Dagur - 25.05.1988, Blaðsíða 15

Dagur - 25.05.1988, Blaðsíða 15
íþróttir 25. maí 1988 - DAGUR - 15 í f Handbolti: Miskovic ráðinn þjálfari - Gerði samning til tveggja ára sem verður þó endurskoðaður að ári KA Aðalsteinn Jónsson t.v. og Mladen Miskovic handknattleiksþjálfari frá Júgóslavíu innsigla þjálfarasamninginn með handabandi við KA-heimiIið í gær. Mynd: kk Vormót KRA - 5. flokkur: Þór vann stórsigur í öllum leikjunum Júgóslavneski handknattleiks- þjálfarinn Mladen Miskovic skrifaði í gær undir samning við stjórn KA um að hann þjálfí 1. deildarlið félagsins næsta keppnistímabil. Samn- ingurinn gildir þó til tveggja ára en verður endurskoðaður að ári. Miskovic kom til Akur- eyrar um helgina, skoðaði aðstæður hjá KA og ræddi við forsvarsmenn félagsins. I fram- haldi af því skrifaði hann síðan undir í gær. Miskovic á að baki langan feril sem þjálfari en á síðasta keppnis- tímabili þjálfaði hann júgóslavn- eska 1. deildarliðið H.C. „Zamet“. Undir hans stjórn hafnaði liðið í 8. sæti deildarinn- ar og var aðeins 4 stigum frá lið- inu sem hafnaði í 3. sæti. Blaða- maður Dags hitti Miskovic að máli í gær, eftir að gengið hafði verið frá samningnum og spurði hann fyrst hvernig það hefði æxl- ast að hann er kominn til íslands sem þjálfari. „Ég hitti nokkra íslenska landsliðsnefndarmenn á heims- meistaramóti unglinga í Júgó- slavíu í haust og þeir spurðu hvort ég hefði áhuga á því að þjálfa á íslandi og ég játti því. í framhaldi af því höfðu KA-menn síðan samband við mig og hingað er ég kominn." - Hefur þú fylgst mikið með íslenskum handbolta? „Já, enda er hann vel þekktur í heiminum. íslendingar eiga á að skipa mjög sterku landsliði, sem hefur m.a. verið að leggja heims- meistara Júgóslava að velli.“ - Þú fylgdist með æfingu hjá Grétar Jónasson knattspyrnu- maður úr Fram, hefur ákveðið að snúa til Húsavíkur á ný og leika með Völsungum í 1. deildinni í sumar. Grétar lék með liðinu í 2. deildinni árið 1986 og hóf auk þess tímabilið í fyrra með liðinu en hætti fljótlega og hélt suður. Grétar gekk til liðs við sitt gamala félag Fram og ætlaði að vera með liðinu í sumar. En hann hefur nú hætt við þau áform og ætlar í slaginn með Völsungum á ný. Grétar er mjög snjall miðvall- arspilari og var fastur maður í Völsungsliðinu sem vann sér sæti í 1. deild árið 1986. Hann verður löglegur með liðinu innan skamms. Snævar meiddur Snævar Hreinsson hinn sterki miðvallarspilari Völsunga á við meiðsli að stríða um þessar mundir og hann gat t.d. ekki leik- ið með liðinu gegn ÍA á laugar- dag. Snævar hefur leikið mjög vel með Völsungsliðinu í vor og skoraði m.a. glæsilegt mark í fyrsta leiknum í deildinni gegn ÍBK fyrir skömmu. Meiðsli Snævars eru þó ekki KA í gær, hvernig leist þér á Ieik- menn liðsins? „Nokkuð vel, það eru þarna mjög hæfileikamiklir leikmenn innan um. Ég vissi um árangur KA-liðsins í vetur og bjóst því svo sem ekki við miklu. En ef menn eru tilbúnir að leggja mikið á sig, eigum við að geta gert góða hluti. Ég get þó ekki lofað meist- aratitli en ég get lofað framför- um. Það er þó ljóst að KA þarf á sterkri vinstrihandarskyttu að halda fyrir komandi keppnis- tímabil og einnig góðum mark- verði. íslendingar eru mjög líkam- lega sterkir en ég mun reyna að bæta tæknina hjá leikmönnum KA og legg mikið upp úr því að við spilum skemmtilegan og árangursríkan handbolta. Deild- in verður mjög erfið næsta vetur, þar sem hin liðin í deildinni hafa verið að fá liðstyrk og það er því mikilvægt að við fáum fólkið í bænum til að standa með okkur.“ - Hvenær ætlar þú svo að mæta í slaginn? „Ég kem hingað til Akureyrar í endaðan ágúst og mun þá strax hefja störf. Ég kem einn til að byrja með en vonast til þess að fá fjölskylduna hingað þegar nær dregur jólum. Það er dálítið erfitt þar sem dóttir mín er í skóla í Júgóslavíu og þó að hún tali ágæta ensku, held ég að tungumála- erfiðleikar komi í veg fyrir að hún geti verið í skóla hér á landi.“ Samningur Miskovic við KA er til tveggja ára en hann sagðist vonast til þess að eiga eftir að starfa við þjálfun hér á landi næstu árin. alvarleg og hann verður að öllum líkindum mættur í slaginn í næsta leik. Næsti leikur Völsungs í deildinni er gegn KR fyrir sunnan 2. júní. Snævar Hreinsson leikmaður Völs- ungs gat ekki leikið með gegn ÍA vegna meiðsla. Vormót Knattspyrnuráðs Akureyrar hófst á mánudaginn með þremur leikjum Þórs og KA í 5. flokki. Leikið var á Þórsvellinum og sigruðu Þórs- arar mjög örugglega í öllum leikjunum. í leik A-liðanna sigruðu Þórs- arar 6:0 og þeir unnu jafn stóran sigur í keppni B-liðanna. í leik C- liðanna unnu Þórsarar einnig stóran sigur, 5:0. D-lið félaganna áttu einnig að mætast en þar sem KA-menn mættu ekki með D-lið, var Þórsurum dæmdur 3:0 sigur í þeim leik. í 5. flokki er leikið eftir nýjum reglum. í hverju liði eru 7 leik- menn, markvörður og 6 útileik- menn og er leikinn svokallaður minibolti, þversum á stórum velli. KRA stendur fyrir þremur mótum í sumar, Vormóti, Sumarmóti og Haustmóti og eru leikirnir í þessum mótum tæplega 100. Allir leikirnir í Vormótinu fara fram á Þórsvellinum og leikirnir sem eftir eru, fara fram sem hér segir: Valdimar Pálsson leikmaður Þórs í knattspyrnu, meiddist illa í hné á æfingu á mánudag- inn og er úr leik í bili. Valdimar sagðist í samtali við Dag ekki vita hversu alvarleg meiðsli sín væru en það kæmi í ljós er hann færi í skoðun nú í vikunni. Það er mjög síæmt fyrir Þórsara ef Valdimar verður lengi 26/5 Þór-KA M.fl. kv. kl. 20.30 29/5 Þór-KA 4. fl. A kl. 10.30 29/5 Þór-KA 4. fl. B 29/5 Þór-KA 4. fl. C 29/5 Þór-KA 3. fl. A kl. 15.30 29/5 Þór-KA 3. fl. B 29/5 Þór-KA 3. fl. C 30/5 Þór-KA 2. fl. kv. kl. 20.00 Nýlega var skrifað undir sam- starfssamning milli forráða- manna Knattspymudeildar KA og forráðamanna OIIu- félagsins hf., eða Esso. Er þetta þriðja árið í röð sem slík- ur samningur er gerður milli þessara aðila. í samningnum kveður á um að á aðalbúningi meistaraflokks frá en hann hefur verið fastur maður í liðinu í vor og staðið sig mjög vel. Næsti leikur Þórs er ekki fyrr en annan laugardag, er liðið sæk- ir Leiftur heim í Ólafsfjörð. Ekk- ert verður leikið í 1. deildinni um næstu helgi vegna landsleiks íslendinga og Itala í undan- keppni ólympíuleikanna. 11/6 Þór-KA 6. fl. A kl. 14.00 11/6 Þór-KA 6. fl. B 11/6 Þór-KA 6. fl. C 15/6 Þór-KA 3. fl. kv. A kl. 17.30 15/6 Þór-KA 3. fl. kv. B 18/6 Þór-KA 7. fl. A kl. 14.00 18/6 Þór-KA 7. fl. B 18/6 Þór-KA 7. fl. C karla verði auglýsing frá Esso og að á ný fari fram Esso-mót í knattspyrnu meðal barna í 5. aldursflokki. í þessari keppni hefur verið góð þátttaka og hefur hún í alla staði verið vel heppnuð. Báðir aðilar hafa lýst sig ánægða með það samstarf sem verið hefur undanfarin ár. VG Valdimar Pálsson meiddist á æfmgu á mánudag. Knattspyrna: Grétar til liðs við Völsung á ný - Snævar Hreinsson meiddur Knattspyrna: KA semur við Olíufélagið hf. Knattspyrna: Valdimar meiddur

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.