Dagur - 06.10.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 6. október 1988
Sexmannanefnd:
Breytingar á grund-
vallarverði búvara
- samkomulag um grundvallarverð
á kartöflum
í framhaldi setningar bráða-
birgðalaga ríkisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar hefur
sexmannanefnd ákveðið
grundvallarverð á mjólk, ull,
kjöti og kartöflum.
Verðlagsgrundvöllur í mjólk
og nautakjöti hækkaði um rúm
6% frá 1. október. Ákveðið var
að fella niður áfangahækkanir í
verðlagsgrundvelli sauðfjár-
afurða en ákveðið að taka inn
svokallaða rekstrarvexti í
staðinn. Þetta gerir að verkum að
verðlagsgrundvöllur í sauðfjár-
rækt hækkar verulega meira en
annað, eða 8,9%. Að sögn
Hauks Halldórssonar formanns
Stéttarsambands bænda eru um
4% af þessari hækkun tilkomin
vegna rekstrarvaxtanna.
Breyting á grundvallarverði
ullar varð engin enda leyfir
heimsmarkaðsverð á ull ekki
hækkanir. Gærur lækka um 12%
frá síðasta ári og af þessum
tveimur ástæðum hækkaði kjöt
um 10,9%, að sögn Hauks Hall-
dórssonar.
Á fundinum náðist einnig sam-
komulag um grundvallarverð á
kartöflum en ekki hefur verið
skráð verð á kartöflum síðustu
tvö ár. Samkvæmt ákvörðun sex-
mannanefndar er framleiðenda-
verð á kartöflum þannig: Bökun-
arkartöflur 54,68 kr.. 1. flokkur
42,06 kr., 2. flokkur 29,44 kr., 3.
flokkur 12,62 kr.
Nú er unnið að verðskráningu
á eggjum og kjúklingum og má
vænta ákvörðunar á næstunni.
JÓH
Aðalfundur
Skákfélags Akureyrar
verður sunnudaginn 9. okt. kl. 14.00 í félagsheimili
Skákfélags Akureyrar, Þingvallastræti 18.
10. mín. mót verður í kvöld kl. 20.00.
Skákfélag Akureyrar.
Rafverktakar -
Rafiðnaðarmenn
Rafmagnseftirlit ríkisins býður rafverktökum og
öðrum rafiðnaðarmönnum á Akureyri og
nágrenni að koma á fræðslu- og umræðufund á
Hótel KEA föstudaginn 7. okt. kl. 14.00.
Rafmagnseftirlit ríkisins.
Handbolti
Æfingatímar
veturinn 1988-89
Meistaraflokkur karla
Mánudaga kl. 19.00-20.30
Þriðjudaga kl. 19.00-20.30
Miðvikudaga kl. 20.30-22.00
Fimmtudaga kl. 20.30-22.00
3. flokkur
Mánudaga
Miðvikudaga
Sunnudaga
4. flokkur
Mánudaga
Fimmtudaga
Sunnudaga
5. flokkur
Þriðjudaga
Fimmtudaga
Sunnudaga
6. flokkur karla
Þriðjudaga kl. 19.00-20.00
Sunnudaga kl. 9.30-11 .OO
Skemman
Höll
Skemman
Höll
karla
kl. 17.00-18.00 Skemman
kl. 17.00-18.00 Skemman
kl. 1 6.00-1 7.00 Höll
karla
kl. 17.00-18.00 Glerárskóli
kl. 19.00-20.00 Glerárskóli
kl. 15.00-16.00 Höll
karla
kl. 1 8.00-1 9.00 Glerárskóli
kl. 20.00-21 .OO Glerárskóli
kl. 1 1 .00-12.30 Glerárskóli
Glerárskóli
Glerárskóli
Meistaraflokkur kvenna
Þriðjudaga kl. 20.30-22.00
Miðvikudaga kl. 18.00-19.00
Fimmtudaga kl. 22.00-23.00
Sunnudaga kl. 15.00-16.00
3. flokkur kvenna
Þriðjudaga kl. 21.00-22.00
Miðvikudaga kl. 21.00-22.00
Höll
Skemman
Höll
Skemman
Glerárskóli
Glerárskóli
4. flokkur kvenna
Miðvikudaga kl. 17.00-18.00 Glerárskóli
Sunnudaga kl. 16.15-17.30 Glerárskóli
Þessi æfingatafla verður í gildi í vetur
Jlr
Sundlaugarbyggingin á Grenivík bíður vorsins, en þá verður hafist handa á ný.
Mynd: OB
Grýtubakkahreppur:
Búið að steypa upp
fyrir sundlauginní
- vatn úr tilraunaborholu ekki nógu heitt
I sumar var borað fyrir heitu
vatni, sem hugsanlega gæti
nýst til upphitunar sundlaug-
ar á Grenivík. Nú fyrir
skömmu kom upp 20 gráðu
heitt vatn í borholu við Bárð-
artjörn. Búið er að steypa
upp fyrir sundlauginni.
Guðný Sverrisdóttir sveitar-
stjóri í Grýtubakkahreppi sagði
að nóg rennandi vatn hefði
fundist, en það væri ekki nægi-
lega heitt til upphitunar sund-
laugarinnar. „Við verðum að
kaupa okkur varmadælu til við-
bótar," sagði Guðný.
Hafist var handa við sund-
laugarbygginguna í sumar og
sagði Guðný óráðið hvenær
hægt verður að taka hana í
notkun. „Bjartsýnustu menn
gæla við næsta sumar," sagði
hún um það atriði.
Sundlaugin er 8xl6 metrar að
stærð og verður til að byrja meö
útisundlaug, cn uppi eru áform
um að byggja yfir hana síðar
meir. Heildarkostnaður við
sundlaugarbygginguna var áætl-
aöur samkvæmt verðlagi í sept-
ember 1987 um 8,8 milljónir
króna og fyrsti áfanginn, sem er
uppsteypan á 2,5 milljónir.
mþþ
Treg skotveiði:
Tíðarfarið hagsteett
fyrir gæsína
Gæsaveiöi viröisl ekki hafa
gengið sem skyldi á Eyjafjarö-
arsvæðinu í haust, en að sögn
bænda á svæðinu hefur verið
skotið minna af gæs hjá þeim
en undanfarin ár. I Skagafirð-
inum þar sem venjulega er
mikið um gæs er sömu sögu að
scgja, en þar mun hafa veiðst
ákaflega lítið.
I Húnavatnssýslum er útlitiö
eitthvað betra og eru dæmi þess
að tvcir mcnn hafi fengið rúm-
lega 70 gæsir á tveimur helgum.
„Eg hcld nú að það sé ekki minni
gæsaveiði en undanfarin ár og
sala á gæsaskotum hefur t.d. vcr-
ið svipuð og venjulega. Að vísu
hefur þetta verið aðeins öðruvísi
núna, þar sem tíðin hefur verið
hagstæð fyrir gæsina," sagði
Einar Long hjá Eyfjörð í samtali
við Dag, en hann er öllum hnút-
um kunnugur í þessum málum.
„Kuldinn hefur verið minni, lítill
snjór í fjöllum og þær koma því
síöur niður. Þá er gæsin styggari
núna cn áður, en þegar snjór er á
jörðu er hún ekki eins vör um
sig." Hann sagði enn töluvert um
gæs fyrir norðan, t.d. frammi í
Eyjafirði.
Aöspurður um hvort bændur
lcyföu almennt aö skotið væri hjá
þeim, sagði hann það yfirleitt
vera. Þó væri alltaf eitthvað um
skyttur sem ekki bæðu um leyfi
og væri það ekki heppilegt auk
þess sem það skapaði hættu.
Einar sagði áhuga á gæsa-
skytteríi mikinn og reiknaði með
að hann myndi aukast þegar liði
að rjúpnaveiðitímanum. VG
Siglufjörður:
Kcnnara-
laun jöfriuð
- óánægja væntanlega
úr sögunni
Bæjarstjórn Siglufjarðar ákvað
á fundi sínuni nýlega, að verða
við ósk skólanefndar varðandi
jöfnuð á hlunnindagreiðslum
til kennara.
Um nokkurn tíma hefur ríkt
megn óánægja á staðnum vegna
hlunnindagreiðslna til aðkomu-
kennara, á meðan heimamenn
sátu á hakanum. I sumar var
ákveðið að greiða réttindakenn-
urum sem kæmu til starfa
ákveðna upphæð, en það sam-
ræmdist ekki hugmyndum skóla-
nefndar sem vildi að allir, jafnt
kennarar sem leiðbeinendur sætu
við sama borð.
Nú var hins vegar ákveðið að
greiða öllum, kennurum sem
ieiðbeinendum sömu hlunnindi.
VG
„Sala á gæsaskotum het'ur verið svipuð og undanfarin ár,“ segir Einar Long
hjá versluninni Eyfjörð.