Dagur - 24.08.1988, Síða 16
wmm,
Akureyri, miðvikudagur 24. ágúst 1988
TEKJUBREF• KJARABREF
FJÁRMÁL ÞÍN - SÉRGREIN OKKAR
FIARFESTINGARFELACID
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Það kemur með kalda vatninu.
Mynd: GB
Egilsstaðir:
Bæjarstjóm gagnrýnir
þjónustu Flugleiða
Bæjarstjórn Egilsstaða hefur
samþykkt þrjár tillögur er lúta
að llugsaingönguni á Austur-
landi. I fyrsta lagi beinir bæjar-
stjórnin þeim tilmælum til
samgönguráðherra að við
endurnýjun flugrekstrarleyfis á
flugleiðinni milli Egilsstaða og
Reykjavíkur vcrði haft í huga
að gefa fleiri flugrekstraraðil-
um kost á að þjóna þessu
markmiði og sérstaklega verði
tekið tillit til atvinnumála á
Austurlandi.
Akureyri:
Enn vantar
fóstrur
Óbreytt ástand er í fóstru-
ráðningum á Akureyri og enn
vantar um 10 fóstrur til starfa,
að sögn Sigríðar M. Jóhanns-
dóttur dagvistarfulltrúa.
Fóstruskorturinn bitnar mis-
jafnlega á dagvistum bæjarins.
Sigríður sagði að stefnt væri að
því að fá eina fóstru á hverja
deild og auðvitað væri best ef þær
væru tvær, en þær vonir væru
fjarlægar. Nokkur dagheimili
hafa enn ekki fengið fóstrur til
starfa nema í stöðu forstöðu-
manns, önnur eru tiltölulega vel
mönnuð. SS
Svipaðar tillögur, um afnám
einkaleyfis Flugleiða, hafa komið
fram á Akureyri og ísafirði.
Austfirðingar eru mjög háðir
flugsamgöngum og að sögn
Sigurðar Símonarsonar bæjar-
stjóra er flugið oft eina færa leið-
in á veturna til Reykjavíkur og
því sjálfsagt að fara fram á góða
þjónustu.
Önnur tillagan hljóðar svo:
„Bæjarstjórn Egilsstaða skorar á
Flugleiðir hf. að taka upp aukið
samstarf við Flugfélag Austur-
lands hf. með það að markmiði
að etla farþega- og vöruflutninga
þess á flugleiðinni Egilsstaðir-
Reykjavík-Egilsstaðir. I því sam-
starfi beri að stefna að því fyrir-
komulagi að fyrsta flug hvers
dags frá Egilsstöðum til Reykja-
víkur geti hafist mun fyrr á
morgnana en nú er.
Sigurður sagði að morgunvélin
færi ekki fyrr en um hálf tólf frá
Egiisstöðum og því nýttist dagur-
inn illa í Reykjavík fyrir þá sem
þangað þurfa að skjótast í ein-
hverjum erindagjörðum. Með
þessu móti þyrftu menn yfirleitt
að reikna með gistingu eina nótt í
Reykjavík, en slíkt ætti að vera
óþarfi ef þjónustan væri betri.
í þriðja lagi felur bæjarstjórn
Egilsstaða atvinnumálanefnd að
undirbúa tillögur varðandi fram-
tíðarskipan flugsamgangna til og
frá Egilsstöðum. Þar er um að
ræða atriði á borð við lækkun far-
gjalda, bætta þjónustu, aukna
hagkvæmni og aukinn þátt
heimamanna í flugrekstri. SS
Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki:
Aðsókn mjög góð
- ný álma heimavistar tekin í notkun
Fjölbrautaskólinn á Sauðár-
króki verður settur mánudag-
inn 5. september nk. og
kennsla hefst sama dag.
Aðsókn í skólann hefur verið
mjög góð og búið er að fylla öll
vistarpláss. Alls bárust á milli
120-130 nýjar umsóknir um
skólavist og í skólanum verða
rúmlega 250 nemendur í vetur.
Búið er að manna allar
kennarastöður.
Að sögn Jóns Hjartarsonar
skólameistara verður sú nýjung í
vetur að boðið verður upp á B-
löggildingarnám fyrir rafvirkja og
rafvélavirkja. „Það er greinileg
þörf fyrir þessu námi því það
voru komnar 8 umsóknir áður en
við auglýstum,“ sagði Jón.
Heimavistarrými skólans er
fyrir löngu orðið fullt og fyrr í
sumar varð að vísa um 30
nemendum frá. Það voru allt
nemendur utan Norðurlands
vestra. í haust verður tekin í
notkun ný álma heimavistar skól-
ans sem tekur alls 28 pláss. Þessa
dagana fer fram lokafrágangur á
því vistarrými. Fyrir var pláss fyr-
ir 50 nemendur og eftir er að
ganga frá tveim álmum í heima-
vistinni, sem munu livor um sig
taka 28 pláss. Sótt verður um
fjárveitingu fyrir þær álmur á
næsta ári þannig að þær verði til-
búnar haustið ’89. Þannig að á
næstu önnum munu bætast við
um 100 ný heimavistarpláss við
Fjölbrautaskólann. Útibú
skólans, eða það húsnæði sem
skólinn leigir fyrir nemendur, tel-
ur nú um 30 pláss.
Að sögn Jóns Hjartarsonar eru
í gangi samningar við ríkið um að
gera verkáætlun fyrir byggingu
bóknámshúss skólans og er sú
áætlun miðuð við að framkvæmd-
ir hefjist á næstu 4 árum. í haust
er stefnt að því að arkitekt fari að
vinna við teikningarnar að
skólanum. Þannig að ljóst er að
einhver hreyfing er að komast á
byggingu langþráðs bóknáms-
húss. Það húsnæði sem skólinn
hefur yfir að ráða núna er allt að
því sprungið vegna þrengsla og
aðstaða öll í lágmarki. -bjb
Fjallvegir 1987:
Lágheiðin
lokuð í
155 daga
- vetrarþjónusta
í Ólafs^arðarmúla
helmingi dýrari
en á Öxnadalsheiði
Öxarfjarðarheiðin er sá fjall-
vegur á landinu sem lcngst var
lokaður vegna snjóa árið 1987,
eða alls í 237 daga. Næst á eftir
henni kemur Hólssandur sem
lokaður var í 223 daga og þar
næst Lágheiðin í 155 daga.
Ef litið er í aðra átt, var Vatns-
skarð nyrðra eini fjallvegurinn
sem aldrei var lokaður vegna
snjóa þetta ár. Siglufjarðarvegur-
Fljót var aðeins lokaður í 2 daga,
Öxnadalsheiðin í 4 daga og
Ólafsfjarðarmúli í 14 daga.
Kostnaður við vetrarþjónustu
1987 nam alls 142 milljónum
króna og hafði lækkað úr 229,7
milljónum frá árinu áður. Af því
fóru 2,4 milljónir í þjónustu við
Ólafsfjarðarmúla, 2,1 á Öxna-
dalsheiði og 2,5 á Siglufjarðar-
vegi. Vetrarþjónusta á hvern km
í Ólafsfjarðarinúla kostaði 138
þúsund, 70 þúsund á Öxnadals-
heiði og 82 þúsund á Siglufjarð-
arvegi. VG
Akureyri:
Framhjáhald“ við Hlíðarbraut
Á gatnamótum Hlíðarbrautar
og Austursíðu í Glerárhverfi
vinna menn nú hörðum hönd-
um við það sem gárungarnir
kalla framhjáhald, þ.e. verið
er að breyta gatnamótunum
þannig að bílar geti skotið sér
auðveldlega hvort heldur sem
er til austurs eða vesturs frá
Austursíðunni.
Gunnar Jóhannesson deildar-
verkfræðingur hjá Akureyrarbæ
sagði verkið nokkuð kostnaðar-
samt, en verið væri að Iaga
gatnamótin að vaxandi bílaum-
ferð. íbúar hluta Síðuhverfis á
Akureyri nota Austursíðu
gjarnan á leið til og frá heimili
sínu, en að auki er talsvert iðn-
aðar-, eða athafnasvæði austan
götunnar. Umferð þar um er
því talsverð.
Þá er unnið að undirbúningi
malbikunar frá Drottningar-
braut upp í Þórunnarstræti, upp
brekkuna hjá Naustafjöru.
Gunnar sagði að brátt yrði haf-
ist handa við malbikunina. Af
öðrum verkum á þessum vett-
vangi á vegum bæjarins má
nefna að unnið hefur verið að
gerð gangstétta víða um bæinn.
mþþ
Um þessar mundir er unnið við að breyta gatnamótum Hlíðarbrautar og
Austursíðu í Glerárhverfi. Mynd: tlv