Dagur - 26.07.1988, Side 1
71. árgangur Akureyri, þriðjudagur 26. júlí 1988____________138. tölublað
Dalvík:
Nýjum togara
fagnað í dag
I dag taka Dalvíkingar á móti
nýju fiskiskipi. Nýr Björgvin
leggst þá að bryggju, tæpu ári
eftir að smíði skipsins var hafin
í skipasmíðastöðinni í Flekke-
Qord í Noregi. Kaupverð
skipsins er um 390 milljónir
króna.
Nýja skipið er 499 tonn að
stærð, 50 tonnum stærra en gamli
togarinn. í skipinu er búnaður til
heilfrystingar en togarinn tekur
um 2500 fiskikassa í lest.
Björgvin lagði af stað frá
Noregi á laugardagsmorgun. Um
hádegisbil í gær var togarinn um
180 mílur undan Langanesi og
miðaði vel. JÓH
Skagafjörður:
Ekið á dreng
á hjóli
Ekið var á dreng sl. sunnu-
dagskvöld við bæinn Miðhús í
Blönduhlíð í Skagafirði.
Drengurinn kom á hjóli niður
afleggjarann að bænum og
þvert yfir veginn, ] veg fyrir
bifreið sem kom aðvífandi.
Hann var fluttur á sjúkrahús,
handleggsbrotinn og brotin í
honum hnéskel.
Sl. föstudagskvöld var árekstur
á Aðalgötu á Sauðárkróki þar
sem létt bifhjól og bifreið skullu
saman. Ökumaður bifhjólsins
slapp með óveruleg meiðsl. Á
laugardag var bílvelta á Reykjar-
strönd við bæinn Innsta-Land.
Bíll fór útaf veginum, fór nokkr-
ar veltur og er gjörónýtur. Öku-
maður slapp með skrekkinn.
Lögreglan á Sauðárkróki var
við radarmælingar um helgina í
nágrenni bæjarins. Margir öku-
menn voru teknir fyrir of hraðan
akstur og mestur mældist hraði 125
km hjá einum ökumanni. -bjb
Akureyrin kom úr mettúr um helgina eins og sjá má í frétt á baksíðu.
Skafti Sk-3:
155 tonn
á fjómm
sólarhringum
Skafti SK-3, togari Útgerðar-
félags Skagfirðinga, kom inn
sl. sunnudag með um 155 tonn
og var uppistaðan þorskur.
Aflinn veiddist á fjórum sólar-
hringum á Stranda- og Kögur-
grunni og Þverálshorni. Þetta
er skásta veiðiferð Skafta í
sumar. „Það er að lagast ástand-
ið á miðunum, eftir að hafa
verið lélegt í júní og byrjun
júlí,“ sagði Sverrir Kjartans-
son skipstjóri á Skafta í samtali
við Dag.
Sverrir var að vonum ánægður
með þennan veiðitúr en sagði að
Skafti hafi átt betri túra í vetur og
einu sinni hafi þeir komið inn
með 160 tonn eftir 3ló sólarhring.
Skafti á ekki mikið eftir af kvót-
anum, eða um 500 tonn afþorski
og síðan eitthvað af karfa. I haust
er áætlað að fara þrjár siglingar
með karfa ef góður markaður
verður fyrir fiskinn. Sverrir var
óánægður með þann kvóta sem
var úthlutað og sagði að mikið
ósamræmi væri á skipum sunnan-
lands og norðan, skipin fyrir
sunnan fengju betri kvóta og
stöðugt væri bilið að stækka þar á
milli. -bjb
TF-JFK nauölenti í Fnjóskadal:
Endastakkst hálfan annan hring
- en flugmaöurinn slapp með skrámur
TF-JFK á túninu við Sólvang í gær. Vélin er stórskemmd enda enda-
stakkst hún hálfan annan hring áður en hún hafnaði á hvolfi. í baksýn
má sjá hálfhirt túnið en þegar óhappið varð var nokkur fjöldi fólks
þar við heyskap. Innfellda myndin er af Helga Rafnssyni.
mildi að hann slapp með lítils-
háttar meiðsli því vélin er mjög
mikið skemmd.
Vélin var að koma frá Reykja-
vík, með viðkomu að Búðum á
Snæfellsnesi, og var ferðinni heit-
ið til Akureyrar. Sterkur mót-
vindur var alla leiðina. Auk þess
þurfti Helgi að breyta frá þeirri
ætlun sinniað fljúga beint niður í
Eyjafjörðinn vegna dimmviðris í
botni hans. Þess í stað fór hann
niður Bárðardalinn og síðan vest-
ur Ljósavatnsskarðið. Þetta
tvennt olli um klukkutíma seink-
un en Helgi hafði áætlað að lenda
á Akureyri um klukkan 16.00.
Helgi hafði flogið í um þrjá og
hálfan tíma en vélin á að hafa
flugþol í fjóra og hálfa klukku-
stund. Helgi sagðist í samtali við
blaðamann telja að eldsneyti hafi
ekki verið á þrotum heldur hafi
ef til vill verið um einhverja bilun
að ræða.
„Vélin hökti lítillega þegar ég
var yfir Stóru-Tjörnum og yfir
Sólvangi drapst alveg á hreyfíin-
um,“ segir Helgi um aðdraganda
nauðlendingarinnar. Sem lend-
ingarstaður varð fyrir valinu tún-
spilda á bænum Sólvangi og áætl-
ar Helgi að hún hafi verið um 500
metra löng og 100 metra breið.
Svo stór blettur á að duga vel til
nauðlendingar en aðstæður réðu
því að hún mistókst.
Helgi sveigði vélinni til hægri
og lenti síðan til suðurs, undan
vindi. Um leið hvessti skyndilega
en það sem hins vegar gerði út-
slagið var að vélin rakst á stórt
barð og endastakkst hálfan ann-
an hring áður en hún hafnaði á
bakinu um 120 metrum sunnar.
Helgi segir þriggja punkta belti
hafa bjargað sér og vissulega
slapp hann ótrúlega vel, hlaut
aðeins minniháttar skrámur.
Vélin, sem er í eigu Helga og
fimm félaga hans, er hins vegar
talin ónýt. Málið er enn í
rannsókn. ET
Forseti íslands:
Heimsækir
Húnaþing
Ákveðið er að forseti íslands
heimsæki Húnaþing dagana
25. til 28. ágúst. Mun forsetinn
koma að sýslumörkum
Strandasýslu og Húnavatns-
sýslu, við brúna á Hrútafjarð-
ará kl. 11 að morgni fimmtu-
dagsins 25.
Að sögn Jóns ísberg, sýslu-
manns, er ekki enn búið að
skipuleggja og tímasetja ferð
forsetans um héraðið að fullu.
Hann sagði að tímasetningar
gætu átt eftir að breytast eitthvað
frá því sem nú væri fyrirhugað en
það yrði allt fastsett á næstu
dögum.
Þó er ákveðið að forsetinn
heimsækji flest eða öll sveitarfé-
lög í héraðinu og að tveimur dög-
um verði varið til að ferðast um
Vestur-Húnavatnssýslu og jafn
löngum tíma til ferðalaga um
austursýsluna. fh
Laust fyrir klukkan fimm í
fyrradag brotlenti lítil eins
hreyfils flugvél á túni við
bæinn Sólvang í Fnjóskadal.
Flugmaðurinn, Helgi Rafnsson
28 ára gamall flugvirki, var
einn í vélinni og má telja mestu