Dagur - 14.03.1988, Blaðsíða 7

Dagur - 14.03.1988, Blaðsíða 7
14. mars 1988 - DAGUR - 7 Friðjón Jónsson fyrirliöi KA skorar eitt marka sinna gegn Þór í gær, Handbolti 1. deild: KA ekki í miklum vandræðum með Þór - sigraði með 15 marka mun í gær, 34:19 KA-menn áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Þórsara að velli, er liðin áttust við í Höliinni í gær í 1. deild- inni í handbolta. KA-menn sem höfðu mikla yfirburði nán- ast allan tímann, sigruðu með 34 mörkum gegn 19, eftir að hafa haft 5 marka forystu í leikhléi, 15:10. Með sigrinum vænkaðist hagur KA-Iiðsins í hinni hörðu botnbaráttu til muna. Ef undanskildar eru um 10-15 Staðan 1. deild Úrslit leikja í 1. deildinni í handbolta um helgina urðu þessi: ' UBK-FH 24:30 KA-Þór 34:19 Fram-ÍR 21:20 Stjarnan-KR 28:29 Staðan í deildinni er þessi: FH 16 13-3- 0 453:352 29 Valur 15 11-4- 0 338:247 26 Víkingur 15 10-0- 5 381:337 20 UBK 16 8-1- 7 349:363 17 Stjarnan 16 7-2- 7 378:394 16 KR 16 7-1- 8 348:374 15 Fram 16 6-1- 9 372:389 13 KA 16 4-4- 8 343:352 12 ÍR 16 4-2-10 341:378 10 Þór 16 0-0-16 308:425 0 mín. í fyrri hálfleik, voru KA- menn með yfirhöndina og sigur liðsins var aldrei í hættu. KA- menn skoruðu þrjú fyrstu mörkin en Þórsarar náðu að jafna leikinn 4:4 með ágætum leikkafla. Þeir komust síðan yfir 6:5 en þá fannst KA-mönnum nóg komið, þeir tóku leikinn í sínar hendur á ný og voru komnir með 5 marka forystu í hálfleik, 15:10. Sigurður Pálsson Þórsari hóf leikinn mjög vel og þegar Þórsarar náðu yfir- höndinni 6:5, var hann tekinn úr umferð og segja má að við það hafi leikur liðsins hrunið. KA-menn gáfu ekkert eftir í síðari hálfleik og þeir voru búnir að auka muninn í sjö mörk, 22:15 á 40. mín. Síðustu 20 mín. leiks- ins náðu Þórsarar aðeins að skora fjögur mörk á móti tólf mörkum KA-manna og í leikslok var mun- urinn því orðinn 15 mörk, 34:19. KA-menn léku þennan leik af fullri alvöru og voru staðráðnir í því að láta Þórsara ekki setja strik í reikining sinn í hinni hörðu botnbaráttu. Erlingur Kristjáns- son og Eggert Tryggvason voru bestir í þessum leik en aðrir leik- menn liðsins léku einnig ágæt- lega. Sigurður Pálsson byrjaði mjög vel í leiknum en KA-menn náðu að stöðva hann með því að taka hann úr umferð. Aðrir leiknrenn liðsins léku undir getu. Mörk KA: Pétur Bjarnason 8, Erlingur Kristjánsson 7/2, Eggert r r.r.i.itiirtmiii.,,,,,,, Tryggvason 6, Friðjón Jónsson 4, Guðmundur Guðmundsson 3, Axel Björnsson 3, Svanur Val- geirsson 2 og Hafþór Heimisson 1. Mörk Þórs: Sigurpáll Aðal- steinsson 5/4, Sigurður Pálsson 4, Jóhann Samúelsson 3, Erlendur Hermannsson 3, Gunnar Gunn- arsson 2, Aðalbjörn Svanlaugs- son 1, Kristján Kristjánsson 1. Leikinn dæmdu þeir Sigurður Baldursson og Björn Jóhannsson og gerðu það þokkalega. Haukur Visa-bikarmót SKÍ, Þorramót- ið í göngu fór fram á ísafiröi á laugardag. Keppt var í sex flokkum og þar af tveimur flokkum kvenna. Haukur Eiríks- son frá Akureyri hélt upptekn- um hætti og sigraði með glæsi- brag í karlaflokki. í kvenna- flokki varð Stella Hjaltadóttir frá ísafirði hlutskörpust. Gengið var með hefðbundinni aðferð og urðu úrslit þessi: Drengir 13-14 ára, 5 km: 1. Daníel Jakobsson í 17,50 2. Gísli Valsson S 19,15 3. Sigurður Sverrisson S 19,27 Stúlkur 13-14 ára 2 km: 1. Hulda Magnúsdóttir S 9,35 r*f » ».#.».4.».» <* >i» »4 * * ■> vjjri'rt’ i' k' tr >e v e e t! e e e v Visa-bikarmót SKÍ: Akureyringar unnu til 9 verðlauna Um helgina fór fram Visa- bikarmót SKÍ í alpagreinum í flokki fullorðinna á ísafirði. Olympíufararnir Daníel Hilm- arsson frá Dalvík og Guðrún H. Kristjánsdóttir frá Akur- eyri mættu að sjálfsögðu til leiks og sigraði Daníel í stór- svigi karla en Guðrún varð að láta sér nægja annað sætið í stórsvigi kvenna. Þeim hlekkt- ist báðum á í svigkeppninni. Akureyringar voru að venju mjög sigursælir á mótinu og unnu að þessu sinni til 9 verðlauna og þar af þrennra fyrstu verðlauna. Mjög erfitt færi var á ísafirði og frekar kalt í veðri. Sem dæmi komust aðeins fjórir keppendur af tólf niður í svigi karla. Valde- mar Valdemarsson frá Akureyri sigraði í svigi karla en hann hefur staðið sig mjög vel að undan- förnu. Þá vann Bryndís Ýr Viggósdóttir frá Akureyri sinn fyrsta bikarsigur á þessu ári. Annars urðu úrslit á mótinu þessi: Stórsvig kvenna: 1. Anna María Malmquist A 2:02,53 2. Guðrún H. Kristjánsd. A 2:02,73 3. Bryndís Ýr Viggósdóttir A 2:06,83 Svig karla: 1. Valdemar Valdemarss. A 1:38.96 2. GuðmundurSigurjónss. A 1:39,32 3. Ólafur Sigurðsson í 1:40,66 Stórsvig karla: 1. Daníel Hilmarsson D 1:55,60 2. Guðmundur Sigurjónss. A 1:56,98 3. Ingólfur Gíslason A 1:57,27 Svig kvenna: 1. BryndísÝr Viggósdóttir A 1:29,39 2. Ásta Halldórsdóttir í 1:31,91 3. Kristín Jóhannsdóttir A 1:36,25 Valdemar Valdemarsson sigraði í svigi á ísafirði í gær. Mynd: tlv Visa-bikarmót í göngu: og Stella sigruðu 2. Þrúður Sturlaugsdóttir S 11,13 3. Guðbjörg Sigurðsdóttir í 11,15 Piltar 15-16 ára, 7,5 km: 1. Sölvi Sölvason S 27,18 2. Guðmundur Óskarsson Ó 27,49 3. Bjarni Brynjarsson í 30,01 Piltar 17-19 ára, 15 km: 1. Baldur Hermannsson S 55,34 2. Rögnvaldur Ingþórsson í 57,54 Konur, 7,5 km: 1. Stella Hjaltadóttir í 33,35 2. Eyrún S.lngólfsdóttir í 42,02 Karlar, 30 km: 1. Haukur Eiríksson A 1:53,50 2. Sigurgeir Svavarsson Ó 1:54,17 3. Ólafur Valsson S 2:02,57 Sölvi Sölvason sigraði í flokki pilta 15-16 ára.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.