Dagur - 28.07.1988, Blaðsíða 7
28. júlí 1988 - DÁGÚR -7
Sögufélag Skagfirðinga:
Skagfi rðingabók 1988 komin út
Opið
■um
verslunarmanna-
helgina:
Föstudag
nœtursala
til 04.00
Laugardag
nœtursala
til 04.00
Sunnudag
nœtursala
til 04.00
◦llt
í ferðalagið
◦llt
í svanginn
◦llt
í drykkinn
◦llt
í veiðiferðina
◦llt
í útileguna
nestin
Leiruvegi • Veganesti
Þar sem
þjónustan
situr í
fyrirrúmi.
á veginn!
Blindhæð íramundan. Við vitum ekki hvað
leynist handan við hana. Ökum eins langt
til hægri og kostur er og drögum úr hraða.
Tökum aldrei áhættu! h|umferoar
Út er kominn 17. árgangur
Skagfirðingabókar 1988, rit
Sögufélags Skagfirðinga. Skag-
firðingabók hefur komið út á
hverju ári mörg undanfarin ár
og í bókinni er að finna, sem
fyrr, margt fróðlegra greina og
frásagna eftir ýmsa höfunda.
Ritstjórn Skagfirðingabókar
skipa Gísli Magnússon, Hjalti
Pálsson, Sigurjón Páll ísaks-
son og Sölvi Sveinsson.
Meðal efnis í bókinni má nefna
fróðlega grein Hjörleifs Kristins-
sonar á Gilsbakka um Steingrím
Jónsson á Silfrastöðum, þar sem
hann rekur æviskeið Steingríms á
skemmtilegan hátt. Greinin end-
ar á þennan hátt: „Eitt sinn er
þjóðskáldið Einar Benediktsson
fór landleiðina frá Húsavík til
Reykjavíkur, lét hann svo um
mælt, að í ferðinni hefði hann
hitt einn íslending. Maður sá var
Steingrímur Jónsson á Silfrastöð-
um.“
Af öðru efni má nefna grein
sem Guðmundur Ólafsson frá
Ási skráir eftir frásögn Sveins
Magnússonar frá Ketu um há-
karlaveiði og vetrarlegur í Skaga-
firði 1880-1890. Hannes Péturs-
son skrifar um Kolbein Kristins-
son frá Skriðulandi í Kolbeinsdal
og heitir greinin Upprifjanir um
Kolbein frá Skriðulandi. Þá tekur
Hannes saman rit eftir Kolbein
og er það heilmikið safn. Að lok-
um skal getið samantektar Guð-
brands Magnússonar frá Siglu-
firði um háplöntuflóru Skaga-
fjarðarsýslu. Guðbrandur birtir
heilmikla plöntuskrá og í henni
eru alls 339 tegundir háfjalla-
plantna sem fundist hafa í Skaga-
fjarðarsýslu.
í bókinni eru alls 13 greinar og
frásagnir eftir 10 höfunda, auk
einnar vísu sem birtist eftir Hall-
grím Thorlacius prest í
Glaumbæ. Indriði G. Þorsteins-
son skráði vísuna eftir Birni
Egilssyni frá Sveinsstöðum.
Skagfirðingabók er 202 blað-
síður í kiljubroti, prentuð í
Reykjavík af Prentsmiðju Odda
SkU.IIHDIM.tlíÓK
Hit Sö<'uiVk!a«'s Ska**fírðiiij'a
hf. Útgefandi er Sögufélag Skag-
firðinga. Á kápu er ljósmynd
Guðmundar Ólafssonar af há-
karlaveiðarfærum; sókn, ífæru og
skálm. -bjb
ER HÆGTAÐ NfTA
ÓNÝTTAN
PERSÓNUAFSIÁTT
Launamaður sem ekki
hefur nýtt meira en 20% af
persónuafslætti sínum þegar
komið er fram yfir mitt stað-
greiðsluár geturfengið skattkort
með uppsöfnuðum persónu-
afslætti og nýtt hann á seinni
helmingi ársins.
Skattkortið veitir heimild til
þess að nýta þann persónu-
afslátt sem ónýttur er frá upp-
hafi árs til mánaðarins á undan
útgáfu skattkortsins.
Skattkort með uppsöfn-
uðum persónuafslætti tilgreinir
ekki mánaðarlegan afslátt eins
og önnur skattkort. Þess í stað
kemur heildarupphæð upp-
safnaðs persónuafsláttar fram
á kortinu.
Launagreiðanda ber að
nota eins mikið af persónu-
afslættinum og þörf er á til þess
að ekki verði dreginn stað-
greiðsluskattur af launum, uns
afslátturinn á kortinu er uppur-
inn. Þetta skattkort má nota
samhliða aðalskattkorti.
Skattkort með uppsöfn-
uðum persónuafslætti er ekki
gefið úttil þeirrasem:
- hafa fengið námsmanna-
skattkort og þannig nýtt
meira en 20% af persónu-
afslætti sínum
- hafa afhent maka sínum
skattkort til afnota og þannig
ráðstafað meiru en 20% af
persónuafslætti sínum til
makans.
Umsóknareyðublöð
fást hjá skattstjórum og ríkis-
skattstjóra.
Umsókn ber að senda til staðgreiðsludeildar ríkisskattstjóra,
Skúiagötu 57, lðOReykjavík.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI