Dagur


Dagur - 12.04.1988, Qupperneq 1

Dagur - 12.04.1988, Qupperneq 1
71. árgangur Akureyri, þriðjudagur 12. apríl 1988 69. tölublað Iðnaðarmenn hjá Akureyrarbæ: Mikil óánægja með launakjör - aðalfundur STAK í kvöld Laust eftir kl. 15.30 á föstudag, var slökkviliðið á Akureyri kallað að Stórholti 1, þar sem rekið er farfuglaheimili. Eldur hafði komið upp á norðurhlið hússins, en fljótlega tókst að slökkva hann. Grunur leikur á að um íkveikju hafí verið að ræða. Á myndinni má sjá slökkviliðsmenn að störfum við húsið. Mynd: ehb Mjólkurstöðin á Þórshöfn: „Dylgjur og meiðandi ummæli“ - heilbrigðisnefnd mótmælir ummælum Sigurðar Gunnarssonar „Heilbrigðisnefnd mótmælir aðdróttunum yðar þess efnis að ákvörðun nefndarinnar þann 29. mars hafi ekki verið í samræmi við það sem um var rætt á fundi heilbrigðisnefndar þann 17. mars og jafnframt mótmælir heilbrigðisnefnd dylgjum yðar og meiðandi ummælum í garð heilbrigðis- fulltrúa. Þér eruð eindregið hvattir til að draga þessi ummæli til baka á sama vett- vangi og þau birtust.“ HÍK: Verkfall ólögmætt Félagsdómur úrskurðaði í gær að verkfall félaga innan HÍK sem hefjast átti á morgun, væri ólögmætt. Ekkert verður því af verkfallinu. Verkfallið var samþykkt með aðeins tveggja atkvæða mun og með úrskurði sínum féllst dómur- inn á þá túlkun samningamanna ríkisins um að telja ætti með 60 atkvæði sem voru auð og ógild. Þannig hafi minnihluti þeirra sem greiddu atkvæði, samþykkt. ET Pessi ályktun til Sigurðar Gunnarssonar, heilsugæslulæknis á Þórshöfn, var samþykkt á síma- fundi heilbrigðisnefndar sl. sunnudag. Um er að ræða ummæli Sigurðar í fjölmiðlum, t.a.m. í Degi 6. apríl, þess efnis að heilbrigðisnefnd hefði ekki staðið við ákvörðun sína frá 17. apríl að loka mjólkurstöðinni á Þórshöfn og raunar hefði heil- brigðisfuiltrúi bakkað vegna þrýstings frá kaupfélagsstjóra. Alfreð Schiöth, heilbrigðisfull- trúi á Norðurlandi eystra, sagði að nefndin hefði gert athugasemd við þessi ummæli og rnargt fleira í máli Sigurðar. Sigurður er er- lendis um þessar mundir og getur því ekki svarað fyrir sig, en Alfreð sagði að heilbrigðisnefnd hefði eftir fund sinn 17. mars sent kaupfélaginu tilkynningu um lok- un, bærist framkvæmdaáætlun ekki fyrir 30. mars. ítarleg fram- kvæmdaáætlun barst nefndinni 29. mars og því var ákvörðun um lokun endurskoðuð eins og gert hafði verið ráð fyrir. Mjólkurfræðingur hefur unnið við endurbætur í mjólkurstöðinni og sýni sem hafa verið tekin hafa komið vel út þannig að Alfreð sagðist telja að sá endurmengun- arvandi sem við hefði verið að glíma væri úr sögunni. Rækilega er fylgst með framleiðslunni og sýni send í geymsluþolspróf á hverjum pökkunardegi. SS „Þetta þýðir að bréfið hefur enga afgreiðslu fengið,“ sagði Kári Eðvaldsson, einn fulltrúi iðnlærðra starfsmanna hjá Akureyrarbæ í samtali við Dag, en þeir sendu nýlega bréf til Kjarasamninganefndar Akureyrarbæjar þar sem ósk- að er eftir að laun þeirra verði samræmd launum á almennum vinnumarkaði. í niðurstöðu kjarasamninga- nefndar segir, að „með vísan til samkomulags sem gert var á fundi Launanefndar sveitarfélaga og viðræðunefndar bæjarstarfs- manna frá 28. og 29. mars s.l. tel- ur kjarasamninganefnd að erindi þetta sé þegar afgreitt." í kvöld verður haldinn aðal- fundur STAK þar sem greidd verða atkvæði um ofangreint samkomulag. í núverandi kjara- samningi STAK eru „rauð strik" sem kveða á um að ef verðbólga fari yfir ákveðin mörk skuli hann endurskoðaður. I. mars fengu starfsmenn 1,8% launahækkun, en samkvæmt útreikningi bar þeim að fá meira. Samkomulagið felur í sér, að starfsmenn fái þennan verðbótamismun. Það mun vera mikil óánægja meðal iðnaöarmanna hjá Akur- eyrarbæ. I samning STAK í gegnum árin er kveðið á um að laun skuli samræmd launum á hinum almenna vinnumarkaði. „Lauslegar kannanir sýna að við höfum legiö um 20-30% lægra undanfarin ár. í haust sem leið saxaðist á þennan mismun, en nú þegar fagfélög um landið eru aö gera samninga, mun þessi munur aukast á ný. Við erum því að minna á þetta með bréfinu. Ég býst við að það verði mikil óánægja með afgreiðslu kjara- nefndar og að við munum ekki sætta okkur við hana." Ef félagsfundur STAK fellir launalið samningsins í kvöld, veröur deilunni vísað til Iauna- nefndar sveitarfélagana. Aðspurð- ur um hvað gerðist ef samkomu- lagið verður samþykkt sagði Kári: „Það hefur verið flótti iðn- aðarmanna frá bænum og þar sem okkur hefur verið lofað því að launin verði samræmd hægt og rólega, verðum við að hugsa okk- ar mál." VG Skafti með fullfermi - eftir tæpa 3 sólarhringa Togararnir hafa aflað mjög vel á niiðunum fyrir Norðurlandi, Skagagrunni, Reykjafjarðarál og Sporðagrunni, síðustu vikur alveg frá því fyrir páska. Til marks um það kom Skafti til Sauðárkróks á laugardaginn með fullfermi 150 tonn, eftir tæplcga þriggja sólarhringa veiðiferð. Aflinn var að mestu þorskur. „Ég er með nægan t'isk núna, um 90 tonn í húsinu og það er örugglcga eins á Króknum. Drangey var send suður fyrir í karfa, þegar hún hélt á veiðar fyrir heigina, til að létta svolítið á þessu og mun landa þar í gáma næst," sagði Hólmgeir Einarsson verkstjóri í frystihúsinu á Hofs- -þá Dalvíkurskóli: Beðið heimildar til stofnunar f iskvi nnsl ubrautar - sjávarútvegsskóli ekki stofnaður á Dalvík í haust Nefnd sú sem starfað hefur að undirbúningi fyrir fiskvinnslu- nám á Dalvík hefur fyrir nokkru skilað áliti til ráðuneyt- is en nú er þess beðið að veitt verði heimild til að hefja kennslu á fiskvinnslubraut í haust. Nefndin mun á næst- unni þrýsta á að fá svar til þess að unnt verði að auglýsa námið í skólum áður en sumarleyfi heijast í vor. Ljóst er að af eig- inlegri stofnum sjávarútvegs- skóla á Dalvík getur ekki orðið í haust þar sem fyrir þarf að liggja samþykkt Alþingis en hins vegar er ætlunin að fisk- vinnslubraut verði stofnuð og falli hún undir Dalvíkurskóla eins og skipstjórnarbraut gerir í dag. Ætlun undirbúningsnefndar- innar er að kennsla verði næsta vetur sameiginleg á fyrsta ári hjá þessum tveimur brautum í bók- legum fögum ef undan eru skilin nokkur fög. Verkleg kennsla verður ekki fyrr en á öðru ári á fiskvinnslubraut sem gerir það að verkum að mun ódýrara er að fara af stað með kennsluna en ella. Talið er að kostnaður við að hefja kennslu verði um 3-4 millj- ónir króna en heildarkostnaöur við að setja sjávarútvegsskólann á fót er 10-15 milljónir króna. Að sögn Trausta Þorsteinsson- ar skólastjóra Dalvíkurskóla, en hann á einnig sæti í undirbún- ingsnefndinni, stendur til boða húsnæði sem hægt verður að standsetja í sumar fyrir bóklega kennslu og síðar fyrir verklega kennslu. í þessu húsi er áætlað að sjávarútvegsskólinn verði í fram- tíðinni og fari þar fram bæði verkleg og bókleg kennsla á brautunum tveimur, fiskvinnslu- og skipstjórnarbraut. JÓH

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.