Dagur - 02.09.1988, Blaðsíða 15

Dagur - 02.09.1988, Blaðsíða 15
 2. september 1988 - DAGUR - 15 Glíma: íslenskt landslið í fyrstu ferðinni erlendis - keppti í Frakklandi, Englandi og Skotlandi íslenska landsliðið í glímu gerði góða ferð til útlanda fyrir skömmu og keppti á fang- bragðamótum í Frakklandi, Englandi og Skotlandi. Keppt var í axlartökum og Gouren, sem eru bretónsk lausatök. Þrír piltar frá HSP voru í hópnum: ÞeirTryggvi Héðinsson sem keppti í 74 kg flokki, Hilmar Ágústsson sem keppti í 71 kg flokki og Arngrímur Jónsson sem keppti í 88 kg flokki. Þetta er í fyrsta sinn sem Glímusamband íslands sendir landslið í keppni erlendis eftir að sambandið gekk í alþjóðasamtök keltneskra fangbragðamanna, IFCW. Stefnt er að því á næstu árum að auka samskipti við erlendar þjóðir í gegnum þetta alþjóða- samband. Islendingar hafa lært fangbrögð hinna þjóðanna og íslenska glíman hefur verið sýnd erlendis. í framtíðinni er stefnt að því að þegar íslenskir glímu- menn keppa við erlenda kollega sína, verði keppt í tveimur grein- um, axlartökum eða Gouren annars vegar og íslenskri glímu hins vegar. Góðar líkur eru taldar á því að Islenska landsliöið í glímu og axlartökum. íslendingar fái að halda meistara- mót IFCW árið 1990 og yrði þá íslenska glíman þar meðal keppnisgreina. í þessu sambandi má nefna að franskir þjálfarar eru væntanlegir hingað til lands í febrúar til að kenna axlartök. Einnig vert að geta þess að á for- síðu fréttatímarits frönsku Gour- en-samtakanna voru svipmyndir af íslenskri glímu og grein um þjóðaríþrótt okkar í blaðinu. Keppnisferð íslenska landsliðs- ins gekk ntjög vel og var keppt í yngri og eldri flokki. Náðu marg- ir íslensku keppendurnir mjög langt og er það ótrúlegt miðað við að fæstir hafa keppt í þessunt greinum áður. Það er ljóst að svona keppnis- ferð örvar mjög áhuga á íþrótt- inni og jafnvel þótt ekki sé keppt í íslenskri glímu strax, þá hefur þetta jákvæð áhrif á vöxt glím- unnar hér á landi. Samskipti við aðrar þjóðir eru nauðsynleg í glímu, eins og í öðrum íþróttum, og raunverulega bráðnauðsynleg ef við ætlum ekki að láta þjóðar- íþrótt okkar deyja út. AP Þorvaldur meiddur og Bjöm í banni Svo getur farið að Þorvaldur Örlygsson geti ekki leikið með KA gegn Fram í Reykja- vík á morgun. Þorvaldur snérí sig á ökkla á æfíngu í vik- unni og í gær taldi hann ólík- legt að hann yrði orðinn nægilega góður til að geta leikið á morgun. Þetta yrði mikið áfall fyrir liðið þar sem Þorvaldur hefur leikið geysi- lega vel að undanförnu. Þá munu Völsungar ekki mæta með fullt lið í leikinn gegn Þór á Akureyri því fyrirliðinn Björn Olgeirsson var dæmdur í leikbann eftir síðustu urnferð þar sem hann var búinn að fá fjögur gul spjöld. Þetta gerist á slæmum tíma fyrir Húsvíking- ana því staða þeirra í deildinni er mjög erfið og þeir þurfa á öllu sínu að halda ef ekki á illa að fara. JHB Golfklúbbur Akureyrar: Gullsmíða- og Nafnlausi bikarinn - um helgina - ferðamótinu frestað Um helgina verða haldin tvö mót á golfvellinum að Jaðri. Á laugardag verður keppt um Gullsmíðabikarinn og daginn eftir um Nafnlausa bikarinn. Ferðamóti Útsýnar og Úrvals sem vera átti um helgina hefur hins vegar verið frestað til 17. og 18. september. Keppnin um Gullsmíðabikar- inn er 18 holu höggleikur, með og án forgjafar. Það mót hefst kl. 10 á laugardag. Nafnlausi bikar- inn er einnig höggleikur, cn með 3/4 forgjöf. Þurfa keppendur að vera mættir upp við Goifskála fyrir kl. 8.45 á sunnudagsmorgun til að geta tekið þátt. JHB Frjálsar íþróttir: UMSS íslandsmeistari í tugþraut karla Tryggvi Héðinsson úr HSÞ snýr hér breskan andstæðing sinn niður í axlar- tökuni. UMSS eignaðist íslandsmeist- ara í frjálsum íþróttum í Bikar- keppni FRÍ í fjölþraut, sem haldin var fyrir skömmu. Karlasveit UMSS vann tug- þrautina og sveitina skipuðu þeir Friðrik Steinsson og Gunnar Sigurðsson. Keppt var í sjöþraut kvenna, en keppni hætt vegna veðurs þegar tvær greinar voru eftir. Þar stefndi Berglind Bjarnadóttir UMSS á Islandsmeistaratitil. í einstaklingskeppni varð Flugleiðamótið er mönnum enn í fersku minni og þá sérstaklega hinn eftirminnilegi leikur íslendinga og Sovét- manna. Þessi mynd var hins vegar tekin á Húsavík er hin sterku landsliö Spánverja og Sovétmanna áttust við. Pálini Pálmason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Húsavíkur tilkynnir áhorfenduin eitthvað mjög mikilvægt í hátalarakerfínu og Ríkarður Ríkarðsson lögregluþjónn horfír á hann í forundran. Arnar Guðlaugsson er niðursokkinn í skriftir og Sveinn Pálsson lætur sig þetta litlu skipta og er sjálfsagt að velta fyrir sér hvort ekki sé hægt að hefja Ieikinn. AP Gunnar í öðru sæti, með 6276 stig, en fyrstur varð Þorsteinn Þórsson ÍR, fyrrverandi UMSS- ari. Friðrik varð þriðji með 5340 stig og í fjórða sæti varð Guð- mundur S. Ragnarsson USAH með 5231 stig. Félagi hans í USAH, Jón Heiðarsson hætti keppni. Þegar keppni í sjöþraut kvenna var hætt var Berglind með 3331 stig, 140 stigum á und- an næsta keppanda. Þriðja var síðan Sigurlaug Gunnarsdóttir með 2557 stig. Mjög slæmt veður var seinni dag mótsins, hífandi rok og rigning, og var þá hætt keppni í sjöþrautinni. Karlarnir héldu áfram og luku keppni við mjög erfiðar aðstæður. Þess skal getið að utan við bikarkeppnina tók Berglind Bjarnadóttir þátt í kringlukasti í innanfélagsmóti hjá Ármanni, og j>erði sér lítið fyrir og jafnaði Islandsmetið í stúlknaflokki, 17-18 ára, kastaði 39,06 m. Berglind hefur verið valin í unglingalandslið íslands í frjálsum íþróttum og keppir með því í Rennez í Frakklandi síðar í þessum mánuði á Evrópukeppni unglingaliða. -bjb Knattspyrna: Allt á fullu inn helgina - heil umferð í Um helgina fer fram heil um- ferð í SL-deild íslandsmótsins í knattspyrnu. Á morgun leika Þór og Völsungur á Akureyr- arvelli og hefst sá leikur kl. 14. Á sama tíma mæta KA-mcnn Frömurum á Laugardalsvelli, IA og IBK mætast á Akranesi kl. 14.30 og Leiftur og KR í Ólafsfírði kl. 17. Umferðinni lýkur síðan með leik Vals og Víkings sem fram fer á Vals- velli kl. 14 á sunnudag. í 2. deild verður einnig leikin heil umferð. Fylkir og FH mætast 1., 2. og 3. deild á Fylkisvelli á föstudagskvöld en á laugardag verða þrír leikir. Tindastóll og FH mætast á Sauð- árkróki, ÍBV og UBK í Eyjum og Víðir og KS í Garðinum. Umferðinni lýkur síðan á sunnu- dag með leik Þróttar og ÍR. Loks fer fram 14. og síðasta umferðin í B-riðli 3. deildar og fara allir leikirnir fram á laugar- dag. Magni og Huginn mætast á Grenivík, UMFS Dalvík og Þróttur á Dalvík, Hvöt og Sindri á Blönduósi og Einherji og Reyn- ir á Vopnafirði. JHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.