Dagur - 02.07.1988, Blaðsíða 9
Thor við klukkuna góðu sem flest okkar hafa eflaust leitað til og fengið skjót
svðr.
venjulegum kringumstæðum ekki
að vera meiri en tvær sekúndur á
viku. Ef skekkjan verður meiri
þá eru alltaf einhverjir sem láta
vita auk þess sem Háskólinn fylg-
ist alltaf með „gangi“ klukkunnar-
og sendir mánaðarlegar skýrslur
þar um.
„Það hefur gerst að klukkan
varð klukkutíma of fljót en það
uppgötvaðist auðvitað um leið,“
segir Thor.
Ekki hafa verið gerðar mæling-
ar á því hve margir hringja í
klukkuna dag hvern en samtímis
geta tuttugu aðilar hlustað á
röddina. Klukkan gegnir mikil-
vægu hlutverki við tímaskráningu
á öllum neyðarútköllum lögreglu
og slökkviliðs í Reykjavík því um
leið og hringt er í neyðarsímana
tengjast þeir klukkunni sem les
nákvæman tíma inn á sama band
og samtölin eru tekin upp á.
„Ég held að hún eigi eftir að
endast lengi enn,“ segir Thor um
klukkuna.
6000 fyrirspurnir á dag
„Símaskrá" segir röddin sem
svarar okkur í númerinu 03. Við
höfum náð sambandi við upplýs-
ingaþjónustu Pósts og síma en
hún samanstendur af tólf konum
sem sitja fyrir framan tölvuskjái
og reyna af fremsta megni að
leysa úr hverjum þeim spurning-
um sem símnotendur bera upp
við þær. í tölvunni er að finna
nafnaskrá, númeraskrá og götu-
skrá og með því að fletta upp í
einni eða fleiri af þeim finnast
svör við spurningum eins og þess-
ari: „Geturðu gefið mér símann
hjá Guðmundi sem býr einhvers
staðar á Laugaveginum?“
Upplýsingaþjónusta hefur ver-
ið starfrækt hjá Pósti og síma svo
lengi sem símar hafa verið notað-
ir á landinu. Upphaflega sáu
sömu konur um þessa þjónustu
og unnu á skiptiborðinu og þá
voru númerin ekki fleiri en svo
að þær kunnu þau öll utanbókar.
Fljótlega eftir að númerin voru
farin að skipta einhverjum hundr-
uðum og síðan þúsundum var
þeim komið fyrir í eins konar
spjaldskrá sem raðað var í stóra
„tromlu“. „Ég man vel að það
var þungt að snúa þessari
tromlu,“ segir Sigríður Flygen-
ring varðstjóri í 03 en hún hefur
unnið við upplýsingarnar í yfir 15
ár.
Tölvur leystu tromluna af
hólmi fyrir um átta árum og segir
Sigríður það auðvitað hafa verið
geysilega breytingu. Númerunum
fjölgar hins vegar stöðugt og nú
er svo komið að konurnar tólf
hafa engan veginn undan að
afgreiða allan þann fjölda sím-
notenda sem vilja ná sambandi
við 03. Á hverjum degi reyna 10-
12000 manns að ná sambandi en
aðeins helmingur þeirra kemst að
þó svo að línurnar í númerið séu
sextán talsins. Á hverjum degi
afgreiðir deildin því 5-6000 þús-
und fyrirspurnir. Þjónustusvæðið
er líka allt landið.
„Við gerum okkar besta“
Fyrirspurnirnar sem berast deild-
inni eru ekki allar jafn auðveldar
að leysa úr. „Það hringir kannski
einhver og spyr um símanúmer í
rauða húsinu á horninu þarna
rétt neðan við Hlemm, eða
eitthvað á þessa leið. í svona til-
fellum þarf maður hreinlega að
þekkja allan bæinn og reyna að
sjá fyrir sér þetta tiltekna hús og
finna út númer þess,“ segir Sig-
ríður. „Stundum þarf maður að
spyrja hinar hvort þær þekkja
þetta hús og ég held að það sé
óhætt að segja að við gerum okk-
ar besta til þess að leysa úr þess-
um spurningum," segir hún.
„Menn athuga ekki að
við erum staddar
í Reykjavík“
í sama sal og upplýsingar eru til
húsa, er númerin 02 og 002 en
það er þjónusta við handvirka
farsíma og langlínuafgreiðsla.
Langlínuþjónustan er aðeins fyr-
ir Reykjavíkursvæðið en um hin
númerin sem hér er fjallað um,
gildir að þau þjónusta allt landið.
Þetta atriði biður Hrönn Ras-
mussen varðstjóri í afgreiðslu
erlendra símtala, að leggja
áherslu á.
„Það kemur allt of oft fyrir þeg-
ar fólk utan af landi er að biðja
okkur að hringja fyrir sig í ein-
hver númer erlendis, að það virð-
ist halda að afgreiðslan sé stað-
sett á símstöðinni á þeirra eigin
svæði. í þessum tilfellum gleymir
fólk að taka fram svæðisnúmerið
og þegar númerin eru kannski
orðin þau sömu innan tveggja
svæðisnúmera getur þetta valdið
okkur erfiðleikum. Það er því
mikilvægt að fólk láti okkur vita
nákvæmlega fyrir hvaða númer
við erum að vinna og gleymi ekki
svæðisnúmerinu framan við,“
segir hún.
Auk þess að sjá um að panta
símtöl til þeirra fáu landa sem
ekki er hægt að hringja í
sjálfvirkt, sér þessi deild um
afgreiðslu svokallaðra „collect“
símtala. Sú þjónusta er aðallega
notuð af starfsmönnum varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli en
þeir hafa ekki aðstöðu til að
hringja til ástvina sinna með öðru
móti.
Margir hillumetrar
af símaskrám
í tengslum við millilandaþjón-
ustuna er rekin upplýsingaþjón-
usta fyrir erlend símanúmer en
hér er hún ekki komin í tölvu
heldur þarf einfaldlega að fletta
upp í erlendum símaskrám.
„Þetta er mikil flettivinna," segir
Hrönn og því er ekki erfitt að
trúa þegar horft er eftir heilu hillu-
metrunum af erlendum skrám.
Skrár fyrir Bretland eru til dæmis
eitthvað á þriðja hillumetra. Það
getur því verið ákveðnum erfið-
leikum bundið að svara spurning-
um eins og þeirri hvert sé númer-
ið hjá James í Bretlandi. Þær er
þó ekki óþekktar.
Aðspurð um mestu törnina á
deildinni segir Hrönn án umhugs-
unar að það hafi verið umstangið
í kringum Reykjavíkurfund
þeirra Reagans og Gorbatsjovs.*
„Það gekk allt saman mjög vel og
við höfum fengið miklar þakkir
fyrir starf okkar þessa daga,“ seg-
ir Hrönn. ET
aqtilí ■ÖAQWWi-ði
Hlífar og drifsköft og
ýmislegt fleira í þau...
Vönduð vara=aukið öryggi
Óseyri * ® 21400 & 22997