Dagur - 21.04.1988, Síða 1

Dagur - 21.04.1988, Síða 1
71. árgangur Akureyri, fímmtudagur 21. apríl 1988 76. tölublað Öskum viðskiptavinum okkar gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn. GULLSMKNR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI „Mikilvægt að finna nýjar og betri leiðir í málefnum aldraðra“ - segir Guðmundur Bjarnason „Við kölluðum til þessarar ráðstefnu til að ræða nýjar og betri leiðir í málefnum aldr- aðra á Islandi,“ sagði Guð- mundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingaráðherra í samtali við Dag vegna ráðstefnu um öldrunarmál sem ráðuneytið efndi til. Til ráðstefnunnar var boðið öllum þeim sem starfa að öldrun- armálum og þar að auki var sveit- arstjórnarmönnum sérstaklega boðið til hennar. Framsöguerindi fluttu Ásgeir Jóhannesson frá Sunnuhlíðarsamtökunum í Kópa- vogi en þau samtök hafa farið inn á nýjar leiðir í húsnæðismálum aldraðra. Jón Adolf Guðjónsson bankastjóri Búnaðarbankans kynnti hvernig bankinn hefur veitt ráðgjöf og tekið þátt í kostnaði þegar eldri bæjarbúar hafa minnkað við sig húsnæði. Blönduós: Nökkvi býður hlut- höfum hlutabréf Þegar rækjutogarinn Nökkvi var keyptur til Blönduóss og útgerðarfélag með sama nafni stofnað um rekstur skipsins var samþykkt að selja hlutabréf í fyrirtækinu að fjárhæð 30 millj. króna. Þá seldust 25 millj. í hlutabréfum en nú hef- ur hluthöfum verið boðið að kaupa þau hlutabréf sem óseld eru. Að sögn Kára Snorrasonar, framkvæmdastjóra, hefur enn lítið heyrst frá hluthöfunum, enda stutt síðan bréfin voru boð- in þeim til kaups. Kári sagði að bréfin yrðu seld á frjálsum mark- aði hluthafar nýttu sér ekki forkaupsréttinn. Kári sagði að útgerð skipsins hefði gengið þokkalega. Pað hefði fiskað vel að undanförnu en það yrði að veiðast vel til að reksturinn bæri sig. Hann sagði að verð á þeirri rækju sem unnin væri um borð og seld til Japans væri ágætt en aftur á móti væri lágt verð á smærri rækjunni sem unnin væri í landi og seld innanlands. fh Halldór Guðmundsson frá ísa- firði kynnti starfsemi Hlífar þar í bæ. Páll Gíslason yfirlæknir ræddi um þessi mál frá sjónarhóli sveitarfélaganna og að lokum flutti Steinunn Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur formaður samstarfsnefndar um málefni aldr- aðra erindi. Guðmundur Bjarnason ráð- herra sagði að stjórnvöld væru áhugasöm að heyra um nýjar leiðir í aðhlynningarmálum aldr- aðra. Ráðherra kvað það brýnt að tillit væri tekið til sjálfs- ákvörðunarréttar eldri borgara í sambandi við íbúðir þeirra. Mikilvægt væri að aðstoða fólk til að minnka við sig húsnæði án þess að því fylgdu fjárhagslegir erfið- leikar fyrir viðkomandi einstakl- inga. Benti Guðmundur sérstak- lega á framtak Sunnuhlíðar- manna í því sambandi en þar hef- ur fólk með aðstoð banka getað flutt inn í minni íbúðir. Ráðherrann kvað það víðsfjarri að opinberir aðilar vildu firra sig allri ábyrgð á þessum málum. Nú væri í bígerð nýtt frumvarp um öldrunarmál og kvaðst Guð- mundur vera fylgjandi því að byggingarsjóði aldraðra væri tryggður öruggur tekjustofn til þess að sjóðurinn gæti uppfyllt þær skyldur sem á honum væru víðs vegar um land. AP Þess misskilnings hefur gætt, að bensínafgreiðslumenn fari ekki í vcrkfall. Svo er reyndar í Rcykjavík, en á Akureyri eru mennirnir i félagi verslunarmanna og fara því í verkfall. Eftir klukkan 23.30 í kvöld verður því ekki hægt að fá keypt bensín á Akureyri, nema í sjálfsölum. í gærkvöld voru afgreiddar þær undaþágubeiðnir sem borist höfðu vegna verkfallsins. Meðal þeirra sem sóttu um undanþágu voru Dagur, apótekin og einhver hótel- anna. Jóna Steinbergsdóttir sagðist aðspurð telja það fjarstætt að sett verði lög á verkfallið. „Eg vil ekki trúa því fyrr en í síðustu lög.“ Hún hvetur félagsfólk til að mæta vel á skrifstofu félagsins á morgun og aðstoða við það sem gera þarf. Sjá nánar á baksíðu. VG/Mynd: TLV Sauöárkrókur: Nú fyrir Sæluvikuna varö nokkurt þref út af eldvörnum í félagsheimilinu Bifröst. Gagn- rýni eldvarnaeftirlits beinist aðallega að neyðarútgangi af leiksviði sem ekki er talinn fullnægjandi. Á fjölmennum dansleikjum eins og lokadans- leik í Sæluviku, hefur senan verið notuð fyrir dansleikja- gesti, án þess að fyrir því hafí verið leyfí. Var komist hjá banni eldvarnaeftirlits á notk- Ofullnægjandi eldvamir í félagsheimilinu Bókamarkaður á Akureyri - Ætla að selja 30 þúsund bækur Á sunnudaginn verður á Akureyri opnaður bóka- markaður á vegum Félags íslenskra bókaútgefenda. Að sögn Eyjólfs Sigurðssonar formanns félagsins verður þetta stærsti bókamarkaður sem haldinn hefur verið norð- an heiða. Bókamarkaðurinn stendur til 8. maí, eða í hálfan mánuð. Hann verður til húsa í 400 fer- metra húsnæði við Glerárgöt- una þar sem áður var Bygginga- vörudeild KEA. Markaður þessi er haldinn í beinu framhaldi af vel heppnuð- um bókamarkaði sem nýlega lauk í Kringlunni í Reykjavík. Par seldust um 110 þúsund ein- tök og sagðist Eyjólfur vonast til að hér færu að minnsta kosti 30 þúsund eintök. Úrvalið verð- ur a.m.k. gott því boðið verður upp á eitthvað á bilinu 3-4000 titla. ET un leiksviðsins í þetta sinn, með því að gera lagfæringar á ney ðarútganginum. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þref verður út af neyðarút- ganginum af senunni, enda er þetta ekki hægt svona. Þó að leyfi hafi verið veitt fyrir notkun leik- sviðsins núna verður það ekki gert aftur nema frekari lagfæring- ar verði gerðar. Um er að ræða timburstiga sem stenst ekki reglugerð og neyðarlýsing er ekki fullnægjandi. Þetta auk einnar eldvarnahurðar, sem vantar í húsið, eru alit hlutir sem ekki eru mjög kostnaðarsamir. Dansgólf- ið er það eina sem dýrt er að laga, en í geymslu undir því er aðal rafmagnstafla hússins. Sam- kvæmt skýrslu frá eldvarnaeftir- liti Brunavarna ríkisins stenst gólfið ekki þær kröfur sem til þess eru gerðar. Fyrir utan að eldvarnirnar eru ekki í lagi er ætíð of mörgu fólki hleypt inn í húsið, allt að Jrriðj- ungi meira en leyfilegt er. I sam- komusalnum, á hliðarsvölum og leiksviði mega vera 435 manns og í Grænasal 50 manns. Þessar töl- ur miðast við að eldvarnir séu í lagi,“ sagði Björn Sverrisson eld- varnaeftirlitsmaður á Sauðár- króki. Að sögn Björns hafa ekki orð- ið teljandi óhöpp vegna elds í Bifröst. Fyrir nokkrum árum kviknaði í rafmagnstöflu en hann var slökktur á svipstundu og ekk- ert varð úr. Enn lengra er síðan sígarettuglóð féll milli gólffjala á leiksviði og úr varð smá eldur í neðri hæð hússins, í geymslu við hlið búningsaðstöðu leikara. -þá Þingeyjarsýslur: Utlit fyrir litlar kalskemmdir Síðasta vor voru tún verulega kalin á sumum svæðum í Þing- eyjarsýslum sem gerði að verk- um að heyfengur hjá mörgum bændum var minni en oft áður og þessir sömu bændur hafa nú undir vorið þurft að kaupa hey. Ástæður fyrir kalinu í fyrra má rekja til mikilla svellalaga á túnum fyrrihluta síðasta vetrar. Að sögn Stefáns Skaptasonar ráðunautar í Suður-Þingeyjar- sýslu er útlit mun betra í ár. Nán- ast engin svell voru á túnum fyrr en eftir áramót í vetur og svell höfðu mikið minnkað áður en hríðarkaflinn gekk yfir nú á dögunum. Stefán taldi þó að þessi snjór yrði tiltölulega fljótur að fara þegar veður hlýnaði og vart væri að búast við kali í tún- um vegna hans. Ekki er mjög mikill snjór í Aðal- og Bárðardal en mikill snjór í Reykjahverfi. „Maður getur ekki annað en verið bjartsýnn á sumarið. Auð- vitað gæti veðurfarið í vor í versta falli valdið kali en þó ekki nema um verði að ræða mikil r.æturfrost á auða jörð. Maður skyldi þó vona að til þess komi ekki,“ segir Stefán Skaptason. JÓH

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.