Dagur - 26.07.1988, Síða 11
26. júlí 1988 - DAGUR - 11
Stelpurnar frá Króknum höfðu betur í reiptoginu við stöllur sínar frá Siglufirði.
Sauðárkrókur:
Það voru snöggir sprettir ■ boðhlaupskeppninni.
Hart var barist í fótboltanum hjá stelpunum eins og sjá
má.
Ungtingavmnan á
Siglufirði í heimsókn
30 krakkar frá unglingavinn-
unni á Siglufirði heimsóttu
kollega sína á Sauðárkróki fyr-
ir skömmu. Þrátt fyrir leið-
indaveður tókst heimsóknin
með ágætum og þótti þetta
kærkomin tilbreyting hjá
krökkunum frá amstrinu í
unglinga vinnunni.
Byrjað var á skoðunarferð um
bæinn og þaðan fram í Glaumbæ.
Hápunktur heimsóknarinnar var
á Marteinstúni á Nöfunum þar
sem farið í ýmsa leiki og trallað í
norðan kuldanum. Farið var í
Flokksstjórinn frá Sauðárkróki í
annarlegum stellingum!
fótbolta, reiptog, pokahlaup og
ýmislegt fleira. Endað var á fót-
boltaleik milli flokksstjóra og
undirmanna þeirra og vakti fram-
ganga eins flokksstjórans frá
Siglufirði mikla athygli við-
staddra sökum harðfylgis og bar-
áttu hennar.
Krakkarnir á Siglufirði hafa
farið svipaða ferð til Ólafsfjarðar
og stefna á það seinna í sumar að
fara að Hólum og í Fljótin. Fyrir-
hugað er að unglingavinnan á
Sauðárkróki endurgjaldi heimsókn
Siglfirðinga og höfðu flokksstjórar
allan hug á að svo yrði gert. -bjb
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja eru lausar
kennarastöður í íþróttum, íslensku og tölvufræði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík fyrir 1. ágúst næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið.
Atvinna
Vélvirki óskast til starfa á verkstæði félagsins.
Upplýsingar gefur Georg Magnússon í síma 95-5450.
Útgerðarfélag Skagfirðinga,
Sauðárkróki.
Sölumaður
Óskum eftir að ráða sölumann nú þegar.
Upplýsingar gefur Jón í síma 27766 milli kl. 10-12 í
dag og næstu daga.
Siglufjörður
Á'Bamaheimili Siglufjarðar er laus staða forstöðu-
konu og fóstru á deild 2ja-6 ára barna og staða
fóstru á deild 3ja-6 ára barna.
Fóstrumenntun eða önnur uppeldisfræðileg mennt-
un áskilin.
Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri í síma
71700 og heimasíma 71216.
Bæjarstjórinn í Siglufirði.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Sjúkraliðar
Lausar stöður sjúkraliða í ágústmánuði og til fram-
búðar á eftirfarandi deildum:
Lyflækningadeild,
Sel, öldrunar- og hjúkrunardeild,
B-deild, öldrunar- og hjúkrunardeild.
Allar upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri, Ólína
Torfadóttir í síma 96-22100, viðtalstími kl. 13.00-
14.00 alla virka daga.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Vinsamlegast pantið auglýsinguna
tímanlega fyrir verslunarmannahelgina.
Allar auglýsingar, stærri en 2ja dálka,
þurfa að berast á morgun, miðvikudaginn 27. júlí.
Auglýsingadeild Dags
Verslunarmannahelgin nálgast!