Dagur - 07.07.1988, Qupperneq 1
71. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 7. júlí 1988
125. tölublað
Fiskihöfn á Akureyri:
Framkvæmdir komnar vel af stað
Hafísinn úti fyrir Norðurlandi:
Meiri en í meðalári
„Um síðustu mánaðamót var
gerð mjög góð hafískönnum á
öllum jaðrinum úti fyrir Norð-
vesturlandi og Norðurlandi og
samkvæmt henni er ísinn næst
landi um 25-30 sjómílur frá
landi,“ sagði Þór Jakobsson
hjá Veðurstofunni í samtali við
Dag.
„Isinn er vel fyrir innan mið-
línu á öllu svæðinu og það er
meira af honum heldur en í með-
alári en hann bráðnar mjög ört.
ísinn er á rækjumiðum t.d. við
Dorfbanka og úti fyrir Kolbeins-
ey en þó að hann se fyrir á mið-
um, eru allar siglingaleiðir færar.“
Þór sagði að þéttleiki hafíssins
væri mestur langt norður af
Langanesi en væri allt niður í
dreifar fyrir utan sjálfan hafís-
jaðarinn. „Það er reynt að fylgj-
ast vel með þessu og einnig er
hægt að ráða af veðurkortum
hvernig ísinn hreyfist," sagði Þór
ennfremur. -KK
Siglufjörður:
Einn vill smíða
lögreglustöð
Eitt tilboð barst í smíði lög-
reglustöðvar og aðseturs
bæjarfógeta á Siglufírði. Það
var frá Byggingafélaginu Berg
hf. á Siglufírði. Kostnaðar-
áætlun vegna verksins hljóðaði
upp á tæplega 29 milljónir
króna, en nú er verið að yfír-
fara eina tilboðið sem barst.
Húsið verður 400 fermetrar að
stærð á tveimur hæðum eða 200
fermetrar hver hæð. Á neðri hæð
verður lögreglustöðin með aðset-
ur og þar verða fimm fangaklef-
ar, gæsluvarðhaldsklefi, bílskúr
fyrir tvo bíla og skrifstofa yfirlög-
regluþjóns og varðstjóra, auk
móttöku.
Bæjarfógetaembættið verður á
efri hæð hússins, en það hefur
hingað til verið í leiguhúsnæði.
Erlingur Óskarsson bæjarfógeti á
Siglufirði sagði að nýja húsnæðið
myndi bæta úr brýnni þörf, eink-
um hvað lögregluna varðar.
Framkvæmdir við húsið áttu að
vera hafnar fyrir nokkru en það
hefur dregist. „Það hefði helst
þurft að byrja í dag,“ sagði Erling-
ur í samtali við blaðið. Sagðist
hann hafa pappíra upp á að hús-
inu ætti að vera lokið í október á
næsta ári og „við erum sátt við
það,“ sagði bæjarfógeti. mþþ
Sólarsamba.
Mynd: GB
viku
Framkvæmdir við fiskihöfn-
ina hófust í fyrrasumar en þá
var gerð 4 ára áætlun um fram-
kvæmdir við höfnina. Verkið
hófst á því að viðlegukanturinn
við Slippstöðina var lengdur um
23 m og auk þess sem svokallað-
ur brúsi var settur á enda hans
en forsenda þess að fiskihöfnin
veiti gott skjól er að norðanald-
an berist ekki inn í hana. í ár er
stefnt að því að vinnu við stál-
þilið ljúki en á næsta ári verður
höfnin dýpkuð og steyptur 210
m kantur á stálþilið og þá ætti
að vera hægt að byrja að nýta
kantinn. Árið 1990 verður síðan
unnið við lagnir, lýsingu og mal-
bikun svæðisins.
Skipaflotinn hefur stækkað
mikið síðustu ár og þörfin fyrir
fiskihöfn er brýnust fyrir þau 4
skip sem Samherji gerir út,
loðnuskipin tvö og togara
Útgerðarfélags Akureyringa
sem eru orðnir 6 að tölu. Auk
þess sem skip Samherja koma
til með að nýta sér aðstöðuna
við fiskihöfnina, hefur fyrirtæk-
ið fengið vilyrði hafnaryfirvalda
um lóð við höfnina fyrir starf-
semi sína. -KK
Skóverksmiðja Sambandsins:
Nýir eigendur taka við
um næstu mánaðamót
- vinna við að reka niður stálþilið hefst í næstu
Framkvæmdir við fískihöfn-
ina á Akureyri eru komnar
vel af stað og hafa staðist
áætlun fram til þessa. Vinnu
við sjálfan grjótgarðinn er
lokið og í næstu viku er stefnt
að því að hefja vinnu við að
reka niður stálþii innan grjót-
garðsins, samtals 209 m að
lengd.
Hafnarstjórn hefur sótt um
rúmlega 25 milljóna króna lán
úr Framkvæmdasjóði íslands,
sem þarf til að ljúka við fram-
kvæmdir á árinu. Umsóknin
þarf að fara fyrir ríkisstjórnar-
fund en hafnarstjórn vonast eft-
ir jákvæðu svari mjög fljótlega.
Akureyri um næstu mánaða-
mót. Um miðjan maí keyptu
sex cinstaklingar á Akureyri
skóverksmiðju Sambandsins
og stofnuðu hlutafélagið
Strikið. Tíminn síðan hefur
verið notaður til að skipu-
leggja reksturinn.
„Hvað varðar starfsmanna-
fjölda þá breytist hann ekki, við
reynum að byrja í lágmarki og
vinna að þessu markvisst. Það er
margt sem við komum til með að
breyta og laga þannig að hugar-
farið innan fyrirtækisins verður
allt annað,“ segir Haukur.
Öllum starfsmönnum skóverk-
smiðju Sambandsins var boðið að
halda áfram störfum hjá hinu
nýja fyrirtæki og hafa allir verið
endurráðnir sem halda vildu
áfram störfum. Segir Haukur að
meirihluti starfsfólksins verði
áfram en alls koma 35 manns til
með að vinna í verksmiðjunni.
í kaupsamningi kveður á um
að Strikið kaupi það sem nýtilegt
er af hráefni og fullunninni vöru.
Einnig kaupir hlutafélagið vélar
og tæki, viðskiptasambönd og
vörumerki.
Haukur segir að ekki verði um
að ræða breytingar í vélabúnaði
verksmiðjunnar fyrst um sinn. „í
samanburði við skóverksmiðjur
víða um heim þá er þessi verk-
smiðja í góðum „klassa". Auðvit-
að eru til betri verksmiðjur en
það eru líka til mun verri verk-
smiðjur. Síðan er náttúrlega
fólk hér með mikla reynslu og
það er sennilega eitt það dýrmæt-
asta sem við fáum með þessari
verksmiðju,“ segir Haukur.
JÓH
Framkvæmdir við fiskihöfnina á Akureyri eru komnar vel af stað og vinnu við grjótgarðinn er lokið. í næstu
viku verður hafist handa við að reka niður stálþil innan grjótgarðsins og því verki lokið á árinu.
„Okkur líst mjög vel á þetta. i að ganga í gegn,“ segir Haukur
Við erum þessa dagana að Ármannsson framkvæmda-
vinna við talningu og annað stjóri Skóverksmiðjunnar
slíkt þannig að umskiptin eru | Striksins sem tekur til starfa á