Dagur - 26.07.1988, Side 2

Dagur - 26.07.1988, Side 2
2-DAGUR-26. julí 1988 Ástandið í kennaramálum á Norðurlandi: Mjög svipað og unaanfarin ár Það hefur jafnan ríkt nokkur óvissa með það hvernig gangi að ráða kennara til starfa á landsbyggðinni á milli skóla- ára. Þetta er mjög mismunandi eftir stöðum en sums staðar hefur þetta verið mikið vanda- mál. Kennurum hafa síðustu ár verið boðin ýmis hlunnindi fyr- ir að koma til starfa úti á landi og því hefur reynst auðveldara að fá þá til staifa en áður. „Mér sýnist ástandið vera svip- að og í fyrra en ekki betra þó. En það segir sína sögu að í síðustu viku vantaði 6-8 kennara á Akur- eyri. Það er einnig óráðið í nokkrar kennarastöður annars staðar í umdæminu og það er ekki fyrr en úr þessu að farið er að ráða leiðbeinendur í stöðurn- ar,“ sagði Sigurður Hallmarsson fræðslustjóri í Norðurlandsum- dæmi eystra í samtali við blaðið. Guðmundur I. Leifsson fræðslustjóri í Norðurlandsum- dæmi vestra sagði að því miður hefði það ekki tíðkast að þeir hafi getað haft yfirlit yfir stöðuna í kennaramálum fyrr en um miðj- an ágúst. Hann taldi þó að ekki yrði um neinar stórfelldar breyt- ingar að ræða á milli ára en að það vantaði enn kennara á nokkrum stöðum. „Ástandið hefur yfirleitt verið slæmt á Siglufirði og ekki hægt að ganga frá hlutunum þar fyrr en á síðustu stundu. Það hefur verið talsvert gert að því að reyna að ná ný útskrifuðum kennurum út á land. í Kennaraháskólanum hafa menn sett upp plaköt með lýsing- um á skólanum sínum og einnig hafa skólastjórar og skólanefnd- armenn setið fyrir svörum í skólanum en það er allur gangur á því hversu það skilar svo miklu,“ sagði Guðmundur einn- ig. -KK Eyjólfur Friðgeirsson frá Fiskeldifélagi Islands, Guðmundur Stefánsson og Pétur Bjarnason frá ístess. ístess flytur inn stálkvíar: Nýjung í sjókvíaeldi Grænlandsflug FN: 50 ferðir í júlí og ágúst - Akureyri miðstöð leiðangursmanna á leið til Grænlands, segir Sigurður Aðalsteinsson framkvæmdastjóri lagt okkur fram við að þjóna þessum markaði og Grænlands- - bylting á vinnuaðstöðu og í öryggismálum Grænlandsflug Flugfclags Norðurlands hefur fariö sívax- andi á undanförnum árum og gert er ráð fvrir að félagið fljúgi um 50 ferðir milli Græn- lands og Islands nú í júlí og ágúst. Þrjár vélar félagsins verða staösettar á Grænlandi þegar mest veröur að gera. Forráðamenn félagsins eru að vonum himinlifandi yffir góðu gengi sínu í Grænlandsfluginu, en um 20-25% af heildarveltu félagsins eru tilkomin vegna þess. Þrjár Twin Otter vélar l-'N verða í verkefnum á Grænlandi nú á næstunni. ein í eldsneytis- flutningum i tengslum við olíuleit. önnur í birgðaflutning- unt fyrir dönsku strandgæsluna og sú þriðja mun þjónusta jarð- fræðinga sem þarna eru í leið- angri. Sigurður Aðalsteinsson fram- kvæmdastjóri FN sagði að aukn- ing væri í flutningum vísinda- og fjallgöngumanna til Grænlánds og reynt væri að fara með þessa leiðangra sem mest í gegnum Akurcyri. Hann sagði að ódýrara væri að fljúga frá Akurevri til Grænlands, heldur en að fara frá Rcykjavík, þar sem farið væri norður á bóginn. „Akureyringar fá drjúg viðskipti út af þessu, hér er keypt mikið af matvælum og cinnig gista menn hér í nokkra daga. Akureyri er að verða mið- stöð fyrir leiðangra á leið til Grænlands og hefur komist á landakortið hjá fjölda vísinda- manna." sagði Sigurður og bætti því við að það væri ekki síst að þakka góðum orðstír flugmanna FN, en það eru mikið til sömu mennirnir sem nota þjónustu félagsins í Grænlandsfluginu. Sigurður sagði að nafn félags- ins væri orðið þekkt í Grænlandi og til þeirra væri leitað cf á þyri'ti að halda og til marks um það má nefna að ein véla félagsins var í áætlunarflugi fyrir Grónlandsfly í hálfan mánuð í júní. „Við höfum tlugiö á verulegan þált í úþþ- bvggingu lélagsins. Á milli 20 og 25% af heildarveltu félagsins eru vegna þessa flugs. Við höfum revnt að sinna þessu flngi eins og kostur er á. án þess þó að það bitni á okkar heimamarkaði og getum fvrir vikið boðið upp á betra flugfélag." sagði Sigurður og vonaöist eftir hæð vfir Græn- landi „þó svo það kosti skítaveð- ur á Norðurlandi!" mþþ Mikið hefur verið rætt og rítað um sorpeyðingarmál á Norðurlandi vestra að undan- förnu og um þessar mundir er nefnd skipuð fulltrúum flestra þéttbýlisstaða kjördæmisins að ræða möguleika um sameigin- lega sorpeyðingu og -hirðingu Þar eru menn að tala um að hætta að brenna sorpið og urða það í staðinn. Er þetta mál talsvert vel á veg komið. En á meðan nefndin stingur saman nefjum þá spúa sorphaug- ar reyk og eldi í allar áttir. Eru þar nefndir til sögunnar sorp- haugar Sauðárkróks. Meðal þeirra sem hafa notið ills af reyknum frá haugunum eru félagar í Golfklúbbi Sauðár- króks, sem slá hvítu kúluna á Hlíðarendavelli. Þegar vindar eru norðlægir, og kveikt í rusla- haugunum sem oftar, leggur mik- inn reyk yfir Nafirnar, upp að Hlíðarenda og yfir golfvöllinn. Stundum er reykjarmökkurinn það mikill að óspilandi er á vell- inum, menn koma inn að loknum hring hóstandi og með sviða í augum. Þetta geta allir félagar í ístess hf. á Akureyri hefur haf- ið innflutning á stálkvíum fyrir fískeldi í sjó. Það er Fiskeldis- félagið hf. sem keypti fyrstu kvíarnar og hefur þeim verið komið fyrir í Eiðisvík við Geldinganes í Reykjavík. Vinnuaðstaða og öryggisbún- aður í þessum nýju eldiskvíum þykir bera af því sem framleitt hefur verið af sjókvíum hingað til. klúbbnum staðfest sem spila að staðaldri golf. Þegar blaðamaður Dags sá einn daginn, í norðanáttinni, mikinn reyk leggja frá sorphaug- Þessar sjókvíar eru norskar að uppruna og framleiddar undir nafninu Systemfarm. Kvíarnar eru framleiddar í stöðluðum ein- ingum, sem hægt er að raða upp á marga vegu. Um er að ræða sjö og hálfs metra og tólf metra lang- ar einingar og eiga þær þola upp í þriggja metra háa öldu. Gang- vegur þeirra er öruggur í hálku og á að hreinsa vel af sér snjó. Flotholtin eru öll vel aðskilin. unum ákvað hann að leggja leið sína á golfvöllinn. Þegar upp Kirkjuklaufina var komið blasti við ófögur sjón. Ekki sást örla í golfvöllinn fyrir reykjarmekki og þannig að auðvelt er að hreinsa þau. Kvíarnar eru útbúnar sterk- um og traustum grindverkum, sem gerir þær að traustum vinnu- stað. Að sögn Guðmundar Stefáns- sonar, framkvæmdastjóra ístess, á fyrirtækið von á því að selja fleiri svona kvíar á næstunni, enda séu þessar stálkvíar gjör- bylting frá gömlu trékvíunum. Pétur Bjarnason hjá ístess sagði að mikilvægt væri fyrir fyrirtækið að einbeita sér meir að því að selja tæknibúnað í fiskeld- isstöðvar. Hins vegar sagði hann að fæðiskostnaður væri um 40% af rekstrarkostnaði við fiskeldi, þannig að fæðisframleiðsla myndi áfram vera langmikilvægasti hlut- inn í starfsemi ístess. Þessar nýju stálkvíar kosta um 8!^ milljón uppsettar. Þar af kosta kvíarnar sjálfar um 7 millj- ónir, nótin í þær um milljón og afgangurinn er flutnings- og uppsetningarkostnaður. AP hugsaði blaðamaður með sér að þeir sem væru að spila á vellinum þá stundina væru dottnir niður með reykeitrun á hæsta stigi. Þegar nær dró golfvellinum var orðið hægt að sjá nokkrar brautir og ekki virtust neinir vera að spila golf, og skal ekki furða það. En á 5. brautinni sást örla í starfsmenn vallarins að slá flöt- ina, þá Örn Sölva Halldórsson, Guðmund Sverrisson og Friðrik Haraldsson. Þeir voru að vonum óhressir með þessa mengun og sögðu að ekki væri spilandi golf við þessar aðstæður. Þeir tóku vel í þá hugmynd blaðamanns að mynda þá með reykgrímu fyrir andlitið að spila golf. Þó meðfylgjandi mynd af golf- leikaranum sé sviðsett þá gæti hún allt eins verið veruleiki því menn geta ekki gert sér í hugar- lund hvað ástandið er slæmt þeg- ar ruslahaugareykurinn liggur yfir golfvellinum. Sjálfsagt fara menn að grípa til þess ráðs að fá sér reykgrímu ef ekki fer að örla fyrir úrbótum í þessum málum. -bjb Svipmyndir af fóðurgjöf í nýju stálkvíunum. Sauðárkrókur: Óviðunandi ástand á golfveliimun - golfarar hóstandi og með sviða í augum Golfarar á Sauðárkróki þurfa að nota reykgrímu við íþrótt sína. Mynd: bjb

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.