykjavík.
Verðmæti ferðarinnar er
Á niyndinni niá sjá Bernharð Sturlu-
son verðandi Bankokfara taka við
miðanum frá Önnu Ólafsdóttur,
starfsmanni ferðaskrifstofunnar Atl-
antik.
rúmar 60.000 krónur og er Bern-
harður ákveðinn í að fara, þótt
ekki sé hann búinn að ákveða
hvenær.
Að sögn forráðamanna Ferða-
þristsins virðist sem lítið af vinn-
ingum hafi komiö fram jafnvel
þótt salan hafi verið mjög góð. Á
ferðaskrifstofu Atlantik fengum
við þær upplýsingar að aðeins
væri búið að innleysa 60 miða af
513 vinningsmiðum. Til dæmis er
aðeins búið að sækja tvo farseðla
til Bankok af ellefu, og eina ferð
af 20 til Bandaríkjanna.
Gísli Magnússon píanólcikari.
hans sem er dagsett það ár. Á
þessum tíma var heyrnarleysi
Beethovens farið að segja til sín
og verk hans orðin innhverfari og
einmanalegri, hann flýr veruleik-
ann í gegnunt tónlistina.
„Tónlistin er hærri opinberun
en öll viska og heimspeki... Sá,
sem öðlast skilning á tónlist
minni, Ieysist frá allri eymd,
sem þjáir aðra menn. “
(Beethoven, 1810.)
Gísli var meðvitaður um eðli
sónötunnar og lék íhugult og
yfirvegað og án tilgerðar. Þó
fannst mér hann hefði mátt vera
dýpri í nteðferð laglína.
Síðasta verkið sem Gísli lék og
jafnframt eina verkið eftir hlé,
voru 25 Tilbrigði og Fúga sem
Brahms skrifaði um stef eftir
Hándel. Tilbrigðin bera ópus-
númerið 24 og voru þau samin
árið 1861, eða um svipað leyti og
.fTTCOVTW