Dagur - 12.05.1988, Síða 23

Dagur - 12.05.1988, Síða 23
12. maí 1988 - DAGUR - 23 íþróffir SL-mótið 1. deild í knattspyrnu: Fyrsti stórleikurinn á Norðurlandi -fer fram í Óiafsfirði á sunnudag er Leiftur fær ÍA í heimsókn Þeir Axel Björnsson og Sigurpáll Aðalsteinsson keppa e.t.v. um sæti í liði Stjörnunnar næsta vetur. Handbolti: Axel Bjömsson hættur í KA - leikur með Stjörnunni næsta vetur Fyrsti stórleikurinn í knatt- spyrnu hér norðanlands, fer fram í Ólafsfirði á sunnudag en þá fá nýliðar Leifturs Skaga- menn í heimsókn í Sl-mótinu 1. deild og hefst viðureign lið- anna kl. 17. A sama tíma leika ÍBK og Völsungur í Keflavík og KR og Víkingur á KR-velI- inum. Leiftursmenn eru nú að hefja keppni í 1. deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. Bæjarbúar bíða örugglega spenntir eftir leiknum og víst er að mikill fjöldi áhorf- KA-mennirnir Haukur Valtýs- son og Stefán Magnússon hafa verið valdir í landslið Islands í Firmakeppni SRA: Slippstöðin sigraði A-sveit Slippstöðvarinnar á Akureyri sigraði í firmakeppni SRA í boðgöngu sem fram fór í Hlíðarfjalli fyrir skömmu. Fimm sveitir tóku þátt í keppn- inni og voru gengnir 3x3,5 km með hefðbundinni aðferð. Keppnin var nokkuð jöfn og spennandi og þá sérstaklega um 2. sætið. En úrslitin urðu þessi: 1. Slippstöðin A 43,48 Sveitina skipuðu Þórarinn Eldjárn, Sigurður Pálmi Einarsson og Árni Freyr Antonsson. 2. Akureyrarbær 52,12 Sveitina skipuðu Finnur Birgisson, Sigfús Jónsson og Sigurður Bjarklind. 3. Flugfélag Norðurlands 52,32 Sveitina skipuðu Friðrik Adolfsson, Stefán Friðleifs- son og Sigurður Aðalsteins- son. 4. Slippstöðin B 52,44 Sveitina skipuðu Gunnar Malmquist, Jóhann Hauks- son og Jóhann Lárusson. 5. Oddi hf. 56,22 Sveitina skipuðu Mikael Tryggvason, Torfi Guð- mundsson og Karl Halldórs- son. Hið árlega Landsbankahlaup fer fram á Akureyri á laugar- daginn og hefst kl. 10.30. Hlaupið hefst við Landsbank- ann Sírasdgótu l og því lýkur þar einnig. Keppt er í tveimur flokkum stúlkna og pilta og eru veitt verð- laun fyrir þrjú fyrstu sætin í enda víðs vegar af Norðurlandi mun fylgjast með viðureign lið- anna. „Mér líst ágætlega á þennan leik við ÍA og sumarið í heild. Við stefnum að því þetta fyrsta keppnistímabil okkar í 1. deild að halda okkar sæti og þá skiptir kannski ekki aðalmáli hvaða sæti við fáum fyrir ofan fallsætin,“ sagði Porvaídur Jónsson fyrirliði Leifturs í samtali við blaðið. „Það hefur verið stígandi í þessu hjá okkur og nýju leikmennirnir okkar hafa komið vel út og eiga blaki sem tekur þátt í keppni smáþjóða í Luxemborg dagana 12.-15. maí. Þeir félagar hafa leikið mjög vel með KA í vetur og því kemur val þeirra ekki á óvart. Aðrir leikmenn liðsins eru, Leifur Harðarson Þrótti, Einar Ásgeirsson HK, Einar Hilmars- son Þrótti, Vignir Hlöðversson HK, Jón Árnason Þrótti, Sigurð- ur Þráinsson ÍS, Páll Svansson ÍS, Stefán Jóhannesson Víkingi, Þröstur Friðfinnsson Víkingi og Bjarni Þórhallsson Víkingi. Á leikunum í Luxemborg er leikið í tveimur riðlum og leika íslendingar í A-riðli ásamt Kýpur, Liechtenstein, Mónakó og Möltu. í B-riðli leika Saint Marin, Luxemborg, Gíbraltar og Færeyjar. íslenska liðið hefur dvalið undanfarið í V.-Þýska- landi, þar sem m.a. var leikið gegn B-landsliði V.-Þjóðverja. Norðurlandamót kvenna í blaki hefst í Ramnes í Noregi á morgun. íslendingar senda lið í mótið og það skipa eftirtaldir leikmenn: Sigurborg Gunnars- dóttir UBK, Ursula Junemann ÍS, Snjólaug Bjarnadóttir Þrótti, Birna Hallsdóttir Víkingi, Ingi- björg Arnardóttir ÍS, Hildur Grétarsdóttir UBK, Linda Jóns- dóttir Þrótti, Oddný Erlendsdótt- ir UBK, Málfríður Pálsdóttir ÍS og Björk Benediktsdóttir Vík- ingi. Auk íslendinga taka Norð- menn, Finnar, Danir og Svíar þátt í mótinu sem stendur fram á laugardag. Þetta er í annað sinn sem íslendingar taka þátt í Norðurlandamóti kvenna í blaki. hverjum flokki. Auk þess verður dregið út nafn eins keppanda og hlýtur sá heppni Kjörbók með 3000 kr. innstæðu í verðlaun. í eldri flokknum eru krakkar sem eru fæddir árin 1975 og ’76 og hlaupa þeir 1500 m en í yngri flokknum eru krakkar sc!T) fædd- ir eru árin 1977 og ’78 og hlaupa þeir 1100 m. örugglega eftir að gera enn betur. Heimavöllurinn á örugglega eftir að reynast okkur vel, ekkert endilega vegna þess að það er malarvöllur, heldur líka vegna þess að við eigum mjög góðan stuðningshóp. Þá held ég að við eigum eftir að kroppa stig á úti- völlum eins og önnur lið,“ sagði Þorvaldur einnig. Þorvaldur fing- urbrotnaði á æfingu fyrir skömmu en hann átti von á að verða klár í slaginn á sunnudag. Völsungar leika í Keflavík Völsungar eiga fyrir höndum erf- iðan útileik gegn ÍBK í Keflavík en þessi lið áttust einnig við í fyrsta leik í fyrra. Þá fóru Kefl- víkingar með sigur af hólmi en Völsungar hefndu ófaranna í seinni umferð mótins. „Við stefnum að sjálfsögðu að því að vinna ÍBK á sunnudag en við þurfum að sanna okkur strax,“ sagði Helgi Helgason „öldungurinn“ í Völsungsliðinu í samtali við blaðið. „Við stefnum að því að vinna alla leiki og verða íslandsmeistarar. Því ef við vinn- um alla leiki, verðum við að sjálf- sögðu meistarar. Við erum með nokkuð breytt lið frá því í fyrra og einnig munum við spila öðru- vísi bolta. En ég er nokkuð bjart- sýnn á góðan árangur í sumar,“ sagði Helgi ennfremur. „Það er orðið Ijóst að ég leik ekki með KA næsta vetur. Forráðamenn fyrstudeildarliðs fyrir sunnan hafa óskað eftir að ég leiki með liðinu og ég hef ákveðið að gera það,“ sagði Axel Björnsson hornamaður úr KA í samtali við Dag í gær. Axel sagðist ekki geta gefið upp á þessari stundu hvaða félag hér væri um að ræða en Dagur hefur fyrir því fulla vissu að það er lið Stjörnunnar í Garðabæ. Sigurjón Guðmundsson sem leik- ið hefur í vinstra horni hjá Stjörnunni undanfarin ár hefur sagt skilið við félagið og því vant- ar það tilfinnanlega hornamann. Forráðamenn Stjörnunnar hafa sem kunnugt er farið þess á leit við Þórsarana Axel Stefáns- son og Sigurpál Aðalsteinsson að þeir leiki með liðinu næsta vetur. Sigurpáll leikur eins og Axel í vinstra horni og gæti því orðið hörð barátta um stöðuna milli þeirra. Missir KA-manna er mikill enda hefur Axel verið fastamað- ur í liðinu undanfarin tvö ár og verið mjög vaxandi leikmaður. Axel hyggur á nám í viðskipta- fræðum og hefur ákveðið að hefja það í Háskóla íslands næsta haust. ET Skíðaráð Akureyrar: Lokahóf í Skíðastöðum - á sunnudaginn Lokahóf Skíðaráös Akureyrar verður haldið í Skíðastöðum í Hlíðarfjalli á sunnudaginn. Á lokahófinu verða afhent verðlaun og viðurkenningar fyrir öll skíðamót sem haldin hafa ver- ið á vegum SRA í vetur. Þá verð- ur boðið upp á veitingar. Hófið verður tvískipt. Klukk- an 14.00 hefsi hóf íyrir keppend- ur 12 ára og yngri en klukkan 15.30 fyrir keppendur 13 ára og eldri. Állir krakkar innan SRA eru’ hvattir til að mæta svo og for- eldrar Og aðrir velunnarar. Firmakeppni Þórs í körfubolta: Bautinn sigraði Bautinn á Akureyri sigraði í fírmakeppni Þórs í körfu- bolta sem fram fór fyrir skömmu en alls voru 47 fyrir- tæki skráð í keppnina. Fyrirkomulagið er þannig að leikmenn meistaraflokks Þórs draga sér fyrirtæki og keppa síðan innbyrðis einn á móti ein- um í útsláttarkeppni. Þrjú fyrir- tæki komust í úrslit og að lok- inni úrslitakeppninni stóð Baut- inn með Guðmund Björnsson sem leikmann, uppi sem sigur- v'egari. í öðru sæti varð Hjól- barðaþjónusta Heiðars með Bjarna Össurarson sem leik- mann og í þriðja sæti Stjörnusól með Konráð Oskarsson sem leikmann. Guðmundur Bjömsson körfukanattleiksmaður í Þór og Hallgrímur Ara- son eigandi Bautans með sigurlaunin í firmakeppninni. Mynd: kk Haukur og Stefán í blaklandsliðið - fer fram á laugardag

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.