Dagur


Dagur - 12.04.1988, Qupperneq 3

Dagur - 12.04.1988, Qupperneq 3
12. apríl 1988 - DAGUR - 3 Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri: Hjúkrunarfræðinemar í verklegu námi í gærmorgun hófu 12 nemar í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri verklegt nám á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Nemarnir fá almenna kynningu á störfum hjúkrunarfræðinga og er um að ræða fjögurra vikna nám, tvo daga á viku, eða alls 80 stundir og undir handleiðslu tveggja kennara. Nemarnir eru á fyrsta ári í hjúkrunarfræði og er það nýjung í menntakerfinu að bjóða þeim svo snemma upp á verklegt nám en vanalega er það geit á öðru ári. Margrét Tómasdóttir náms- brautarstjóri sagði að nreð þessu fyrirkomulagi gætu nemarnir nýtt sér sumartímann eftir 1. árið rneð því að starfa á sjúkrahúsi, ef þeir vildu. Hún gat þess að mótttök- urnar á Fjórðungssjúkrahúsinu hefðu verið höfðinglegar og að góð samvinna væri milli skólans og FSA, t.a.m. færi kennsla í líf- færafræði og lífeðlisfræði fram í húsakynnum FSA. SS Þessi föngulegi liópur hjúkrunarfræðinema byrjaði í verklegu námi í gær. Ncmarnir eru í sérstökum búningum, ineð bláu hálsmáli, til aðgreiningar frá öðru starfsfólki. Mynd: gb raöa Lottómiði Leikurinn er óbreyttur, en nú eru 10 raðir á sama miðanum til hagræðingar fyrir alla Lottóleikendur. Eftir sem áður er þér í sjálfsvald sett hve margar raðir þú notar hverju sinni. Hærri vinningar! Hærri vinningar! Meö leiðréttingu í samræmi viö verölagsþróun munu vinningar hækka aö meðaltali um 20% og er þaö fyrsta verðbreyting frá því Lottóiö hóf göngu sína í nóvember 1986. leikröð kostar nú 30 krónur! Nældu þér í nýjan miöa á næsta sölustað! W532 Upplýsingasími: 685111

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.