Dagur - 25.02.1988, Blaðsíða 13

Dagur - 25.02.1988, Blaðsíða 13
 25..fpbrúar 1988 - PAG^R - 18 Skildi við komma og giftist mági sínum Guilliano Straforini yfirgaf eigin- konu sína, svo hann gæti gifst bróður hennar! Undarlegur ást- arþríhyrningur það. Brúður hans er fyrrverandi málmiðnaðarmað- ur sem hét Mario Tampieri áður en hann gekkst undir kynskipti- aðgerð. Eftir aðgerðina breytti hann nafni sínu í María. „Fyrst var ég mágur Guilliano’s, en varð síðan mágkona hans. Að lokum er ég orðin eiginkona hans,“ sagði hin 38 ára gamla brúður hrærð eftir giftingar- athöfnina á Ítalíu, 28. nóvember sl. þar sem tárin flóðu á báða bóga. „Ég er hamingjusamasta kona - og ég trúi varla mínum eigin eyrum þegar ég kalla mig konu - í heiminum!" Hinn 38 ára gamli brúðgumi Guilliano, sem alls á 11 börn með tveim fyrrverandi eiginkonum sínum sagði fréttamanni: „Ég hef snúið við blaðinu varðandi eigið líf og vona að nú sé það til fram- búðar. Ég er mjög hamingjusam- ur með Maríu því hún er blíðasta og næmasta kona sem nokkurn tíma hefur elskað mig.“ María viðurkennir að kyn- skipliaðgerðin hafi skapað nokk- uð einkennilega aðstöðu varð- andi fjölskyldutengsl. Sem dæmi, var hún áður frændi barna Guilli- ano’s, en nú er hún stjúpmóðir þeirra. Áður fyrr, á meðan hún hét Mario, fannst honum alltaf hann vera kona fönguð í karlmannsiík- ama, því hann elskaði að klæða sig í kvenföt og laðaðist ekki að kvenfólki. Mario fór í herinn og vann við málmsmíði sem ungur maður. Árið 1978 bauð systir hans, Enilde honum að flytja til sín og eiginmanns síns, Guilliano, sem hann þáði. „Ég tók þátt í kostnaði vegna heimilisrekstursins með því að vinna sem hjúkrunarfræðingur við bæjarsjúkrahúsið. Hjá þeim leið ég ekki aðeins fyrir það að langa til að vera kona, heldur fann ég að ég var orðinn ástfang- inn af Guilliano. Með því að umgangast hann svona mikið, komst ég að því hve yndislegur, blíður og skilningsríkur maður hann er. Ég hélt þó aftur af til- finningum mínum því ég gat ekki ímyndað mér að gott hlytist af því að láta þær í ljós. Dag einn sagði ég honum þó, að mér fynd- ist ég vera kona, fönguð í karl- mannslíkama. Guilliano skildi mig samstundis og sagði: „Ósköp hlýtur þér að líða illa og mikið hefur þú þurft að þola.“ Trúnað- ur okkar um þetta hélt áfram, en ég hélt áfram að leyna hann til- finningum mínum.“ Síðla árs 1980 hófst hið tvö- falda líf Mario’s þegar hann fór að fara út að kvöldlagi, klæddur í kvenmannsföt. „Kvöld eitt gerð- ist það síðan, að drukkinn öku- maður ók á mig á götu og farið var með mig á sjúkrahúsið þar sem ég vann sem hjúkrunar- fræðingur. Leyndarmálið um mitt tvöfalda líf komst upp og ég var rekinn. Á meðan ég lá á sjúkrahúsinu að ná mér eftir meiðsl mín, heim- sótti Guilliano mig oft. Tilfinn- ingar mínar til hans urðu sífellt sterkari, en eitthvað var það sem aftraði mér frá því að segja hon- um að ég elskaði liann. Loks eitt sinn þegar Guilliano var í heim- sókn hjá mér, tók hann í höndina á mér og sagði: „Mér er alveg sama hvort þú ert kona eða karl, ég elska þig.“ Bergnuminn hóf Mario þegar að gera ráðstafanir til að gangast undir kynskiptiaðgerð. Um svipað leyti stóð hjóna- band Guilliano’s og Enilde á brauðfótum, því þau rifust sí og æ. Enilde sagðist hafa komist að sambandi eiginmanns síns og bróður þegar Guilliano kom til hennar með tárin í augunum og sagði: „Ég vil losna úr þessu hjónabandi því ég er ástfanginn af bróður þínum!" Enilde sagði: „Ég hélt ég myndi detta niður dauð og hefði haldið að liann væri að spauga ef ég hefði ekki séð tárin renna niður kinnarnar á honum. Ég gat ekki sagt orð í tleiri klukkutíma. Mig langaði að gráta, öskra, fá útrás, drepa bróður minn eða systur, eða hvað í fj . . . hann er, en ég var lömuð af sársauka. Að sjá föður barnanna þinna yfirgefa þig vegna þess að hann er yfir sig ástfanginn af bróður þínum er meira en ímyndunar- ríkustu skáldsagnahöfundar geta látið sér detta í hug. Ég vil aldrei sjá þá aftur, aldrei! Árið 1985 gekkst Mario undir kynskiptiaðgerð og varð María, „í stað þess að vera óhamingju- samur maður, gerðist ég ham- ingjusöm kona sem er dáð af mönnum,“ sagði hún. „Á brúðkaupsdaginn minn, krafðist ég þess að við gengjum til kirkju svo allir gætu séð mig tneð Guilliano. Fólkið hafði stráð blómum á leiðina og kallaði til okkar: „Lengi lifi brúðurin.“ Brúðkaupsdagur okkar var töfr- um líkur; ógleymanlegur. Þegar ég sagði já, hélt ég að hjartað í mér myndi springa.“ rJ dogskrá fjölmiðla SJONVARPIÐ FIMMTUDAGUR 25. febrúar 17.20 Ritmálsfréttir. 17.30 Vetrarólympíuleikarnir í Calgary. 20 km ganga kvenna og fleira. 19.20 Fréttaágrip og táknmáls- fróttir. 19.25 Stundin okkar. Endursýndur þáttur frá 21. febrúar. 20.00 Fróttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Spurningum svarað. Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup svarar spumingum leikmanna. I þessum þætti spyr Vigdís Grímsdóttir rithöfundur hvaða erindi list og listsköpun eigi við nútímamanninn. 20.50 Kastljós. 21.25 Reykjavíkurskákmótið. Bein útsending frá Hótel Loft- leiðum. Umsjón: Ingvar Ásmundsson og Hallur Hallsson. 21.40 Matlock. 22.30 Vetrarólympíuleikarnir í Calgary. 20 km ganga kvenna. Stórsvig karla. Meðal keppenda er Daníel Hilmarsson. 23.00 Dagskrárlok. SJONVARP AKUREYRI FIMMTUDAGUR 25. febrúar 16.35 Nýlendur. (Outland.) Spennumynd sem gerist á næstu öld á annarri reikistjörnu. 18.15 Litli folinn og félagar. Teiknimynd með íslensku tali. 18.45 Handknattleikur. Sýnt frá helstu mótum í hand- knattleik. 19.19 19.19. 20.30 Á heimaslóðum. Þemadagar í VMA. Viðtal við þjálfara Þórs og KA í handbolta. Sérkennileg íþrótt, bandy. Umsjón: Helga Jóna Sveinsdóttir. 21.20 Bítlar og blómabörn. Fjórði þáttur af 7 sem Stöð 2 hef- ur látið gera um tónlist og tíðar- anda bítlaáranna. 21.50 Eyðimerkurhernaður. (Desert Fox.) Hér er á ferðinni fyrsta flokks stríðsmynd sem fjallar um aðdraganda þeirrar frægu orr- ustu er háð var í Norður-Afríku milli Þjóðverja og bandamanna í seinni heimsstyrjöldinni; 23.20 Firring. (Runaway.) í myndinni leikur Tom Sellec lög- reglumann sem hefur þá atvinnu að elta uppi vélmenni sem hafa verið forrituð til þess að vinna illvirki. Bönnuð börnum. 01.05 Dagskrárlok. © RÁS 1 FIMMTUDAGUR 25. febrúar 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fróttir. 7.03 í morgunsárið 9.00 Fróttir. 9.03 Morgunstund barnanna: „Húsið á sléttunni" eftir Lauru Ingalls Wilder. 9.30 Dagmál. 10.00 Fréttir • Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. 11.00 Fróttir • Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. 12.00 Fréttayfirlit • Tónlist • Til- kynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Tilkynning- ar • Tónlist. 13.05 í dagsins önn - Börn og umhverfi. 13.35 Miðdegissagan: „Á ferð um Kýpur" eftir Olive Murray Chapman. 14.00 Fréttir • Tilkynningar. 14.05 Fyrir mig og kannski þig. Umsjón: Margrét Blöndal. (Frá Akureyri.) 15.00 Fréttir. 15.03 Þingfréttir. 15.20 Landpósturinn - Frá Norðurlandi. Umsjón: Sigurður Tómas Björg- vinsson. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið - Frakkland. Franskar sögur og tónlist frá Frakklandi. 17.00 Fróttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Grieg og Rakhmaninoff. 18.00 Fróttir. 18.03 Torgið - Úr atvinnulifinu. Tónlist • Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfróttir. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Að utan. 20.00 Tónlistarkvöld Ríkisút- varpsins. 22.00 Fróttir • Dagskrá morgun- dagsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma. Séra Heimir Steinsson les 21. sálm. 22.30 Takmarkalaus forvitni. Þáttur um bandaríska rithöfund- inn Mörthu Gellhorn. 23.10 Draumatíminn. Kristján Frímann fjallar um merkingu drauma, leikur tónlist af plötum og les ljóð. 24.00 Fróttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. FM 104 FIMMTUDAGUR 25. febrúar 07.00-09.00 Morgunþáttur Þorgeirs Ástvaldssonar. 09.00-12.00 Jón Axel Ólafsson sér um seinni hluta morgunþátt- ar. 12.00-13.00 Hádegisútvarp með Bjarna Degi Jónssyni. 13.00-16.00 Helgi Rúnar Óskars- son. Létt lög við vinnuna og námið. 16.00-18.00 Mannlegi þátturinn. Árni Magnússon. 18.00-19.00 íslenskir tónar. Sígild islensk dægurlög. 19.00-20.00 Gullaldartónlist rokksins. 20.00-24.00 Síðkvöld á Stjörn- unni. Bein útsending frá krýningu feg- urðardrottningar Norðurlands. 24.00-07.00 Næturútvarp Stjörn- unnar. FM 102,8 FIMMTUDAGUR 25. febrúar 08.00-11.00 Straujárn. Dagskrá dagsins kynnt, létt spjall og tónlist. Umsjón: Jón H. og Rúnar. 11.00-14.00 Smjör-hnetur. Stefán og Stefán spjalla um billj- ardkeppni og leika létta tónlist. 14.00-17.00 Grútarbiflía. Spiluð góð tónlist og fjallað um ræðukeppni. Umsjón: Árni Þór og Jónas Þór. 17.00-20.00 Ostapopp. Helgi og Jón Stefán taka viðtöl við nemendur um opnu dagana. Einnig minnast þeir sambands austurs og vesturs. 20.00-21.00 Raungreinajass. 21.00-24.00 Hlerar. Góð tónlist í kvöldstemmning- unni með Magga og Gumma. áll FIMMTUDAGUR 25. febrúar 7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með fróttayf- irliti, fréttum og veðurfregnum. Fastir liðir en alls ekki allir eins og venjulega - morgunverkin á Rás 2, talað við fólk sem hefur frá ýmsu að segja. Hlustenda- þjónustan er á sínum stað en auk þess talar Hafsteinn Haf- liðason um gróður og blómarækt á tíunda tímanum. 10.05 Miðmorgunssyrpa. Einungis leikin lög með íslensk- um flytjendum, sagðar fréttir af tónleikum innanlands um helg- ina og kynntar hljómplötur. 12.00 Á hádegi. Dægurmálaútvarp á hádegi hefst með yfirliti hádegisfrétta kl. 12.00. Stefán Jón Hafstein flytur skýrslu um dægurmál og kynnir hlustendaþjónustuna, þáttinn „Leitað svars" og vettvang fyrir hlustendur með „orð í eyra“. Sími hlustendaþjónustunnar er 693661. 12.20 Hádegisfróttir. 12.45 Á milli mála. 16.03 Dagskrá. Meinhornið verður opnað fyrir nöldurskjóður þjóðarinnar klukkan að ganga sex. Sem endranær spjallað um heima og geima. 19.00 Kvöldfróttir. 19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi. 22.07 Nútíminn. - Kynning á nýjum plötum, frétt- ir úr poppheiminum o.fl. 23.00 Af fingrum fram. 00.10 Vökudraumar. 01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi til morguns. Veðurfregnir kl. 4.30. RIWSUIVARPK) ÁAKUREYRI Svæðisútvarp fyrir Akure'-ri og nágrenni. FIMMTUDAGUR 25. febniar 8.07-8.30 Svæðisútvarp Norður- lands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norður- lands. Umsjón: Gestur Einar Jónasson. Hljóðbylgjan FM 101,8 FIMMTUDAGUR 25. febrúar 08-12 OlgaBjörg verður hlustendum innan hand- ar með fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 12- 13 Tónlist. 13- 17 Pálmi Guðmundsson i góðu sambandi við hlustendur. Óskalög, kveðjur og vinsælda- listapoppið í réttum nlutföllum við gömlu lögin. Síminn 27711. 17-19 Ómar Pétursson og íslensk tónlist. Tími tækifær- anna á sinum stað klukkan hálf sex. Síminn er 27711. 19- 20 Ókynnt tónlist. 20- 23 Steindór G. Steindórsson í stofu Hljóðbylgjunnar ásamt gestum. Rabbað í gamni og alvöru um lífið og tilveruna. 23-24 Ljúf tónlist í dagskrárlok. Fréttir klukkan 10.00, 15.00 og 18.00. 989 BYLGJAN, FIMMTUDAGUR 25. febrúar 07.00-09.00 Stefán Jökulsson og morgunbylgjan. Góð morguntónlist hjá Stefóni, hann tekur á móti gestum og lít- ur i morgunblöðin. 09.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. Hressilegt morgunpopp gamait og nýtt. 12.00-12.10 Hádegisfréttir. 12.10-15.00 Ásgeir Tómasson á hádegi. Létt tónhst, gömlu góðu lögin og vinsældalistapopp í réttum hlut fölium. Saga dagsins rakin kl 13.30. 15.00-18.00 Pétur Steinn Guð- mundsson og síðdegisbylgjan. Pétur Steinn leggur áherslu á góða tónhst í lok vinnudagsins. Litið á helstu vinsældahstana kl 15.30. 18.00-19.00 Hallgrimur Thor steinsson í Reykjavík síðdegis Kvöldfréttatími Bylgjunnar. Hahgrimur litur á fréttir dagsins með fólkinu sem kemur við sögu. 19.00-21.00 Bylgjukvöldið hafið með góðri tónlist. 21.00-24.00 Július Brjánsson. Fyrir neðan nefið. 24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgj- unnar. - Felix Bergsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.