Dagur - 25.02.1988, Blaðsíða 7

Dagur - 25.02.1988, Blaðsíða 7
3&vfetoEú«Uí-198a - OAQUR - 7 Stúlkurnar sex hafa æft stíft undir stjórn Þorgerðar Kristinsdóttur, stundað líkamsrækt og Ijósaböð. Myndir: TLV Kamilla Rún Jóhannsdóttir er 18 ára Akureyringur og stundar nám í 2. bekk Menntaskólans á Akureyri. Áhugamál Kamillu eru líkamsrækt, tónlist og félags- líf yfirhöfuð. Hún stefnir annað hvort á sálfræði- eða félagsfræði- nám. Rósa Berglind Arnardóttur er 20 ára Akureyringur. Áhugamál Rósu eru skíði, líkamsrækt og ferðalög. Framtíðaráform henn- ar lúta að fóstrustarfinu því hún stefnir á fóstrunám. Harpa Hlín Jónsdóttir er 20 ára Ólafsfirðingur. Harpa er lærður sjúkraliði og vinnur á Lyfjadeild FSA. Áhugamál henn- ar eru fyrst og fremst íþróttir, auk þess sem henni þykir mjög gam- an að ferðast. Framtíðaráform: Stefnir á nám í lyfjafræði, að verða hamingjusöm og eignast stóra fjölskyldu. Sigríður Haraldsdóttir er 18 ára Dalvíkingur og hún er við nám í 2. bekk Menntaskólans á Akureyri. Áhugamál Sigríðar eru útivera og líkamsrækt, auk þess sem hún hefur mikinn áhuga á hestum og reyndar öllum dýrum. Hún stefnir á nám í fjöl- miðlafræði erlendis og koma heim að því loknu og eignast minnst 10 börn. Þóra Jósefsdóttir er 18 ára Akureyringur og er í 2. bekk Menntaskólans á Akureyri. Helsta áhugamál Þóru er leiklist, en hún hefur starfað með Leik- klúbbnum Sögu í tæp 5 ár. Hún stefnir að því að ljúka stúdents- prófi og fara síðan í mannfélags- fræðinám. Fjóla Díanna Gunnarsdóttir er 19 ára Ólafsfirðingur og vinnur á barnaheimili. Áhugamál Fjólu eru íþróttir og almenn líkams- rækt. Þá saumar hún mikið og hefur unnið við tískusýningar. Hún stefnir að fóstrunámi í fram- tíðinni. Gekk ekki nógu vel að fá keppendur Þorgerður Kristinsdóttir sér um þjálfun stúlknanna. Hún tók þátt í keppninni um Ungfrú Norður- land í fyrra og er því öllum hnút- um kunnug. Þorgerður var spurð að því hvort hún lumaði á ein- hverri töfraformúlu handa stúlk- unum sex: „Nei, en ég reyni að segja þeim frá eigin reynslu. Ég lærði mikið á þessu og hafði líka mjög gaman af því að taka þátt í keppninni. Ég hefði aldrei farið út í að þjálfa stelpurnar ef ég hefði ekki þessa reynslu sjálf.“ - Verður keppnin með svip- uðu sniði og í fyrra? „Já, mjög svipuðu sniði. Þetta verður virðulegt kvöld og allt lagt í það að gera það sem glæsileg- ast.“ - Hvenær hófust æfingar? „Við byrjuðum aðeins að æfa fyrir jól en síðan var byrjað á fullu eftir áramótin við sleitulaus- ar æfingar. Stelpurnar æfa líkamsrækt í íþróttahöllinni og við æfum í Sjallanum svo til öll kvöld.“ - Hefurðu reynt að halda þeim frá fitandi og óhollum mat? „Eftir fremsta megni, en auð- vitað verða þær að ráða því sjálf- ar hvað þær borða.“ - En segðu mér, hvernig gekk að velja og fá stúlkur til að taka þátt í keppninni? „Það gekk ekki nógu vel til að byrja með. Við Inga fengum mörg „nei“ áður en okkur tókst að fá nægilega marga keppendur. Sérstaklega gekk illa að fá kepp- endur frá stöðum utan Akureyr- ar, svo sem á Húsavík, Siglufirði og Sauðárkróki. Þaö er mikil synd, því keppnin heitir Ungfrú Norðurland og skemmtilegast hefði verið að fá stelpur alls staðar af Norðurlandi." - Kanntu einhverja skýringu á því af hverju svo margar stúlkur vildu ekki taka þátt í keppninni? „Nei, þetta vafðist eitthvað fyrir þeim. Þó hefur viðhorf fólks til fegurðarsamkeppna orðið jákvæðara með árunum en mætti samt batna enn frekar. Þetta er sjálfsagt einhver feimni í stelpun- um.“ Stóra stundin í kvöld rennur stóra stundin upp hjá stúlkunum. Þær spjara sig etlaust vel, enda voru þær örugg- ar í fasi á æfingunni á mánudags- kvöldið. í dag munu þær ganga fyrir dómnefndina og svara nokkrum spurningum en borð- haldið í Sjallanum hefst kl. 19 í kvöld og keppnin fylgir í kjölfar- ið. Boðið verður upp á ýmis skemmtiatriði og sýningar. Bald- ur Brjánsson skemmtikraftur mætir á staðinn, þá verður tískusýning frá Perfect, Baldvin Jónsson umboðsmaður flytur ávarp og Ferðaskrifstofa Reykja- víkur verður með ferðakynningu. Kynnir kvöldsins verður Jóhann Steinsson en dómnefndina skipa: Ólafur Laufdal, formaður, Frið- þjófur Helgason, Ijósmyndari, Erla Haraldsdóttir, danskennari, María Einarsdóttir, verslunar- stjóri og Þráinn Lárusson veit- ingamaður. Stúlkan sem kosin verður Ungfrú Norðurland mun síðar taka þátt í keppninni um titilinn Ungfrú fsland. I kvöld verður einnig kosin vinsælasta stúlkan og ijósmyndafyrirsæta Norður- lands. Að sögn Ingu Hafsteinsdóttur hafa fyrirtæki sýnt keppninni mikinn áhuga og munu stúlkurn- ar fá margar fallegar gjafir og viðurkenningar. Sigurvegarinn fær utanlandsferð með Ferða- skrifstofu Reykjavíkur, vöru- úttekt í versluninni Perfect, ljósatíma og snyrtivörur frá Stjörnusól, skartgripi frá Komp- unni, gullkeðju frá Skart, bað- línu frá Van Cleef Arpels frá Vörusölunni, gallery mynd frá AB-búðinni, Roch Watch granít- úr frá Jóni Bjarnasyni, matar- úttekt í Smiðjunni og tíu þúsund króna úttekt í Skótískunni. Allar stúlkurnar fá Act skó frá Skódeild Sambandsins, model- peysur frá Álafoss hf., konfekt frá Lindu, Sans Soucis ilmvatn frá snyrtivörudeild KEA, snyrti- vörur frá versluninni Hún og hann, hárblásara frá Akurvík, íþróttagalla frá Sporthúsinu, matarúttekt frá Crown Chicken og Macintosh og Panda konfekt frá Heildverslun Tómasar Stein- grímssonar. Sjallinn, Fegurðarsamkeppni íslands og Ferðaskrifstofa Reykjavíkur halda keppnina um fegurðardrottningu Norðurlands en aðrir aðstandendur eru: Hár- snyrtistofan Passion, Snyrtistofan Eva, Vörubær og Hljóðbylgjan. Stúlkurnar bera skartgripi frá Tískuverslun Steinunnar og eru í sundbolum frá Amaró. SS Fagurt er fljóðið sem foss afstÆ er feflur gfarandi, meríandi og mjiáur. Minnist ég þín mcerin bjarta. Vorið d vcengjum viMst fiingað er veflaðir fú. Sóím úr sorta sencú gásía er skópu fegurðina. Illa gekk að fá keppendur frá Sauðárkróki, Siglufirði og Húsavík, hvernig sem á því stendur. Mynd: tlv

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.