Dagur - 05.08.1988, Page 2
2 - DAftUR r 5..ágúst 1988
Iþrótta- og
leikjanámskeið
hefst mánudaginn 8. ágúst kl. 10 fyrir hádegi,
ef næg þátttaka fæst.
Innritun fer fram í símum 22381 og 25306.
Leiöbeinandi Gísli Bjarnason.
Knattspyrnudeild Þórs.
Föstudags- og laugardagskvöld
Hjjómsveitin Pass
ásamt
Pálma Gunnarssyni
Hljómsveitin Rokkbandið
í Mánasal laugardagskvöld.
Qlæsilegur matseðill.
Eins og sjá má er bíllinn mikið skemmdur og ekki furða þótt gamla símstöðin hafi nötrað við skellinn.
Sauðárkrókur:
Fómfus ökumaður
- forðaði árekstri og ók á gömlu símstöðina
Það var fórnfús ökumaður sem
leið átti eftir Aðalgötunni á
Sauðárkróki fyrir skömmu.
Bfll, sem kom frá einni hlið-
argötu, var á leið inn á Aðal-
götuna og í veg fyrir fyrr-
greindan ökumann. Hann sá
hvað verða vildi og afstýrði
árekstri með því að aka á
næsta hús. Bifreið hans er tals-
vert skemmd og slapp hann
með öll meiðsl.
Húsið sem varð fyrir bílnum
var gamla símstöðin, sem var
byggð upp úr síðustu aldamót-
um. Ekki sá á húsinu, enda lenti
þíllinn á sterkasta stað þess,
horni steinsteypts grunns. íbúar í
símstöðinni sögðu í samtali við
Dag að húsið hefði nötrað, því
þetta var talsvert högg. Þeir töldu
að það hafi bjargað þetta gömlu
húsi, að bíllinn kom á hornið, en
ekki er gott að segja hvað hefði
gerst, hefði hann lent annars
staðar á húsinu. -b jb
Ath. Matargestir borga ehhi aðgangseyri.
DAGIJR
Sauðárkróld
0 95-5960
Norðlenskt dagblað
ÚTSALA
Útsalan enn
í fullum gangi
★
Allt aö
70% afsláttur
HAGKAUP Akureyri
Hestamannamót
Grana og Þjálfa
Hestamannamót verður haldið
að Einarsstöðum í Reykjadal
5.-6. ágúst. í rauninni er um
tvö mót að ræða, deildamót
íþróttadeildar Grana og Þjálfa
og firmakeppni Þjálfa.
Á mótinu verður keppt í öllum
íþróttagreinum en opin keppni
verður í þremur greinum í tölti,
hindrunarstökki og gæðinga-
skeiði.
Mótið hefst kl. 20.00 á föstu-
dagskvöld en þá verður dæmt í
íþróttagreinum í unglingaflokk-
um. Kl. 9.00 á laugardagsmorgun
verður dæmt í töltkeppninni og
síðan verða riðin úrslit í þeim
greinum sem dæmt var í kvöldið
áður. Eftir hádegi hefst firma-
keppnin og keppt verður í opn-
um greinum, að lokum fara fram
kappreiðar sem skráð verður í á
staðnum.
Skemmtiatriði verða á mótinu
og til stendur að setja heimsmet í
100 metra feti.
Á laugardagskvöld verður
hestamannadansleikur að Ýdöl-
um þar sem Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar mun Ieika
fyrir dansi. IM
Húnavatnssýslur:
Klæðing á vegi
langt komin
- unnið að uppbyggingu vegar í
Víðidal og á Vatnsskarði
Aðalvegurinn í gegnum Húna-
vatnssýslur er nú að mestu orð-
inn með bundnu slitlagi og
árlega styttast þeir vegarkaflar
á þessari leið sem ekki er kom-
ið slitlag á.
Nú í sumar var lagt slitlag á 3
km á Vatnsskarði og nú er verið
að byggja upp 6,4 km vegarkafla
í Víðidal þótt ekki verði lagt slitlag
þar á þessu ári. Verktaki við þá
framkvæmd er Jón Ingileifsson.
Þegar því verki hefur verið
lokið er uppbyggingu vegarins í
gegnum sýslurnar lokið að
undanskilinni leiðinni frá Ból-
staðarhlíð upp á Vatnsskarðið.
Klæðning hf. frá Reykjavík
heldur nú áfram við lagningu
vegar á Vatnsskarði þar sem
Örnólfur Guðmundsson, verk-
taki frá Bolungarvík, gekk frá
verki í fyrra eftir að hafa byggt
upp 2 km af fyrirhugaðri vegar-
lagningu.
Önnur verkefni í vegagerð í
Húnaþingi eru styrking á Neðri-
byggðarvegi og Norðurárdals-
vegi. fh