Dagur - 26.07.1988, Side 7

Dagur - 26.07.1988, Side 7
26. júlí 1988 - DAGUR - 7 Góður endasprettur KA-manna KA-menn höfðu svo sannar- lega ástæðu til að fagna að loknum leik sínum gegn Vík- ingi í 11. umferð SL-deildar- innar á Akureyrarvelli á sunnu- dagskvöldið. Þegar 20 mínút- ur voru til leiksloka náðu Vík- ingar forystunni og virtust hafa pálmann í höndunum. En tvö falleg mörk KA-manna á loka- sprettinum, það seinna þegar aðeins hálf mínúta var til leiks- loka, tryggðu þeim sanngjarn- an sigur og þrjú mikilvæg stig. Þrátt fyrir nokkurn hraða og mikla baráttu bar ekki mikið til tíðinda í fyrri hálfleik. Liðin skiptust á að sækja en fá umtals- verð marktækifæri sköpuðust. Þó björguðu bæði lið á línu á fyrstu 15 mínútum leiksins, Víkingar eftir gott skot Gauta Laxdals og KA-menn eftir þrumuskalla Björns Bjartmarz. Besta færi hálfleiksins var KA- manna og kom það á 35. mínútu. Þá var send föst sending fram völlinn og inn í vítateig Víkings, Þorvaldur Örlygsson sendi falleg- an bolta á Valgeir Barðason sem var í dauðafæri en skot hans fór naumlega framhjá. KA-menn hófu síðari hálfleik af miklum krafti og náðu strax góðum tökum á leiknum. Litlu munaði að þeir næðu forystunni á 50. mínútu þegar Gauti átti þrumuskot að marki Víkings en knötturinn fór í varnarmann og rétt framhjá. KA-mönnum gekk illa að skapa sér færi í framhaldi af þessu. Víkingar komust smátt og smátt meira inn í leikinn og á 70. mínútu náðu þeir forystunni. Atli Einarsson lék þá á Hauk Braga- son sem var kominn langt út í vítateig og skaut föstu skoti fram- hjá varnarmönnum KA og í netið. Aðeins þremur mínútum síðar jöfnuðu KA-menn á stórkostleg- an hátt. Boltinn barst þá út fyrir vítateig Víkings og þar kom Bjarni Jónsson aðvífandi og skaut viðstöðulausu þrumuskoti af 20 metra færi í þverslána og inn. Reyndar fór boltinn ekki í netið heldur niður og út en dóm- arinn dæmdi mark eftir að hafa ráðfært sig við línuvörðinn og var það vafalítið réttur dómur. KA-menn sóttu töluvert það sem eftir var en lítið gekk upp við markið og undir lokin virtust þeir búnir að sætta sig við jafnteflið. Á 90. mínútu kom há sending inn í vítateig Víkings á Anthony Karl. Hann tók boltann á brjóst- ið og lagði hann laglega fyrir Þor- vald sem skaut föstu skoti að marki, í einn vamannann og þaðan í netið. Dómarinn flautaði leikinn af hálfri mínútu síðar og KA-menn fögnuðu ákaft. Þrátt fyrir að KA-liðið hafi ekki leikið sérlega vel var sigur þeirra verðskuldaður. Liðið barðist vel og var sterkari aðilinn í leiknum en gekk illa eftir að komið var fram yfir miðju. Þor- valdur Örlygsson var besti maður liðsins og vallarins. Mikið spil skapaðist í kringum hann og greinilegt er að Þorvaldur er í mjög góðu formi um þessar mundir. Þá átti Bjarni Jónsson einnig góðan leik. Víkingsliðið barðist á köflum Lúðvík Bergvinsson og félagar máttu þola tap gegn íslandsmeisturum Vals á sunnudagskvöld. 2:1 sigur þeirra á Víkingi ágætlega en átti við sama vanda að stríða og KA, þ.e. flest fór í vaskinn eftir að komið var fram yfir miðju. Atli Einarsson var besti maður liðsins, ótrúlega fljótur og hættulegur sóknarmað- ur. JHB Liö KA: Haukur Bragason, Steingrímur Birgis- son, Erlingur Kristjánsson, Jón Kristjánsson (Stefán Ólafsson á 46. mín.), Halldór Halldórs- son, Gauti Laxdal, Friðfínnur Hermannsson (Amar Bjarnason á 71. mín.), Bjarni Jónsson, Þorvaldur Örlygsson, Anthony Karl Gregory, Valgeir Barðason. Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson, Atli Helgason, Stefán Halldórsson, Unnsteinn Kára- son, Hallsteinn Arnarsson, Björn Bjartmarz, Trausti Ómarsson (Jón Oddsson á 51. mín.), Gunnar Gunnarsson, Andri Marteinsson, Hlyn- ur Stefánsson, Atli Einarsson. Gul spjöld: Unnsteinn Kárason, Andri Mar- teinsson og Stefán Halldórsson Víkingi. Dómari: Friðgeir Hallgrímsson og var hann ekki sannfærandi. Línuverðir: Óli Ólsen og Karl Ottesen. Erlingur Kristjánsson hefur hér brugðið sér í sóknina en skalli hans fór framhjá. Mynd: EHB Valsmenn sluppu með skrekkinn gegn Leiftri - Ólafsfirðingarnir nýttu ekki tvö dauðafæri Valur sigraði Leiftur 1:0 í slök- um leik á Hlíðarenda á sunnu- daginn. Þótt Valsmenn hefðu verið mun meira með boltann, áttu Leifturspiltarnir bestu færin í leiknum og geta sjálfum sér um kennt að hafa tapað þessum leik. Fyrri hálfleikurinn var með afbrigðum rólegur. Ólafsfirðing- arnir spiluðu aftarlega á vellinum og leyfðu Valsmönnum að dútla með boltann fyrir framan vöm- ina. Greinilegt var að Óskar þjálfari stefndi að jafntefli í leiknum, með þann möguleika opinn að nýta sér skyndisóknir. Þetta var því hálfgerður göngu- fótbolti og áttu margir áhorfend- ur erfitt með halda sér vakandi í blíðunni á Hlíðarenda. Síðan kom að því að varnar- menn Vals urðu kærulausir og í einni af fáum sóknum Leifturs sendi Þorgrímur Þráinsson aftur á Guðmund Baldursson. En skyndilega var Steinar Ingimund- arson þar sem Guðmundur átti að vera og allt opið fyrir mark- inu. Steinar lék á Guðmund í markinu, en á ótrúlegan hátt tókst honum að renna boltanum fram hjá stönginni. Á 30. mín. átti Valur Valsson Valsari gott skot á markið sem Þorvaldur varði vel. Skömmu síðar átti Atli Eðvaldsson góða sendingu fyrir Leiftursmarkið, en Jóni Grétari Jónssyni tókst ekki að reka neinn líkamshluta í boltann. Síðasta færið í leiknum féll í skaut Harðar Benonýssonar eftir varnarmistök Valsmanna. Gott skot hans fór hinsvegar rétt yfir mark þeirra rauðklæddu. Strax á fyrstu mínútu eftir leikhlé átti Steinar gott skot yfir markið eftir að Lúðvík Bergvins- son hafði átt fallega sendingu á hann. Besta færið fékk hinsvegar Ilalldór Guðmundsson eftir aukaspyrnu Þorsteins Geirsson- ar. Valsmönnum mistókst að skalla boltann og Halldór var á fríum sjó fyrir innan vörnina. Hann reyndi að vippa yfir Guð- mund í markinu en Guðmundur varði boltann á frábæran hátt. Skömmu síðar fengu Vals- menn dauðafæri, Atli fékk bolt- ann á markteig og þrumaði hon- um í þverslá. En þar kom að því að mark væri skorað í leiknum. Atli sendi boltann frá vinstri og Þorvaldur náði ekki upp í boltann. Eftir mikinn barning í teignum rak Sævar Jónsson haus- inn í knöttinn og inn fór tuðran. Þetta reyndist vera sigurmark leiksins Leiftursmönnum til mikillar armæðu. Ekki er hægt að hrósa íslands- meisturum Vals fyrir þennan leik. Leikmennirnir voru áhuga- lausir og virtust þeir telja leikinn unninn fyrir fram. Eini sem sýndi eitthvað af viti var Guðmundur Baldursson miðjuleikmaður. Leiftursliðið barðist vel og litlu munaði að þeim tækist að fara með stig í burtu. Hinsvegar verð- ur lið að nýta þau færi sem það fær og það gerði Leiftur ekki í þessum leik. Vömin var besti hluti liðsins að þessu sinni og áttu þeir Friðrik Einarsson, Gústaf Ómarsson og Friðgeir Sigurðs- son, sem kom inn á fyrir Áma Stefánsson, góðan leik. Lið Leifturs: Porvaldur Jónsson, Friðrik Ein- arsson, Gústaf Ómarsson, Sigurbjörn Jakobs- son, Ámi Stefánsson (Friðgeir Sigurðsson 20. mín.), Halldór Guðmundsson, Hafsteinn Jakobsson, Porsteinn Geirsson, Lúðvík Bergvinsson, Hörður Benonýsson (Róbert Gunnarsson 69.mín.), Steinar Ingimundarson. Lið Vals: Guðmundur Baldursson, Porgrímur Práinsson, Sigurjón Kristjánsson, Magni Blön- dal Pétursson, Atli Eðvaldsson, Sævar Jónsson, Guðni Bergsson, Guðmundur Ðaldursson, Val- ur Valsson, Ingvar Guðmundsson, Jón Grétar Jónsson. AP

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.