Dagur - 08.03.1988, Side 16
Akureyri, þriðjudagur 8. mars 1988
Bi l| 1 Ul f á
W
Akureyri:
Hagkaup frestar
framkvæmdum
„Við hefjumst ekki handa á
þessu vori, það er alveg útséð
með það,“ sagði Jón Ásbergs-
son, forstjóri Hagkaupa, þegar
hann var inntur eftir því hvort
fyrirtækið hæfist handa um
stækkun verslunarinnar við
Norðurgötu næsta vor.
Síðasta haust lýsti Jón
Ásbergsson því yfir í samtali við
Dag að stefnt væri að því að hefja
framkvæmdir vegna verslunar
Hagkaupa að Norðurgötu 62 vor-
ið 1988, en af því verður þó ekki
í bráð. „Þetta er á hægfara
hönnunarskeiði,“ sagði Jón.
Norðurgötu verður því ekki lok-
að í vor.
Jón Ásbergsson var spurður að
því hvort rétt væri að Hagkaup
hefðu sýnt áhuga á að kaupa hús-
eign íspan hf. að Norðurgötu 55,
en það hús er hinum megin við
götuna gegnt verslun Hagkaupa.
„Nei, það er ekki rétt, það er
ekkert nýtt í því máli. Við höfum
áður sýnt áhuga á því að kaupa
það hús og það er ekkert að ger-
ast í því efni þessa dagana. Þau
vita um áhuga okkar og um leið
og einhverjar hreyfingar verða
viljum við vita af því,“ sagði Jón
Ásbergsson. EHB
Akureyri:
Polugaevski með
fjöltefli í kvöld
Alþjóðlega skákmótið á Akur-
eyri verður sett á morgun kl.
17 í Alþýðuhúsinu en kepp-
endur koma til bæjarins í dag,
nema Jóhann Hjartarson sem
er væntanlegur í tæka tíð á
morgun. Sovéski stórmeistar-
inn Polugaevsky ætlar að taka
forskot á sæluna og tefla fjöl-
tefli í Alþýðuhúsinu, 4. hæð, í
kvöld.
Að sögn Gylfa Þórhallssonar
formanns Skákfélags Akureyrar
mun Polugaevski tefla við um 40
manns og er öllum velkomið að
kljást við kappann meðan rými
leyfir. Fjölteflið hefst kl. 20, en
þátttakendum er bent á að mæta
tímanlega.
Gylfi sagði að Polugaevsky
hefði teflt fjöltefli á Akureyri fyr-
ir um 10 árum við 40 manns og þá
tapaði hann aðeins einni skák.
Gaman verður að sjá hvernig
honum vegnar núna, en skákin
hefur verið á stöðugri uppleið á
Akureyri:
Ekið á kyrr-
stæðan Colt
Síðastliðið föstudagskvöld var
ekið á kyrrstæðan bfl og hann
stórskemmdur. Sökudólgurinn
stakk af án þess að tilkynna
óhappið og hefur ekki fundist.
Atburðurinn varð síðastliðið
föstudagskvöld, milli klukkan
21.00 og 22.30. Ekið var á vinstri
hlið bifreiðarinnar A-7550, sem
er blá af gerðinni Mitsubishi
Colt, og urðu á henni talsverðar
skemmdir. Talið er fullvíst að
þetta hafi gerst á meðan bílinn
stóð á bílastæðinu við Tungusíðu
6, þar sem Nudd- og gufubað-
stofan er til húsa.
Þeir sem geta veitt einhverjar
upplýsingar um það sem þarna
átti sér stað, eru beðnir að láta
rannsóknarlögregluna á Akur-
eyri vita. ET
Akureyri og hugsanlega mun
stórmeistarinn mæta meiri mót-
spyrnu nú. SS
IHIllHlltNlllfltlM llimillllllllllii
Jón Helgi Pétursson, 14 ára gamall, aðstoðaði föður sinn séra Pétur Þórar-
insson við messu í Möðruvallakirkju síðastliðinn sunnudag. Hér sést piltur-
inn í predikunarstólnum. Mynd: ehb
Málið verður
skoðað nánar
- segir Sigurður Hannesson
vegna vöruskemmu KEA
„Ég get ekkert sagt um það
hvaða afgreiðslu þetta mál fær
hjá bygginganefnd en þetta
verður skoðað,“ sagði Sigurð-
ur Hannesson, formaður
Bygginganefndar Akureyrar,
en erindi KEA um stækkun
vöruskemmu við togarabryggju
um 18 metra til vesturs verður
tekið fyrir á næsta fundi nefnd-
arinnar á miðvikudag.
Hafnarstjórn synjaði erindi
þessu á fundi á dögunum, en
hafnarstjórn var í raun sent
erindi þetta til umsagnar, en
hvorki til synjunar eða staðfest-
ingar að öðru leyti.
„Hafnarstjórnarmenn óttast að
þetta muni þrengja of mikið að,
og voru á móti þessu af þeim
ástæðum, en ég á eftir að skoða
bókunina frá 1982 þegar hafnar-
nefnd sem þá var samþykkti
þetta. Hins vegar man ég eftir því
að þegar Árni Árnason átti
skemmuna bað hann um, að mig
minnir 25 metra stækkun í
vestur, en því var synjað á þeim
forsendum að menn óttuðust
þrengsli. En þetta mál verður
skoðað nánar,“ sagði Sigurður
Hannesson. EHB
Markaðsátak Hitaveitu Akureyrar
hefur gengið tiltölulega vel
- segir Franz Árnason hitaveitustjóri
„Markaðsátakið hefur gengið
mjög þokkalega og við erum
tiltölulega ánægð með árang-
urinn,“ sagði Franz Árnason
hitaveitustjóri á Akureyri þeg-
ar hann var spurður um hvort
enn væru margir sem eiga eftir
að skipta yfir í hitaveitu.
„Þetta hefur gengið mjög
jafnt, en við hefðum vel getað
þegið að fleiri hefðu skipt yfir í
hitaveitu." Enn munu vera
ótengd um 80% þeirra húsa sem
sóst er eftir fyrir utan Gerða-
hverfi II. Franz sagði það skiljan-
legt að fólk veigraði sér við því
að standa í framkvæmdum sem
þessum um miðjan vetur, en von-
aðist til að viðkomandi aðilar
tækju til hendinni í vor. Hið eig-
inlega markaðsátak hófst sl.
haust.
Fyrir þá sem hafa daghitun
með rafhituðu vatni og þá sem
hafa næturhitun, mun heimtauga-
gjald verða fellt niður en mæla-
grindargjald greitt samkvæmt
gjaldskrá.
Ekki verða greidd tengigjöld
þar sem um er að ræða rafmagns-
SR á Siglufirði:
Allt búið í bili
- aðallega landað á Austfjarðahöfnum
Engin loðna hefur borist til
Sfldarverksmiðja ríkisins á
Siglufirði frá því á miðviku-
dag. „Allt búið í bili,“ sagði
Þórhallur Jónasson verk-
smiðjustjóri í samtali við
Dag. Loðnan veiðist nú aðal-
lega austan við Vestmanna-
eyjar og þar sem skipin eiga
mörg hver fullt í fangi með að
klára kvóta sinn, reyna þau
að fara sem styst til að landa.
SR hefur tekið á móti 35 þús-
und tonnum á þessu ári og
um 95 þúsundum síðan í
nóvember.
Loðnufrysting liggur nú niðri
í Vestmannaeyjum og er lítil
annars staðar. Loðnan hefur
því aðallega farið á Austfjarð-
ahafnir, en þó fær Krossanes-
verksmiðjan alltaf afla Súlunnar
og Þórðar Jónassonar. Bæði
skipin eru hins vegar að klára
kvóta sinn um þetta leyti.
SR á Siglufirði bauð síðast
um 2.400 krónur fyrir tonnið og
það reynist ekki nóg til að fá
skip svo langan veg. „Við verð-
um tæpast inni í myndinni fyrr
en hún er komin vestar aftur,
nær Faxaflóanum. Þá verður
aftur orðið styttra vestur fyrir
og til okkar en á Austfirðina,"
sagði Þórhallur.
Þórhallur hefur sagt að hann
yrði þokkalega ánægður ef
verksmiðjunni tækist að vinna
100 þúsund tonn á vertíðinni.
Þó að af því yrði þá væri ljóst að
um taprekstur yrði að ræða
áfram. „Ég er ekki búinn að af-
skrifa hundrað þúsund tonnin
ennþá,“ sagði Þórhallur. ET
þilofnahitun og neysluvatn frá
HA, enda hafa þau verið greidd
áður. Þeir aðilar munu einnig fá
35% afslátt af orkugjaldi til árs-
loka 1992, svo því fyrr sem breyt-
ing á sér stað, því meiri verður
heildarafslátturinn.
Neytendur með rafmagnsþil-
ofna og rafhitað neysluvatn,
greiða hluta tengigjalda en fá
einnig 35% afslátt á orkugjaldi til
ársloka 1992. Fyrir ofangreinda
neytendur gildir, að núverandi
oricutaxti RA Cl, verður ekki í
gildi eftir 01. 01. 1991.
Notendum með blandaða
notkun verður ekki selt rafmagn
til kyndingar á sértöxtum RA frá
áramótum 1989-1990.
Húsnæðisstofnun ríkisins lánar
þeim sem vilja breyta úr raf-
magnsþilofnum í vatnsofna
150.000 krónur og veitir fulltrúi
HA allar upplýsingar um þetta
lán. Sömuleiðis er Landsbankinn
á Akureyri reiðubúinn að lána til
slíkra framkvæmda 50.000 krón-
ur til 3ja ára með venjulegum
skuldabréf akj örum.
Franz Árnason sagði að í
mörgum tilfellum væri fólk með
gömul rafkerfi í húsum sínum,
sem hvort eð er þarf að endur-
nýja, svo mjög misjafnt væri hver
raunverulegur kostnaður við
breytinguna yrði. VG