Dagur - 24.08.1988, Síða 2
2 - DAGUR - 24. ágúst 1988
Skagaströnd:
Fjárlagabeiðnir fyrir
næsta ár afgreiddar
- Qárhæð samtals 16 milljónir
Hreppsnefnd Höfðahrepps hef-
ur samþykkt fjárlagabeiðnir
fyrir árið 1989 að fjárhæð 16
millj. króna.
Áhersla er lögð á fjárveitingar
til framkvæmda við Skagastrand-
arhöfn og hljóða beiðnirnar upp
á 7 milljónir til uppgjörs vegna
dýpkunar á höfninni frá árinu
1988 og tvær milljónir vegna
aðstöðu fyrir smábáta.
Farið er fram á eina milljón
króna vegna gatnagerðar og
skipulags, 2 milljónir vegna
áframhaldandi framkvæmda við
leikskóla, vegna grjótvarnar við
Fjörubraut 3 milljónir og til byrj-
unarframkvæmda við skóla-
stjórabústað 1 milljón króna.
fh
Norrænir bankamenn
með ráðstefiiu
Fjölmenni var við athöfnina að Örlygsstöðum og hér er Halldór Þ. Jónsson sýslumaður Skagafjarðarsýslu að halda
ræðu.
Örlygsstaðir:
Fjölmenni við afhjúpim
minnisvarðans
- 750 ár liðin sl. sunnudag frá Örlygsstaðabardaga
Rösklega eitt hundrað norrænir
bankamenn sitja fræðsluráð-
stefnu í Reykjavík dagana 24,-
26. þessa mánaðar. Yfirskrift
ráðstefnunnar er: Góð starfs-
menntun - besta atvinnuöryggið.
Fjölmörg erindi verða flutt um
störf bankamanna, menntun
þeirra og starfsþjálfun.
Sérstakur gestur ráðstefnunnar
verður Anker Jörgensen, fyrrver-
andi forsætisráðherra Danmerk-
ur, og flytur hann erindi um
Norðurlöndin og önnur Evrópu-
lönd, Evrópubandalagið, sam-
skipti Norðurlanda og annarra
Evrópulanda á sviði efnahags- og
atvinnumála o.fl.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra flytur erindi við upphaf
ráðstefnunnar og fjallar meðal
íslenska landsliðið í hand-
knattleik hefur sungið inn á
hljómplötu og kom hún í
annars um þjóðfélagsleg viðhorf
til bankaþjónustu og menntunar
bankamanna.
Fulltrúar allra Norðurland-
anna leggja fram efni til
umfjöllunar og að auki talar Thi-
erry Noyelle, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Columbiaháskóla í
Bandaríkjunum. Hann reifar
niðurstöður nýrrar skýrslu Efna-
hags- og þróunarstofnunarinnar
um þróun þjónustu banka og
annarra fjármála- og viðskipta-
stofnana.
Norræna bankamannasam-
bandið skipuleggur ráðstefnuna
með aðstoð Sambands íslenskra
bankamanna. Á dagskránni eru
m.a. heimsóknir í Bankamanna-
skólann, Seðlabanka íslands og
fræðsluiniðstöð Landsbanka
íslands í Selvík.
verslanir í gær. Það er hljóm-
plötuútgáfan Stcinar sem
gefur plötuna út og ailur ágóði
Sl. sunnudag voru liðin 750 ár
frá því að Orlygsstaðabardagi
var háður og í tilefni þess var
minnisvarði aflijúpaður með
athöfn að Örlygsstöðum. Fjöl-
menni var viðstatt athöfnina í
góðu veðri. Það var sýslumað-
ur Skagafjarðarsýslu, Halldór
af útgáfunni rennur til farar
íslenska landsliðsins á Ólymp-
íuleikana í Seuol.
Þ. Jónsson, sem afhjúpaði
minnisvarðann. Á honum
stendur: Fjörbrot þjóðveldis-
ins - Örlygsstaðabardagi 21.
ágúst 1238.
Athöfnin hófst með því að
Halldór Þ. Jónsson sýslumaður
flutti ávarp og lýsti m.a. aðdrag-
anda að því að minnisvarði væri
reistur á Örlygsstöðum. Því næst
talaði Gunnar Gíslason, en hann
er formaður menntamálanefndar
Skagafjarðarsýslu sem hafði veg
og vanda af því að láta reisa
minnisvarðann og var það sýslu-
nefnd sem fól henni það. Gunnar
þakkaði þeim aðilum sem áttu
hlut að máli og afhenti Halldóri
sýslumanni minnisvarðann til
afhjúpunar.
Áð lokinni afhjúpun flutti Jón
Torfason frá Torfalæk, sagnfræð-
ingur, fróðlegt erindi um Örlygs-
staðabardaga og aðdraganda
hans. Athöfninni að Örlygsstöð-
um lauk með því að kór undir
stjórn Stefáns Gíslasonar söng
nokkur lög.
Auk minnisvarðans, sem er
stuðlabergsdrangur, verður sett
upp við gerðið á Örlygsstöðum
vettvangskort á álplötu af Örlygs-
staðabardaga sem fengið er úr
Sturlunguútgáfu bókaforlagsins
Svart á hvítu. Umsjón með þessu
hafði Jón Gauti Jónsson á Sauð-
árkróki. Verður kortið sett í
vörðu og látið standa stutt frá
minnisvarðanum. Meiningin er
að gera veg upp að gerðinu á
Örlygsstöðum, þannig að ferða-
fólk á að geta farið þarna og
skoðað þennan fræga sögustað.
-bjb
Nýstárleg plötuútgáfa:
„Við gerum okkar besta“
- syngja strákarnir í handboltalandsliðinu
Islenska handknattleikslandsliðið, ásamt Ladda. Svo sem sjá má eru margir
liðtækir gítarleikarar í hópnum!
Það er Valgeir Guðjónsson
sem semur og syngur lagið „Við
gerum okkar besta“ ásamt Ladda
og svo auðvitað íslenska landslið-
inu. Stefnan var strax tekin á að
gera vandaða útgáfu af laginu,
sem ekki aðeins yrði íslenska
landsliðinu til hvatningar og
sóma heldur myndi útgáfan einn-
ig endurspegla þá kunnáttu og
hæfileika sem eru til staðar hjá
þeim aðilum sem starfa við sköp-
un og útgáfu íslenskrar tónlistar.
Til þess að sýna fram á fjöl-
breytni og möguleika þá sem fyr-
ir hendi eru við gerð eins lags var
ákveðið að hafa þrjár mismun-
andi útgáfur af laginu.
Aðalútgáfa lagsins heitir „Ger-
um okkar besta“ og er sungin af
Valgeiri Guðjónssyni ásamt
landsliðinu. Stórgrínarinn Laddi
var kvaddur til við gerð annarr-
ar útgáfunnar og svo syngur
landsliðið sjálft þriðju útgáfuna.
Markmið Steina hf. er að selja
10.000 eintök af plötunni og er
hún seld á lægra verði en gengur
og gerist um almennar plötur.
Einnig eru lögin gefin út á
snældu.
Ástæða er til að hvetja lands-
menn til að kaupa plötu eða
snældu og sýna þannig í verki
stuðning við handknattleikinn í
landinu. Drífðu þig því út í búð
og gerðu þitt besta í stuðningi við
handboltastrákana okkar. AP
Tæplega 500
krónur á mann
- til vega
Árið 1987 var alls veitt 124
milljón króna framlag af fjár-
lögum til vega í kaupstöðum
og þéttbýlisstöðum með 200
íbúa eða fleiri.
Samkvæmt lögum, ber að taka
25% af þeim peningum til sér-
í þéttbýli
stakrar úthlutunar svo eftir stóðu
93 milljónir.
Samkvæmt mannfjöldatölum
Hagstofunnar bjuggu 1. desem-
ber 1986 218.823 í kaupstöðum
og kauptúnum, svo veitt hefur
verið 425 krónum á mann til
lagningar og viðhalds vega. VG
Vísitala byggingarkostnaðar:
ll,l%hækkun
- á þremur mánuðum
Hagstofan hefur reiknað vísi-
tölu byggingarkostnaðar eftir
verðlagi um miðjan ágústmán-
uð 1988. Reyndist hún vera
124,3 stig, eða 0,65% hærri en
. júlí. Þessi vísitala gildir fyrir
september 1988. Samsvarandi
vísitala miðuð við eldri grunn
er 398 stig.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 22,7%. Síðustu þrjá
mánuði hefur vísitalan hækkað
um 11,1% og samsvarar það
52,2% árshækkun.
Hækkun á verði steypu í júlí-
mánuði sl., sem ekki var að fullu
komin fram í vísitölu þess mán-
aðar, olli um 0,2% hækkun bygg-
ingarvísitölu í ágúst, en að öðru
leyti má einkum rekja breytingar
vísitölunnar frá júlí til ágúst til
ýmissa verðhækkana á bygging-
arvörum.