Dagur - 02.09.1988, Síða 1

Dagur - 02.09.1988, Síða 1
Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMKNR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Skagaströnd: Rekstur Mána- varar að stöðvast - vegna verkefna- og prmagnsskorts Loks rofaði x tilí Ólafsfirði Ekki linnir enn rekstrarörðug- leikum ýmissa fyrirtækja og líkur orðnar fyrir því að árið 1988 verði skráð ár gjaldþrot- anna á spjöldum sögunnar. „Þetta er allt í kalda koli og ég veit ekki hvað við lifum mikið lengur,“ sagði Ómar Haralds- son, framkvæmdastjóri Mána- varar, í samtali við Dag. Mánavör hefur á undanförnum árum starfrækt slipp og trésmiðju og einnig framleitt ýmislegt, þó aðallega smábáta, úr trefjaplasti. Mánavör hefur verið eitt þeirra fyrirtækja sem hafa haldið uppi gróskumiklu atvinnulífi á Skaga- strönd. Nú sagði Ómar að verið væri að enda við smíði á stórum plastbát sem þegar væri seldur en önnur verkefni væru ekki í sjón- máli. fh Hlynur hf. fékk flug- stöðvarbygginguna á Sauðárkróki - framkvæmdir hefjast eftir 10 daga Sagt var í blaðinu í gær frá opnun tilboða í flugstöðina á Alexandersflugvelli á Sauðár- króki. Tvö tilboð bárust, frá Trésmiðjunni Borg og Bygg- ingarfélaginu Hlyn, og var Hlynur með lægra tilboð, en bæði voru þau nokkuð yflr kostnaðaráætlun. Flugmála- stjórn hefur ákveðið að taka tilboði Hlyns hf. og verður gengið frá samningum upp úr helginni. Framkvæmdir við flugstöðina hefjast í kringum 12. september nk. Tilboð Hlyns hljóðaði upp á rúmar 13,9 milljónir en kostnað- aráætlun var rúmar 12,6 milljónir króna. Tilboðið frá Trésmiðjunni Borg hf. var upp á rúmar 14,2 milljónir. „Það skal tekið fram að kostnaðaráætlunin er á verðlagi sem gildir í dag, en flugstöðin er boðin út á föstu verði. Þar sem það er 6 mánaða framkvæmda- tími á flugstöðinni gerðu tilboðin ráð fyrir einhverri verðbólgu á því tímabili, en áætlunin er án nokkurra verðbóta,“ sagði Jó- hann Jónsson hjá Flugmálastjórn í samtali við Dag, en hann er yfir- maður yfir framkvæmdum á flug- völlum landsins. Tilboðið í flugstöðina gerir ráð fyrir að hún verði fuilkláruð og verði tilbúin í mars á næsta ári, þannig að hún verður komin í fulla notkun næsta sumar. Bygg- ingin er um 240 m' að stærð, með flugturni. Sams konar flugstöð var opnuð á Vopnafirði fyrir skömmu, en hún er um 40 fer- metrum minni en flugstöðin á Alexandersflugvelli. Sem fyrr segir hefjast framkvæmdir um miðjan þennan mánuð og er gert ráð fyrir að ljúka byggingunni að utan um áramót. -bjb Hættuástandi hcfur verið aflýst í Ólafsfírði og bæjarbúar því farnir að hreinsa til af fullum krafti eftir ósköpin. A myndinni er verið að fjarlægja bíla sem aurskriðurnar skiluðu niður í húsagarð. Mynd: Jón Kicmensson - Lækir að minnka og hlíðin að þorna „Jú, það er farið að rofa til, bæði fyrir ofan okkur og eins í sálinni,“ sagði Guðbjörn Arn- grímsson í Olafsfirði er við höfðum samband við hann í gær. Þá var loks hætt að rigna í Ólafsfirði og orðið léttskýjað. Lækir eru óðum að minnka og hlíðin að þorna. Guðbjörn sagði að fólk hefði yfirleitt farið til vinnu sinnar í gær en mikið sjálfboðaliðastarf væri framundan um helgina við að hreinsa garða og reyna að bjarga gróðri. Hann sagði að bæjarbúar hefðu meira og minna verið frá vinnu síðan um síðustu helgi og hann reiknaði með að at- vinnurekendur vildu fara að sjá sitt fólk. „í>að eru allir samhuga um að rífa þetta upp aftur og reyna að bæta þessi sár. Það verða mörg ár eða áratugir þangað til sárin í fjöllunum gróa þótt byrjað verði að græða strax, eins og sést á því að það mótar enn fyrir skriðu sem féll fyrir 26 árum,“ sagði Guðbjörn. SS Ólafsfjörður: Hættuástandi aflýst - bæjarbúar hafa orðið fyrir gríðarlegu tjóni Almannavarnanefnd Ólafs- fjarðar ákvað á fundi í gær- morgun að aflýsa hættuástandi í brekkunni en í fjallinu ofan við bæinn var ástandið talið ótryggt og átti að kanna það nánar seinnipartinn í gær, að sögn Þorsteins Björnssonar bæjarverkfræðings. Þá fóru menn gangandi í Múlann, bæði Ólafsfjarðarmegin og Dalvík- urmegin. Ljóst er að vegurinn í Ólafs- fjarðarmúla er mikið skemmdur og gríðarlegt verk að gera hann færan á ný. Skemmdir í kaup- staðnum sjálfum eru líka miklar og höfðu yfir 50 aðilar tilkynnt um tjón þegar síðast fréttist. Tryggingafélög og Viðlagatrygg- Hækkun byggingarvísitölu fældi aldraða frá kaupum Nokkrir kaupendur að íbúðum aldraðra við Víðilund á Akur- eyri hafa helst úr lestinni og hætt við kaupin. Sigurður Ringsted, formaður Fram- kvæmdancfndar um íbúða- byggingar aldraðra við Víði- lund, telur að mikil hækkun byggingarvísitölu í júlíbyrjun hafi gert fólk hrætt þannig að nokkrir aldraðir hættu við að kaupa í Víðilundi. Nú eru til sölu ellefu íbúðir í nokkrir hafa helst úr lestinni síðara fjölbýlishúsinu, sem áformað er að reisa við Víðilund, og fjórar raðhúsaíbúðir. „Fólkið hrundi hreinlega frá okkur, það voru komnir kaupendur að öllum íbúðunum nema fjórum í síðara fjölbýlishúsinu og einni raðhúsa- íbúð. Fólk er eðlilega hrætt við þessar sífelldu verðhækkanir því gömlu húsin hækka ekki í takt við kostnaðarhækkanir nýbygg- inga,“ sagði Sigurður, og bætti við að ef vel tækist til með verð- stöðvunina kæmust hlutirnir fljótlega í lag aftur. Reyndar væri þegar farið að bera á því að fólk sýndi íbúðum aldraðra áhuga á ný. Að sögn Sigurðar varð mæl- ingamönnum á vegum Akureyr- arbæjar eitthvað á í messunni þegar raðhúsagrunnurinn var staðsettur, því það skeikaði um fjóra metra á austurendanum. Þetta hefur nú verið lagfært á kostnað Akureyrarbæjar. Nýlega var gengið að tilboði Guðmundar Kristjánssonar í útgröft og fyllingu á grunni síðara fjölbýlishússins við Víðilund. Sigurður Ringsted sagði að fram- kvæmdanefndin hefði ákveðið að láta steypa botnplötuna fyrir vet- urinn a.m.k., en mikill hugur væri í nefndarmönnum að láta einnig steypa upp kjallara hússins fyrir frost. Ef það næðist yrði mun auðveldara og fljótlegra að byrja aftur næsta vor. EHB ing bæta aðeins hluta tjónsins og greinilegt að Ólafsfirðingar þarfnast aðstoðar vegna náttúru- hamfaranna. Þorsteinn Björnsson sagði í gær að almannavarnanefnd myndi koma aftur saman um kvöldið að lokinni skoðunarferð í fjallinu og þá yrðu teknar ákvarðanir um framhaldið. Hann sagði að hópar og einstaklingar frá nágrannasveitarfélögum hefðu boðið fram aðstoð sína og skipuleggja þyrfti sjálfboðaliða- starfið. Porsteinn Pálsson forsætisráð- herra, Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra, Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofn- unar og fleiri komu til Ölafsfjarð- ar á miðvikudag. Guðbjörn Arn- grímsson sagði að ástandið hefði verið kynnt fyrir þeim, bæði af myndbandi og með skoðunarferð um bæinn. Hann sagði að þeir hefðu lýst því yfir að allt yrði gert sem hægt væri til að koma bæjar- búum til hjálpar, enda stæði sveitarfélagið ekki undir slíku tjóni. Ekki hefur verið hægt að full- kanna tjónið hjá Óslaxi því vatn er enn gruggugt. Hins vegar er ljóst að þar hefur orðið milljóna- tjón og var eldisstöðin ekki tryggð gegn slíku tjóni. Framtíð fiskeldis í Ólafsfirði er því mjög óljós. SS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.