Dagur - 12.08.1988, Blaðsíða 15

Dagur - 12.08.1988, Blaðsíða 15
12. ággst 1988 - DAGUR - 15 Undanúrslit Mjólkurbikarsins: Frábær vöm ÍBK varð banabiti Leifturs - Keflvíkingar sigruðu 1:0 og mæta Valsmönnum í úrslitum Það voru ánægðir Keflvíkingar sem héldu heim frá Olafsfirði í gærkvöld eftir að þeim tókst að tryggja sér sæti í úrslitum Mjólkurbikarsins með einu marki sem þeir skoruðu á fyrstu mínútum leiksins. Leikurinn var ágætlega spilað- ur, sérstaklega af hálfu heima- manna sem áttu hann nánast allan þrátt fyrir að þeir hafí ekki náð að skapa sér fleiri færi en gestirnir. Það má því segja að úrslitin hafí verið sanngjörn þrátt fyrir gang leiksins því í fótbolta skiptir máli að skora mörk. ÍBK fékk fljúgandi byrjun og skoraði strax á 8. mínútu. Liðið átti þá góða sókn, Leiftursmönn- um tókst ekki að hreinsa frá og boltinn barst til Grétars Einars- sonar sem skaut þrumuskoti efst í markhornið, óverjandi fyrir Þor- vald Jónsson markvörð. Markið kom eins og köld vatnsgusa framan í Leiftursmenn en upp úr miðjum hálfleiknum fóru þeir að hressast, eða eftir að Þorsteinn Geirsson sendi stungu- sendingu á Hörð Benónýsson sem skaut beint á Þorstein Bjarnason, markvörð ÍBK. Það sem eftir var sóttu heimamenn nær látlaust en sterk vörn Kefl- víkinga bægði öllum hættum frá markinu. Leiftursmenn hófu síðari hálf- leik með látum og pressuðu lát- laust að marki ÍBK. Þeir fengu færi á 57. mínútu er Hörður Ben- ónýsson skallaði fyrir mark ÍBK. Þar voru þrír Leiftursmenn en enginn þeirra náði til boltans. A 63. mínútu átti Lúðvík Bergvins- son þrumuskot en rétt framhjá. Pressa heimamanna hélt áfram það sem eftir lifði leiksins en fær- in létu á sér standa. Keflvíkingar fengu nokkrar skyndisóknir en engin umtalsverð færi. Gústaf Ómarsson átti síðasta orðið í leiknum er hann sendi háan bolta utan af kanti fyrir mark ÍBK en knötturinn datt rétt framhjá 2. flokkur Þórs tapaði fyrir Stjörnunni, 1:2, þegar liðin mættust í Islandsmótinu í knattspyrnu á Akureyri á þriðjudagskvöld. Leikurinn fór fram við mjög góðar aðstæður en þrátt fyrir það var lítið um góða knattspyrnu og Þórsarar áttu einn af slakari leikjum sínum í sumar. Leikurinn var í járnum framan af en Þórsarar voru þó öllu meira með boltann, eins og reyndar all- stönginni fjær og það voru mjög vonsviknir Leiftursmenn sem gengu af velli í leikslok. Keflvíkingar geta fyrst og fremst þakkað það sterkri vörn að þeir báru sigur úr býtum í leiknum. Erfitt er að taka einn mann sérstaklega út en öll vörnin stóð sig frábærlega. Gústaf Ómarsson og Þorsteinn Geirsson voru bestir heimamanna. Dómari var Sveinn Sveinsson og dæmdi hann erfiðan leik með ágætum. ÓH an leikinn. Það voru þó Stjörnu- menn sem náðu forystunni á 30. mínútu þegar knötturinn datt í markið eftir þversendingu. Stað- an í leikhléi var 1:0. Stjarnan bætti við öðru marki á 65. mínútu og var það látið standa þrátt fyrir megnan rang- stöðufnyk. Þórir Áskelsson minnkaði muninn fyrir Þór á 83. mínútu og í kjölfarið fylgdu tvö dauðafæri Þórsara. En boltinn vildi ekki í netið og Þórsarar urðu að sætta sig við ósigur. JHB Knattspyrna 2. flokkur: Þórsarar töpuðu fyrir Stjömunni Knattspyrna 4. deild: Kormákur treystí stöðu sína á toppi riðilsins er liðið sigraði Eflingu Heil umferð fór fram í D-riðli 4. deildar íslandsmótsins í knattspyrnu á miðvikudags- kvöldið. Efling og Kormákur léku á Laugavelli, Æskan og HSÞ-b á Svalbarðseyri og Vaskur og Neisti á Akureyr- arvelli. Kormákur sigraði Efl- ingu og treysti þannig stöðu Staðan 4. deild, D-riðill Úrslit í 12. umferð: Efling - Kormákur 0:1 Æskan - HSÞ-b 2:2 Vaskur - Neisti 3:3 Kormákur 10 6-2-2 17:11 20 HSÞ-b 10 4-5-1 25:16 17 Neisti 10 3-4-3 17:16 13 Æskan 8 3-2-3 18:17 11 Vaskur 9 2-3-4 13:18 9 UMSE-b 7 2-2-3 10:13 8 Efling 9 2-2-5 10:18 8 sína á toppi riðilsins en jafn- tefli varð í hinum leikjunum tveimur. Efling - Kormákur Leikurinn var jafn og skemmti- legur þrátt fyrir að lítið væri um opin marktækifæri. Hvorugu liðinu tókst að skora í fyrri hálf- leik og lengi vel leit út fyrir að leiknum myndi ljúka með markalausu jafntefli. Á loka- mínútunum gerðist hins vegar markvörður Eflingar brotlegur inni í eigin vítateig og víta- spyrna var dæmd sem Grétar Eggertsson skoraði úr og tryggði liði sínu þannig sigur- inn. Æskan - HSÞ-b Leikur Æskunnar og HSÞ-b var mjög kaflaskiptur. Heimamenn byrjuðu betur og voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleikn- um. Þeir náðu tveggja marka forystu með mörkum Arnars Kristinssonar og Baldvins Hall- grímssonar og þannig var stað- an í leikhléi. 1:0 í síðari hálfleiknum snérist dæmið við og gestirnir náðu undirtökunum. Þeir náðu að jafna leikinn með mörkum þeirra Jóhanns Pálssonar og Ófeigs Fanndal og undir lokin bættu þeir þriðja markinu við. Það var hins vegar dæmt af vegna rangstöðu og úrslitin því sanngjarnt jafntefli þegar á heildina er litið. Vaskur - Neisti Þessi leikur var opinn og skemmtilegur og einkenndist af mikilli baráttu. Hann var nokk- uð kaflaskiptur og komust leik- menn Vasks í 2:0 með mörkum þeirra Sigurðar Skarphéðins- sonar og Gunnars Berg. En Neistamenn gáfust ekki upp og Björn Sigtryggsson og Höskuld- ur Héðinsson skoruðu sitt markið hvor fyrir hlé og jöfn- uðu þannig leikinn. í síðari hálfleiknum bætti hvort lið við einu marki og úrslitin urðu 3:3. Það var Höskuldur Héðinsson sem skoraði fyrir Vask og Birgir Þórðarson fyrir Neista. JHB -- Ein margra sóknarlota Leifturs rennur út í sandinn. Halldór Guðmundsson sækir að marki Keflvíkinga en Þorsteinn Bjarnason er búinn að góma knöttinn. Mynd: TLV Sauðárkrókur: Króksmót í knattspymu Það verða um 170 pollar og hnátur sem munu elta tuðru á Sauðárkróki um helgina á Króksmótinu. Það er Tinda- stóll sem sér um framkvæmd mótsins og þeir flokkar sem munu keppa eru 7., 6. og 5. flokkur. Auk heimamanna munu Blöndósingar, Hofsós- ingar, Ólafsfírðingar og Dal- víkingar senda lið til keppni og jafnvel frá fleiri stöðum þar sem óvíst var með þátttöku fleiri liða í 7. flokki. Keppendur munu mæta á Krókinn í kvöld og byrja á því að fá frítt inn á leik Tindastóls við ÍBV í 2. deildinni. Króksmótið hefst svo á morgun og heldur áfram á sunnudag. Leikið verður á 3 völlunt á Nöfunum, 2 vellir verða á Marteinstúni og einn á Skallaflöt. Foreldrar krakkanna í Tindastól hafa tekið virkan þátt í undirbúningi fyrir mótið og munu sjá um griílveislu og kvöld- vöku í Grænuklauf á laugardags- kvöld fyrir keppendur á Króks- mótinu. Verðlaun verða svo afhent í mótslok á sunnudag og fá allir keppendur viðurkenningarspjöld. Stefnt er að því að gera Króks- mótið að árvissum viðburði, en í fyrra hélt Tindastóll afmælismót í tilefni 80 ára afmælis félagsins þar sem 180 pollar kepptu, og var það kveikjan að Króksmótinu í ár. -bjb 5. og 6. flokkur Tindastóls saman komnir ásaint þjálfara sínum Árna Ólafs- syni. Þessir flokkar verða á fleygiferð um helgina á Króksmótinu, ásamt jafnöldrum sínum víðs vegar af Norðurlandi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.