Dagur - 12.08.1988, Síða 13

Dagur - 12.08.1988, Síða 13
12. águst 1988 - DAGUR - 13 wmmmmi Afgreiðsla - Saumakona Vantar starfskrafta á aldrinum 18-35 ára til afgreiðslustarfa í tískuvöruverslun. Um er að ræða heilsdagsstarf og eitt hálfsdagsstarf. Umsækjendur þurfa að hafa mikinn áhuga fyrir fatnaði og helst van- ir afgreiðslu. Ennfremur óskast vön saumakona til fatabreyt- inga ca. 50-60% starf. Áhugasamir vinsamlegast leggið inn nöfn og símanúmer ásamt upplýsingum um fyrri störf, á afgreiðslu Dags fyrir 25. þ. mán. merkt „Áhugasamur(söm). Vopnafjörður: Lagerstarf Framtíðarstarf Óskum eftir að ráða starfsmann á lager allan daginn. Æskilegur aldur 20-40 ár. Símavarsla Okkur vantar einnig nú þegar starfsmann við símavörslu 3 tíma á dag. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra, sími 21900 (220). Alafoss hf., Akureyri. Seláin hefur verið gjöful að undanförnu. Mynd: -ám. Eyjaprður: Námskeið í hestaíþróttimi haldið að Melgerði Dagana 16.-19. ágúst verður haldið námskeið í hestaíþrótt- um að Melgerði í Eyjafirði. Námskeið þetta er haldið á vegum ferðaþjónustunnar Öldu sem er hiutaféiag í eigu íbóa hreppanna sunnan Akur- ■eyrar. Þetta er fyrsta nám- skeiðið sem Alda stendur fyrir en hlutafélagið hefur aðallega séð um rekstur hestaleigu og tamningastöðvar auk þess sem það tekur hesta í umboðssölu. Einnig er verið að koma upp gistiaðstöðu á vegum Öldu hf. Jónas Vigfússon sem er for- maður stjórnar Öldu hf. sagði að námskeiðið væri góður undirbún- ingur fyrir bikarmót Norðurlands sem haldið verður á Melgerðis- melum 20.-21. ágúst. „Nám- skeiðið er hugsað fyrir vana knapa og þá eins konar æfinga- búðir fyrir bikarmótið. En það er auðvitað opið öllum sem hafa áhuga á hestaíþróttum og vilja æfa sig og kynnast þeim.“ Námskeiðið sem er bæði verk- legt og bóklegt mun taka um 10 tíma og bjóst Jónas við að því yrði skipt í fleiri en einn hóp. Kennari er Sigurbjörn Bárðarson en hann er núverandi íslands- meistari í hestaíþróttum og ætti kennslan því að vera góð. Til allra hestamannafélaga var sent bréf um námskeiðið en það hefur einnig verið auglýst í fjöl- miðlum og bjóst Jónas því við að þátttakan yrði nokkuð góð. „Ef þetta námskeið gengur vel þá viljum við gjarnan halda fleiri en það verður þó að fara eftir eftir- spurn.“ KR Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, ömmu og tengdamóður, GUÐLAUGAR ÖNNU GUNNLAUGSDÓTTUR, Sæbóli Dalvík. Haukur Tryggvason, börn, tengdabörn og barnabörn. - fékk 125 laxa á fjórum dögum Veiði í Selá í Vopnafirði hefur verið með ágætum undanfarna daga. Komnir eru 665 laxar á land, þar af 550 á neðra svæð- inu. Holl sem hætti veiðum í gær fékk 66 laxa eftir 4 daga en fyrir skömmu var sett met í Selánni þegar hollið fékk 125 laxa á fjórum dögum. Að sögn Lilju Kolbeinsdóttur framreiðslukonu í veiðihúsinu Hvammsgerði við Selá var mesta veiði hjá fjögurra daga holli síðasta sumar rúmlega 100 laxar. Fiskur- inn að undanförnu hefur verið í smærra lagi. Stærsti lax sem kom- inn er á efra svæði árinnar er 22 pund en á neðra svæðinu hafa komið tveir 19 punda fiskar stærst. Veiði á neðra svæðinu lýkur 10. sept og síðasti veiðidag- ur á efra svæði er 16. sept. ✓ Hægist um í Laxá á Asum Eftir mokveiði í Laxá á Asum í sumar hefur hægst um. Nú eru komnir á land 1352 laxar en á sama tíma í fyrra voru þeir 931. Heildarveiði í ánni í fyrra var 1168 fiskar þannig að ljóst má vera að veiði sumarsins verður töluvert meiri en í fyrra. Að sögn Sólveigar Friðriks- dóttur, veiðivarðar í Laxá á Refasveit, hefur veiðin verið dræm síðustu vikuna. 81 hefur veiðst í ánni en veiðinni lýkur þann 10. september. Veiðst hafa 59 laxar í Hallá á Skaga í sumar. Þá eru 25 laxar komnir á land úr Fremri Laxá á Ásum og 1737 silungar. Miðfjarðaráin lífleg Böðvar Sigvaldason hjá Veiði- félagi Miðfjarðarár segir að veiði hafi gengið nokkuð vel að undan- förnu. „Við erum komnir með um 1400 fiska eða ,um það bil helmingi meira en á sama tíma í fyrra. Af þessu eru um 10% af merktum fiski þ.e. fiski sem sleppt hefur verið úr kvíum eða tjörnum. í fyrra fengum við mik- inn stórfisk en hins vegar hefur verið mikið af smáfiskinum í ár. Uppistaðan er ársgamall fiskur en lítið hefur verið af tveggja ára fiski,“ segir Böðvar. Fluguveiðitímabilið hætti þann 7. ágúst en misjafnt hefur verið hvað fiskurinn tekur. Böðvar segir að stærsti fiskur hingað til sé 18,5 pund. „Það eru göngur í ánni og tölu- vert af fiski, aðeins dagamunur hvað fiskurinn tekur. Við fengum ágætan kipp í ána um daginn þeg- ar veiddust 166 laxar á þremur dögum. Þá hefur vakið athygli okkar hversu vel hefur veiðst af laxi á silungasvæðinu neðarlega í ánni. Þar eru komnir 30-40 laxar á land en þetta er svæði sem hing- að til hefur ekki gefið vel af sér,“ segir Böðvar Sigvaldason. Slæm vatnsstaða í Yíðidalsá Hiti og sól hefur valdið tregðu í veiðinni í Víðidalsá síðustu daga. Vatnsstaðan er farin að versna í ánni enda lítið rignt á svæðinu síðustu daga. Nú eru komnir 1230 laxar á land úr ánni. JÓH Kjörmarkaður KEA Hrísalundi 5 Metholl í Selánni

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.