Dagur - 25.06.1988, Blaðsíða 3
25. júní 1988- DAGUR-3
Fasteignamarkaðurinn á Akureyri:
SaJan var treg í vor en
er farin að glæðast á ný
Húsnæðisstofnun ríkisins hóf
afgreiðsiu lánsloforða til
íbúðakaupenda á ný í síðasta
mánuði en afgreiðsla lána
hafði þá legið niðri frá því í
mars á síðasta ári. En hvernig
hefur staðan á fasteignamark-
aðinum á Akureyri verið í vor
og byrjun sumars og hversu
mikið er til af húsnæði á sölu?
Dagur kannaði það mál í síð-
ustu viku og haft var samband
við sölumenn á tveimur fast-
eignasölum í bænum.
„Fasteignamarkaðurinn hefur
verið nokkuð stirður í vor og sal-
an verið mun minni en á sama
tíma í fyrra. Markaðurinn er þó
heldur líflegri eftir því sem líður
á sumarið en það er augljóst að
'við erum háðari ákvörðun Hús-
næðisstjórnar og félagsmálaráðu-
neytisins í lánamálum heldur en
maður áttaði sig á,“ sagði Pétur
Jósefsson hjá Fasteigna- og
skipasölu Norðurlands.
„Það hefur verið þó nokkuð
framboð af íbúðum í fjölbýlis-
húsum og reyndar má segja að
það hafi verið til sitt af hverju.
Það hefur helst vantað nýlegri
hús og þá hefur heldur ekki verið
mikið af raðhúsum á markaðin-
um að undanförnu. Fólk er helst
á höttunum eftir nýlegri eignum
og ekki síst eignum sem eru með
nokkuð af áhvtlandi lánum.
Verðlag íbúðarhúsnæðis hefur
gegnumsneitt stigið svolítið frá
áramótum og segja má að hækk-
unin sé rétt í takt við verðbólg-
una á þessum tíma,“ sagði Pétur
ennfremur.
Pétur taldi að þessi uppsveifla
sem varð á fasteignamarkaðinum
á síðasta ári, hafi ekki skilað sér
áfram í þeim mæli sem hann átti
von á. Aðspurður um sölu iðnað-
arhúsnæðis sagði Pétur að þó
nokkuð væri til af slíku húsnæði á
sölu en ekki væri mikil hreyfing á
því.
„Pað var smá niðursveifla á
markaðinum um tíma en mér
virðist þetta vera að korrta upp
aftur og heilt yfir er ég alls ekkert
óhress með markaðinn,“ sagði
Björn Kristjánsson hjá Fasteigna-
torginu. „Markaöurinn hér á
Akureyri byggist fyrst og fremst á
hinum hefðbundnu skiptum. Það
er mikið af óafgreiddum láns-
loforðum og markaðurinn er því
þungur, þó að yfirleitt sé einhver
jöfn sala, enda alltaf til fólk sem
þarf að hreyfa sig,“ sagði Björn
ennfremur.
í máli Björns kom einnig fram
að töluvert væri til af eignum á
sölu en að helst vantaði hin sívin-
sælu einbýlishús, þetta 140-150
fm. „Pað er töluvert til af blokk-
aríbúðum og þá er farið að bera á
því að eldri húseignir komi á
sölu. Það stafar m.a. af því að
verið er að byggja íbúðir fyrir
aldraða við Víðilund. Enda virð-
ist vera töluverður áhugi fyrir
þessum eldri húsum, t.d hjá
yngra fólki. Bæði er það að þetta
eru stór hús, sem henta á margan
hátt vel fyrir barnmargt fólk og
eins er hægt að taka þessi hús í
gegn og breyta á ýmsan hátt,“
sagði Björn.
Hann sagði einnig að töluvert
væri til af iðnarhúsnæði á sölu og
nokkuð væri selt af minna iðnað-
arhúsnæði en lítið sem ekkert af
þeim stærri. -KK
t>að er óverjandi
fli hringja ehhi
í ömmu ó Ahur-
eyri ó dfmœlinu
hennor
Bíminn er tilvalin leið til að eiga
persónuleg samskipti við œttingja
og vini í öðrum landshlutum.
Síminn er líka skemmtilegur og
pœgilegur samskiptamáti.
Vissir pú, að pað er ódýrara að
hringja eftirkl. 18 og enn ódýrara
að hringja um helgar.
Dagtaxti er frá kl. 08 til 18
mánudaga til föstudaga.
Kvöldtaxti er frá kl. 18 til 23.
Ncetur- og helgartaxti erfrá kl.
23 til 08 virka daga ogfrá kl. 23
áföstudegi til 08 nœsta mánudag.
Fyrir pá sem staddir eru á
landshyggðinni, en purfa að
sinna erindum við fyrirtœki og
stofnanir á höfuðborgarsvœðinu,
er síminn einfaldasta og fljót-
virkasta leiðin.
Síminn er til samskipta
Því ekki að notann meira!
PÓSTUR OG SÍMI
Dcemi um verð á símtölum:
Lengd sínitals 6 mín. 30 min.
Reykjavík - Keflavík
Dagtaxti kr. 38,08 kr. 180,88
Kvöldtaxti kr. 26,18 kr. 121,38
Nætur- og helgartaxti kr. 20,23 kr. 91,63
Reykjavík — Akureyri
Dagtaxti kr. 55,93 kr. 270,13
Kvöldtaxti kr. 38,08 kr. 180,88
Nætur- og helgartaxti kr. 29,16 kr. 136,26
Einar Þorvarðarson er markvörður íslenska
landsliðsins í handknattleik og á að baki yfir 170
landsleiki. Einar leikur jafnframt með íslands- og
bikarmeisturum Vals.
3
v