Dagur - 02.09.1988, Side 7
2. sépfemb'é'fí t988 -’ÖAGt/ft - 7
Gekk ég þar um garða -
sem gróðurilmiim lagði
- frá afhendingu viðurkenninga Garðyrkjufélags Akureyrar í Eyrarlandsstofu
Eigendur Hamragerðis 27, Löngumýrar 25 og Kringlumýrar 2 fengu endur-
viðurkenningu Garðyrkjufélagsins fyrir fagrar lóðir, gott viðhald og snyrti-
mennsku. Myndir: EHB
hversu mikil dásemd er að gróðr-
inum í náttúrunni:
Um smáragrund og grasahlíð
ergengið létt um sumartíð
og raulað blíðurómi
um allt, sem fyrir augun ber
og allt, sem vorið sýnir mér
leikur dularljómi.
Drottinn, hvílík dvergasmíð,
dögg á hverju blómi.
Þessu næst voru viðurkenning-
ar veittar. Garðyrkjuféiag Akur-
eyrar bauð gestum til kaffi-
drykkju og annarra veitinga í
Eyrarlandsstofu og var þetta hin
ánægjulegasta stund. EHB
Á sunnudag fór fram árleg afhending viðurkenn-
inga Garðyrkjufélags Akureyrar í Eyrarlands-
stofu. Veittar voru viðurkenningar fyrir garða og
lóðir einbýlishúsa, raðhúss, götu og eins fyrirtæk-
is, auk endurviðurkenninga. Garðyrkjufélag Ak-
ureyrar hefur um árabil veitt slíkar viðurkenn-
ingar og átt með þeim hætti stóran þátt í að
hvetja bæjarbúa til góðrar umhirðu um lóðir og
garða.
Á hverju ári er unnið í bæjar-
landinu við frágang og fegrun á
vegum garðyrkjudeildar bæjar-
ins. Bærinn hefur stækkað mikið
og þanist út en alltaf hefur verið
reynt að fegra sem víðast í öllum
hverfum eins og hægt hefur
verið. Samdráttur í þjóðfélaginu
hefur þó bitnað á þessari starf-
semi eins og mörgu öðru. Samt
tel ég að Akureyringar geti nokk-
uð vel við unað og vissulega fyll-
umst við stolti þegar utanbæjar-
menn tala um Ákureyri sem fal-
legan og þrifalegan bæ. Þá verður
manni hugsað til unga fólksins í
vinnuskólanum og í bæjarvinn-
unni sem er að þrífa og snurfusa
bæinn allt sumarið. Umhverfis-
nefnd óskar öllu því fólki sem nú
tekur við sínum viðurkenningum
til hamingju.
Áður en að afhendingu viður-
kenninganna kemur vil ég fara
með erindi úr kvæði annars
Akureyrarskálds, Guðmundar
Frímanns, þar sem hann lýsir því
Haukur Adolfsson tekur við viðurkenningu fyrir Ofnasmiðju Norðurlands,
en fyrirtækið fékk hana fyrir smekklegan frágang á húsi og lóð.
Frá afhendingu viðurkenninga fyrir fallegustu einbýlishúsalóðirnar, en
viðurkenningu hlutu eigendur Aðalstrætis 30, Áshlíðar 11 og Skálagerðis 3.
íbúar við Arnarsíðu 6 fengu viðurkenningu fyrir fallegustu raðhúsalóðirnar.
Þorsteinn Þorsteinsson, for-
maður Umhverfismálanefndar
Akureyrar, flutti eftirfarandi
ávarp við þetta tækifæri: Ég vil,
fyrir hönd umhverfisnefndar og
Garðyrkjufélags Akureyrar,
bjóða ykkur öll velkomin í Lysti-
garðinn. Tilefnið er, eins og allir
vita, afhending viðurkenninga
fyrir fagra garða, fegurstu götuna
og snyrtilegt umhverfi fyrirtækis
á Akureyri.
Umhverfisnefnd þakkar félög-
um í Garðyrkjufélagi Akureyrar
fyrir vel unnin störf. Það er mikið
verk að skoða alla garða í bæjar-
landinu og enn meira verk að
velja þá úr sem taldir eru fegurst-
ir því á Akureyri eru fjölmargir
garðar og götur sem bera eigend-
um sínum vitni um að þar fer
saman umhyggja og óeigingjarnt
starf. Það er fórnfúsri vinnu alls
þessa fólks að þakka að Akureyri
er fegurri og betri bær en ella.
Þetta hafa Akureyrarskáldin séð,
hvert á sínum tíma. Erindi úr
kvæði Davíðs Stefánssonar,
Blómagarður, hljóðar þannig:
Gekk ég þar um garða
sem gróðurilminn lagði
frá mold og bjarkarblöðum
og blómum ótal landa.
Þá var Drottins dagur
og dásamlegt að anda.
Kjörmarkaður KEA Hrísalundi 5
Þegar verslað er til helgarinnar
liggur leiðin í Hrísalund.
Úr kjötborði meðal annars:
★ Hvítlauksstungið lambalæri
★ Sinnepslegnar kótilettur
★ Lambaragú
★ Nautalundir
★ Folaldalundir
★ Piparsteik hússins
Góðar vörur * Hagstætt vöruverð * Góð þjónusta