Dagur - 07.09.1988, Page 3
7. september 1988 - DAGUR - 3
Útgarður verður fluttur inn á Melgerðismela og þá þarf sendibúnaður Sjónvarps Akureyrar húsaskjól. Mynd: tlv
Sjónvarp Akureyri:
Sendibúnaðuriim
þarf húsaskjól
Húsnæði óskast
Óskum eftir 3ja-4ra herb. íbúð fyrir einn af starfs-
mönnum okkar frá 1. október.
Upplýsingar á skrifstofunni.
ístess hf. Glerárgötu 30, Akureyri S 96-26255
Vegna breytinga
40%
afsláttur
á öllum vörum
KOMPAN
SKIPAGÖTU 2 AKUREYRi SÍMI 96 25917
Sjónvarp Akureyri hefur haft
aðstöðu fyrir búnað sinn í
Útgarði, skálanum sem flug-
klúbbar á Akureyri keyptu af
Menntaskólanum. Skálinn
verður fluttur inn á Melgerðis-
mela í haust og þá missir Sjón-
varp Akureyri þetta húsaskjól
í Vaðlaheiðinni.
„Við komum til með að setja
þennan búnað upp í litlu húsi eða
einhverju slíku, en það er ekki
búið að taka endanlega ákvörðun
um það hvernig að málum verður
staðið," sagði Bjarni Hafþór
Helgason sjónvarpsstjóri.
Sjónvarp Akureyri er með
mastur rétt við skálann og sjálfan
sendibúnaðinn í herbergi í
skálanum. Þann búnað verður að
byggja yfir áður en skálinn verð-
ur fluttur. SS
Akureyrarbær:
Rætt um sölu á hluta-
bréfum í Oddeyri hf.
Atvinnumálanefnd Akureyrar-
bæjar hyggst leggja það til við
bæjarstjórn að bærinn selji
hlut sinn í útgerðarfyrirtækinu
Oddeyri hf. Eignarhlutur bæj-
arins í Oddeyri hf. er hátt í
40% og er nafnverð hlutabréf-
anna í kringum 11 milljónir
króna. Búast má við að tillaga
um sölu hlutabréfanna verði
lögð fram í bæjarstjórn á næst-
unni.
Björn Jósef Arnviðarson, for-
maður atvinnumálanefndar,
sagði að enn hefði ekki komið
fram nein formleg tillaga frá
atvinnumálanefnd um sölu hluta-
bréfanna, en hann sagðist hafa
hug á því að leggja slíka tillögu
fram. Málið hefur aðeins verið
rætt óformlega í nefndinni.
Aðspurður neitaði Björn því
að þessar hugmyndir væru fram
komnar í kjölfar sölu Reykjavík-
urborgar á lilut sínum í Granda,
því hugmyndir um að bærinn
seldi hlut sinn í Oddeyri væru í
raun býsna gamlar. „Það er ljóst
að það er áhugi fyrir því að
kanna sölu á bréfunum, að því
tilskildu að boðlegt verð fáist
fyrir þau, og þá í samráði við
aðra hluthafa," sagði Björn.
Auk Akureyrarbæjar eiga
Samherji hf. og K. Jónsson &
Co. hlut í Oddeyri hf. og eiga
þessi fyrirtæki forkaupsrétt á
Krossanesverksmiðjan:
Tilbúin að taka
við loðnu
„Við erum tilbúnir að taka við
loðnu hér og bíðum aðeins eft-
ir því að veiðin fari að
glæðast,“ sagði Geir Zoéga
forstjóri Krossanesverksmiðj-
unnar á Akureyri í samtali við
Dag.
Geir sagði að verksmiðjan
borgaði 3000-3300 kr. fyrir tonn-
ið eftir ferskleika en það er um
40% hækkun frá vertíðinni í
fyrra. í fyrra barst fyrsti loðnu-
farmurinn til verksmiðjunnar
þann 23. september en vertíðin
byrjaði þó ekki af neinum krafti
fyrr en í nóvember.
„Það hafa verið gerðar veru-
legar endurbætur á verksmiðj-
unni. Þá er verið að byggja hér
nýtt hús og það stendur til að
halda áfram í vetur með mjöl-
kvarnir og mjölkerfi og geta
þannig uppfyllt kröfur gæða-
mjölskaupenda," sagði Geir enn-
fremur. -KK
hlutabréfunum sem bærinn kann
að selja. Stjórnarformaður
Oddeyrar er Jón Sigurðarson og
framkvæmdastjóri er Þorsteinn
Már Baldvinsson. SS
Sveitarstjómir, forsvarsmenn
félaga, fyrirtækja og stofnana
Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra verða
til viðtals dagana 18.-21. september ’88 á eftir-
töldum stöðum:
Raufarhöfn sunnudaginn 18. sept.
Húsavík mánudaginn 19. sept.
Akureyri þriðjudag og miðvikudag 20. og 21.
sept.
Tímapantanir og frekari upplýsingar fást hjá Gunn-
ari Hilmarssyni sveitarstjóra Raufarhöfn, Bjarna Þór
Einarssyni, bæjarstjóra Húsavík og Valgarði Bald-
vinssyni, bæjarritara Akureyri.
Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra.
DANSSKÓLI
Komdu a5 dansa! Nú er tækifæri
Ertu einn af þessum sem alltaf hefur langað
til að læra að dansa, en aldrei þorað?
Nýr og ferskur dansskóli hefur göngu sína.
NámskeiÖ í:
k Barnadönsum
k Unglingadönsum
k Samkvæmisdönsum
k Gömludönsum
k Rock og tjútt
Námskeið fyrir hópa,
félagasamtök og einstaklinga.
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 26624 milli kl. 12og18.
Sigurbjörg D.S.Í.