Dagur - 20.05.1988, Page 21
20. maí 1988 - DAGUR - 21
Hallfreður
Örgumleiðason:
Hvílíkur skepnuskapur!
STOKKHOLMUR
8 x í viku
FLUGLEIDIi
-fyrir þíg-
Ó mig auman að ofan og neðan
og í bak og fyrir. Skörðótt
hnífsblað er rekið á kaf í höfuðið
á mér og því snúið. Sársauka-
bylgja hríslast niður eftir líkam-
anum, allt niður í stórutá og það-
an fer hún upp aftur. Gaddavírs-
lengja er þrædd í gegnum beinin,
svartur pipar þýtur í gegnum göt-
óttar æðarnar, allir líkamsvessar
ólga útbelgdir af krafti hins illa.
Slímug slanga vefur sig utan um
hálsinn á mér, ég reyni að tala.en
röddin hljómar eins og söngvari
Skriðjökla á útopnu í lokalagi
dansleiksins. Augun spýtast út úr
höfðinu, öfuga leið, þjöl er
stungið upp um nasirnar og
Hornaflokkur Kópavogs hefur
tekið sér bólfestu í hlustum
mínum. Ó mig auman, hví hefur
þú yfirgefið mig?
„Hvaða endemis útburðarvæl
er þetta? Ég er hérna ennþá.“ Ég
reyndi að sjá veruna sem þetta
mælti en gat ekki einu sinni
greint útlínur í Austfjarðaþok-
unni sem grúfði yfir rúminu. Það
litla sem eftir var af almennri
skynsemi sagði mér þó að þarna
hefði mín ektakvinna látið í sér
heyra og í gegnum bramboltið í
hornaflokknum heyrðist mér
rödd hennar eigi alltof blíð. Ég
hvískraði: Kók, sígarettu, strax,
bakkinn nálgast.
„Fyrst þú þykist vera að drep-
ast þá hefurðu varla gott af
tóbakinu.“ Hvell röddin nísti mig
allan líkt og átján víólínur í
sísdúr. í örvæntingu kvalins karl-
manns þreifaði ég eftir sígarettu
til að lina þjáningarnar en greip
óvart um vinstra læri konunnar
sem orgaði af skelfingu: „Heilag-
ir andar vítis. Þú hlýtur að vera
með óráði. Þuklar á konu þinni
um hábjartan dag og í þessu líka
ástandi. Ja, svei!“
Konan vildi ekki eiga neitt á
hættu og henti því í mig kók-
flösku og sígarettupakka. Glott-
andi tróð ég upp í mig tóbakinu
og skolaði reyknum niður með
kolsýrðu vatni, sykri. litarefnum,
sýru, bragðefnum og koffeini.
Sælan var skammvinn. Melting-
arfærin tóku að hlykkjast og
skakast, innihald magans kraum-
aði eins og reiður kommúnisti,
kviðurinn belgdist út undan
þrýstingnum. Eitthvað varð að
láta undan og hvílíkt gos!
Nú var mér öllum lokið. Ég
emjaði á konuna og bað hana að
sækja lækni og prest. Læknir
fékkst að sjálfsögðu ekki næstu
klukkutímana en presturinn
mætti í fullum skrúða. Hann
þurfti ekki að líta lengi á mig til
að komast að niðurstöðu: „Þú
hefur syndgað Hallfreður. Viljir
þú dvelja lengur í þessum heimi
og viljir þú fara upp en ekki niður
verður þú að iðrast. Játaðu van-
mátt þinn gagnvart veikara kyn-
inu, sorakjaftur og karlrembu-
drjóli. Með illu skal illt út reka.“
Forviða leit ég framan í hempu-
klædda veruna, beindi augum
mínum dálítið niður á við og sá
þá að þetta var kvenprestur.
Þetta var konu minni líkt. „Já,
með illu skal illt út reka og hun-
skastu þá burt,“ æpti ég ær.
Mjög var nú af mér dregið.
Loks þegar ég var í þann veginn
að skilja við kom læknirinn, eitil-
hress naggur sem hló og skríkti
þegar hann sá mig. „Hí, hí,
ósköp er garmurinn hrætöturs-
Þær stöllur Eva Ösp Þórðardóttir og Sigrún Kristbjörg Tryggvadóttir héldu
um daginn hlutaveltu til styrktar Barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri og ágóðinn af henni var 1.200 kr.
legur, hííí,“ jarmaði læknirinn og
felldi tár, svo ferlega var honum
skemmt. Ég ætlaði að rakka hann
niður í svaðið fyrir að hæðast að
dauðvona skáldi en áður en ég
komst að hóf hann að jarma á ný:
„Það er ekkert alvarlegt að þér.
Þú hefur að vísu krækt þér í
flensu, bæði A og B stofn og því
ráðlegg ég þér að drekka AB
mjólk og lesa bókina um Sívagó
lækni sem kom út hjá AB nýver-
ið. Hí, hí, hí.“ Með þessum orð-
um kvaddi læknirinn.
„Þarna fékkstu það óþvegið
ótuktin þín,“ gall í konunni. „Ég
vissi það alltaf að það gekk ekki
nokkur skapaður hlutur að þér
nema smá flensuskítur. Það þýðir
ekkert fyrir þig að barma þér
lengur og væla utan í mér. Það
eru fleiri með flensu en þú.“
Hvílík grimmd, hvílíkur
skepnuskapur. Hún skildi mig
einan eftir í þessu hroðalega ást-
andi, sagði mér bara að hrista
þetta úr mér og hunskast á lappir
sem fyrst. Hún veit örugglega
ekki hvað það er að vera með
flensu. Ó mig auman.
Kjörbúð <|§p>
Hafnarstræti 91
íþrótta- og lyftingafólk
Stark-protein
er komið
Frá Kjörbúð KEA
Hafnarstræti 91
Fasteignasalan
Brekkugötu 4 • Sími 21744
Gunnar Sólnes hrl., Jón Kr. Sólnes hrl. og Árni Pálsson hdl.
Sölust. Sævar Jónatansson
2ja herb. íbúðir:
Einbýlishús:
Melasiöa: Ný íbúð á 4. hæð.
Melasíða: Ný íbúð á 2. hæö, um 60 fm.
Smárahlíð: Ibúð á 3. hæð um 61 fm.
Tjarnarlundur: Ibúð á 2. hæð um 46 fm.
Tjarnarlundur: Góð fbúð á 1. hæð um 47 fm.
3ja herb. íbúöir:
Hrísalundur: Endaíbúð á 2. hæð.
Smárahlfð: Endaíbúð á 1. hæö um 84 fm.
Furulundur: Ibúð á 2. hæð um 78 fm, svalainngangur.
Skarðshlfð: íbúð á jarðhæð um 82 fm. Laus strax.
Oddagata: Ibúð á neðri hæð i tvibýli, um 92. fm.
Gránufélagsgata: ibúð á 2. hæð, mikið endurbætt.
Keilusiða: Ibúð á 1. hæð um 87 fm.
Skarðshlíð: Ibúð á 3. hæð um 87 fm.
Kellusfða: Ibúð á 2. hæð um 61 fm.
4ra herb. íbúðir:
Borgarhlíð: Góð ibúð á 1. hæð, í svalablokk.
Melasíða: Ibúð á efstu hæð, um 94 fm.
Tjarnarlundur: Ibúð á 4. hæð, svalainngangur.
Tjarnarlundur: Ibúð á 2. hæð, um 84 fm.
Strandgata: fbúð á efri hæð, um 105 fm.
Múlasíða: Fokhelt raðhús á einni hæð + bílskúr. Til afh. strax.
Sérhæðir og raðhús:
Grundargerði: Raöhúsíbúð á tveimur hæðum um 127 fm.
Höfðahlíð: Mjög góð 5 herb. sérhæð um 133 fm. Allt sér.
Hamarstígur: Mjög góð íbúð á tvíbýlishúsi, alls um 202 fm.
Grunnur að skúr.
Glerárgata: Neðri hæð í tvíbýlishúsi, um 126 fm.
Lltlahlíð: Góö raðhúsíbúö á tveimur hæðum, bílskúr.
Langahlíð: 5 herb. sérhæð, bilskúr.
Þingvallastræti: Efri hæð um 144 fm. og ibúö á kjallara um
104 fm.
Grundargerði: Raðhúsíbúð á tveimur hæðum um 127 fm.
Steinahlíð: 5 herb. raðhús á tveimur hæðum, bílskúr. Alls um
170 fm. I smíðum.
Strandgata: Húseign, tvær hæðir + ris.
Hraunholt: Einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr.
Gerðahverfi: Gott hús á einni hæð um 140 fm + bílskúr.
Gerðahverfi: Gott hús um 300 fm. Skipti möguleg.
Stapasíða: Gott hús á tveimur hæðum um 304 fm. Skipti
möguleg.
Helgamagrastræti: Mjög glæsil. hús ásamt bilskúr. Fokhelt.
Hvammshlið: Hús á tveimur hæöum + bilskúr. Ekki fullbúið.
Höfðahlíð: Hús á tveimur hæðum innb. bllskúr. Alls um 265 Im.
Langholt: Hús á tveimur hæðum innb. bílskúr, um 242 fm.
Munkaþverárstræti: Hús á tveimur hæðum um 184 fm.
Möðruvallastræti: Hús á tveimur hæðum um 218 fm.
Þverholt: Hús á einni hæð + gott risherb. um 170 fm.
Langamýri: Hús á tveimur hæðum + skúr.
Iðnaöar- verslunar- og skrifst.húsnæði:
Kaupangur: Mjög vel staðsett húsnæði, jarðhæö + kjallari.
Alls um 180 fm.
Óseyri: Gott húsnæði um 150 fm. Hentar til ýmissa nota.
Sunnuhlíð: Vel staðsett verslunarhúsnæði á n. hæð um 104
fm.
Kaupangur: Verslunarhúsnæði, jarðhæð + kjallari. Samt. um
170 fm.
Kaupvangsstræti: Skrifst.húsnæöi ca. 290 fm. Tilb. undir
tréverk. Selst sem ein heild eða í einingum.
Strandgata: Verslunarhúsnæði um 70 fm. Góð greiðslukjör,
gott verð.
Sunnuhlið: Mjög gott húsnæði til ýmissa nota ca. 150 fm. Sér-
inngangur.
Draupnisgata: Iðnaðarhúsnæði um 255 fm.
Glerárgata: Mjög gott verslunarhúsnæði um 195 fm. Laus
strax.
Sunnuhlið: Verslunarhúsnæði á 2. hæö um 104 fm.
Réttarhvammur: Iðnaðarhúsnæði um 140 fm. Fokhelt.
Skunnuhlíð: Sórverslun á 1. hæð um 50 fm + sameign.
V/Hvannavelli: Iðnaðarhúsnæði um 545 fm.
Fjölnisgata: Iðnaðarhúsnæði um 64 fm. Laust strax.
Dalvík: Fyrirtæki i rafiðnaði til sölu, lager og tæki. Leigu-
húsnæði.
Sérvrslun í miðbæ Ak. þ.e. lager + innróttingar. Leigu-
húsnæði.
Lítið fyrirtæki til sölu. Mjög hentugt fyrir eina til tvær fjölskyld-
Opið allan daginn frá kl. 9-18