Dagur - 12.08.1988, Page 2
2<- DAGUR - 12. ágúst 1988
Forstöðumaður öldrunarþjónustu:
Fimm sóttu um
Fimm sóttu um starf forstöðu-
manns öldrunarþjónustu
Akureyrarbæjar. Umsóknar-
frestur rann út í fyrradag.
Póststimpillinn gildir þannig
að fleiri umsóknir geta verið á
leiðinni.
Sigfús Jónsson bæjarstjóri
sagði að ákvörðunar um hver
hlýtur starfið væri ekki að vænta
alveg á næstunni. Öldrunarráð á
eftir að skoða umsóknir og fjalla
um þær og síðan þarf málið að
fara fyrir bæjarstjórn, en næsti
fundur hennar er á þriðjudaginn
kemur.
Cecil Haraldsson er ráðinn til
starfsins til 1. október næstkom-
andi. mþþ
„Nefiidin starfar í fullu samlyndi
við efinahagsnefiid forsætisráðherra"
- segir Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins
Síðastliðinn miðvikudag voru bandarískir fískkaupendur í heimsókn í ÚA voru þeir að skoða fyrirtækið og
kynna sér starfsemi þess. Mynd: tlv
sóknarmenn munum einbeita
okkur að efnahagsmálunum í
þessum mánuði, þannig að ég get
ekkert sagt ennþá til um hvenær
verður kallað til fundar mið-
stjórnar flokksins,“ sagði Stein-
grímur Hermannson formaður
Framsóknarflokksins í samtali
við Dag. AP
Malbikun á Siglufirði:
Áeftir
áætlim vegna
veðurs
Miklar malbikunarframkvæmd-
ir standa yfír á Siglufírði. Núna
eru um 39% gatna í bænum
lagðar bundnu slitlagi en eftir
sumarið verða malbikaðar göt-
ur um 59-64%.
Verið er að vinna við 5 götur
að sögn ísaks Ólafssonar bæjar-
stjóra. Framkvæmdir eru þó tíu
dögum á eftir áætlun vegna rign-
inganna um daginn.
Gatnagerðargjöld Siglufjarð-
arbæjar voru um 24,5 milljónir
en einhver breyting mun hafa
verið gerð á reglugerð varðandi
þau í vor. „Þessi breyting var ein-
göngu í sambandi við álagning-
una á tvíbýlishús. Mönnum þótti
fullmikill munur á þeim og ein-
býlishúsum," sagði Isak. KR
Leiðrétting
Hér með leiðréttist að það var
Smári Ólafsson sem lenti í 4. sæti
á útihraðskákmóti Skákfélags
Akureyrar og Hljóðbylgjunnar
en ekki Magnús Teitsson. Smári
hlaut 7 vinninga á mótinu. SS
Steingrímur Hermannsson utan-
ríkisráðherra segir að nefnd sú
sem Framsóknarflokkurinn
hefur skipað til að móta
aðgerðir í efnahagsmálum
starfí í fullu samlyndi við efna-
ekkert enn ákveðið um miðstjórnarfund
hagsnefnd þá sem forsætisráð-
herra skipaði.
„Við erum ekki með skipun
þessarar nefndar að lýsa van-
trausti á efnahagsnefnd forsætis-
ráðherra, enda starfar Jón Sig-
Húsavík:
Bflastæði malbikuð
Rúmlega sex þúsund fermetrar
voru malbikaðir á Húsavík í
júlí, um var að ræða bílastæði,
aðkeyrslur og plön við fyrir-
tæki og fjölbýlishús. Malbikið
var keypt frá Malbikunarstöð
Akureyrar en Bifreiðastöð
Húsavíkur sá um framkvæmd
verksins og undirbúningsvinn-
una í fyrrasumar.
Stærsti hluti malbikunarfram-
rúmlega 6000 fm
kvæmdanna var á vegum Kaup-
félags Þingeyinga. Alls voru 3500
fm af malbiki lagðir á vegum
fyrirtækisins, austan við aðal-
verslunarhús þess, olíusölu og
mjólkurstöð. Við fjölbýlishús við
Grundargarð voru lagðir 1300 fm
af malbiki, 800 fm við dvalar-
heimili aldraðra, Hvamm og
einnig var lagt malbik við hús
Korra hf., Búrfells hf. og Bíla-
leigu Húsavíkur. IM
Meóal þess sem nialbikað hefur verið á Húsavík í sumar eru bílastæðin fyrir
framan Kaupfélag Þingeyinga. Mynd: im
urðarson fulltrúi Framsóknar-
flokksins í þeirri nefnd af fullum
hug og er okkur einnig innan
handar,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson í samtali við Dag.
Steingrímur telur ekkert óeðli-
legt að Framsóknarmenn skipi
nefnd til að skila inn tillögum um
úrbætur í efnahagsmálum.
„Forsætisráðherra gaf frest til
mánaðamóta og það er sá tími
sem við höfum sett okkur til að
leggja fram hugmyndir okkar,“
sagði ráðherrann. Hann benti
líka á að hinir stjórnarflokkarnir
væru með einhvers konar nefndir
í gangi vegna efnahagsmálanna
og því væri ekkert óeðlilegt að
framsóknarmenn gerðu slíkt hið
sama.
Utanríkisráðherra hefur lýst
því yfir að fulltrúar verkalýðs-
hreyfingarinnar verði kallaðir á
fund þessarar nefndar fljótlega
og þar að auki muni nefndar-
menn ræða við fulltrúa annarra
launþega í landinu.
í þessari efnahagsnefnd eiga
sæti Steingrímur Hermannsson,
Jón Kristjánsson, Guðmundur
G. Þórarinsson, Arnar Bjarna-
son, Margeir Daníelsson, Hall-
dór Guðbjarnarson, Hermann
Sveinbjörnsson, Finnur Ingólfs-
son og Gunnlaugur Sigmunds-
son.
í sambandi við miðstjórnar-
fund Framsóknarflokksins sem
fyrirhugaður var í byrjun sept-
ember sagði Steingrímur að enn
væri ekki komin ákveðin dag-
setning á þann fund. „Við fram-
Akureyri:
Bæjarbúar tefla fyrir
fegrun bæjarins
Nokkuð virðist vera um að
bæjarbúar losi moldarefni og
ýmislegt annað á svæði sem
verið er að rækta upp á vegum
bæjarins. Arni Steinar
Jóhannsson garðyrkjustjóri
sagði þetta vera nokkuð hvim-
leitt sérstaklega þar sem bann-
að væri með öllu að losa efni
innan bæjarlandsins nema með
leyfi.
„Það er mjög slæmt að bæjar-
búar skuli gera þetta,“ sagði
hann. „Þarna er grófum moldar-
efnum með grjóti sturtað inn á
svæði sem verið er að rækta upp.
Með þessu er tafið fyrir fegrun
bæjarins, auk þess sem það kost-
ar okkur stórfé að fjarlægja þessi
efni.“
Árni nefndi sem dæmi sjúkra-
húslóðina sem verið væri að
rækta upp. Þar inn á var sturtað
grjótefni sem ómögulegt er að
hafa saman við ræktunarlagið og
olli það miklum vandræðum.
Hann vildi koma því á fram-
færi að ef menn, bæði einstakl-
ingar og fyrirtæki þyrftu að losna
við mold að hafa þá samband við
annaðhvort garðyrkju- eða
tæknideild Akureyrarbæjar. Þá
væri þeim beint á þann stað sem
efnið nýttist sem best. „Við get-
um tekið á móti öllum moldar-
efnum en viljum ráða hvar þau
fara niður. Múrbrot og afgangar
úr görðum sem oft hafa verið los-
uð hér og þar eiga aftur á móti
heima á haugunum," sagði Árni
Steinar. KR
Suður-Þingeyj arsýsla:
Skógardagur
á sunnudag
Skógræktarfélag Suður-Þing-
eyinga efnir til skógardags nk.
sunnudag. Öllum er velkomið
að mæta í skrúðgarðinn á
Húsavík kl. 10:00 um morgun-
inn, byrjað verður á að skoða
skógrækt Húsvíkinga undir
leiðsögn Hjartar Tryggvasonar
en síðan farið í Fossselsskóg
þar sem Friðgeir Jónsson leið-
beinir hópnum.
Að sögn Hólmfríðar Péturs-
dóttur í Víðihlíð er tilgangur
slíkra skógardaga að auka áhuga
á skógrækt með því að skoða
hvað verið er að gera í ræktun-
armálunum undir leiðsögn
heimamanna og kynnast fólki
með áhuga á skógrækt. Á undan-
förnum árum hefur félagið m.a.
gengist fyrir skoðunarferðum í
Fnjóskadal og Eyjafjörð. Hólm-
fríður sagði að ákaflega jákvætt
væri að taka þátt í skógræktar-
starfinu og ótrúlega mikið hefði
verið gert þrátt fyrir allt. Aðal-
starf skógræktarfélagsins er að
vinna að ræktun í Fossselsskógi
og starfið er farið að bera ávöxt
því 600 jólatré fengust úr skógin-
um sl. vetur. IM