Dagur - 05.08.1988, Side 11

Dagur - 05.08.1988, Side 11
5. ágúst 1988 - DAGUR - 11. . íþróttir KA með siffur í sjónmáli - en Keflvíkingar jöfnuðu á elleftu stundu Sigurmark Þórs í uppsiglingu. Besti maður vallarins, Halldór Áskelsson, laumar knettinum fram hjá Þorvaldi Jóns- syni og í markið. Mynd: tlv Þórsarar nánast óðu í færum - er þeir unnu sanngjarnan 2:1 sigur á Leiftri ÍBK og KA skildu jöfn þegar liöin mættust í Keflavík í gærkvöld. Leikurinn fór fram í afar lciðinlegu veðri, roki og rigningu, en þrátt fyrir það náðu bæði lið að sýna ágætis knattspyrnu. Urslitin urðu 1:1 eftir að KA-menn höfðu haft sigurinn í sjónmáli en vafasöm aukaspyrna í lok leiksins tryggði Keflvíkingum jafntefli og verða það að teljast sann- gjörn úrslit þegar á heildina er litið. Leikurinn byrjaði með nokkr- um látum og litlu munaði að Keflvíkingarnir næði forystunni strax í upphafi en KA-menn vörðust vel. Keflvíkingar voru ívið frískari en KA-menn spiluðu af öryggi, léku varnarleikinn mjög vel og beittu skyndisóknum sem komu Keflvíkingum í opna skjöldu. Minnstu munaði að ein slík færði þeim mark á 11. mínútu. Vörn Keflvíkinga opn- aðist þá illa, Þorvaldur Örlygsson slapp í gegn og átti mjög gott skot að marki ÍBK en Þorsteinn Bjarnason varði frábærlega. Á 26. mínútu náðu KA-menn forystunni. Keflavíkurvörnin opnaðist þá aftur og Anthony Karl var á auðum sjó og vippaði glæsilega yfir Þorstein í markinu. Keflvíkingar voru áfram meira með boltann en þeim gekk illa að skapa sér færi. Það var gott veður á Húsavík, sunnan gola og hlýtt er Völs- ungur og KR öttu kappi í knatt- spyrnu á Húsavíkurvelli í gær. Völsungar hófu leikinn af miklu kappi vitandi vits að nú væri að duga eða drepast ef tryggja ætti áframhaldandi setu í fyrstu deild að ári. Þeir börðust mjög vel og voru síst slakari aðilinn í fyrri hálfleik. En það er hægt að endurtaka gamlar fréttir. Völsungar börðust vel, voru síst minna með boltann, áttu fleiri færi, en allt kom fyrir ekki. Það var á 11. mínútu er fyrst dró til tíðinda. Pétur Pétursson lá óvígur eftir návígi við Grétar Jónasson varnarmann Völsungs. Knattspyrnufélag Siglufjarðar hefur fengið Eddie May aftur til landsins sem þjálfara, en sem kunnugt er fór hann til Englands fyrir nokkru til utan- deildarliðsins Newport. Þar hætti hann í þessari viku vegna fjárhagsvandræða hjá félaginu og ákvað að fara aftur til íslands. Eddie kom til landsins í gærkvöld og mun stýra KS- ingum í kvöld í leiknum gegn FH. Hörður Júlíusson formaður knattspyrnudeildar vildi ekki tjá Þeir hófu síðari hálfleik með látum og Haukur varði mjög vel skot frá Óla Þór á 49. mínútu. Áfram sóttu Keflvíkingar en KA- menn vörðust vel og það var ekki fyrr en ein mínúta var til leiks- loka að Keflvíkingar náðu að jafna. Þá kemur sending inn að vítateig KA, Hallór Halldórsson nær boltanum og skýlir honum fyrir Grétari Einarssyni þegar dómarinn dæmir aukaspyrnu á KA, öllum til mikillar furðu. Daníel tók spyrnuna og fast skot hans fór í varnarveggin og breytti um stefnu þannig að Haukur sá ekki við því. Úrslitin því 1:1. KA-menn léku þennan ieik skynsamlega og voru óheppnir í lokin. Hins vegar höfðu Keflvík- ingar átt meira í leiknum á köfl- um og fengið sín færi þannig að úrslitin voru sanngjörn. Anthony Karl Gregory barðist mjög vel og var besti maður KA en Keflavík- urliðið var mjög jafnt. AP/JHB Liö ÍBK: Þorsteinn Bjarnason, Guömundur Sighvatsson, Daníel Einarsson, Siguröur Björg- vinsson, Grétar Einarsson, Ragnar Margeirs- son, Óli Þór Magnússon, Jóhann Júlíusson (Jón Sveinsson), Árni Vilhjálmsson (Kjartan Einars- son), Gestur Gylfason, Einar Ásbjörn Ólafsson. Lið KA: Haukur Bragason, Steingrímur Birgisson, Erlingur Kristjánsson, Jón Kristjáns- son (Arnar Freyr Jónsson), Þorvaldur örlygs- son, Gauti Laxdal, Bjarni Jónsson, Anthony Karl Gregory, Halldór Halldórsson, Friöfinnur Hermannsson (Arnar Bjarnason), Valgeir Baröason. Dómari: Guðmundur Sigurðsson. Línuveröir: Sæmundur Víglundsson, Karl Ottesen. Pétur var borinn af leikvelli, en birtist bísperrtur fimm mínútum síðar eftir að búið var að gera að meiðslum hans. Besta færið í fyrri hálfleik sem ekki gaf mark áttu Völsungar á 20. mínútu þegar Helgi Helgason átti góða fyrirgjöf frá vinstri inní vítateig KR, þar var Jónas Hall- grímsson en hann mátti sjá á eftir skoti sínu rétt fram hjá markinu. En það voru KR-ingar sem gerðu eina mark hálfleiksins. Á 33. mínútu fékk Björn Rafnsson sendingu frá vinstri þar sem hann stóð í vítateig umkringdur varn- armönnum Völsungs og náði að skalla boltann í markið, óverj- andi fyrir Þorfinn markvörð. Seinni hálfleikurinn var KR- sig í samtali við Dag um ástæð- una fyrir því að Eddie kom aftur til Siglufjarðar. Hann sagðist vera ánægður með að þeir hafi fengið hann aftur. „Annars vær- um við ekki að þessu, að fá hann aftur.“ Hörður sagði að þrátt fyr- ir slæma stöðu í 2. deildinni væri gott hljóð í hópnum um þessar mundir og menn staðráðnir í að gefast ekki upp. „Við erum að fá aftur leikmenn eftir meiðsli og annað slíkt þannig að þetta er bjartara en það var,“ sagði Hörður. -bjb Þórsarar sigruðu Leiftur frá Ólafsfirði þegar liðin mættust í 12. umferð SL-deildarinnar á Akureyri í gærkvöld. Loka- tölurnar urðu 2:1 og verða þau inga, þeir voru mun ákveðnari í öllum aðgerðum sínum, og náðu að skapa sér nokkur ágæt færi. Strax á 48. mín. bættu þeir öðru marki við þegar Pétur Pétursson fékk sendingu inn á markteig Völsungs og skallaði af öryggi fram hjá Þorfinni og í markið. Björn Rafnsson sem átti best- an leik þeirra KR-inga, átti á 65. mínútu þrumuskot rétt fram hjá marki Völsungs, þar sem hann stóð einn og óvaldaður í vítateig. Aðeins mínútu síðar bætti hann fyrir mistök sín og átti góða send- ingu fyrir markið á Rúnar Krist- insson sem skoraði af öryggi með fyrstu snertingu sinni í leiknum og útlitið orðið dökkt hjá heima- mönnum. Á 78. mínútu fengu Völsung- ar smá uppreisn æru. Jónas Hall- grímsson var felldur innan víta- teigs eftir að hafa leikið skemmti- lega á varnarmenn KR og rétti- lega var dæmt víti. Jónas tók vít- ið sjálfur og honum brást ekki bogalistin frekar en fyrri daginn. En þetta dugði ekki til. KR-ingar voru sterkari aðilinn og nú spyrja Völsungar sig: „Hvar eru heilla- dísirnar?“ Svarið er hugsanlega að finna í 2. deild. ÓJ Liö Völsungs: Þorfinnur Hjaltason, Hclgi Hclgason, Sveinn Frcysson, Unnar Jónsson, Theodór Jóhannsson, Grétar Jónasson, Eiríkur Björgvinsson, Guðmundur Þ. Guðmundsson, Björn Olgeirsson, Stefán Viðarsson, Jónas Hall- grímsson, Skarphéðinn ívarsson, (73. mín.) Snævar Hreinsson, ( 79. mín.). Lið KR: Stefán Árnason, Jón G. Bjarnason, Þorsteinn Halldórsson, Gylfi Aöalsteinsson, Willum Þór Þórsson, Jósteinn Einarsson, Ágúst Már Jónsson, Gunnar Oddsson, Björn Rafnsson, Sæbjörn Guömundsson, Pétur Pétursson, Rúnar Kristinsson, ( 62. mín.). Dómari: Haukur Torfason, skilaði hlutverki sínu ágætlega. Línuveröir: Magnús Jónatansson, Árni Ara- son. úrslit að teljast sanngjörn því Þórsarar voru mun sterkari aðilinn í leiknum og nánast óðu í færum á köflum. Leift- ursmenn fengu hins vegar aðeins eitt færi og skoruðu úr því. Þórsarar náðu strax góðum tök- um á leiknum og færin létu ekki á sér standa þrátt fyrir að illa gengi að nýta þau. Besta færið fékk Júlíus Tryggvason þegar hann fékk boltann skyndilega einn og óvaldaður á markteig en skot hans fór yfir. Leiftursmenn komu smátt og smátt meira inn í lcikinn og síð- asta hluta fyrri háfleiks ríkti jafn- ræði með liðunum. Ekkert gekk hins vegar né rak upp við mörkin og staðan í leikhléi var 0:0. Fyrsta mark leiksins kom á 53. mínútu og var það Þórsara. Valdimar Pálsson lék þá á þrjá Leiftursmenn úti á vellinum og skaut þrumuskoti af 20 metra færi í bláhornið. Mjög glæsilegt mark. Og nú var skammt stórra högga á milli. Aðeins 4 mínútum síðar hugðist Júlíus renna boltan- um til Baldvins í marki Þórs en Halldór Guðmundsson komst á milli og renndi boltanum út á markteiginn þar sem Steinar Ingimundarson var aleinn og renndi knettinum í autt markið. Leiftursmenn voru vart hættir að fagna þegar Þórsarar náðu forystunni á ný. Hlynur nikkaði þá boltanum yfir einn varnar- mann Leifturs og þar var Halldór Áskelsson og hann renndi fram hjá Þorvaldi og í markið. Fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir fjölmörg tækifæri Þórsara og geta Leiftursmenn þakkað fyrir að ekki fór verr þegar á heildina er litið. Þórsliðið átti ágætan leik að þessu sinni og var tvímælalaust sterkari aðili þessa leiks. Halldór Áskelsson átti stórleik og var langbesti maður vallarins. Leiftursliðið átti slakan dag og sérstaklega gekk því illa að skapa sér færi. Gústaf Ómarsson og Þorvaldur Jónsson léku mjög vel en aðrir náðu sér ekki á strik. JHB Liö Þórs: Baldvin Guðmundsson, Júlíus Tryggvason, Birgir Skúlason. Nói Björnsson. Valdimar Pálsson, Kristján Kristjánsson. Jónas Róbcrtsson, Guömundur Valur Sigurösson. Sig- uróli Kristjánsson, Hlynur Birgisson. Halldór Áskclsson (Einar Arason á 92. mín.). Liö Lcifturs: Þorvaldur Jónsson, Gústaf Ómarsson, Sigurbjörn Jakobsson, Árni Stcfáns- son, Halldór Guömundsson, Hafsteinn Jakobs- son, Lúövík Bcrgvinsson, Hörður Benónýsson, Stcinar Ingimundarson, Friðrik Einarsson (Hclgi Jóhannsson á 78. mín.), Róbcrt Gunn- arsson (Þorstcinn Gcirsson á 72. mín.). Gul spjöld: Kristján Kristjánsson og Jónas Róbertsson Þór og Árni Stefánsson Leiftri. Dómari: Friöjón Edwardsson og átti hann frckar slæman dag. Línuvcröir: Svcinn Svcinsson og Báröur Guömundsson. sti 1 iðan . deild Úrslit í 4. fyrstu leikjum 12. umferðar: Völsungur KR 1:3 ÍBK - KA 1:1 Þór - Leiftur 2:1 Valur - ÍA 3:1 Fram 11 10-1-0 23: 2 31 Valur 12 7-2-3 19:11 23 KR 12 7-1-4 19:13 22 ÍA 12 6-3-3 19:15 21 Þór 12 4-5-3 15:14 17 KA 12 5-2-5 18:21 17 ÍBK 12 2-5-5 14:21 11 Víkingur 11 2-3-6 9:17 9 Leiftur 12 1-4-7 8:16 7 Völsungur 12 1-2-9 7:21 5 GA: Tvö mót um helgina Tvö golfmót veröa haldin á golfvellinum aö Jaðri um helg- ina. Á laugardag verður punkta- mót (Stableford) og á sunnu- dag verður nýliðakeppni kvenna. í punktamótinu verða leiknar 18 holur með 7/s forgjöf. Mótið hefst kl. 10. Nýliðakeppni kvenna hefst á sunnudaginn kl. 13. Leiknar verða 9 holur og rétt til þátttöku hafa byrjendur með 39 í forgjöf. JHB Fnn tapa Völsungar - nú 1:3 gegn KR og fallið blasir við Eddie May stýrir KS-ingum í kvöld - kom til landsins í gærkvöld

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.