Dagur - 06.10.1988, Qupperneq 5
6. októbér 1988 - DAGCJR - 5
kvikmyndarýni
jlJón Hjaltason
Holly Hunter, William Hurt og Albert Brooks voru öll tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir frammistöðu sína í Sjón-
varpsfréttum.
Til sölu
mjög gott verslunar- eða iðnaðar-
húsnæði við Oseyri.
Húsnæöið er um 150 fm og er á jaröhæð. Hent-
ugt fyrir hvers konar starfsemi.
Uppl. gefur Fasteignasalan
Brekkugötu 4, sími 21744.
Barnanáttföt
Stærðir 100-140. Verð kr. 520,-
Telpnanáttkjólar
Stærðir 2-6. Verð kr. 510,-
Barnanáttföt
Stærðir 2-6. Verð kr. 660,-
Skíðahanskar bama
Stærðir 4-10. Verð frá kr. 275,-
ETFJÖRÐ BE
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
Í|S|®
m
Venjulegt fólk
aldrei þessu vant
Borgarbíó sýnir:
Sjónvarpsfréttir (Broadcast News).
Leikstjóri: James L. Brooks.
Aðalhlutverk: William Hurt, Albert Brooks
og Holly Hunter.
Twentieth Century Fox 1987.
Eitt andartak eða kannski tvö
birtist kunnuglegt andlitið á
tjaldinu. Ég glenni upp augun.
Petta er sjálfur Jack Nicholson að
lesa fréttir í sjónarpinu. Það sem
vekur undrun og nokkra athygli
(og það er líklega tilgangurinn)
við þátt Nicholsons í nýjustu
mynd James L. Brooks, Sjón-
varpsfréttum, er hversu lítilfjör-
legur hann er. Leikarinn frægi er
rétt aðeins nógu lengi á tjaldinu
til að allir geti áttað sig á návist
hans en ekki mínútu fram yfir
það og er myndin þó löng.
En þetta er ekki það eina sem
vekur athygli þegar Sjónvarps-
fréttir ber á góma.
Fyrir það fyrsta þá var hún í apríl
síðastliðnum tilnefnd til sjö Ósk-
arsverðlauna. Hún þótti líkleg til
að verða kjörin besta mynd árs-
ins 1987. William Hurt gerði til-
kall til Óskarsins fyrir besta leik
karlmanns í aðalhlutverki og
sömu sögu var að segja um Holly
Hunter nema hvað þar voru
kvenhlutverk undir smásjánni.
Þá var Albert Brooks á höttunum
eftir styttunni eftirsóttu fyrir
bestan leik í aukahlutverki en af
þessum þremur hafði hann vafa-
lítið mestu möguleikana á að
hreppa hnossið. Það vildi bara
svo illa til að á árinu sem leið lék
Sean Connery hlutverk lögreglu-
þjóns í Hinum vammlausu (The
Untouchables) sem í raun og
veru var aðalhlutverk en þó
flokkað sem aukahlutverk.
En það var ekki nóg með að allir
þrír helstu leikararnir í Sjón-
varpsfréttum væru í úrslitum
keppninnar um Óskarinn, heldur
var hún einnig með í keppninni
um besta handritið, sem leik-
stjórinn sjálfur James L. Brooks
samdi, bestu kvikmyndatöku-
stjórnina og bestu klippinguna.
Og hver varð svo uppskeran? í
Óskörum talið engin. Síðasti
keisarinn hans Bertoluccis sópaði
til sín níu styttum og kastaði
dimmum skugga yfir Sjónvarps-
fréttir Brooks.
Það er þó síður en svo ástæða fyr-
ir íslenska áhorfendur að hunsa
Sjónvarpsfréttir, styttuleysið er
enginn merkimiði fyrir okkur
bíófara að fara eftir. Þótt þetta sé
aðeins önnur myndin sem Brooks
leikstýrir þá verður það ekki séð
á handbragðinu. Sjónvarpsfréttir
er þvert á móti athyglisvert fram-
lag í hið útbelgda safn banda-
rískra kvikmynda sem tröllriðið
hafa heiminum síðustu áratug-
ina. Það er svo sem ekki að
ástæðulausu að Kanarnir eigna
sér bíómyndagerðina og kalla
hana hina amerísku listgrein.
Hængurinn er bara sá að það er
byrjað að falla allverulega á
þessa list í meðförum banda-
rískra leikstjóra. Ákveðin tegund
mynda, sem ég hika ekki við að
kalla formúlumyndir, veður uppi
og fáir þora að reka upp öðruvísi
vein af ótta við að verða falskir.
Skondið en svona er þetta.
Ástæðan fyrir þessari stundum
kátlegu taktfestu er einföld; pen-
ingar. Það eru miklar upphæðir
settar undir í þessu spili og tapið
getur orðið óheyrilegt.
Vegna þessa er ákaflega ánægju-
legt að sjá að hugrekki er enn að
finna í stóru bandarísku kvik-
myndaverunum. Sjónvarpsfréttir
eru lýsandi dæmi um slíka
dirfsku. í myndinni er varla
nokkur formúla, engin klisja.
Upphafið er jafn frábrugðið því
sem við eigum að venjast og
endirinn sem er vægast sagt ákaf-
lega óbandarískur. Það er ekkert
endanlega útkljáð, bíómyndinni
lýkur óhjákvæmilega en æviskeið
persónanna er langt því frá á
enda runnið. það er óneitanlega
breskur blær yfir þessum mála-
lokum og raunar er ekki frítt við
að myndin öll sé á breskum
nótum. Hún segir ekki nein stór-
tíðindi, morð, rán eða mútur eru
ekki á dagskrá. Engin ofurmenni
heldur eða skálkar. Fólkið er
venjulegt og umhverfið senni-
legt. Því verður þó ekki neitað að
Brooks á svolítið í land með að
ráða fullkomlega yfir þeirri tækni
að segja sögu venjulegs fólks af
sömu snilld og frændur hans aust-
an hafs. Kannski er ég þó í þessu
að villast á ólíkum grundvallar
skapgerðareinkennum Banda-
ríkjamanna og Breta sem gera þá
fyrrnefndu svolítið yfirborðslega
en hina aftur hæggengari en um
leið meira traustvekjandi - og
meiri tilfinningaverur þegar öllu
er á botninn hvolft.
Þrátt fyrir að Sjónvarpsfréttir
birti okkur ósköp venjulegt fólk
þá er atvinna þess þannig að í
hugum sumra er það sveipað
ákveðnum dýrðarljóma. Myndin
er nefnilega, eins og nafnið ber
með sér, um starfsfólk hjá einni
af stóru sjónvarpsstöðvunum í
Bandaríkjunum. Erillinn er mik-
ill og baráttan hörð fyrir lifi-
brauðinu. En það er enn ein rós í
hnappagat Brooks að hann er
aldrei neitt nálægt því að falla í
þá gryfju að setja persónurnar á
stall. Myndina í gegn eru þær
mannlegar, jafnt í sigrum sem
ósigrum, ást sem öfund.
JC AKUREYRI
er félagsskapur fyrir
ungt fólk
áaldrinum 18-40 ára
JC er alþjóðlegur félagsskapur, sem hefur
þjálfun einstaklingsins að leiðarljósi. JC á fjöl-
mörg félagsmála- og stjórnunarnámskeið.
Námskeið sem haldin verða á vegum JC Akureyrar fyr-
ir áramót eru:
ísbrjóturinn
Eykur sjálfstraust, léttir af þeim hömlum, sem kunna aö vera á eðlilegri og
frjálslegri tjáningu i töluðu máli. (6 kvölda námskeið).
Hefst þriðjudaginn 11. október.
Leiðbeinandi: Magga Alda Magnúsdóttir.
Fundarsköp og fundarstjórn
Þjálfar þátttakendur í að taka virkan þátt í fundastörfum og stjórna fundum
samkvaemt réttum fundarsköpum.
Verður haldið helgina 14.-16. október.
Leiðbeinandi Eggert J. Levy.
Óskipulagði stjórnandinn
Sýnir þörf skipulags, forgangsröðunar og tímastjórnunar. Höfðar vel til fólks i
stjórnunarstörfum.
Verður haldið föstudaginn 4. nóvember.
Leiðbeinandi Þorsteinn Fr. Sigurðsson rekstrarhagfræðingur.
Fundargerðaritun
Kennir hvað skrifa á í fundargerðir á hinum mismunandi fundum.
Haldið helgina 14.-16. október.
Leiðbeinandi Rannveig Sigurðardóttir landsritari JC Islands.
Bansettu fundirnir
Kennir mikilvægi góörar skipulagningar á fundum.
Verður haldið laugardaginn 5. nóvember.
Leiðbeinandi Þorsteinn Fr. Sigurðsson rekstrarhagfræðingur.
Happdrætti
Vinningshafar fá ókeypis þátttöku á ofangreind námskeið.
Vinningsnúmer: 925, 937, 1260, 1313, 3252, 4006, 4007, 4980, 5023, 5430.
Námskeiðin eru öllum opin.
Upplýsingar og innritun í símum 26650 og 26511
(Halldór) eða 24509 og 27322 (Hallgrímur).
BÚÁLFUR SÍÐAN 1210
Lifrarkæfu
Papriku paté
Karrý paté
Skinku paté
Veisluskinku
Sklnku
Hangiáleggi
Rúllupyisu
Lambasteik