Dagur


Dagur - 08.03.1988, Qupperneq 8

Dagur - 08.03.1988, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 8. mars 1988 Um steinakast úr glerhilsi - Leifi Jóhannssyni form. Landssambands hestamannafélaga svarað Leifur Jóhannesson, formaður L.H. sendir mér undirrituðum ekki hlýlega kveðju í Degi 19. febr. sl., þar sem hann sakar mig um ósann- indi og rangfærslur. Ef allt væri satt sem L.J. segir þar og annars staðar mætti ætla að Vel-lygni Bjarni hafi verið algjör sannleikspostuli miðað við undirritaðan, sem eflaust væri best geymdur bak við lás og slá. Ja, svei. Þeir eiga ekki að kasta steinum sem í glerhúsi búa. Ég hélt að svo háttsettur maður léti ekki slíkt frá sér fara, en ef til vill hefur ritari samtakanna, Kári Arnórsson, hjálpað upp á ritsmíðina sem minnir óneitanlega um sumt á grein í DV 4. nóv. sl. merkta K.Á. Er L.J. ekki enn búinn að skilja það að eyfirskir hestamenn standa saman sem einn maður til að mótmæla þeirri valdníðslu og því ranglæti sem meirihluti stjórnar L.H. hefur beitt í þessu máli. Klaufaskapur og lánleysi Hver skilur félag sitt eftir í sárum, undirritaður sem hlaut einróma kosningu sem formaður Léttis á aðalfundi 21. febr. sl. eða L.J. sem með þvergirðingshætti sínum, klaufaskap og lánleysi hefur hrakið félög úr samtökum hestamanna og valdið slíkum glundroða í allri starfsemi hesta- manna að með ólíkindum er. Gerir L.J. sér grein fyrir því að félagafjöldi þessara félaga sem sagt hafa skilið við samtökin er um '/3 af félagsmönnum L.H. á Norðurlandi. Er L.J. ekki enn búinn að átta sig á því að Eyfirð- ingar standa ekki einir í þessari baráttu sem snýst um ósköp ein- faldan hlut. Á undirskrifuð sátt- argjörð sem stjórn L.H. stóð fyr- ir og skrifaði undir ásamt stjórn- armönnum allflestra hesta- mannafélaga á Norðurlandi að standa eða ekki? í fórum undir- ritaðs er svohljóðandi samþykkt gerð á ársþingi L.H. sl. haust: „ Undirritaðir þingfulltrúar á ársþingi L.H., haldið á Selfossi dagana 30. og 31. okt. 1987, lýs- um yfir stuðningi við þá skoðun að ekki hafi verið rétt að ógilda niðurstöðu sáttafundar þess er stjórn L.H. gekkst fyrir í Varma- hlíð 1980. Við biðjum Eyfirðinga að fyrirgefa það sem misgert hef- ur verið og að þeir styrki L.H. með áframhaldandi veru sinni í samtökunum. “ Undir þessa ályktun rituðu 37 fulltrúar víðs vegar af landinu, þar á meðal fyrrv. form. L.H., Albert Jóhannsson, fyrrum og núverandi stjórnar- og vara- stjórnarmenn L.H., ásamt for- mönnum og fulltrúum félaga víðs vegar af landinu. Hefur L.J. ekki séð ályktun sem samþykkt var samhljóða nýverið á aðalfundi Fáks í Reykjavík, stærsta félagi landsins, sem m.a. tekur undir þessa samþykkt og var þó stadd- ur þar framkvæmdastjóri samtak- anna og skósveinn þinn, Guð- mundur Ó, Guðmundsson, sem treysti sér ekki til að mæla í mót þessari ályktun. Segir þetta þér ekki neitt? Nei, eflaust ekki. All- ir skulu sitja og standa eins og þið viljið. Meira að segja mátti rit- nefnd Hestsins okkar, málgagns samtakanna, „taka pokann sinn“ fyrir að voga sér að átelja vinnu- brögð stjórnar L.H. á hæverskan og kurteisan máta. Öll vinnu- brögð meirihluta stjórnar L.H. einkennast af ofsa og einstreng- ingshætti, sem ætti ekki að þekkj- ast í félagsskap á borð við L.H. í áðurnefndri grein í Degi sakar þú mig um rangfærslur varðandi bréf Hestamannafélagsins Hrings á Dalvík til stjórnar L.H. Stað- reyndin er þessi. Bréfi Hrings var aldrei svarað, hvað þá að nokkuð væri gert með innihald þess, þar sem Hringsmenn hvöttu til þess að reyna að koma á sáttum fyrir landsþing. Hvað var gert? Ekkert. Tillaga kom frá sáttfúsum mönnum Um annað efni greinar L.J. er fátt að segja. Gömul slagorð ein- kenna hana sem áður hefur verið svarað og ekki ástæða til að endurtaka hér. Þó er í lok grein- arinnar smá klausa sem þú reynd- ar endurtekur í Degi 23. febr. Það er um samningsboð frá stjórn L.H. til okkar varðandi lausn deilunnar og að nú sé bolt- inn hjá okkur. Hvaða bolti? Ég skal segja þér Leifur að ef við Eyfirðingar hefðum átt að leysa þetta mál einir þá værum við búnir að því. Þú talar um að það verði að vera hægt að tala saman. Hverjir voru það sem sendu fundarboð til stjórnar L.H. sl. haust? Hver voru viðbrögðin? Enginn kom, og þeir stjórnar- menn L.H. sem voru taldir hlið- hollir Eyfirðingum fengu ekki að vita um fundarboðið. Hverjir voru það sem komu til ársþings í haust og lýstu því yfir að þeir væru þangað komnir til að leita sátta, lögðum málið hreinskilnis- lega fram en ákváðum að taka ekki þátt í umræðum né í atkvæðagreiðslum til að tefja ekki þingstörf? Hver voru við- brögðin? Á nefndarfundi kom fram tillaga frá sáttfúsum mönn- um þess efnis að fresta umræðum og skorað var á stjórn samtak- anna og deiluaðila að hittast þá strax um kvöldið og nýta þann tíma sem gæfist til að reyna sátta- leiðina. En hvað gerðist? Nær all- ir þeir sem handgengnir voru stjórn L.H. með Skagfirðinga í broddi fylkingar, greiddu atkvæði gegn þessari hugmynd. En sem betur fór voru þeir í minnihluta en ekkert raunhæft var gert til sátta og enginn stjórn- armaður L.H. sást fyrr en morg- uninn eftir. Vorum við þá boðað- ir til svokallaðs sáttafundar, en þurftum að vísu að bíða um stund fram á gangi ásamt stjórn L.H. á meðan aðstandendur Vindheimamela börðu kjark í lið sitt. Þegar loks var opnað fyrir okkur mættum við þeim kulda að Ijóst mátti vera að ekkert yrði um sættir. Að vísu skaut L.J. því inn í umræðuna, hvort það væri hugsanlegur flötur á samkomu- Iagi að L.H. afsalaði sér væntan- legum ágóðahlut af landsmótinu til Eyfirðinga, en hafði vart sleppt orðinu þegar ritari samtak- anna, K.Á., aftók það með öllu og lýsir það best sáttarhug ykkar. skoti og senda það síðan heini til sín aftur. En ég ætla ekki að fara að rök- ræða neitt um þessi mál. Tel bara viðbrögð Fljótamanna svo sjálf- sögð að þau þurfi ekki að verja frekar en gert hefur verið. Aftur á móti finnst mér allt þetta upp- þot út af bjarndýrinu, sem Sigur- björn Þorleifsson bóndi í Lang- húsum hefur þurft að þola, sýna manni ýmislegt og vera angi af miklu stærra máli. En sannast sagna fékk Sigurbjörn ekki flóafrið næstu sólarhringa eftir að bangsi kom í heimsókn fyrir fólki sem hringdi og hundskammaði hann fyrir að drepa húninn, fólki úr flestum stigum þjóðfélagsins og einnig útlendingum. Útlend kona var svo æst og óðamála að það litla sem Sigurbjörn skildi af því sem hún sagði, var að hún skyldi senda honum svæfingar- skot sem hann gæti notað þegar næsti ísbjörn kæmi í heimsókn. Angi af stærra máli Þegar ég tala um að þetta sé angi af stærra máli, þá meina ég að mér finnst þessi ísbjarnarumræða öll sömul endurspegla það skiln- ingsleysi sem svo mjög virðist Hallgrímskirkja í Haganesvík, segir í vinsælum dægurlaga- texta. En annars hefur nafn þessa yfirgefna staðar, sem lengi vel var verslunarstaður Fljótamanna, ekki verið haft mikið á orði. Þar til á dögun- um að það komst allt í einu í fréttirnar. Ekki bara í fréttir hér innanlands, heldur í heims- fréttirnar líka. Eins og frægt er orðið var skotinn þar bjarn- dýrshúnn er þangað kom í heimsókn. Mönnum hefur orð- | ið tíðrætt um það „morð“ bæði í ræðu og riti. Strax komu upp raddir um að algjör óþarfi hafi verið fyrir Fijótamenn að skjóta dýrið. Réttast hefði ver- ið fyrir þá að fanga það, með því að skjóta í það svæfingar- Sagt er að sumir haldi að maturinn verði hér til. Þeir sem halda að maturinn verðí tíl í kjörbúðunum Jón Ólafur Sigfússon. „Vonandi birtir fljótt til hjá samtökum hesta Ólafs Sigfússonar. Það er ekki hægt að segja annað en hann J vera orðið algengt, á aðstæðum í okkar þjóðfélagi og á þeim grundvelli sem okkar velferðar- þjóðfélag byggist á. Maður hélt nú að þetta væri einskorðað við Stór-Reykjavíkursvæðið, en ef

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.