Dagur - 12.08.1988, Síða 14

Dagur - 12.08.1988, Síða 14
,1 14 - DAGUR - 12. águst 1988 Heslamenn ATH! Hrossamarkaður verður á sunnudag 14. ágúst á Aöalboli í Aðaldal. Seld verða efnileg trippi frá 1-5 vetra, á góðu verði. FRAMSÓKNARMENN AKUREYRI Bæjarmálafundur Mánudaginn 15. ágúst kl. 20.30 í Hafnarstræti 90. Dagskrá bæjarstjórnarfundar 16. ágúst rædd og önnur mál. Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu embættisins, á neðangreindum tíma: Hótel Húsavík viö Ketilsbraut, þingl. eigandi Hótel Húsavík, fer fram í skrifstofu embættisins Húsavík miövikud. 17. ágúst ’88 kl. 10.40. Uppboðsbeiöandi er innheimtu- maður ríkissjóös. Túngötu 9a, Grenivík, þingl. eigandi Þorsteinn Þórhallsson, fer fram í skrifstofu embættisins Húsavík miövikud. 17. ágúst '88 kl. 10.45. Uppboðsbeiðendur eru: Veö- deild Landsbanka íslands og innheimtumaður ríkissjóðs. Laugarholti 3c, Húsavík, þingl. eigandi Hermann Jónasson, fer fram í skrifstofu embættisins Húsavík miðvikud. 17. ágúst '88 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Innheimtu- stofnun sveitarfélaga. Tjarnarholti 6, Raufarhöfn, þingl. eigandi Ólafur H. Helga- son, fer fram í skrifstofu embættisins Húsavík miðvikud. 17. ágúst ’88 kl 11.15. Uppboðsbeiðendur eru: Veð- deild Landsbanka (slands og Örlygur Hnefill Jónsson hdl. Verslunarhúsi KNÞ, Kópaskeri, þingl. eigandi Kaupfélag N.- Þingeyinga, fer fram í skrifstofu embættisins Húsavík miðvikud. 17. ágúst '88 kl. 11.20. Uppboðsbeiöandi er innheimtu- maður ríkissjóðs. Aðalbraut 61, Raufarhöfn, þingl. eigandi Agnar Indriðason, fer fram f skrifstofu embættisins Húsavík miðvikud. 17. ágúst '88 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er innheimtu- maður ríkissjóðs. Sýslumaður Þingeyjarsýslu. Bæjarfógeti Húsavíkur. Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu embættisins, á neðangreindum tíma: Naustum, við Húsavíkurhöfn, þingl. eigandi Naustir hf., fer fram í skrifstofu embættisins Húsavík fimmtud. 18. ágúst ’88 kl 10.00. Uppboðsbeiðendur eru: Lands- banki íslands, Byggðastofnun og Sigurmar Albertsson hdl. Austurvegi 4, Þórshöfn, talinn eigandi Jón Stefánsson, fer fram í skifstofu embættisins Húsavík fimmtudag 18. ágúst ’88 kl. 10.15. Uppboðsbeiðendur eru: Vil- hjálmur H. Vilhjálmsson hdl., Gunnar Jónsson hdl. og Björn Ólafur Hallgrímsson hdl. Sveinbjarnarg. 2c. Svalb.str., þingl. eigandi Jónas Halldórs- son, fer fram í skrifstofu embættisins Húsavík fimmtud. 18. ágúst '88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru: Byggðastofnun, Iðnlánasjóður og innheimtumaður ríkissjóðs. Fiskeldishúsi á Haukamýri, þingl. eigandi Fiskeldi hf., fer fram í skrifstofu embættisins Húsavík fimmtud. 18. ágúst '88 kl. 11.10. Uppboðsbeiðendur eru: Byggðastofnun og Sigríður Thorlacius hdl. Aðalbraut 45, Raufarhöfn, þingl. eigandi Anton Sigfússon, fer fram í skrifstofu embættisins Húsavík fimmtud. 18. ágúst '88 kl. 11.30. Uppboðsbeiðendur eru: Trygg- ingastofnun ríkisins, Veðdeild Landsbanka íslands og Magnús Norðdahl hdl. Túnsbergi, Svalbarðsstrandar- hreppi, þingl. eigandi Sveinberg Laxdal, fer fram í skrifstofu embættisins Húsavík fimmtud. 18. ágúst ’88 kl 11.40. Uppboðsbeiðendur eru: Inn- heimtumaður ríkissjóðs, Stofn- lánadeild landbúnaðarins og Ásgeir Thoroddsen hdl. Sveinbjarnargerði 2, Svalb., þingl. eigandi Jónas Halldórs- son, fer fram í skrifstofu, embættisins Húsavík fimmtud. 18. ágúst ’88 kl. 11.45. Uppboðsbeiðendur eru: Búnaö- arbanki íslands, Brunabótafé- lag íslands, Sigríður Thorlacius hdl. og Árni Pálsson hdl. Sveinbjarnargerði 1, Svalb.str., þingl. eigandi Haukur Halldórs- son, fer fram í skrifstofu embættisins Húsavik miðvikud. 17. ágúst '88 kl. 10.30. Uppboðsbeiöendur eru: Inn- heimtumaður ríkissjóös og Ólafur B. Árnason hdl. Sýslumaður Þingeyjarsýslu, Bæjarfógeti Húsavíkur. Ferðafélag Akureyrar: Ferð um helgina Næstu vikur verða farnar nokkr- ar ferðir á vegum Ferðafélags Akureyrar. Á morgun verður farið í Ingólfs- skála og Laugafell og komið til baka á sunnudag. 19.-21. ágúst verður farið í Dynjufalladal. 27.- 28. ágúst veður farið í Fjörður og 3.-4. september á Eyvindarstaða- heiði. Allar upplýsingar fást á skrif- stofu félagsins, Skipagötu 13. Síminn er 22720. Kaffisala að Hólavatni á swinudag Kaffisala verður í Sumarbúðum KFUM og KFUK að Hólavatni sunnudaginn 14. milli kl. 14.30 og 18.00. í sumar hafa tveir hóp- ar drengja og tveir hópar stúlkna dvalið að Hólavatni undir stjórn Björgvins Jörgenssonar og Þór- eyjar Sigurðardóttur. Venja er að sumarstarfinu ljúki með kaffi- sölu sem er mikilvægur þáttur þess. Kaffisalan er liður í fjár- öflunarstarfi félaganna og hún gefur einnig velunnurum starfsins og öðrum tækifæri til að koma að Hólavatni, skoða sumarbúðirnar sem eru í mjög fallegu umhverfi, hittast og talast við. Kaffisala á Hólavatni hefur verið mjög vel sótt undanfarin ár og greinilegt er að margir líta á það sem fastan þátt að aka fram Eyjafjörðinn á sunnudagseftirmiðdegi í ágúst og fá sér kaffi að Hólavatni. Laxdalshus laugardagskvöldið 13. ágúst Kvöldseðill Villisveppasúpa Sjávarréttaspúpa Laxarós með eggjahræru Hvítlaukssteiktir sniglar Karrýsteiktur skötuselur Rjómasoðin lúða með púrrulauk Smjörsteikt rauðspretta með grænmetisstrimlum Soðinn lax með agúrkusalati Lambaburrsteik með piparsósu Gráðostfyllt grísalund með bakaðri kartöflu Purtvínsoðnar svartfuglsbringur Nautasteik hússins með fylltri kartöflu fsdúett með heitri súkkulaðisósu Banani með karmellusósu Ávaxtaspjót sælkerans Kaffihlaðborð sunnudaginn 14. ágúst kl. 14.00-17.00 íþróttir Helgi Þór Helgason verður meðal keppenda á Norðurlandsmótinu. Akureyrarvöllur um helgina: Norðurlandsmótið í frjálsum íþróttum Norðurlandsmótið í frjáisum íþróttum fer fram á Akureyr- arvelli nú um helgina. Mótið hefst kl. 14 á morgun og því verður fram haldið kl. 11 á sunnudag. 6 félög hafa skráð keppendur á mótið en þau eru UNÞ, HSÞ, UMSS, USAH, UFA og UMSE sem jafnframt sér um framkvæmd mótsins. Keppt verður í 29 greinum á þessum tveimur dögum. Búast má við skemmtilegri keppni en margir kunnir íþróttamenn munu leiða þarna saman hesta sína. Meðal keppenda má nefna spjót- kastarann Sigurð Matthíasson úr UMSE, Gísla Sigurðsson UMSS sem skráður er í keppni í stang- arstökki, kastarana Helga Þór Helgason og Guðbjörgu Gylfa- dóttur úr USAH auk margra annarra ágætra og efnilegra íþróttamanna. JHB Akureyri: Öldungameistaramót íslands í golfi Öidungameistaramót íslands í golfi fer fram á golfvellinum að Jaðri um helgina. Mótið verð- ur sett í dag kl. 8.45 og keppn- in sjálf hefst stundarfjórðungi síðar. Metþátttaka verður í mótinu að þessu sinni því rúm- lega 100 keppendur hafa skráð sig til leiks. Keppt verður tveimur flokkum, karla- og kvennaflokki. Heimild til þátttöku í karlaflokki hafa allir sem orðnir eru 55 ára og eldri. Leiknar verða 54 holur án forgjafar en forgjöfin gildir á 36. Heimild til þátttöku í kvenna- flokki hafa konur sem orðnar eru 50 ára og eldri. Þær munu leika 36 holur með og án forgjafar. Mótinu lýkur á sunnudag. JHB Fmrnita Reykjavíkur- maraþonið Þann 21. ágúst nk. fer fram 5. Reykjavíkurmaraþonið. Flest- ir ættu nú að vera komnir í góða æfingu fyrir þá vegalengd sem þeir ætla sér að keppa í en þær eru 7 km, hálf-maraþon og maraþon. í fyrra hlupu tæplega eitt þús- und manns en í ár er stefnt að því að gera hlaupið enn stærra. Verðlaunapeningar verða veittir öllum þeim sem ljúka hlaupinu til minningar um unnið afrek. Hlaupurum er bent á að skrá sig sem fyrst til að auðvelda mótshöldurum undirbúning. Skráning fer fram hjá Ferða- skrifstofunni Úrvali í síma 28522. Henni lýkur 15. ágúst.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.