Dagur - 05.08.1988, Síða 5

Dagur - 05.08.1988, Síða 5
5. ágúst 1988 - DAGUR - 5 Sumarlamb, nýslátrað Grafinn lax með dillsósu Kjúklingapaté með Cumberlandsósu Marineraðar lambasneiðar Nautakótilettur. Nautahakk 510 kr. per. kg, Velkomin Hrísalund - fékk á þriðja hundrað fiska á vikunni Nú er langt liðið á veiðitíma- bilið í laxveiðiánum og margar komnar yfir þann tíma sem kallast „toppveiðitími“. Ljóst er þó að sumarið ætlar að verða mjög gott ef litið er á heildina þótt einstaka ár séu nokkuð undir heildarveiði síð- asta árs. Besti tíminn í silungs- veiðiánum fer senn í hönd og má vænta að víða verði fjör á árbökkum silungsáa næstu vik- urnar. Ameríkanar mokveiða í Vatnsdalsá í fyrradag voru hollaskipti í Vatnsdalsá en þá hafði banda- rískt holl fengið hvorki meira né minna en 213 laxa á einni viku úr ánni. Sex stangir eru í ánni og slær þessi veiði öll fyrri met. Að sögn Heimis Barðasonar leið- sögumanns kom góð ganga í ánni sem hleypti fjöri í veiðina en nú er farið að hægjast um á ný. Vatnsdalsá hefur valdið mörgum vonbrigðum t sumar og er veiði nokkuð minni en í fyrra þrátt fyr- ir þennan síðasta kipp. En hverju .spá menn fyrir ágúst? „Ég heid að ágústmánuður geti orðið mjög góður. Veiðin í sum- ar hefur öll verið í tveimur hylj- um fyrir neðan Flóðið þannig að áin hefur farið mjög vel með fisk- inn og á að geta orðið góð síðari hluta tímabilsins," sagði Heimir Barðason. Vinsælustu flugurnar í Vatns- dalsánni, „Ieynivopnin“ eins og Heimir orðaði það eru Black & Blue, Monroe Killer og Moon- light. Stærsti lax hingað til er 27 pund en komnir eru tæplega 600 fiskar á land. Laxá í Aðaldal að tærast Laxá í Aðaldal hefur verið mjög lituð í sumar og hefur það haml- að veiðinni nokkuð. í veiðihús- inu Vökuholti fengust þær upp- lýsingar að ástand árinnar sé að batna. Nú eru komnir um 1400 fiskar á land í Aðaldal en engum veiðimanni hefur enn tekist að krækja í fisk yfir 26 pundum. í fyrradag voru hollaskipti í Vöku- holdi og var nýtt holl komið með 35 laxa um hádegi í gær. Laxarnir sem veiðst hafa að undanförnu eru flestir 10-20 pund en lítið þar yfir. „Annars liggur ljómandi vel á öllum hér,“ voru lokaorð ráðs- konunnar í Vökuholti í samtali við Veiðiklóna. Góð veiði í Sléttuánum Ágætlega hefur veiðst í Ormarsá og Deildará á Sléttu. Veiði í Deildará hófst þann 22. júní og þar eru komnir liðlega 130 laxar á land. Auk þess hafa veiðst í ánni um 30 silungar. Stærsti laxinn hingað til er 20 pund oe veiddist hann um síðustu helgi. I ánni eru 3 stangir. Umsjón: Jóhann Ólafur Halldórsson. í Ormarsá var góður kafli um síðustu helgi og hefur Veiðiklóin spurnir af holli sem fékk 25 laxa á þrjár stangir á þremur dögum. Þykir það góður túr. Selá nálgast 500 laxa í fyrradag lauk holl veiði í Selá í Vopnafirði og hafði þá veitt 87 laxa á 4 dögum. Sá stærsti var 18 pund. Næsta holl á undan var með 125 laxa á sama tíma þannig að lítillega hefur dregið úr veið- inni síðustu daga. Það er ein- göngu fluga sem notuð er í Sel- ánni þessa dagana en þar eru íslendingar við veiðar. í gær var komið gott veður í Vopnafirði, 12-17 stiga hiti og úrkomulaust. Dregur úr veiði í Laxá á Asum Dregið hefur úr veiðinni í Laxá á Ásum enda veiðin nær helmingi meiri en á sama tíma í fyrra. Á tvær stangir fást nú 25-30 laxar á dag en þegar best lét var veiðin allt upp í 70 laxar á dag. Á land eru komnir um 1300 laxar en á sama tíma í fyrra voru þeir 760. Haldi svipuð veiði áfram verður metsumar í ánni. Hallá á Skaga gerir gott betur en Laxá á Ásum því nú er veiðin nær þreföld miðað við síðasta ár. Úr ánni hafa fengist 52 laxar en voru aðeins 17 um svipað leyti í fyrra. Heildarveiði í Laxá á Refasveit er töluvert meiri en í fyrra. Nú eru 76 laxar komnir á land miðað við 48 laxa í fyrra. Fremri Laxá á Ásum er með nærri fimm sinnum meiri laxveiði en í fyrra. Þá voru aðeins 4 laxar komnir á land á þessum tíma en eru 18 nú. Fann 9 punda bleikju við Eyjafjarðará Heppinn veiðimaður við Eyja- fjarðará fann á dögunum nýdauða bleikju við árbakkann sem sennilega hefur drepist eftir glímu við einhvern veiðimann- inn. Reyndist fiskurinn nýdauður og því var gert að honum á hefð- bundinn hátt. Hér var um að ræða 9 punda, fallega bleikju og má veiðimaðurinn vel við fund- inn una. Annars er það af Eyjafjarðará að frétta að komnir eru 5 laxar á land, stærsti fiskurinn er 17 pund. Mesta silungsveiði sem frést hef- ur af er 47 fiskar á 3 stangir yfir daginn. Gera má ráð fyrir að veiði eigi eftir að glæðast í ánni þegar á mánuðinn líður. Fnjóská er ekki síðri en í fyrra. Þar hafa um 70 laxar gefist upp í baráttunni við veiðimenn og stærsti fiskurinn hingað til er 19,5 pund. Mesta laxveiði á eina stöng yfir daginn er 5 laxar. JÓH Búðin er opin á laugar- dögum frá kl. 9-12. Byggingavömr Lónsbakka, Glæsibæjarhreppi 601 Akureyri. Símar 96-21400 og96-23960. 15% afsláttur Við seljum Sjafnar- útimálningu með 15% afslætti til 13. ágúst Múrvari | Texfestir Sandtex ‘^títeíT^" VÍðarvöriil Viðarolía Kjörmarkaður KEA Hrísalundi 5 SL 1111! Mllir V- . - wsa r^ 9^=====^—= Vatnsdalsá: Bandarískt holl slær öU met

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.