Dagur - 26.07.1988, Síða 13

Dagur - 26.07.1988, Síða 13
 26. júlí 1988-DAGUR-13 Honda Civic - DX, GL og l.ói-16 gerðir Bifreiðaframleiðendur hafa í mörg ár reynt að hanna hinn full- komna tvennra dyra bíl sem væri jafn þægilegur í innan- sem utan- bæjarakstri, sparneytinn en jafn- framt sportlegur. Fullkominn bíll verður eflaust seint hannaður því kröfurnar breytast ár frá ári og tækninni fleygir fram. Mikil bar- átta er milli bifreiðaframleiðenda að ná til sín sem stærstum hluta markaðarins og er þá lögð áhersla á að gera hverja bifreið- artegund sem eftirsóttasta. Eitt framlag Honda-verksmiðj- anna japönsku á þessu sviði er Honda Civic, tvennra dyra bíll af minni gerðinni. Hægt er að fá Honda Civic af þremur gerðum, DX með 1343 cc 75 hestafla vél og einföldum blöndungi, GL 1396 cc vél, 90 hestafla við 6300 snúninga á mínútu og tvöföldum blöndungi, og 1.6Í-16 gerðina með 96 hestafla vél við 6800 snúninga og beinni innspýtingu eldsneytis. Vélarnar eru vatns- kældar, 4 cyl,, 1.6Í-16 gerðin er með DOHC. Honda Civic er einkar aðlað- andi bíll, mjög straumlínulagað- ur og loftmótstaða er með því minnsta sem þekkist í bílum af þessari stærð og sparar það elds- neytisnotkun mikið. Innréttingar eru vandaðar og hafa yfir sér dæmigert Honda-yfirbragð. Hægt er að fá þessa bíla með vökvastýri og bein- eða sjálf- skipta eftir óskum hvers og eins. Beinskiptingin er fimm gíra kassi en sjálfskiptingin er fjögurra þrepa. Utsýni er sérlega gott úr Honda Civic, áklæði og innrétt- ingar eru líka fyrsta flokks. Mikil áhersla er lögð á loftræstikerfi bílsins og miðstöðin skilar góðum afköstum. Þaö sem gerir þessa bíla þó einna eftirtektarverðasta er 16 ventla vélin sem skilar sínu og vel það, auk þess að vera elds- neytissparandi. Aðrar upplýsingar um bílinn (Civic GL): Lengd 3965 mm, breidd 1330 mm, hæð 2500 mm, hjólabil 1450/1455 mm, hæð und- ir lægsta punkt 16 cm, þyngd óhlaðinn 855 kg, hlaðinn 1340 kg. Bensíntankur tekur 45 lítra. Hjólbarðastærð 167/70 SR. Beygjuradíus 4,8 metrar mælt við hjól. rH dagskrá fjölmiðla SJONVARPIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. júlí. 18.50 Fréttaágrip og táknméls- fréttir. 19.00 Villi spæta og vinir hans. Bandarískur teiknimyndaflokk- ur. 19.25 Poppkorn - Endursýndur þáttur frá 22. júh'. 19.50 Dagskrárkynning. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Geimferðir. (Space Flight). Fyrsti þáttur - Drunur í lofti. Nýr bandarískur heimildamynda- flokkur í fjórum þáttum, þar sem rakin er saga geimferða allt frá hönnun fyrstu eldflauganna í Þýskalandi til stjömustríðsáætl- ana okkar daga. 21.30 Höfuð að veði. (Killing on the Exchange.) Nýr, breskur spennumynda- flokkur í sex þáttum. Þriðji þáttur. 22.25 Úr frændgarði. Fjallað er um Finna fyrr og nú og einnig er rætt við íslendinga búsetta í Finnlandi. Umsjón: Ögmundur Jónasson. 23.00 Útvarpsfréttir i dagskrár- lok. SJONVARP AKUREYRI ÞRIÐJUDAGUR 26. júlí 16.25 Jarðskjálftinn. (Earthquake.) Spennumynd um hrikalegan jarðskjálfta í Los Angeles. Aðalhlutverk: Charlton Heston, Ava Gardner Lome Greene, George Kennedy og Walter Matthau. 18.20 Denni dæmalausi. (Dennis the Menace.) 18.45 Ótrúlegt en satt. (Out of this World). 19.19 19:19 20.30 Miklabraut. (Highway to Heaven.) 21.20 íþróttir á þriðjudegi. Blandaður íþróttaþáttur. 22.20 Kona í karlaveldi. (She’s the Sheriff.) 22.45 Þorparar. (Minder.) 23.45 Hraustir menn. (Bravados.) Sígildur vestri með úrvalsleikur- um. Söguhetjan strengir þess heit að koma fram hefndum fyrir eiginkonu sína sem myrt var af harðsnúnum bófaflokki. Aðalhlutverk: Gregory Peck, Joan Collins, Henry Silva og Lee Van Cleef. 01.20 Dagskrárlok. © RÁS 1 ÞRIÐJUDAGUR 26. júlí. 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið með Má Magnússyni. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku að loknu fréttayfirliti kl. 7.30. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn. Meðal efnis er sagan „Salómon svarti" eftir Hjört Gíslason. Jakob S. Jónsson les (11). 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Landpósturinn - Frá Vest- fjörðum. Umsjón: Finnbogi Hermanns- son. 10.00 Fréttir • Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum ámm. 11.00 Fréttir • Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. 11.55 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir Til- kynningar. 13.05 í dagsins önn. 13.35 Miðdegissagan: „Þvert yfir ísland" eftir Jean-Claude Barr- eau. (7.) 14.00 Fréttir • Tilkynningar. 14.05 Djassþáttur. - Jón MúU Ámason. (Endurtekinn þáttur frá miðviku- dagskvöldi.) 15.00 Fréttir. 15.03 Driffjaðrir. Haukur Ágústsson ræðir við Eystein Sigurðsson, Amarvatni í Mývatnssveit. (Frá Akureyri.) (Áður útvarpað í janúar sl.) 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Janácek og Bartók. 18.00 Fréttir. 18.03 Torgið. Umsjón: Jón Gunnar Grjetars- son. Tónlist • Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 Úr sögu siðfræðinnar - John Stuart Mill. Vilhjálmur Árnason flytur fimmta erindi sitt. 20.00 Barnatíminn. (Endurtekinn frá morgni.) 20.15 Kirkjutónlist. 21.00 Landpósturinn - Frá Vest- fjörðum. (Endurtekinn þáttur frá morgni). 21.30 Útvarpssagan: „Laxdæla saga“ Halla Kjartansdóttir les (14). 22.00 Fréttir • Dagskrá morgun- dagsins • Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.30 Gestaspjall - Slitrur af Paradís. Umsjón: Viðar Eggertsson. Áður útvarpað í desember sl.) 23.20 Tónlist á síðkvöldi - Ravel, Debussy og Prokofiev. 24.00 Fréttir. rikjsutvarfið: aakureyri. Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni. ÞRIÐJUDAGUR 26. júlí 8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norður- lands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norður- lands. ÞRIÐJUDAGUR 26. júlí 7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með fróttayfir- liti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00. Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblaðanna að loknu fréttayfirhti kl. 8.30. 9.03 Viðbit - Þröstur Emilsson. (Frá Akur- eyri.) 10.05 Miðmorgunssyrpa. - Eva Ásrún Albertsdóttir. 12.00 Fróttayfirlit • Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Á milli mála. - Valgeir Skagfjörð. 16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. 18.00 Sumarsveifla með Gunnari Salvarssyni. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi. 22.07 Bláu nóturnar. - Pétur Grétarsson. 01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í nætur- útvarpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00 verð- ur endurtekinn frá föstudegi þátturinn „Ljúflingslög" í umsjá Svanhildar Jakobsdóttur. Veðurfregnir kl. 1.00 og 4.30. Fróttir eru sagðar kl. 2,4,7,7.30, 8, 8.30, 9,10,11,12,12.20,14,15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Hljóðbylgjan FM 101,8 ÞRIÐJUDAGUR 26. júlí 07.00 Pétur Guðjónsson vekur Norðlendinga af væium svefni og leikur þægilega tónlist svona í morgunsárið. 09.00 Rannveig Karlsdóttir leikur góða tónlist og spjallar við hlustendur. 12.00 Ókynnt hádegistónlist. 13.00 Pálmi Guðmundsson leikur tónlist í eldri kantinum og tónlistargetraunin verður á sin- um stað. Síminn er 27711, 17.00 Pétur Guðjónsson verður okkur innan handar á leið heim úr vinnu. Tími tækifæranna klukkan 17.30 til 17.45. Siminn er 27711. 19.00 Ókynnt kvöldtónlist. 20.00 Valur Sæmundsson leikur vandaða tónlist og tekur fyrir ýmsar þekktar hljómsveitir. 22.00 B-hliðin. Sigríður Sigursveinsdóttir leikur lög sem lítið hafa fengið að heyr- ast, en em þó engu að síður allr- ar athygli verð. 24.00 Dagskrárlok. FM 104 ÞRIÐJUDAGUR 2619. júlí 07.00 Þorgeir Ástvaldsson. Lífleg og þægileg tónhst, veður, færð og hagnýtar upplýsingar auk frétta og viðtala um málefni hðandi stundar. Fréttir kl. 8. 09.00 Gunnlaugur Helgason. Seinni hluti morgunvaktar með GuUa. Fréttir kl. 10 og 12. 12.00 Hádegisútvarp. Bjarni Dagur í hádeginu og veltir upp fréttnæmu efni, innlendu jafnt sem erlendu, í takt við góða tórúist. 13.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Gamalt og gott, leikið með hæfi- legri blöndu af nýrri tónhst. Fréttir kl. 14 og 16. 16.00 Mannlegi þátturinn. Árni Magnússon. Tónhst, spjaU, fréttir og frétta- tengdir viðburðir. Fréttir kl. 18. 18.00 íslenskir tónar. Innlend dægurlög að hætti hússins. 19.00 Stjörnutíminn á FM 102.2 og 104. Bjarni Haukur og Einar Magnús við fóninn. 20.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Helgi leikur spánnýjan vin- sældalista frá Bretlandi og stjörnusiúðrið verður á sínum stað. 21.00 Sidkvöld á Stjörnunni. Fyrsta flokks tónhstarstemmn- ing með Einar Magg. Kl.22.00 Oddur Magnús. Óskadraumurinn Oddur sér um tónhstina. 24.00-07.00 Stjörnuvaktin. 989 BYLGJAM ÞRIÐJUDAGUR 26. júlí 07.00 Haraldur Gíslason og morg- unbylgjan. Léttir tónar óma úr stúdiói með- an Hafli ræður rikjum. Lagið þitt er þar á meðal. Fréttir kl. 7, 8 og 9. 09.00 Anna Björk Birgisdóttir. Hressilegt morgunpopp bæði gamalt og nýtt. Flóamarkaður kl. 9.30. Síminn er 611111. Fréttir kl. 10 og 11. 12.00 Hádegisfréttir Bylgjunnar. Aðalfréttir dagsins. 12.10 Hörður Arnarson. Sumarpoppið alls ráðandi. Fréttir kl. 13, 14 og 15. 16.00 Ásgeir Tómasson, í dag - í kvöld. Ásgeir Tómasson spilar þægi- lega tónlist fyrir þá sem eru á leiðinni heim og kannar hvað er að gerast. Fréttir kl. 16 og 17. 18.00 Kvöldfréttatími Bylgjunnar. 18.15 Margrét Hrafnsdóttir og tónlistin þín. 21.00 Þórður Bogason með góða tónlist á Bylgju- kvöldi. 24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. - Bjami Ólafur Guðmundsson.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.