Dagur - 05.08.1988, Blaðsíða 1

Dagur - 05.08.1988, Blaðsíða 1
Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMKMR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Ekkert „Ríki“ opnað á Egilsstöðum fyrir áramót Áfengisútsala á Egilsstöðum verður ekki opnuð á þessu ári, að sögn Þórs Oddgeirssonar, aðstoðarforstjóra Afengis- og tóbaksverslunar ríkisins í Reykjavík. Heimild fjármála- ráðuneytisins til opnunar áfengisútsölu á Egilsstöðum hefur ekki borist til höfuð- stöðva ÁTVR og er málið því í biðstöðu. Þór Oddgeirsson sagði að venjulegur gangur mála væri sá að eftir atkvæðagreiðslu í við- komandi sveitarfélagi bærist fjármálaráðuneytinu beiðni um opnun útsölu ÁTVR á viðkom- andi stað. Þá væri venjan sú að leita álits forráðamanna áfeng- isverslunarinnar um hvernig stað- ið skuli að framkvæmd málsins, en þess álits hefur ekki verið leit- að ennþá, eftir því sem næst verður komist. „Það er útilokað að útibúið á Egilsstöðum verði opnað fyrir áramót en við erum að skoða málin hvað varðar útibú ÁTVR á Neskaupstað, sú útsala verður hugsanlega opnuð í haust,“ sagði Þór og bætti við að töluvert urtístang væri kringum opnun útsölu; ráða þyrfti forstöðumann og starfsmenn, finna heppilegt húsnæði og innrétta það o.s.frv. Þetta væri tímafrek vinna. Enn verður því bið á að íbúar Egils- staða fái sitt „Ríki“. Hvað bjórinn varðaði sagði Þór að í næsta mánuði yrði ákveðið hvaða bjórtegundir verða fluttar inn. Starfsmenn ÁTVR væru að ræða hvernig best væri að skipuleggja bjórsölu og dreifingu á áfengu öli í útibúin en Ijóst væri að skipulagsbreyt- inga væri þörf með tilliti til dreif- ingar. EHB Neyðarástand á leigumarkaðinum á Akureyri: Fjölskylda flytur inn í niðumítt iðnaðarhúsnæði - ekkert eldhús, engin hreinlætisaðstaða Það hefur ekki verið hlaupið að því að fá leiguhúsnæði á Akureyri og hafa margir lent í hinum verstu hremmingum á þeim vettvangi. Ástandið nú virðist hrikalegra en nokkru sinni fyrr. í fyrradag flutti þriggja barna einstæð móðir inn í niðurnítt iðnaðarhús- næði, en hún hafði árangurs- laust reynt að fá leigða íbúð fyrir sig og börn sín. Fjölskyldan bjó skammt utan við bæinn, en missti húsnæði sitt þar. Eini möguleiki hennar var að flytja til Akureyrar. Konan auglýsti allan síðasta mánuð eftir húsnæði og eyddi í það 16 þúsund krónum. Eina tilboðið sem hún fékk var óíbúðarhæft húsnæði sem greiða átti 45 þúsund krónur á mánuði fyrir og árið fyrirfram, en það gerir 540 þúsund krónur hvorki meira né minna. Þegar hvorki gekk né rak að fá leigða íbúð snéri konan sér til Félags- málastofnunar og sagði hún að einu úrræðin sem boðið var upp á þar væru ábendingar um að senda börnin frá sér í heimavistarskóla og hún gæti krækt sér í einsetu- karl. „Það var ekki það sem ég var að leita að,“ sagði konan þeg- ar við hittum hana í gær. Þegar konan ætlaði að tilkynna aðsetursskipti hjá Akureyrarbæ var henni tjáð að það væri ekki hægt þar sem húsaskjól hennar væri ekki íbúðarhúsnæði. Enn leitaði konan til Félagsmálastofn- unar og eftir að hún hafði gripið inn í var konan skráð til heimilis í iðnaðarhúsnæðinu, með sam- þykki manntals og Félagsmála- stofnunar. Fyrir skjólið í iðnaðarhúsnæð- inu, sem engan vegin getur talist mannabústaður, greiðir konan 15 þúsund krónur á mánuði. Þegar fjölskyldan flutti inn í tvö lítil herbergi var ekkert rafmagn í húsinu, enginn hiti og vatnslaust. Ekkert eldhús er í húsinu né heldur hreinlætisaðstaða. Áður en inn í herbergið er komið þarf að ganga í gegnum verkstæði þar sem verið er að gera við vélar og mótorhjól og bensínkeimur fyllir loftið. Búslóðin er geymd við hlið vélanna. „Ég tók þetta húsnæði í algjörri neyð. Ég tel mig vera búna að gera allt sem í mínu valdi stóð og ég hreinlega get ekki meira,“ sagði konan. kjó/mþþ Iitiö er um vanskil - í verkamannabústaðakerfinu á Akureyri Sjávarútvegssýningin í Nuuk á Grænlandi: Þátttakendur ánægðir með sýninguna - ekki mikið um kaupsamninga Lítið er um vanskil hjá kaup- endum verkamannabústaða á Akureyri og uppboð á íbúðum í verkamannaíbúðakerfinu eru nánast óþekkt fyrirbæri í bænum. Aðeins einu sinni hef- ur komið til uppboðs á slíkri íbúð á síðasliðnum átta árum. Hákon Hákonarson, stjórnar- formaður verkamannab.ústaða, sagði að í þau átta ár, sem hann hefði starfað að málefnum verka- mannabústaða, hefði aðeins einu sinni farið fram uppboð á verka- mannabústað. „Það er greinilegt að fólk, sem fær íbúðir hjá okkur, leggur sig í líma við að standa í skilum. Þetta fólk þekkir öryggisleysið sem ríkir á leigu- markaðinum og það metur mikils að geta búið í eigin íbúð,“ sagði Hákon. í máli Hákonar kom ennfrem- ur fram að hann kannaðist ekki við að íbúar verkamannabústaða á Akureyri kæmust í alvarlegan fjárhagsvanda vegna skuldbind- inga eða stofnunar fyrirtækja sem færu á hausinn. Eins og fólk rek- ur minni til þá voru 50 íbúðir í Reykjavík á nauðungaruppboð- um fyrir skömmu, þar af var búið að selja 20 síðustu nauðungar- sölu. Slíkt virðist ekki þekkjast á Akureyri. EHB Kaupendur verkamannabústaða á Akureyri eru ytirleitt skilvísir. Forráöamenn íslenskra fyrir- tækja sem tóku þátt í sjávar- útvegssýningunni í Nuuk á Grænlandi um síðustu helgi, eru yfirleitt ánægðir með sýn- inguna og telja að hún hafi haft töluverða þýðingu. Jens Ing- ólfsson markaðsstjóri tækni- vara hjá Útilutningsráði segir þó að það einkenni sjávarút- vegssýningar að lítið sé um það að gengið sé frá beinum kaup- samningum. „Á sjávarútvegssýningum er yfirleitt verið að kynna vöru þar sem er venjulega töluvert langur aðdragandi að kaupum, en almennt séð erum við ánægðir með sýninguna og ég hef trú á því að hún eigi eftir að skila okkur umtalsverðum viðskiptum. Það munu flest fyrirtæki njóta þeirra sem þarna sýndu." Jens sagði að norðlensk fyrir- tæki eins og Plasteinangrun, Sæplast og Oddi séu fyrirtæki sem lengi hafi haft góð sambönd í Grænlandi og selt þar verulega. Þátttaka þeirra í þessari sýningu hafi ekki eingöngu verið bundin því að leita nýrra samninga, held- ur fyrst og fremst að vera með á fyrstu sjávarútvegssýningu Grænlendinga. Á sýninguna fóru tveir Sómábátar sem voru seldir fyrirfram. Annar þeirra var útbúinn færavindum frá DNG og vöktu vindurnar mikla athygli Grænlendinga. kjó

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.