Dagur - 07.07.1988, Side 3
7. júlí 1988 - DAGUR - 3
Ólafsíjörður:
Ný bæjarmála-
samþykkt
- áfengisvarnanefnd lögð niður
Ný bæjarmálasamþykkt var
staöfest á fundi bæjarstjórnar
Ólafsfjarðar fyrr í vor. Með
staðfestingu hennar breyttist
nefndaskipan bæjarins m.a. á
þá lund að áfengisvarnanefnd
bæjarins var lögð niður.
Verksvið áfengisvarnanefndar
heyrir nú undir félagsmálaráð,
sem svo heitir nú. Félagsmálaráð
tók við af félagsmálanefnd og fer
með verkefni áfengisvarnanefnd-
ar og barnaverndarnefndar.
Félagsmálaráð Ólafsfjarðarbaejar
er skipað 5 mönnum. JÖH
Ragnheiður Erla
prestur á Raufarhöfh
Raufarhafnarbúar hafa verið
prestlausir í tvö ár, en úr því
mun rætast nú á næstunni þeg-
ar sr. Ragnheiður Erla Bjarna-
dóttir kemur til starfa. Bjarni
Rögnvaldsson þjónaði Raufar-
hafnarprestakalli síðast, en frá
því hann fór hefur enginn
prestur setið prestakallið.
Ragnheiður Erla var vígð til
prests síðasta sunnudag og held-
ur hún til Raufarhafnar á næst-
unni. Ragnheiður Erla er lands-
mönnum að góðu kunn, en hún
var í sigurliði Reykvíkinga í
spurningaþáttum Ómars Ragn-
arssonar „Hvað heldurðu?“ sem
sýndir voru í Sjónvarpinu í vetur.
Einnig örfáa
L-200 Pickup 1988
frá kr. 500.000.-
Þau nutu sólarinnar á Ráðhústorgi í gær.
Mynd: GB
Vinsælu Pajero jepparnir
til afgreiðslu strax á verði
mitsubishi fyrir gengisfellingu
„Svartnætti framundan
hjá þeim sem skulda“
éaS
nöldursl sýningarsalur.
Tryggvabraut 10. Símar 27015 - 27385 - 21715.
„Mín persónulega skoðun er
sú að stórkostlegt misræmi sé
að skapast á milli launa annars
vegar og verðbólgu og láns-
kjaravísitölu hins vegar.
Bankar, verðbréfafyrirtæki og
fjármögnunarleigur eru að
hirða bæði fyrirtæki og eigur
einstaklinga,“ sagði Björn
Snæbjörnsson, varaformaður
verkalýðsfélagsins Einingar á
Akureyri, þegar hann var
spurður álits á þróun peninga-
mála, launa og verðlags í land-
inu.
Björn sagði að ekkert nema
hyldýpi væri framundan fyrir þá
sem hefðu staðið í íbúðakaupum
eða byggingum eða hefðu á ann-
an hátt fjárfest með verðtryggð-
um lánum ef ekkert yrði að gert.
„Það er svartnætti framundan hjá
þessu fólki ef ekki verður gripið
til aðgerða en margur maðurinn
var rétt að ná sér upp úr erfið-
leikatímanum vegna misgengis-
ins um og eftir 1983. Maður hlýt-
ur að velta því fyrir sér hvort
forrétturinn hafi verið 1983 og
ábætirinn núna,“ sagði hann.
Björn sagði að það gengi ekki
að binda launin en láta vexti og
vísitölu dingla lausa og æða upp á
við. Kjaraskerðing væri augljós-
lega mikil með samninga bundna
við 12-14% hækkun en verðbólgu
upp á tugi prósenta. Stærsta
kjarabótin fyrir þá sem skulduðu
var þegar verðbólgan lækkaði en
því væri ekki að heilsa lengur.
„Steingrímur Hermannsson upp-
lýsti að það hefðu verið mikil
mistök að festa kaupgjald en ekki
lánskjaravísitölu á sínum tíma.
Ég er honum sammála og vona
að hann gangi fram í því núna að
láta þetta ekki gerast aftur,“
sagði Björn Snæbjörnsson. EHB
Eigum útleysta Diesel
og Turbo Diesel jeppa
- bæði lengri
og styttri gerð
Verð frá
1168 þúsund
krónum.
★
Hagkvæmir
greiðsluskilmálar
Karlakorinn Heimir:
Vel heppnuð söng-
för tll ísraels
- einnig sungið í Egyptalandi
Fyrir nokkru kom Karlakórinn
Heimir í Skagafirði úr vel
heppnaðri söngför til Israels.
Ferðin stóð í rúmar 2 vikur og
var sungið á 6 stöðum, fimm
sinnum í ísrael og einu sinni í
Egyptalandi. Ekki hefur
íslenskur kór áður sungið í
Egyptalandi. Alls fóru um 90
manns í ferðina og að sögn
Þorvaldar Óskarssonar for-
manns kórsins tókst hún með
afbrigðum vel og var kórnum
vel tekið hvar sem hann kom.
Ferð Heimis var í boði menn-
ingarmálaráðuneytis ísraels í
tilefni 40 ára afmælis Ísraelsríkis
og efndu ísraelar til mikillar há
tíðar þá daga sem kórinn var
staddur úti. Undirleikari í ferð-
inni var Kathrine L. Seedell og
stjórnandi Stefán Gíslason. Tveir
gestasöngvarar voru með í för,
þau Sigurður Björnsson og Sieg-
linde Kahmann óperusöngvarar.
„Þetta var, og verður, alveg
ógleymanleg ferð. Það var ótrú-
legt hvað fólk þoldi hitann þarna,
sérstaklega þegar við sungum.
Oft fór hitinn yfir 40 gráður. Við
skoðuðum helstu sögustaði í ísra-
el, m.a. slóðir frelsarans og það
var ógleymanlegt að sjá staðina
sem maður las um í biblíusögun-
um sem strákur. í Egyptalandi
vorum við í 4 daga og skoðuðum
m.a. pýramídana," sagði Þor-
valdur.
Meðal þeirra staða sem kórinn
söng á voru Friðarbjöllugarður-
inn í Jerúsalem, á stóru torgi í
borginni Natalíu og í 1000 manna
samkomusal á samyrkjubúi í
ísrael. -bjb
SkagaQörður:
Bílvelta í
Norðurárdal
Langur Land-Rover jeppi með
9 Hollendinga innanborðs valt
út af veginum í Norðurárdal,
gegnt Egilsá, sl. mánudag.
Bíllinn fór nokkrar veltur
niður, alls um 8 metra fall.
Betur fór en á horfðist, þrír
fengu minniháttar meiðsl en
aðrir sluppu. Bíllinn er talinn
gjörónýtur.
Að sögn lögreglunnar var veg-
ur grófur sökum vegafram-
kvæmda þarna og grunur leikur á
að Hollendingarnir hafi ekki ekið
eftir aðstæðum. Aftan í löngum
jeppanum var kerra og hefur hún
haft sitt að segja í þessari veltu.
-bjb