Dagur - 26.07.1988, Page 16

Dagur - 26.07.1988, Page 16
Ljósleiðari grafínn í jörðu á Hegranesi í gærdag. Mynd: VG Akureyrin EA: Enn einn mettúrinn - fullfermi að verðmæti 45 milljónir Akureyrin EA kom að landi í fyrradag með fullfermi af fryst- um flökum, um 270 tonn, eftir 22 sólarhringa útiveru. Verð- mæti aflans er um 45 milljónir og er hið næst mesta sem íslenskt skip hefur komið með. Aðeins Sléttbakur hefur kom- ið með verðmætari afla að landi en þá kom skipið í land í millitíðinni án þess að Ianda, og því var í raun um tvær veiði- ferðir að ræða. Akureyrin var að veiðum á Vestfjarðamiðum. Að sögn Þor- steins Vilhelmssonar skipstjóra var veiðin gloppótt framan af en síðustu vikuna veiddist mjög vel, bæði í flottroll og botntroll. Síð- asta sólarhringinn fengust á milli 70 og 80 tonn og lauk aðgerð skömmu áður en komið var í Eyiafjörðinn. I gær var unnið við löndun úr togaranum. Um er að ræða um 230 tonn af þorskflökum en 38 tonn af ufsaflökum. Þetta jafn- gildir um 630 tonnum af fiski upp úr sjó. Sem fyrr segir er verð- mæti aflans um 45 milljónir en áður hafði skipið fiskað fyrir 38 milljónir í einum túr. ET Stefnumörkun Bæjar- ráðs Akureyrar: Myndlistar- skólinn í gamla Sjafnarhúsið Aukinn möguleiki á send- ingum Ijósvakaefnis í síðustu viku hófust fram- kvæmdir við lagningu Ijós- Ieiðara á milli Sauðárkróks og Akureyrar. Þessi Iögn er hluti af þeirri áætlun Póst- og síma- málastofnunar að koma á stafrænu samþandi milli Akur- Verðlagsstofnun: Hátt verð á Húsavík og Sauðárkróki Verðlagsstofnun hefur nú unnið ítarlega úr verðkönn- un sem gerð var I vor og gert samanburð á verðlagi milli einstakra þéttbýlisstaða í öllum landsfjórðungum. Kannað var verð á 400 vöru- tegundum bæði í mat- og drykkjarvörum og hreinlætis- og snyrtivörum. Við úrvinnslu var verslununum gefið vægi í samræmi við það hve mikið er selt af þeim að öllu jöfnu. Það kom m.a. fram, að á Sauðárkróki var verðlag í mat- vöruverslunum 5,5% hærra en á höfuðborgarsvæðinu, 5,0% hærra en á Akureyri og 2,6% hærra en á Siglufirði. Verðlag á Húsavík var 4,2% hærra en á höfuðborgarsvæðinu og 3,4% hærra en á Akureyri. Hins vegar var verðlag í dreif- býlinu á Melrakkasléttu ekki nema 0,6% hærra en á Húsa- vík. Þá kom fram í könnuninni að verðlag á Akureyri var 1,1% hærra en á höfuðborgar- svæðinu og að verðlag á Siglu- firði var 2,8% hærra en á Akureyri. VG eyrar og Reykjavíkur. Nú þeg- ar er búið að leggja Ijósleiðara milli Akraness og Borgarness og milli Blönduóss og Sauðár- króks, ennfremur er stafrænt radíósamband milli Reykjavík- ur og Akraness. Heildarkostnaður við þessar framkvæmdir er áætlaður 64,4 milljónir króna. Með tilkomu ljósleiðaralagna, fjölgar sam- böndum milli landshluta og gæði þeirra aukast. Þá eykst sömuleið- is möguleiki á að senda sjón- varps- og útvarpsefni milli landshluta og hefur t.d. Svæðis- útvarpið á Akureyri sýnt áhuga á því að senda efni sitt til og frá Sauðárkróki sem ætti því að geta orðið framkvæmanlegt næsta vetur. Leiðin sem valin var á milli Akureyrar og Sauðárkróks liggur frá Akureyri í átt að Björgum, þaðan í norður til Dalvíkur og frá Dalvík mun strengurinn verða lagður fram Svarfaðardal, yfir Heljardalsheiði, út Heljardal og Kolbeinsdal, Viðvíkursveit og yfir Hegranes til Sauðárkróks. Ljósleiðarastrengurinn er lagð- ur með þar til gerðum gröfum um 90 cm niður í jörðina. Alls verða um 113 km lagðir í sumar og eru að meðaltali lagðir um 3-4 km á dag. Við leiðaval og útstikun var haft samráð við þá aðila sem mál- ið varðar og var sú stefna tekin, að lögnin skyldi sem mest vera utan þeirra svæða sem ætla megi að framkvæmt verði á í framtíð- inni. Á næsta sumri standa vonir til að hægt verði að ljúka tengingu á stafrænum samböndum milli Akureyrar og Reykjavíkur með lagningu ljósleiðara milli Borg- arness og Reykjavíkur. Árið 1990 er áætlað að halda lögn áfram til Húsavíkur, en ekki er ákveðið hvenær haldið verður austar. Þegar hefur verið lagður strengur milli Egilsstaða, Reyð- arfjarðar, Neskaupsstaðar og Eskifjarðar. Með tilkomu ljósleiðara mun hinn almenni notandi fyrst og fremst finna mun á því hve álags- tímum mun fækka því afkasta- geta þeirra er margfalt meiri en örbylgjusendanna sem nú eru í notkun. VG Bæjarráö Akureyrar lýsti á fundi sínum síöastliðinn fimmtudag yfir vilja til að gera Myndlistarskólanum á Akur- eyri kleift að flytja úr núver- andi húsnæði í gamla Sjafnar- húsið við Kaupvangsstræti. Með þessari stefnumörkun bæjarráðs er stórt skref stigið í málefnum skólans. Reynt verður að koma málinu í kring fyrir haustið en að minnsta kosti eru allar líkur á að fyrir áramót verði myndlistarskólinn kominn í rúm- gott húsnæði til frambúðar. Að sögn Helga Vilberg skóla- stjóra er gert ráð fyrir því að skólinn leigi fyrstu og aðra hæð hússins, samtals um 660 fer- metra. Núverandi húsnæði skól- ans er 380 fermetrar. Gera má ráð fyrir að kostnaðarauki bæjar- ins vegna flutninganna verði eitthvað á aðra milljón á ári og annað eins fyrir ríkið. Ekki hefur verið gengið frá samningum við ríkisvaldið vegna þessa. Að sögn Helga hafa flutning- arnir í för með sér stóraukið námsframboð við skólann og til að mynda verður nú komið upp aðstöðu fyrir kennslu í skúlptúr- og keramikgerð. ET Fræðslustjóradeilan: Skólamenn undirbúa málssókn - úrskurður borgardóms færir fjármálaskrifstofu menntamálaráðuneytisins vald sem henni var aldrei ætlað Samstarfshópur nokkurra skólamanna á Norðurlandi hyggst fara í gang til að undir- búa nýja sókn í Sturlumálinu svokallaða, en fjármálaráð- herra hefur áfrýjað máli Sturlu Kristjánssonar til hæstaréttar eins og kunnugt er. Borgar- dómur dæmdi Sturlu 900 þús- und krónur í skaðabætur vegna ólögmætrar uppsagnar úr embætti fræðslustjóra. Pétur Þorsteinsson skólastjóri á Kópaskeri segir að það þurfi að kryfja grundvallaratriði þessarar deilu til mergjar þegar hún fer fyrir hæstarétt.„Ég tel að borgar- dómur hafi ekki tekið nægilega skýra afstöðu til grundvallar- atriða málsins. í dómsniðurstöð- um hans segir skýrum stöfum að fræðslustjórarnir lúti boðunar- og skipunarvaldi menntamálaráðun- eytisins, þannig að vald heima- manna er að engu gert.“ Pétur segir að þetta sé algjört frávik frá anda og stefnu grunnskóla- laganna. í skýrslu frá 1978 um uppbyggingu menntamálaráðu- neytisins er mjög skýrt kveðið á um að fræðslustjórarnir heyri beint undir ráðuneytisstjóra en engar sérstakar deildir ráðuneyt- isins. í Ríkishandbók íslands er listi yfir starfsmenn menntamála- ráðuneytisins og þar eru fræðslu- stjórar ekki nefndir á nafn. „Sú túlkun borgardóms að fræðslustjórarnir séu bara fram- lenging á valdi menntamálaráðu- neytisins, stangast á við alla eðli- lega túlkun þessara lagabálka. Brottreksturinn var dæmdur ólöglegur, en hins vegar var fall- ist á að ráðuneytið hefði veruleg- ar málsbætur. Sakir Sturlu voru taldar það miklar að það þótti eðlilegt að ráðuneytið vildi losna við hann, einungis aðferðin var álitin röng.Við erum ekki tilbúnir að fallast á það og ég held að það sé stórhættulegt fyrir lýðræðið í þessu landi að fallast á að það geti verið trúnaðarbrot að upp- lýsa notendur og þiggjendur þjónustu og um leið greiðendur, um stöðu mála. Ég tel líka að það sé hættulegt lýðræðinu að embættismenn megi ekki upplýsa Alþingi og alþingismenn. Trún- aðarfundur með þingmönnum kjördæmisins getur ekki verið refsiverður.“ Pétur telur að ef þessi atriði og fleiri fái að standa óhögguð fyrir hæstarétti, „þá er það búið með fræðsluskrifstofurnar þá eru þær bara ónýtar stofnanir, þá er svig- rúm heimamanna nákvæmlega ekki neitt.“ kjó

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.