Dagur - 28.07.1988, Síða 16

Dagur - 28.07.1988, Síða 16
DACKJl Akureyri, fimmtudagur 28. júlí 1988 PvnnnUiV Margs konar lím, pústkítti og fíeira. ÞÓR5HAMAR HF. Varahlutaverslun Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700 Atlavík og Melgerðismelar: Bjartsýni ræður Einn, tveir og ... . Mynd: GB Hvammstangi: Vöruhús Hvamms- tanga opnað í dag - í húsi þrotabús Verslunar Sigurðar Pálmasonar Forráðamenn útihátíðanna í Atlavík og á Melgerðismelum horfa björtum augum til versl- unarmannahelgarinnar. í Atla- vík vonast Úí A inenn til að fá um 4000 manns en Fjör hf. á Melgerðismelum milli 8 og 10000 manns. „Við vonum að þetta verði góð hátíð hjá okkur,“ sagði Magnús Stefánsson framkvæmdastjóri Atlavíkurhátíðarinnar. Hann sagði raunhæft að búast við 4000 manns og væri það nokkuð góð tala fyrir þá fjárhagslega og einnig passlegur fjöldi fyrir svæðið. „Það er ekki gott ef það er of margt fólk. Við fengum einu sinni 7000 manns sem mér fannst allt of margt. Sjarminn sem er yfir hátíðum af passlegri stærð hverfur þá,“ sagði hann. Sundlaugarbygging við Sólborg: Söfnunar- átak fyrir- hugað í ágúst Nú er stefnt að því að Ijúka byggingu sundlaugar við Vist- heimilið Sólborg á Akureyri í febrúar á næsta ári. Vistheim- ilið fékk í vor í fyrsta sinn út- hlutað úr Framkvæmdasjóði fatlaðra, 1,5 milljónir króna. Að sögn Kristjáns Magnússon- ar forstöðumanns Sólborgar er álitið að kostnaður við áfangann sem eftir er við sundlaugarbygg- inguna sé upp á u.þ.b. 4 milljónir króna. Sundlaugin er nú „tilbúin undir tréverk“, þ.e. eftir er að setja upp hreinlætistæki, leggja flísar og vinna við annan frágang. Lionsfélögin á Akureyri hafa gefið 420 þúsund til byggingar- innar, þannig að nú vantar um 1,6 milljónir til að hægt verði að ljúka verkinu. Kristján segir að búið sé að skipa nefnd sem ætlar að gera söfnunarátak í byrjun ágúst næstkomandi. í þetta sinn er fyrirhugað að snúa sér til fyrir- tækja, en síðast þegar söfnunar- átak var gert beindist það til almennings. Pá söfnuðust um 800 þúsund, og sagði Kristján að menn væntu þess að undirtektir fyrirtækja yrðu góðar, því það er orðið brýnt mál að það takist að ljúka byggingu sundlaugar við Sólborg sem fyrst. kjó ríkjum Að sögn Magnúsar hafa allar áætlanir verið miðaðar við um 3000 manns og sagði hann að ef sá fjöldi kæmi þá slippu þeir fjár- hagslega. Aðspurður sagði Magnús að ekki hefði verið lagt út í mikinn kostnað vegna hátíðarinnar. Vegna sérstakrar reglugerðar sveitarfélagsins þarf að borga söluskatt af seldum aðgöngumið- um á Atlavíkurhátíðina. Fleiri reglur eru í gangi varðandi hátíð- ina og vildi Magnús endilega ítreka að áfengisbann væri á svæðinu og börn yngri en 16 ára þyrftu að koma í fylgd forráða- manna. Ómar Pétursson hjá Fjöri hf. sagðist vonast til að fá sem flesta á útihátíðina á Melgerðismelum. „Við stefnum að því að fá 8- 10000 manns,“ sagði hann. „Það þýðir ekki annað en að vera bjartsýnn." Ómar vildi ekkert segja um hversu marga þeir þyrftu að fá inn á svæðið til þess að dæmið gengi upp hjá þeim. „Það hefur ekki verið haft hátt um þessa tölu og verður ekki gert,“ sagði hann. Hann sagði að búið væri að leggja út í gífurlegan kostnað vegna hátíðarinnar en hversu mikinn vildi hann ekki láta uppi. „Kostnaðurinn liggur aðallega í skemmtikröftum, byggingu á sviði, rafmagni, salerni og öðru slíku.“ Ekki þarf að borga skemmtana- skatt af hátíðinni vegna þess að í Saurbæjarhreppi, sem Melgerðis- melar tilheyra, búa færri en 1500 manns. „Við sleppum þó ekki við skattlagningu því við þurfum að borga söluskatt, tekjuskatt og fyrst við borgum ekki skemmtana- skatt þurfum við að borga hærri stefgjöld,“ sagði Ómar. KR Eins og fram hefur komið í fréttum var Verslun Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga tekin til gjaldþrotaskipta sl. laugardag. Nú hefur verið stofnað hlutafélag undir nafn- inu Verslunarhús Hvamms- tanga hf. og hefur það tekið á leigu hluta af verslunarhúsi SP og fest kaup á hluta af vöru- lager þrotabúsins. Hluthafar eru nú þegar orðnir 50 að tölu en hlutafjársöfnun er ekki Iokið og hefur verið auglýst eftir hlutafé. Verslunarhúsnæðið var tekið á leigu til 6 mánaða og er hugmyndin að sjá hvernig mál- in þróast á þeim tíma. Opnunar- tími verslunarinnar verður frá kl. 11 til 18 alla virka daga en ekki hefur verið tekin ákvörðun um opnunartíma um helgar. Hugmyndin er að reka verslun- ina þannig að fólk geti gert þar hagkvæm innkaup með krítar- kortum eða staðgreiðslu gegn staðgreiðsluafslætti. „Norðanáhlaupið síðustu daga er nokkuð árviss viðburður hér norðanIands,“ sagði Eyjólfur Þorbjörnsson veðurfræðingur á Veðurstofunni í samtali við Dag. „Það má gera ráð fyrir einhverju slíku árlega á þess- um árstíma. Það vill bara fljótt gleymast,“ sagði Éyjólfur. Hann sagði að þetta kæmi kannski frekar fyrir í ágúst en að þetta gæti alltaf komið fyrir. Þessu veðri veldur kyrrstæð lægð sem hefur teygt sig nokkuð langt Aðallega verður verslað með matvöru og er tilgangur verslun- arinnar fyrst og fremst að reyna að sporna við þeirri þróun að verslunin er að færast af lands- byggðinni, til stórmarkaðanna á Reykj avíkursvæðinu. Stefnt er að því að halda vöru- lager verslunarinnar í lágmarki og ná upp hagkvæmni í rekstri með örri hreyfingu á vörulager og að halda kostnaðarliðum í lág- marki. Verslunarhús Hvamms- tanga verður opnað í dag undir kjörorðinu, „verslunin heim“ fh norður í íshafið og fært okkur kalt loft þaðan. Veðurútlitið fyrir helgina segir Eyjólfur nokkuð gott, það verður norðlæg átt en tiltölulega hæg, og á sunnudag verður hæg breytileg átt víðast livar á landinu. Það dregur úr vindi og úrkomu hér fyrir norðan í dag og á morgun og hitastigið verður frá átta til tólf stig, en eitthvað hlýrra fyrir sunnan. Út við sjóinn verður skýjað en það mun létta til inn til landsins. kjó Þær taka nepjunni með stóískri ró. Mynd: GB Norðanáhlaupið: Árviss viöburóur norðanlands - Veðurútlitið nokkuð gott fyrir helgina

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.