Dagur - 25.02.1988, Blaðsíða 11

Dagur - 25.02.1988, Blaðsíða 11
25: februar 1988 - DAGUR - 11 Krossgátubók ársins ’88 Krossgátubók ársins ’88 er komin út. Útgefandi er Ó.P. útgáfan. Höfundar eru þeir Haukur Svav- ars og Sigtryggur Þórhallsson. Þetta er fimmta bókin sem séð hefur dagsins ljós, en bók þessi kemur út um hver áramót. Þess má geta að útgefandinn, Ó.P. útgáfan, gefur einnig út hið víð- keypta rit Heimiliskrossgátur. Samstarf VISA og Krabba- meinsfélagsins um reglubundin styrktarframlög VISA ísland og Krabbameins- félagið hafa samið um að kort- höfum verði gefinn kostur á styðja starf félagins með reglu- legum framlögum sem verða millifærð af reikningi korthafa. Framlög VISA-korthafa munu verða notuð til að styðja tvö verkefni, annars vegar aukna þjónustu við krabbameinssjúkl- inga, hins vegar nýjar rann- sóknir á krabbamcini. Ætlunin er að efla mjög starf Krabbameinsfélagsins að málefn- um krabbameinssjúklinga. Und- anfarin ár hafa nokkrir stuðn- ingshópar sjúklinga starfað í skjóli félagsins og ný samtök krabbameinssjúklinga voru stofnuð í fyrrahaust. Á síðasta ári hófst heimahlynning fyrir sjúklinga og veittar eru upplýs- ingar og ráðgjöf alla virka daga í síma 21122. Nú er í undirbúningi endurhæfing fyrir krabbameins- sjúklinga og er þá átt við and- lega, líkamlega og félagslega endurhæfingu. Geta Krabba- meinsfélagsins til að takast á við þetta nýja verkefni veltur að miklu leyti á fjárstuðningi VISA- korthafa og annarra velunnara félagsins. Nýlega hefur Krabbameinsfé- lagið komið á fót Rannsókna- stofu í sameinda- og frumulíf- fræði og mun hluti af væntanlegu stuðningsfé VISA-korthafa renna til þeirrar starfsemi. Hér á landi er að mörgu leyti einstakt tækifæri til krabbameinsrann- sókna. Tilgangur rannsóknastof- unnar er að nýta tiltækan efnivið og aðstöðu til að afla meiri þekk- ingar á eðli og hegðun krabba- meins. Verður unnið að rann- sóknum og tilraunum á sýnum frá sjúku og heilbrigðu fólki, t.d. blóð- og vefjasýnum. Leitað verður svara við spurningum eins og þeirri hvort finna megi erfða- vísa eða afbrigði í frumustarf- semi sem .gætu gefið til kynna hvort sumu fólki sé hættara en öðru við að fá krabbamein. Rannsóknir á brjóstakrabba- meini verða helsta viðfangsefnið í byrjun. Korthafar VISA sem vilja styðja þetta málefni geta fyllt út svarseðil. sem mun berast með reikningsyfirliti um þessi mán- aðamót. Einnig er hægt að til- kynna um framlög til Krabba- meinsfélagsins í síma 621100. Allt smáprent • Allt smáprent Allt smáprent • Allt smáprent Allt smáprent • Allt smáprent Allt smáprent • Allt smáprent Allt smáprent • Allt smáprent Allt smáprent • Allt smáprent Dagsprent Strandgötu 31 • 0 24222 r 1 > Kynnmgar- og fræðsluftindur verður haldinn á Hótel KEA sunnudaginn 28. feb. kl. 15.00. Anna Sveinbjörnsdóttir og Unnur Alfreðsdóttir iðjuþjálfar frá Gigtlækningastöðinni kynna hjálpar- tæki og halda erindi um liðvernd. Allir velkomnir. Gigtarfélagið á Norðurlandi eystra. Náttúrulækningafélagið. AKUREYRARBÆR Framkvæmdanefnd íbúðabygginga fyrir aldraða auglýsir: Umsóknarfrestur um íbúðir í síðara fjölbýlishúsinu og um rað- húsin við Víðilund er til 1. mars nk. Upplýsingar eru veittar í síma 22860 kl. 9-10 virka daga. Framkvæmdanefndin. Kjarvalsstofa í París Kjarvalsstofa í París er íbúð og vinnustofa, sem ætl- uð er til dvalar fyrir íslenska listamenn. Reykjavíkur- borg, Menntamálaráðuneytið og Seðlabanki Islands lögðu fram fé til þess að koma upp slíkri starfsað- stöðu í Parísarborg með samningi við stofnun, sem nefndist Cité Internationale des Arts og var samn- ingurinn gerður á árinu 1986. Kjarvalsstofa er í mið- borg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Sérstök stjórnarnefnd fer með málefni Kjarvalsstofu og gerir hún tillögu um úthlutun dvalartíma þar til stjórnarCité Internationaledes Arts, ertekurendan- legaákvörðun um málið. Dvalartími erskemmstur2 mánuðir en lengst er heimilt að veita listamanni af- not Kjarvalsstofu í 1 ár. Þeir, sem dvelja í Kjarvalsstofu greiða dvalargjöld, er ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts og miðast við kostnað af rekstri hennar og þess búnað- ar, sem þeir þarfnast. Þessi gjöld eru lægri en al- menn leiga i Parísarborg. Dvalargestir skuldbinda sig til þess að hlíta reglum Cité Internationale des Arts varðandi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu og jafnframt skuldbindaþeir sig til þess að dvöl lokinni að senda stjórn Kjarvalsstofu st'utta greinargerð um störf sín. Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot Kjar- valsstofu, en stjórnin mun á fundi sínum í apríl fjalla um afnot listamanna af stofunni tímabilið 1. júlí 1988—30. júní 1989. Skal stíla umsóknir til stjórnar- nefndar Kjarvalsstofu. Tekið er á móti umsóknum til stjórnarnefndarinnar I skjalasafni borgarskrifstof- anna að Austurstræti 16, en þar liggja einnig frammi umsóknareyðublöð og afrit af þeim reglum, sem gilda um afnot af Kjarvalsstofu. Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að koma til greina við þessa úthlutun. Umsóknum skal skila ( síðasta lagi 25. mars n.k. Reykjavfk, 21. febrúar 1988, Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu. Innilega þökkum við ölium sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför JÓNS GUÐMUNDSSONAR, frá Molastöðum. Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Kvennaleikfimi Nýtt mánaðarnámskeið hefst mánudaginn 29. febrúar. Styrkjandi æfingar, teygjur og þrek. Ekkert hopp. Kennari: Ellen Hákansson. Upplýsingar og innritun frá kl. 15-22 virka daga í síma 24979. Tryggvabraut 22 Akureyri RADQOF Oc'R^ÐNIFCAÍ Ábyrgðarstarf Framleiðslufyrirtæki óskar að ráða viðskiptafræðing eða starfsmann með hliðstæða menntun til að annast fjármál, áætlanagerð og markaðsmál. Þarf að geta hafið störf fljótlega. Starfsreynsla æskileg. Nánari upplýsingar á skrifstofunni að Brekkugötu 1. Sími 27577. Opið kl. 13 til 17. Stefanía Arnórsdóttir. Valgerður Magnúsdóttir. Atvlrma á skiimaiðnaði Getum bætt við á dagvakt duglegu og hressu starfsfólki. UpplýísmgEir- hjá starfsmannastjóra í síma 21900 (222). IÐNADARDEILD SAMBANDSINS GLERÁRGÖTU 28 AKUREYRI SÍMI (96)21900 Gistiheimilið Ás vantar duglega konu til afleysingastarfa í einn til tvo mánuði. Þarf að vera heimavinnandi og geta mætt hvaða dag sem er. Upplýsingar í síma 26110 milli kl. 17 og 20. Aðstoð á tannlækningastofu Óska eftir aðstoðarstúlku á tannlækningastofu. Helst með sjúkraliðamenntun. Vinnutími frá kl. 1-6. Þarf að geta hafið störf fljótlega. Umsóknir sendist á afgreiðslu Dags fyrir 3. mars merkt „Jaxl“.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.